Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Samfélagsmiðlar og réttindabarátta [Fræðsluröð ÖBÍ]

25.01.2023 @ 16:00 - 19:00

kr.2.500

Næsta námskeið í Fræðsluröð ÖBÍ,  Samfélagsmiðlar og réttindabarátta, verður haldið miðvikudaginn 25. janúar nk. kl. 16-19:00.  Skráning hér.

Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta sérhæfða og öfluga möguleika samfélagsmiðla í réttindabaráttu og markaðsstarfi. Fjallað verður um samfélagsmiðlun sem virkar og hvernig ná má forskoti með mikilli útbreiðslu og lægri kostnaði en með hefðbundnum leiðum.

Leiðbeinandi: Margeir Steinar Ingólfsson

Margeir starfar sem ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni og hefur verið viðloðandi vefbransann í næstum 20 ár. Hann er líka þekktur undir nafninu DJ Margeir sem einn vinsælasti plötusnúður landsins. Hann stýrir mörgum síðum á samfélagsmiðlum sem sumar hafa náð feikilegum vinsældum og hefur sett upp margar og mismunandi herferðir á stafrænum miðlum með góðum, mælanlegum árangri.

Námskeiðið verður haldið hjá Hringsjá, Hátúni 10d. Þátttakendur greiða skráningargjald að upphæð kr. 2.500.-, annan kostnað ber ÖBÍ.


Fræðsluröð ÖBÍ 2023

  • Fræðsluröð ÖBÍ er ætluð starfsfólki og félagsmönnum aðildarfélaga bandalagsins.
  • Námskeiðin eru haldin í Hringsjá og á Teams.
  • ÖBÍ ber allan kostnað af námskeiðshaldinu utan skráningargjaldsins sem greiðist af þátttakanda eða því aðildarfélagi sem hann starfar fyrir eða er félagi í.

Upplýsingar

Dagsetning:
25.01.2023
Tími:
16:00 - 19:00
Cost:
kr.2.500
Viðburðir Flokkur:

Skipuleggjandi

ÖBÍ réttindasamtök
Phone:
530 6700
Email:
obi@obi.is
Skoða Skipuleggjandi Vefsíðu

Vettvangur

Hringsjá
Hátúni 10d
Reykjavík, 105 Iceland
+ Google Map