Lög Öryrkjabandalags Íslands
1. kafli - Nafn, hlutverk og markmið
1. gr. Nafn, félagar og varnarþing
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) er heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi.
Bandalagið er myndað af aðildarfélögum fatlaðs fólks, öryrkja, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og aðstandenda þeirra.
Starfssvæði bandalagsins er Ísland. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Hlutverk og markmið
Bandalagið er hagsmuna- og mannréttindasamtök fatlaðs fólks. Markmið bandalagsins er að íslenskt þjóðfélag verði samfélag jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar, óháð líkamlegu og andlegu atgervi, njóti mannsæmandi lífskjara og jafnra möguleika til sjálfstæðs lífs og virkrar samfélagslegrar þátttöku.
Hlutverk bandalagsins er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks gagnvart opinberum aðilum í hverskyns hagsmunamálum svo sem varðandi löggjöf, framkvæmd hennar og í dómsmálum er snerta rétt þess.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er leiðarljós í vinnu bandalagsins.
2. kafli – Aðild
3. gr. Aðild að ÖBÍ
Almenn aðild– fyrir hagsmunafélög fatlaðs fólks.
4. gr. Skilyrði aðildar
Öll aðildarfélög skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:
-
Félagið skal starfa eftir samþykktum lögum sem samræmast hlutverki og markmiðum bandalagsins.
-
Félagið skal vera lagalega og fjárhagslega sjálfstætt gagnvart öðrum aðildarfélögum.
-
Félagið skal hafa starfað í þrjú heil reikningsár.
-
Félagið skal hafa allt landið að starfssvæði sínu.
5. gr. Umsókn um aðild
Umsókn um aðild skal berast stjórn ÖBÍ hið minnsta þremur mánuðum fyrir aðalfund ásamt:
- Afriti af lögum félagsins.
- Afriti af endurskoðuðum ársreikningum þriggja síðustu ára.
- Nöfnum stjórnarmanna og þeirra sem skipa trúnaðarstöður.
Í framhaldi af því skal trúnaðarmaður skipaður sameiginlega af umsóknarfélagi og stjórn ÖBÍ. Umsóknarfélag skal veita trúnaðarmanni heimild til að skoða skrá yfir alla félagsmenn.
Stjórn skal synja umsókn nema að uppfylltum öllum skilyrðum. Umsóknin verður þá ekki lögð fyrir aðalfund.
Inntaka nýrra aðildarfélaga tekur gildi við aðalfundarslit.
6. gr. Réttindi og skyldur aðildarfélaga
Réttindi aðildarfélaga eru:
- Full þátttaka í öllu starfi bandalagsins.
- Kjörgengi og atkvæðisréttur fulltrúa þeirra.
- Aðgangur að þjónustu bandalagsins.
- Réttur til að sækja um styrki bandalagsins samkvæmt gildandi reglum.
Aðildarfélög skulu greiða aðildargjöld í samræmi við ákvörðun aðalfundar, sbr. 25. gr.
7. gr. Úrsögn
Aðildarfélag getur sagt sig úr ÖBÍ. Skrifleg úrsögn skal berast stjórn bandalagsins, undirrituð af meirihluta stjórnar félagsins og tekur þegar gildi. Hafi vanskil á gögnum sbr. 10. gr. laganna varað í meira en fjögur ár samfellt hefur félagið sjálfkrafa sagt sig úr bandalaginu.
Bráðabirgðaákvæði við 7. gr.
Hið fjögurra ára tímabil í 3. ml. 7. gr. getur í fyrsta lagi byrjað að telja frá aðalfundi 2018.
8. gr. Brottvikning félags
Aðalfundur getur vikið aðildarfélagi úr bandalaginu vinni það gegn hagsmunum bandalagsins eða gegni ekki þeim skyldum sem því ber samkvæmt lögum þessum. Samþykki a.m.k. 2/3 hluta atkvæðisbærra aðalfundarfulltrúa þarf til brottvikningar.
