Skip to main content
Frétt

„Ekki taka meira en þið eruð tilbúin að skammta öðrum“

By 6. desember 2018No Comments
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, gagnrýnir harðlega sveltistefnu stjórnvalda gagnvart örorkulífeyrisþegum. Ragnar Þór birtir stutta grein á Facebook þar sem hann fer yfir greiðslur örorkubóta og desemberuppbót, sem er smánarleg og margfalt minni en því sem launahæstu embættismönnum eru gefnar. Grein Ragnars Þórs fer hér á eftir. 
Ég fékk rétt í þessu sent yfirlit yfir greiðslur örorkubóta frá Tryggingastofnun. Þar kemur fram að desemberuppbót er kr.43.103 eða kr.27.180 eftir skatt.
Í heildina fékk viðkomandi greiddar heilar 230.636 kr. fyrir útgjöldum heimilisins og komandi jólahátíð, eftir að hafa greitt 49.639 kr. í skatt.
Það er ekki mikill hátíðarbragur yfir kjörum öryrkja og ellilífeyrisþega svo mikið er víst.
 

Svo er það sama uppá teningnum hjá stjórnvöldum sem fá 181.050 kr. í jólakjararáðsbónus (orlofsuppbót innifalin, ef rétt reynist).

Við hljótum að geta gert betur við þá sem höllustum fæti standa í okkar samfélagi. Ég hreinlega skammast mín fyrir að vera hluti af samfélagi sem kemur svona fram við okkar veikustu bræður og systur. 

Ég skora á stjórnvöld að gera betur. Ég skora á Alþingi, ef einhver vottur er af sjálfsvirðingu eftir, að skattleggja ekki fátækt. Allavega ekki í desember. Í það minnsta að taka ykkur ekki meira en þið eruð tilbúin að skammta öðrum.