Skip to main content
Frétt

Er leiðin greið? – málþing um aðgengi og aðferðafræði algildrar hönnunar

By 6. febrúar 2017No Comments

Öryrkjabandalag Íslands, ásamt Blindrafélaginu, Verkís hf. og Átaki – félagi fólks með þroskahömlun, býður til málþings um aðferðarfræði algildrar hönnunar. Málþingið er haldið í samvinnu við Ferðamálastofu, Mannvirkjastofnun og Vegagerðina.

Tími: föstudagurinn 10. mars, kl. 9-12:30

Staður: Grand hótel

Skráning:www.obi.is

Það skiptir alla máli að gengið sé út frá aðferðafræði algildrar hönnunar við framkvæmdir í samfélaginu. Aðgengi er mikilvægt öllum og ótækt annað en að allar leiðir séu öllum greiðar.

Á málþinginu verður fjallað um aðgengismál utandyra, innan bæjarfélaga og á ferðamannastöðum. Hvar erum við stödd í dag og hvert stefnum við?

Áhersla verður lögð á staðla og reglugerðarumhverfi á Íslandi og það borið saman við önnur ríki á Norðurlöndum.  Kynntar verða niðurstöður  rannsóknarverkefnis um þetta efni sem unnið var með stuðningi Verkís og Vegagerðarinnar.

Bent verður á leiðir til að hanna götur og torg út frá algildri hönnun með hliðsjón af þörfum fatlaðs fólks. Kynntar verða nýjar leiðbeiningar sem ÖBÍ gefur út.

Brugðið verður ljósi á stöðu aðgengismála á ferðamannastöðum á Íslandi. Sagt verður frá niðurstöðum úr ferð aðgengishóps Átaks – félags fólks með þroskahömlun, sem birtar voru í nýlegri skýrslu.

Fulltrúar frá Mannvirkjastofnun og Ferðamálastofu halda einnig erindi á málþinginu.

Málþingið er ókeypis og öllum opið. Boðið verður upp á veitingar í hádeginu.

Dagskrá málþingsins verður kynnt síðar.

Skráning hér

Rit- og táknmálstúlkun er í boði – óska þarf eftir túlkun við skráningu á málþingið.