Skip to main content
Umsögn

um mannréttindavernd fatlaðs fólks

By 12. janúar 2018No Comments
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), haldinn 20. – 21. október 2017, hvetur alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að tryggja að staðið verði við þingsályktun frá 20. september 2016.

Er þannig skorað á alþingismenn að tryggja að valkvæður viðauki við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði fullgiltur fyrir árslok 2017, í samræmi við þingsályktunina. Viðaukinn kveður á um kæruleið fyrir þá sem telja á sér brotið og er þannig mikilvægur þáttur í því að gæta þeirra réttinda sem tryggja á með samningnum. Þingsályktun frá 20. september 2016 er hér: http://www.althingi.is/altext/145/s/1693.html