Skip to main content
DómsmálFréttTR

Spyr ráðherra um áfrýjun ráðherra

By 18. janúar 2022ágúst 31st, 2022No Comments
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi, þar sem hún spyr núverandi félagsmálaráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson, út í forsendur fyrir áfrýjun ríkisins á dómi Landsréttar um að ekki væri lagastoð fyrir þeirri framkvæmd Tryggingastofnunar að skerða greiðslur sérstakrar framfærslu uppbótar í samræmi við búsetu.

Íslenska ríkið tapaði málinu fyrir héraðsdómi, og í kjölfarið fyrir Landsrétti. Öryrkjabandalagið sendi þáverandi félags- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, sem og forsætisráðherra, opið bréf þar sem skorað var á þá að láta nú staðar numið. Sérstök framfærslu uppbót væri til komin vegna ákvörðunar Alþingis að enginn í samfélagi okkar þyrfti að draga fram lífið á lægri fjárhæðum en hún tryggði. 

Málið var tekið fyrir á ríkisstjórnarfundi 26. október 2021, þar sem var ákveðið að leita áfrýjunarleyfis frá Hæstarétti, sem í kjölfarið fékkst.

Fyrirspurn Þorbjargar er í 5 liðum.

  1. Hverjar voru lagalegar og pólitískar forsendur þáverandi félagsmálaráðherra um áfrýjun dóms Landsréttar frá 1. október 2021 í máli nr. 536/2020, sem ríkið hafði tapað á báðum dómstigum, til Hæstaréttar?
  2. Hvaða ráðgjöf lá fyrir um áhrif niðurstöðu dóms Landsréttar, m.a. á réttindi lífeyrisþega?
  3. Hversu margir einstaklingar hafa sætt skerðingum á svokallaði sérstakri framfærsluuppbót skv. 2. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, samkvæmt þessari framkvæmd laganna?
  4. Deilir ráðherra þeirri sýn að forsendur séu fyrir því að ríkið láti reyna á málið á þriðja dómstigi?
  5. Mun ráðherra taka málið upp á vettvangi ríkisstjórnar að nýju?

Óskað er eftir skriflegu svari.

Málið er ekki komið á dagskrá Hæstaréttar