BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230510
DTEND;VALUE=DATE:20230511
DTSTAMP:20260425T181548
CREATED:20230428T121802Z
LAST-MODIFIED:20230428T121811Z
UID:12896-1683676800-1683763199@www.obi.is
SUMMARY:NNDR 2023
DESCRIPTION:HlustaFélag um fötlunarrannsóknir tilkynnir um 16. ráðstefnu Nordic Network on Disability Research (NNDR) sem verður haldin á Grand hotel Reykjavík 10.-12. maí næstkomandi. \nAlþjóðlegir sérfræðingar í fötlunarfræði halda þar fyrirlestra. Þar á meðal Theresia Degener\, prófessor í fötlunarfræði við Bochum Center for Disability Studies í Þýskalandi\, en hún hefur um árabil verið formaður eftirlitsnefndar við samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Aðrir aðalfyrirlesarar eru Lydia X. Z. Brown\, aktívisti og adjúnkt í fötlunarfræði við Georgetown University í Bandaríkjunum og Rannveig Traustadóttir\, prófessor emerita við Háskóla Íslands.  \n  \nNánari upplýsingar um aðalfyrirlesara má finna á nndr2023.is. Auk aðalfyrirlestra verða um 500 kynningar á rannsóknum í málstofum um viðfangsefni sem tengjast ýmsum sviðum í lífi fatlaðs fólks. \n  \nÞetta er í fyrsta sinn í sögu NNDR-ráðstefnunnar sem Félag um fötlunarrannsóknir leggur sérstaka áherslu á þátttöku fræðafólks og annarra aðila á sviði rannsókna um döff og heyrnarlaust fólk. Einn aðalfyrirlesaranna er Hilde Haualand en hún er fyrsti döff einstaklingurinn til að gegna stöðu prófessors í Noregi. Auk þess verður fjöldi erinda í málstofum sem fjalla um rannsóknir á þessu sviði. \n  \nRáðstefnan verður stærsta fötlunarfræðiráðstefna á Norðurlöndum frá upphafi fræðigreinarinnar og mögulega sú stærsta í heiminum. Hún er vettvangur fræðslu og samskipta á milli fræðafólks\, aðila úr hagsmunasamtökum fatlaðs fólks\, fagfólks\, aðila í þjónustu og hjá yfirvöldum og fleira fólks. Þátttakendur koma frá Norðurlöndunum en einnig frá Evrópu\, Bandaríkjunum\, Kanada og víða að úr heiminum. \n  \nEins og önnur ríki stendur Ísland frammi fyrir margþættum áskorunum í framkvæmd réttindasáttmála fatlaðs fólks. Nú þegar ráðstefnan er haldin á Íslandi býðst öllum þeim sem koma að málefnum fatlaðs fólks tækifæri til að kynna sér nýjustu rannsóknir\, nálganir og aðferðir á sviði fötlunarfræði á Norðurlöndum og á alþjóðavísu. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/nndr-2023/
LOCATION:Hagasmári 1\, Hagasmári 1\, Kópavogur\, 201\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
END:VCALENDAR