BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231025T113000
DTEND;TZID=UTC:20231025T113000
DTSTAMP:20260425T220734
CREATED:20231023T155409Z
LAST-MODIFIED:20231023T155409Z
UID:15044-1698233400-1698233400@www.obi.is
SUMMARY:Reykjalundur vígir ramp númer 900 og þér er boðið!
DESCRIPTION:HlustaÁ miðvikudaginn\, 25 október kl 11:30 verður rampur númer níuhundruð í átakinu „Römpum upp Ísland” vígður við hátíðlega athöfn í Reykjalundi í Mosfellsbæ. Þessi atburður markar tímamót í átakinu „Römpum upp Ísland”\, sem\, eins og þér er kunnugt stefnir að því að byggja 1.500 rampa í þágu hreyfihamlaða fyrir 11. mars 2025. \nFjöldi rampa hafa verið byggðir fyrir endurhæfingarmiðstöðina í Reykjalundi og verður það Valgerður Karlsdóttir\, íbúi að Hlein sem fær heiðurinn að því að klippa á rauða borðann fyrir framan ramp númer níuhundruð en á öllu svæðinu Í Reykjalundi voru teiknaðir og reistir 31 rampar\, og einnig var gangstétt lækkuð fyrir fimm bílastæði fatlaðra. \nÁ Reykjalundi er rekin alhliða endurhæfingarstarfsemi á vegum SÍBS\, Samband íslenskra berkla-og brjóstholssjúklinga\, sem þjónustar sjúklinga sem glíma við ýmsa heilsubresti. Endurhæfingarmiðstöðvarnar í Reykjalundi skiptast í hjartasvið\, lungnasvið\, taugasvið\, geðsvið\, gigtarsvið\, hæfingarsvið\, næringarsvið og verkjasvið.  \nStarfsemin getur nú boðið öllum sínum gestum upp á bætt hjólastólaaðgengi\, þökk sé átakinu „Römpum upp Ísland“. Pétur Magnússon\, forstjóri Reykjalundar\, Regína Ástvaldsdóttir\, bæjarstjóri Mosfellsbæjar og athafnamaðurinn Haraldur Þorleifsson sem stendur fyrir átakinu Römpum upp Ísland taka til máls auk þess sem Gréta Salome syngur og flytur ljúfa tóna fiðlunnar. \nÁtakið Römpum upp Ísland hefur nú reist 900 rampa og var sá fyrsti tekinn í notkun í maí 2021. Upphaflega var stefnt að því að reisa þúsund rampa\, en var sú ákvörðun svo tekin síðastliðið haust að reisa eitt þúsund og fimmhundruð.  \nAð verkefninu koma margir styrktaraðilar\, þeirra á meðal: Ueno\, Össur\, Deloitte\, Brandenburg\, Aton.JL\, Lex lögmannsstofa\, BM Vallá\, Icelandair\, Orkan\, ÞG Verk\, Sjálfsborg\, ÖBÍ\, Reykjavíkurborg og Innviðaráðuneytið. Að auki hefur fjölmargt stuðningsfólk lagt hönd á verkið\, að þér meðtöldum.  \nYkkur er boðið að vera viðstödd athöfnina að Reykjalundi á næstkomandi miðvikudag kl. 11:30 sem stendur yfir í um 30 mínútur. Að víglsunni lokinni býður Reykjalundur vígslugestum til hádegisverðar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/reykjalundur-vigir-ramp-numer-900-og-ther-er-bodid/
LOCATION:Reykjalundur
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
END:VCALENDAR