Skip to main content
FréttHeilbrigðismál

Geðlestin er farin af stað

By 1. nóvember 2021september 1st, 2022No Comments
Við búum öll við geð, rétt eins og við erum öll með hjarta.
Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd að við búum öll við geð rétt eins og við erum með hjarta. Geðlestin verður á ferðinni um landið í allan vetur og er stefnan  að að fara í allar unglingadeildir grunnskóla á Íslandi sem og í framhaldsskóla. 

Vikuna 1. til 5. nóvember verða grunnskólar á eftirfarandi stöðum sóttir heim: Ólafsvík, Grundarfirði, Bolungarvík, Ísafirði, Akureyri, Stóru tjörnum, Húsavík, Þingeyjarsveit, Mývatnssveit, Neskaupstað, Reyðarfirði og Egilsstöðum. Geðlestin er styrkt af félagsmála- og heilbrigðisráðuneytum. Aðrir samstarfsaðilar verkefnisins eru Hertz og Cintamani.

Geðlestinni er ætlað að vekja athygli á mikilvægi geðheilsu og verndandi þáttum hennar. Hver heimsókn fer þannig fram að fyrst er sýnt myndband, þá segir ungur einstaklingur frá sinni persónulegu reynslu af geðrænum áskorunum, eftir það verða umræður og í lokin er stutt tónlistaratriði. Samtals tekur fræðslan um 50 mínútur. Heimasíða Geðlestarinnar hefur að geyma verkfæri sem standa nemendum, kennurum, forráðamönnum og öðrum til boða: www.gedlestin.is.

Nánar um Geðlestina:

Markmiðið með Geðlestinni er að ræða við ungt fólk um geðheilsu og hvernig best sé að rækta hana og vernda. Lífið býður upp á allskonar áskoranir og stundum þurfum við að leita okkur aðstoðar við verkefni lífsins. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að biðja um hjálp. Nemendur eru hvattir til þess að tjá tilfinningar sínar, spyrja spurninga og ræða við foreldra/aðstandendur eða kennara um það sem gengur á í amstri dagsins. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvindi og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur.

Það er mikilvægt að læra að stundum er lífið leiðinlegt og erfitt en að það þurfi ekki alltaf að þýða eitthvað alvarlegt eða slæmt. Mótvindur verður skyndilega meðvindur og engin brekka er endalaus.

Það á að vera jafn eðlilegt að huga að geðheilsu sinni og líkamlegri heilsu. Það er hægt að gera með því að koma sér upp heilbrigðum venjum, líkt og að iðka þakklæti, eiga sér áhugamál, hreyfa sig, borða hollt, fá nægan svefn, treysta, eiga góða vini, rækta með sér seiglu og þrautseigju, vera umburðarlynd(ur), hjálpa öðrum, sýna tillitssemi, tjá sig svo fátt eitt sé nefnt.

Athugasemd til forráðamanna og starfsmanna skóla
Fræðsla eins og þessi þar sem einstaklingur segir frá lífsreynslu sinni getur kallað fram viðbrögð hjá þeim sem hlusta og því er mikilvægt að forráðamenn séu meðvitaðir og ræði við börn sín að fræðslunni lokinni. Það er einnig mikilvægt að kennarar og aðrir starfsmenn skóla fylgist með viðbrögðum nemenda í kjölfarið.

 

Allar nánari upplýsingar veitir Grímur Atlason í síma 7776666