Skip to main content
Frétt

Guðbrandur Sigurðsson nýr framkvæmdastjóri Brynju

By 3. nóvember 2021No Comments
Guðbrandur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Brynju leigufélags frá og með 4. nóvember 2021. Brynja er hússjóður Öryrkjabandalags Íslands og hefur það hlutverk að eiga og reka íbúðir sem leigðar eru öryrkjum.

Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun og var stofnaður árið 1965. Fyrstu verkefni sjóðsins voru íbúðir í Hátúni í Reykjavík en frá þeim tíma hefur sjóðurinn eignast um 860 leiguíbúðir um land allt. Sjóðurinn leggur áherslu á traustan rekstur og efnhag og að bæta við hentugum íbúðum eins og frekast er kostur. Gildi Brynju eru virðing, samvinna og búsetuöryggi.

Guðbrandur starfaði sem stjórnandi í sjávarútvegi og mjólkuriðnaði um árabil hjá Brimi og Mjólkursamsölunni. Hann var framkvæmdastjóri PwC 2013-2016 og framkvæmdastjóri Heimavalla frá 2016 til 2019. Síðastliðin tvö ár var hann framkvæmdastjóri Borgarplasts þar sem hann lét af störfum í júlí á þessu ári. Guðbrandur er með B.Sc. próf í matvælafræði frá Háskóla Íslands og MBA próf frá Edinborgarháskóla.

„Það er spennandi og skemmtilegt verkefni og gaman að fá tækifæri að nýju að starfa við rekstur fasteigna og útleigu íbúða. Ég er sérstaklega spenntur að takast á við rekstur á þeim félagslegum grunni sem Brynja byggir á og þar sem langtímasjónarmið eru höfð að leiðarljósi. Sjóðurinn býr að góðum eignum og góðum rekstri ásamt traustum efnahag. Þættir sem er mikilvægt að viðhalda og efla til framtíðar“, segir Guðbrandur.

Stjórnarformaður Brynju leigufélags, Garðar Sverrison, segir fólk mjög ánægt með að hafa fengið Guðbrand til liðs og sjóðurinn vænti mikils af honum. Hann sé þaulreyndur og farsæll stjórnandi með þekkingu og reynslu sem nýtast muni vel til að tryggja sem flestum eins lága leigu og frekast sé kostur