Skip to main content
AlþjóðasamstarfFrétt

Heimsókn frá færeysku systursamtökunum

By 29. júní 2022september 26th, 2022No Comments
Þriðjudaginn 28. júní komu í heimsókn í Sigtúnið fulltrúar færeysku systursamtaka ÖBÍ, MEGD, sem eru regnhlífa samtök fatlaðs fólks í Færeyjum, með 24 aðildarfélög sem telja um 3000 félagsmenn. Tilgangur heimsóknarinnar var að funda með íslenskum samtökum sem vinna að mannréttindamálum fatlaðs fólks.

Tóra við Keldu, formaður MEGD og Bárður Atlason Ísheim framkvæmdastjóri, hittu Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, formann ÖBÍ, og Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, mannnréttindalögfræðing til að fræðast um uppbyggingu og starfsemi ÖBÍ.

Á fundinum var rædd starfsemi ÖBÍ, hlutverk og markmið, starfsemi málefnahópa bandalagsins og fyrirtækja tengdum ÖBÍ.

Þeim lék forvitni á að fræðast um daglega starfsemi, þar sem samskipti við stjórnvöld, ríki og sveitarfélög og þingmenn, voru ofarlega á baugi. Einnig hvaða leiðir ÖBÍ væri að nýta í hagsmunabaráttunni til að ná árangri.

Samningur Sameinuðu þjóðanna var vitaskuld talsvert ræddur í tengslum við stöðu mannréttinda fatlaðs fólks á Íslandi, og mikilvægi þess að hann verði lögfestur.

Samráð stjórnvalda við samtök eins og ÖBÍ er mikilvægt og stór liður í þeirri baráttu sem mannréttindabarátta fatlaðs fólks er. Þuríður fór yfir nýlega fundarherferð ÖBÍ í 20 sveitarfélögum hringinn í kringum landið, og hversu áberandi var hve þörfin á slíkum heimsóknum var mikil. Á þessari yfirreið um landið kom berlega í ljós hve mikilvægt er að funda reglulega með sveitarstjórnarfólki, sem vélar um þá nærþjónustu sem fatlað fólk nýtur, eða á að njóta.

Starfsemi mannréttindaskrifstofu var rædd, og mikilvægi réttindagæslumanna, en þau Tóra og Bárður höfðu einmitt átt fund með Réttindagæslunni, og halda héðan til Danmerkur á fund dönsku systursamtaka okkar.

Hér má finna heimasíðu MEGD.