Skip to main content
Frétt

Búsetuskerðingar á að bæta að fullu

By 22. febrúar 2019No Comments

Stjórn ÖBÍ ályktaði á fundi sínum í gær um búsetuskerðingar TR og krefst þess að stjórnvöld stöðvi nú þegar ólögmætar skerðingar og greiði örorkulífeyri miðað við réttan útreikning frá næstu mánaðamótum. Framvæmd TR sé í andstöðu við lög og stofnunin skuldi ekki aðeins afsökunarbeiðni fyrir framkvæmd sína heldur skuldi einnig örorkulífeyrisþegum sem hafa orðið fyrir skerðingunun endurgreiðslur tíu ár aftur í tímann. Vandræðagangur stjórnvalda í þessu máli sé með ólíkindum, þar sem Tryggingastofnun og ráðuneyti vísi hvert á annað, má meðan sé haldið áfram að skerða afkomu fólks og réttindi í andstöðu við lög. Ályktunin í heild fer hér á eftir:

Ályktun stjórnar ÖBÍ um búsetuskerðingar TR 21. febrúar 2019

Stjórnvöld hafa viðurkennt að stór hópur örorkulífeyrisþega, yfir þúsund manns, hafi verið hlunnfarinn um yfir hálfan milljarð króna árlega, með ólöglegum útreikningi búsetuhlutfalls. Þetta byggir á áliti Umboðsmanns Alþingis sem birti álit um málið í júní 2018 og eins og áður segir hafa stjórnvöld nú loks viðurkennt brotin.

Enn hefur samt sem áður ekkert gerst og hinar ólögmætu skerðingar eru enn framkvæmdar. Ljóst er að þessi framkvæmd TR á búsetuskerðingum hefur staðið í a.m.k. áratug. Það þýðir að sá hópur örorkulífeyrisþega, sem verður fyrir skerðingum vegna fyrri búsetu í aðildarríkjum EES, hefur orðið af um fimm milljörðum króna auk vaxta á þessu tímabili.

Stjórn Öryrkjabandalags Íslands krefst þess að stjórnvöld stöðvi strax hina ólögmætu skerðingu og greiði örorkulífeyri miðað við réttan útreikning búsetuhlutfalls frá og með 1. mars næstkomandi.

Stjórn Tryggingastofnunar ríkisins skuldar því fólki sem lent hefur í þessum skerðingum opinbera afsökunarbeiðni. Skaðinn verður aldrei bættur að fullu en fyrsta skrefið er að greiða til baka hverja krónu sem tekin hefur verið af örorkulífeyrisþegum.

Stjórn ÖBÍ gerir kröfu um að TR greiði búsetuskertum örorkulífeyrisþegum hinar ólögmætu skerðingar tíu ár aftur í tímann. Ekki er hægt að réttlæta það að stjórnvöld valdi örorkulífeyrisþegum tjóni í tíu ár en greiði svo einungis tæplega helming þess tjóns til baka.

Vandræðagangur stjórnvalda í þessu máli er með ólíkindum. Tryggingastofnun og ráðuneytin vísa hvert á annað og halda þannig áfram þeim ljóta leik að skerða réttindi fólks í andstöðu við lög.

Ekkert um okkur án okkar!