3. Kafli - Aðalfundur
9. gr. Almennt ákvæði
Aðalfundur, fer með æðsta vald í málefnum bandalagsins. Fundinn skal halda í október ár hvert. Fundurinn er lögmætur sé löglega er til hans boðað og ef helmingur aðalfundarfulltrúa er viðstaddur. Stjórn boðar til fundarins og skal hann boðaður með a.m.k.tveggja mánaða fyrirvara með bréfi til allra aðildarfélaga. Fundarstað og tíma skal tilgreina í fundarboði.
10. gr. Aðalfundarfulltrúar
Á aðalfundi eiga rétt til setu fulltrúar tilnefndir af hverju aðildarfélagi. Fjöldi fulltrúa hvers aðildarfélags ræðst af eftirfarandi:
- Félag með hundrað fullgilda félaga eða færri fær tvo fulltrúa.
- Félag með 101 til 1000 fullgilda félaga fær þrjá fulltrúa.
- Félag með 1001 til 2000 fullgilda félaga fær fjóra fulltrúa.
- Félag með 2001 til 3000 fullgilda félaga fær fimm fulltrúa.
- Félag með 3001 og fleiri fullgilda félaga fær sex fulltrúa.
Fjöldi fullgildra félaga reiknast eftir gildandi lögum viðkomandi félags, þó skulu ekki teljast með þeir einstaklingar sem eingöngu styrkja félögin í gegnum einstaka fjáraflanir og njóta ekki fullra réttinda sem félagar.
Í síðasta lagi sex vikum fyrir aðalfund skulu aðildarfélög skila til stjórnar lista yfir aðalfundarfulltrúa og varamenn. Félögin skulu leitast við að fulltrúar þess endurspegli mismunandi kyn, aldur og búsetu eftir því sem kostur er.
Aðildarfélög skulu í síðasta lagi sex vikum fyrir aðalfund skila ársskýrslu, staðfestum ársreikningi og lögum, hafi þeim verið breytt, til stjórnar. Félagaskrá skal yfirfarin í samræmi við ákvæði 5. gr. Félög sem hafa ekki veitt trúnaðarmanni aðgang að félagaskrá, skila ekki staðfestum ársreikningi eða eru í vanskilum með aðildargjöld fá einn fulltrúa á aðalfundi. Hafi vanskil á gögnum varað í 3 ár samfellt, fær félagið engan fulltrúa á aðalfundi.
11. gr. Dagskrá aðalfundar
Aðalfundi skal stjórnað samkvæmt almennum fundarsköpum. Aðalfundur skal hefjast á fundarsetningu og kjöri fundarstjóra, fundarritara og þriggja talningarmanna.
Á aðalfundi skal taka eftirfarandi mál til meðferðar og afgreiðslu:
A. Almenn fundarstörf
1. Skýrslu stjórnar.
2. Reikninga bandalagsins.
3. Skýrslur fastra málefnahópa.
4. Skýrslur fyrirtækja.
5. Stefnu og starfsáætlun stefnuþings.
6. Ákvörðun aðildargjalda.
7. Þóknun fyrir stjórnarsetu.
B. Kosningar í stjórn skv. 18. gr. A til tveggja ára
8. Kosning formanns.
9. Kosning varaformanns.
10. Kosning gjaldkera.
11. Kosning formanna fastra málefnahópa.
12. Kosning stjórnarmanna.
13. Kosning varamanna.
C. Aðrar kosningar til tveggja ára
14. Kosning fimm manna kjörnefndar og tveggja til vara.
15. Kosning fimm manna laganefndar og tveggja til vara.
16. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara.
D. Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir og önnur mál
17. Lagabreytingar.
18. Aðildarumsóknir.
19. Ályktanir aðalfundar.
20. Önnur mál.
12. gr. Kjörgengi og atkvæðagreiðslur
Fulltrúar aðildarfélaga sem sitja fundinn hafa atkvæðisrétt. Allir aðal- og varafulltrúar sinna félaga hafa kjörgengi í öll embætti á aðalfundi að teknu tilliti til uppfylltra skilyrða um kjörgengi.
Í öllum málum ræður einfaldur meirihluti, ef ekki er kveðið á um annað í þessum lögum. Atkvæðagreiðslur skulu vera leynilegar, sé þess óskað. Hafi tveir eða fleiri frambjóðendur hlotið jafnmörg atkvæði og röð þeirra skiptir máli ræður hlutkesti, nema tillaga komi fram um annað.
