Skip to main content
Frétt

Þrautaganga öryrkja 1. maí

By 30. apríl 2019No Comments

Við ætlum að vera sýnileg í kröfugöngunni 1. maí eins og vanalega. Við tökum pláss og leggjum þunga áherslu á kröfur okkar með fjöldanum. Mætum öll. Tökum makann, börnin, ættingja og vini með okkur. Við erum í harðri baráttu fyrir betri kjörum. Sýnum það í verki!

Við ætlum að safnast saman hjá Hlemmi – þar sem nú er mathöll – klukkan eitt. Við útbýtum kröfuspjöldum og sorgarborðum og peppum okkur saman áður en gangan heldur af stað kl. 13:30. 

Útifundur verður á Ingólfstorgi kl. 14:10, þar sem Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ mun halda ræðu ásamt Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar og Sonju Þorbergsdóttur, formanni BSRB.