Skip to main content
Flóttafólk og innflytjendurFréttSRFF

Fjögur samtök fatlaðs fólks minna á fatlað fólk á átakasvæðum

By 10. mars 2022janúar 29th, 2024No Comments
Fulltrúar fjögurra samtaka fatlaðs fólks afhentu utanríkisráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, áskorun samtakanna til íslenskra stjórnvalda, um að gera það sem í þeirra valdi stendur til að koma á friði í Úkraínu, og sérstaklega að gæta að öryggi fatlaðs fólks á átakasvæðunum.

Sagan geymir ótal dæmi þess að í ófriði er fatlað fólk oftar en ekki skilið eftir. Það á ekki sömu möguleika til að flýja, þau missa stuðningsfólk sitt og hjálpartæki og geta ekki nálgast nauðsynleg lyf.

Þessi sömu samtök standa þessa dagana fyrir söfnun svo betur megi aðstoða fatlað fólk á flótta.

Upplýsingar um söfnunina má finna hér, söfnunarreikningurinn er 526-26-5281, kt. 521176-0409.

 

Ályktunin er svohljóðandi:

Áskorun til stjórnvalda vegna fatlaðs fólks í Úkraínu

 

Átak – félag fólks með þroskahömlun, Tabú – feminísk fötlunarhreyfing, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands skora á stjórnvöld að grípa tafarlaust til aðgerða til að tryggja öryggi fatlaðra borgara í því stríði sem nú geysar í Úkraínu og koma á friði.

Fólk sem neyðist til að flýja heimili sín vegna stríðsátaka er allt í brýnni þörf fyrir stuðning og vernd. Ríkjum er skylt að veita þá vernd samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasamningum. Fatlað fólk sem býr á átakasvæðum eða neyðist til að flýja heimili sín er sérstaklega berskjaldað. Rannsóknir og reynslan sýna að fatlað og langveikt fólk á mun erfiðara með að flýja og getur síður nýtt sér almenna neyðaraðstoð. Það er oftar yfirgefið og hefur þá jafnvel enga möguleika á að leita skjóls. Mörg verða því viðskila við aðstandendur, sem þýðir að þau missa sinn helsta stuðning og aðstoð við grunnþarfir. Fólk tapar hjálpartækjum, hefur ekki aðgengi að nauðsynlegum hreinlætisvörum og lyfjum, og hefur ekki aðgengi að samgöngum og öðrum grunnstoðum.

Við undirrituð leggjum sérstaka áherslu á öryggi fatlaðs fólks og fjölskyldna þess í því stríði sem nú er háð í Úkraínu. Við vitum að staða þessa hóps er alvarleg. Margt fatlað fólk á erfitt með að flýja og getur ekki dvalið við landamæri dögum saman eða gengið miklar vegalengdir vegna fötlunar sinnar. Margt fatlað fólk hefur misst stuðningsþjónustu og reiðir sig því á aðstandendur sem þurfa einir að veita sólarhringsaðstoð í ólýsanlegum aðstæðum, til dæmis fast inni á baðherbergjum sólarhringum saman. Það hefur ekki aðgang að lífsnauðsynlegum lyfjum, til dæmis vegna geðsjúkdóma, sykursýki eða flogaveiki og hjálpartækjum eins og öndunarvélum.

Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Ísland, eins og flest ríki í heiminum hefur skuldbundið sig til að virða og framfylgja, segir meðal annars:

Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir, í samræmi við skuldbindingar sínar að þjóðarétti, þar með talið alþjóðleg mannúðarlög og alþjóðleg mannréttindalög, til þess að tryggja að fatlað fólk njóti verndar og öryggis þegar hættuástand ríkir, að meðtöldum vopnuðum átökum, neyðarástandi sem kallar á mannúðaraðstoð og náttúruhamförum.[1]

Íslensk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau hyggjast bjóða flóttafólki frá Úkraínu skjól í þeirri mannúðarkrísu sem nú ríkir í landinu. Í þeirri vinnu skorum við á íslensk stjórnvöld og flóttamannanefnd að fara sérstaklega yfir alþjóðlega samninga, þar með talið samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, lög og reglur og alla framkvæmd í málaflokknum til að tryggja að þau standi vel við allar skyldur sínar varðandi vernd og stuðning gagnvart fötluðu fólki. Samtökin hvetja til þess að sérstaklega sé gætt að vernd fyrir þá sem mest þurfa á verndinni að halda, fatlað og langveikt fólk. Þá þarf einnig að tryggja viðeigandi aðlögun svo fatlað fólk geti raunverulega nýtt sér þær stuðningsaðgerðir sem farið er í.

