Hér getur þú leitað að einhverju á síðu obi.is,
sláðu inn leitarorðið og leitaðu
Fjóla, félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu var stofnað 15. mars 1994 og eru félagsmenn og styrktarfélagar nú um 50 talsins. Tilgangur félagsins er að vinna að hvers kyns hagsmuna- og menningarmálum fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Helstu verkefni eru fræðsla og ráðgjöf. Gerður er greinarmunur á daufblindfæddum, síðdaufblindum og þeim sem verða daufblindir á gamals aldri, en sá hópur fer ört vaxandi.