Kjósa má allt að jafnmarga frambjóðendur og þau sæti sem í boði eru hverju sinni.
Fulltrúar í öllum embættum sem kosið er um á aðalfundi geta setið að hámarki í þrjú heil kjörtímabil samfellt í sama embætti. Hafi einstaklingur verið kosinn á miðju kjörtímabili getur hann klárað það auk þriggja heilla tímabila, þ.e. alls að hámarki 7 ár. Öll hlutverk innan stjórnar, þar með taldir varamenn, teljast sem seta í sama embætti þegar samfelldur tími er reiknaður samkvæmt þessu ákvæði. Seta í formannsembætti ÖBÍ er óháð fyrri stjórnarsetu.
13. gr. Framboð í trúnaðarstöður og hlutverk kjörnefndar
Kjörnefnd skal hið minnsta tveimur mánuðum fyrir aðalfund óska eftir framboðum í trúnaðarstöður. Framboð skulu berast kjörnefnd eigi síðar en einum mánuði fyrir aðalfund. Kjörnefnd skal tryggja næg framboð í þau embætti sem kosið er um. Kjörnefnd skal einnig tryggja fjölbreytni framboða með tilliti til jafnræðis milli fötlunarhópa. Jafnframt skal hún líta til annarra atriða sem talin eru skipta máli, svo sem kynja, búsetu og aldurshópa.
Ef fulltrúi hættir áður en kjörtímabili lýkur er kosið í það embætti á næsta aðalfundi.
Kjörnefnd skal senda aðalfundarfulltrúum lista með nöfnum frambjóðenda eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Allir frambjóðendur eiga sama rétt á að kynna sig, þ.á.m. á aðalfundi. Berist framboð of seint eru þau háð samþykki aðalfundar.
14. gr. Lagabreytingar
Lagabreytingatillögur skulu vera skriflegar og sendar stjórn eða starfsmanni ÖBÍ í síðasta lagi fjórum vikum fyrir aðalfund. Þær skulu sendar aðalfundarfulltrúum í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund.
Lagabreyting þarfnast samþykkis a.m.k. 2/3 atkvæðisbærra aðalfundarfulltrúa.
15. gr. Ályktanir aðalfundar
Tillögur að ályktunum sem leggja á fyrir aðalfund, skulu vera skriflegar og sendar stjórn eða starfsmanni ÖBÍ í síðasta lagi fjórum vikum fyrir aðalfund. Þær skulu sendar aðalfundarfulltrúum eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Tillögum sem berast eftir tiltekinn frest er hægt að koma á dagskrá aðalfundar með samþykki a.m.k. 2/3 atkvæðisbærra aðalfundarfulltrúa.
16. gr. Framhaldsaðalfundur
Framhaldsaðalfund er hægt að halda um mál sem ekki tekst að ljúka á aðalfundi. Hann skal haldinn svo fljótt sem verða má þó eigi síðar en fjórum vikum eftir frestun fundar.
Framhaldsaðalfundur getur aðeins fjallað um þau mál, sem voru tilefni þess að fundurinn var boðaður.
Seturétt á framhaldsaðalfundi eiga þeir sem áttu seturétt á hinum frestaða fundi.
17. gr. Aukaaðalfundur
Stjórn bandalagsins getur boðað til aukaaðalfundar, þegar afar mikilvæg og óvænt mál ber að höndum. Skylt er stjórn að kalla saman aukaaðalfund ef þriðjungur aðildarfélaga krefst þess skriflega og greini þau mál sem leggja á fyrir fundinn. Aukaaðalfundur getur aðeins fjallað um þau mál sem voru tilefni þess að fundurinn var boðaður.
Fundurinn skal kvaddur saman með eins skömmum fyrirvara og aðstæður frekast leyfa þó aldrei með styttri en einnar viku fyrirvara. Reglur um aðalfund skulu gilda eftir því sem við á.