Við hvetjum stjórnvöld til þess að:

  1. Taka þátt í alþjóðlegum aðgerðum til að koma á friði.
  2. Tryggja öryggi þeirra sem flýja frá Úkraínu, óháð þjóðerni þeirra, með ráðstöfunum sem sérstaklega innihalda aðstoð við fatlað flóttafólk svo sem aðgengilegar samgöngur, gistingu, búnað og samskiptaform/tjáningarleiðir sem eru nauðsynlegar.
  3. Veita fötluðu flóttafólki frá Úkraínu og aðstandendum þeirra, óháð uppruna, vernd á Íslandi og standa faglega að móttöku þess með aðgengilegu húsnæði og nauðsynlegri aðstoð og stuðningi tafarlaust. Mikilvægt er að skipulag móttökunnar sé unnið í samráði við fatlað fólk og samtök þess, sem og þá aðila sem koma að málaflokki fatlaðs fólks og flóttafólks, til að koma í veg fyrir kerfislægar hindranir, draga úr bið og stuðla að samfellu í þjónustu.
  4. Tryggja að mannúðaraðstoð sé veitt fötluðu fólki og fjölskyldum þeirra í Úkraínu í samvinnu við samtök fatlaðs fólks í landinu og hjálparsamtök; þetta nær yfir fólk og börn á heimilum þeirra, í athvörfum, á sjúkrahúsum (þar á meðal geðsjúkrahúsum) og dvalarstofnunum hverskonar, þar sem fatlað fólk býr nú við alvarlega lífshættu.[2] Í mannúðarstarfi skal ganga úr skugga um að framkvæmdaaðilar uppfylli brýnar þarfir fatlaðs fólks með því að fylgja IASC leiðbeiningum um þátttöku fatlaðs fólks í mannúðaraðgerðum.[3]
  5. Fólk sem þarfnast læknisaðstoðar svo sem langveikt fólk skal vera auðkennt og fá heilbrigðisþjónustu í samræmi við þarfir þess. Þetta á ekki aðeins við um neyðarlæknisaðstoð heldur einnig heilbrigðisþjónustu vegna langvinnra sjúkdóma svo sem flogaveiki, sykursýki og hjartasjúkdóma.

Átak – félag fólks með þroskahömlun, Tabú – feminísk fötlunarhreyfing, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands lýsa yfir vilja til þess að leggja til sérfræðiþekkingu og stuðning við neyðaraðstoð og/eða móttöku fatlaðs flóttafólks frá Úkraínu. Samráð við fatlað fólk og samtök þess er ein af skuldbindingum aðildarríkja samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og er það mikilvægt á sviði neyðaraðstoðar og verndar sem og öðrum.

 

Átak – félag fólks með þroskahömlun

Tabú – feminísk fötlunarhreyfing

Landssamtökin Þroskahjálp

Öryrkjabandalag Íslands

 

[1] Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 2006.

[2] Fight for Right, fötlunarsamtök í Úkraínu: https://ffr.org.ua/?fbclid=IwAR2W8pN-TGvzYkFAJfVMD7bDSw_kYbof1w-WVYbR8Ww41UfN8rqZPKyIuBw.

Upplýsingar frá Inclusion Europe um stöðu fólks með þroskahömlun í Úkraínu: https://www.inclusion-europe.eu/ukraine-people-with-intellectual-disabilities-mustnt-be-abandoned/.

[3] IASC leiðbeiningar um þátttöku fatlaðs fólks í mannúðaraðgerðum: https://bit.ly/3HOWbH0