Skip to main content
Frétt

Íþróttafólk í heimsklassa

By 10. mars 2019No Comments

Blað var brotið í sögu íþrótta fatlaðra á Íslandi þegar Íþróttasamband fatlaðra gerði samninga við 15 aðila úr afrekshópi sambandsins. Í fyrsta sinn eru afreksmenn ÍF með virkan samning við sambandið og um leið er þetta metupphæð sem sambandið setur í afreksíþróttafólkið eða rétt tæpar 25 milljónir króna!

Þórður Árni Hjaltested formaður ÍF sagði við þetta tækifæri að samningarnir væru mikið ánægjuefni og myndu án nokkurs vafa efla enn frekar íþróttastarf fatlaðra og um leið mikilvægt skref í að halda áfram að eiga íþróttafólk í fremstu röð í heiminum.

Íþróttasamband fatlaðra setur alltaf markið hátt en í afreksstefnu sambandsins er það eitt af meginmarkmiðum stefnunnar að eiga alltaf fulltrúa á stórmótum sem geta gert atlögu að verðlaunapalli. Frá stofnun sambandsins 1979 hafa íþróttamenn úr röðum fatlaðra unnið til 98 verðlauna á Ólympíumótum og borið hróður landsins víða fyrir vikið.

„Þessir samningar við okkar fremsta fólk gera miklar kröfur til allra, til þeirra sem íþróttamanna og okkar sem sambandsaðila og um leið kalla þeir á mikla og góða samvinnu við þjálfara og félög hvers og eins íþróttamanns. Allt er þetta gert til þess að freista þess að ná sem bestum árangri í okkar starfi og keppni. Það er viðeigandi að þetta skuli eiga sér stað á 40 ára afmælisári sambandsins og þetta fyrirkomulag rennir enn styrkari stoðum undir afreksstarf ÍF sem hefur allan þennan tíma notið ómældrar velvildar og samstarfsvilja yfirvalda og öflugra styrktaraðila.“

Samningar voru gerðir við eftirtalda íþróttamenn:

Helgi Sveinsson, frjálsar
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, frjálsar
Patrekur Andrés Axelsson, frjálsar
Hulda Sigurjónsdóttir, frjálsar
Jón Margeir Sverrisson, frjálsar
Róbert Ísak Jónsson, sund
Már Gunnarsson, sund
Sonja Sigurðardóttir, sund
Thelma Björg Björnsdóttir, sund
Hjörtur Már Ingvarsson, sund
Guðfinnur Karlsson, sund
Hilmar Snær Örvarsson, skíði
Þorsteinn Halldórsson, bogfimi
Arna Sigríður Albertsdóttir, handahjólreiðar