Skip to main content
Frétt

Samstaða við Alþingishúsið, 16. desember, kl. 15.00 til 16.00.

By 15. desember 2015No Comments
Samstaða verður við Alþingi daglega, í um klukkutíma í senn, alla vikuna. Fylgist vel með á Facebooksíðu og vef ÖBÍ um tímasetningu samstöðunnar hvern dag, en tímasetning getur breyst frá degi til dags.

Krefjumst þess að lífeyrisþegar fá afturvirka hækkun eins og aðrir þjóðfélagsþegnar og að hækkunin verði að lágmarki í samræmi við krónutöluhækkun lægstu launa í maí síðastliðnum.

Í fjárlagafrumvarpi ársins 2016 er gert ráð fyrir að lífeyrir almannatrygginga hækki frá 1. janúar 2016 um 9,4%. Sú hækkun myndi skila lífeyrisþegum rúmlega 13 þúsund króna hærri ráðstöfunartekjum mánaðarlega að hámarki.

Fjölmennum og sýnum samstöðu.

Málefnahópur ÖBÍ um kjaramál