Skip to main content
Umsögn

Framkvæmdaáætlun fyrir norrænt samstarf um málefni fatlaðs fólks 2018–2022

By 30. nóvember 2020No Comments
© Norræna ráðherranefndin, 2018. ÖBÍ birtir hér texta framkvæmdaáætlunarinnar til að þú getir hlustað á hana með ReadSpeaker eða notað þann hugbúnað sem þú notar dagsdaglega. Hér er PDF-útgáfa

Myndir úr skýrslunni

Norrænt samstarf

Norræna samstarfið er eitt umfangsmesta svæðasamstarf í heimi. Samstarfið byggist á legu landanna, sameiginlegri sögu þeirra og menningu. Að samstarfinu koma Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð auk Álandseyja, Færeyja og Grænlands.

Norræna samstarfið er pólitískt, efnahagslegt og menningarlegt og lætur muna um sig í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi. Löndin stuðla sameiginlega að öflugum Norðurlöndum í öflugri Evrópu.

Með norrænu samstarfi er hagsmuna svæðisins gætt og norræn gildi efld í hnattrænu samhengi. Sameiginleg gildi landanna styrkja stöðu Norðurlanda og skipa þeim meðal þeirra svæða í heiminum þar sem nýsköpun og samkeppnishæfni er mest.

Þessi framkvæmdaáætlun er stefnumótandi samstarfsskjal Norrænu ráðherranefndarinnar um málefni fatlaðs fólks. Hún nær til ráðherranefndarinnar í heild sinni og hefur þrjú áherslusvið:

Mannréttindi

Að styðja og efla starf um innleiðingu og eftirlit með samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í löndunum.

Sjálfbær þróun

Að efla þátttöku allra með algildri hönnun mismunandi umhverfis, stuðla að jafnrétti og vinna gegn mismunun fatlaðs fólks á öllum sviðum norræns samfélags með stefnumótandi samþættingu fötlunarsjónarmiða í starfi að sjálfbærri þróun.

Frjáls för

Að stuðla að frjálsri för og afnema stjórnsýsluhindranir sem einkum bitna á fötluðu fólki.