4. kafli – Innra starf bandalagsins
18. gr. Stjórn
A. Kosning og hlutverk stjórnar
Stjórn samanstendur af nítján stjórnarmönnum: formanni, varaformanni, gjaldkera, fimm formönnum fastra málefnahópa og ellefu öðrum stjórnarmönnum. Stjórn er kosin á aðalfundi úr hópi aðalfundarfulltrúa sem boðið hafa sig fram til trúnaðarstarfa skv. 13. gr. Jafnframt skal aðalfundur kjósa þrjá varamenn sem hafa seturétt á stjórnarfundum. Stjórnarmenn sitja í umboði aðalfundar en ekki einstakra aðildarfélaga.
Meirihluti stjórnar skal skipaður fötluðu fólki eða aðstandendum fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu. Með fötlun er vísað til skilnings Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Formaður og varaformaður skulu vera fatlaðir einstaklingar eða aðstandendur fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.
Á oddatöluári skal kjósa formann, formenn fastra málefnahópa og fjóra stjórnarmenn. Á ári sem kemur upp á sléttri tölu skal kjósa varaformann, gjaldkera, sjö stjórnarmenn og þrjá varamenn. Fjöldi atkvæða ræður röð varamanna. Ef kjósa þarf varamann til skemmri tíma en tveggja ára, verður hann síðastur í röð varamanna.
Stjórn fer með æðsta vald bandalagsins á milli aðalfunda. Meginhlutverk stjórnar er að framfylgja lögum og stefnu bandalagsins. Stjórn gerir starfssamning við formann.
B. Stjórnarfundir
Stjórnarfundir skulu haldnir a.m.k. átta sinnum á ári. Formaður boðar til stjórnarfunda með minnst viku fyrirvara nema sérstakar aðstæður kalli á annað. Stjórnarfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og meirihluti stjórnarmanna er mættur.
19. gr. Formannafundir
Formannafundir skulu haldnir minnst tvisvar á ári. Tilgangur formannafunda er að tryggja samráð og upplýsingamiðlun milli stjórnar og aðildarfélaga.
Formannafundir skulu boðaðir með a.m.k. tíu daga fyrirvara og tilkynning um fulltrúa berist bandalaginu eigi síðar en viku fyrir fund. Boðaðir skulu allir formenn aðildarfélaga. Formenn mega senda annan fulltrúa í sinn stað.
20. gr. Framkvæmdastjóri
Stjórn ræður framkvæmdastjóra og gerir við hann ráðningarsamning. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri gagnvart stjórn og aðalfundi. Framkvæmdastjóri ræður aðra starfsmenn og gerir við þá ráðningarsamninga sem háðir eru samþykki stjórnar.
21. gr. Framkvæmdaráð
Innan bandalagsins skal starfa framkvæmdaráð. Framkvæmdaráð afgreiðir mál milli stjórnarfunda og leggur meiri háttar mál í hendur stjórnar. Þá getur stjórn einnig vísað málum til framkvæmdaráðs til frekari útfærslu og afgreiðslu.
Í ráðinu sitja formaður, varaformaður og gjaldkeri. Jafnframt skal stjórn tilnefna úr sínum röðum tvo aðalmenn og tvo varamenn. Varamenn geta sótt alla fundi framkvæmdaráðs og eiga rétt á öllum fundargögnum.
Heimilt er að boða framkvæmdastjóra á fundi framkvæmdaráðs. Framkvæmdastjóri hefur mál- og tillögurétt, en ekki atkvæðarétt.
22. gr. Stefnuþing
Stjórn skal boða til stefnuþings a.m.k. annað hvert ár með minnst tveggja mánaða fyrirvara. Stefnuþingið skal haldið á fyrsta ársþriðjungi. Hlutverk þess er að móta stefnu og áherslur í sameiginlegum hagsmunamálum. Stefnuþing sitja fulltrúar allra aðildarfélaga og eru skipaðir með sama hætti og aðalfundarfulltrúar, sbr. 10. gr.
Stefnuþing gerir tillögu til aðalfundar um stefnu og áherslur í starfi bandalagsins sem og hvaða föstu málefnahópar skulu starfa innan þess.
23. gr. Málefnahópar
Innan bandalagsins skulu starfa fimm fastir málefnahópar. Hlutverk þeirra er að leggja fram tillögur í hagsmunamálum í samræmi við áherslur stefnuþings. Aðalfundur ákveður málefni þeirra eftir tillögu stefnuþings. Formenn þeirra skulu kosnir á aðalfundi.Hvert félag getur átt mest einn formann málefnahóps á hverjum tíma.
Stjórn velur einstaklinga í málefnahópa að fengnum tilnefningum frá aðildarfélögunum. Meðlimir hvers málefnahóps skulu vera sjö að hámarki að formanni meðtöldum. Stjórn skal leitast við að gæta jafnræðis á milli aðildarfélaga við skipun í málefnahópa. Fulltrúar í málefnahópum geta setið að hámarki í hverjum hópi í þrjú heil kjörtímabil samfellt. Seta sem formaður málefnahóps er óháð fyrri setu í málefnahópi.
Málefnahópur skal kjósa sér varaformann. Hverfi formaður málefnahóps úr embætti sínu tekur varaformaður hópsins við sem starfandi formaður fram að næsta aðalfundi. Hann tekur einnig sæti formanns málefnahópsins í stjórn en þó án atkvæðisréttar. Varamaður í stjórn tekur þá við atkvæðisrétti formanns málefnahópsins. Ákvæði síðasta málsliðar 1. mgr. á ekki við um starfandi formann.
Málefnahópar skulu gefa stjórn stöðuskýrslu á a.m.k. sex mánaða fresti. Formenn þeirra skulu hafa samráð sín á milli.
24. gr. Laganefnd
Innan bandalagsins skal starfa laganefnd. Hún vinnur að lagfæringum og breytingum á lögum ÖBÍ.
5. kafli – Tekjur og uppgjör
25. gr. Tekjur bandalagsins
Tekjum frá Íslenskri getspá skal varið samkvæmt lögum þar um og öðrum tekjum skal ráðstafað í samræmi við hlutverk og markmið bandalagsins. Aðalfundur ákveður aðildargjöld félaganna.
26. gr. Reikningsár og ársreikningar
Reikningsár bandalagsins er almanaksárið. Endurskoðaðir ársreikningar skulu lagðir fyrir stjórn sem leggur þá fyrir aðalfund til fullnaðarafgreiðslu. Endurskoðaðir reikningar skulu liggja fyrir eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund og skulu sendir aðalfundarfulltrúum eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
6. kafli – Önnur ákvæði
27. gr. Nánari framkvæmd
Stjórn er heimilt að setja reglur um nánari framkvæmd einstakra lagagreina og skulu þær birtar aðildarfélögum. Slíkar reglur skulu ávallt rúmast innan ramma viðkomandi greina og þessara laga.
28. gr. Slit bandalagsins
Bandalagið verður einungis lagt niður berist um það tillaga sem samþykkt er af meirihluta stjórnar. Tillagan skal kynnt við boðun næsta aðalfundar og þarf samþykki a.m.k. 2/3 hluta atkvæðisbærra aðalfundarfulltrúa. Verði bandalagið lagt niður skal eignum þess varið í þágu fatlaðs fólks samkvæmt ákvörðun síðasta aðalfundar.
29. gr. Gildistaka
Lög þessi taka gildi við lok aðalfundar. Jafnframt falla úr gildi eldri lög Öryrkjabandalags Íslands.
Bráðabirgðaákvæði um kosningu stjórnarmanna
Þrátt fyrir ákvæði þessara laga halda kjörnir fulltrúar umboði sínu fram að lokum aðalfundar 2015. Á aðalfundi 2015 verður kosið í allar stöður stjórnar- og trúnaðarmanna samkvæmt þessum lögum og halda þeir umboði sínu til eins eða tveggja ára eftir því sem segir í 18. gr. A.
Atkvæðafjöldi ræður því hvaða fjórir stjórnarmenn eru kjörnir til tveggja ára.
Tímabil það sem nefnt er í 4. mgr. 18. gr. A. gildir frá aðalfundi 2015.
Tímabil þau sem nefnd eru í 4. ml. 4. mgr. 10. gr., 4. mgr. 13. gr., 2. mgr. 23. gr. og 24. gr. gilda frá aðalfundi 2017.
Samþykkt á aðalfundi ÖBÍ 13. nóvember 2014. Lögunum var síðast breytt á aðalfundi 3. október 2020.