BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20221011T170000
DTEND;TZID=UTC:20221011T190000
DTSTAMP:20260509T045925
CREATED:20221004T133852Z
LAST-MODIFIED:20221012T193332Z
UID:9238-1665507600-1665514800@www.obi.is
SUMMARY:Málþing um samfélagsleg áhrif birtingarmynda í listum
DESCRIPTION:HlustaUpptaka frá málþinginu er hér: \n \nÞjóðleikhúsið\, í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök\, Landssamtökin Þroskahjálp\, Bandalag íslenskra listamanna\, Sviðslistasamband Íslands og Listaháskóla Íslands\, býður til opins málþings með yfirskriftina Samfélagsleg áhrif birtingarmynda í listum – samtal um hlutverk lista og inngildingu jaðarhópa. \nAð undanförnu hefur mikil umræða átt sér stað um leikhúsið og sviðsetningu raunveruleikans í listum. Kastljósinu hefur sérstaklega verið beint að inngildingu og sýnileika fatlaðs fólks og annarra minnihlutahópa í listum. Umræðan er sprottin af skoðanaskiptum um framsetningu á leikpersónu\, sem er ungur fatlaður maður\, í sýningunni Sem á himni. \nÞjóðleikhúsið\, í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök\, Landssamtökin Þroskahjálp\, Bandalag íslenskra listamanna\, Sviðslistasamband Íslands og Listaháskóla Íslands\, efnir til málþings um samfélagslegt hlutverk lista\, þar sem velt verður upp spurningum um sögurnar sem sagðar eru\, um framsetningu þeirra og það hvernig ólíkum hópum er gert kleift að njóta lista og taka þátt í sköpun listaverka. \nListafólk vill leggja við hlustir og eiga samtal við sem flesta í samfélaginu með það að markmiði að auka skilning\, víkka sjóndeildarhringinn og brúa bilið milli ólíkra sjónarmiða. Því vonast skipuleggjendur eftir þátttöku allra sem áhuga hafa á uppbyggilegu samtali um þetta brennandi málefni. \nLeikhúsið er listform sem speglar hinn persónulega og samfélagslega veruleika með margvíslegum hætti\, og segir fjölbreyttar sögur. Með störfum sínum kappkostar listafólk að vekja til umhugsunar\, hreyfa við fólki og efna til umræðu um ólíkar hliðar mannlegrar tilveru\, og þannig getur listin orðið hreyfiafl til góðra verka\, unnið gegn aðgreiningu og verið sameinandi afl í sundruðum heimi. \nMálþingið verður haldið þriðjudaginn 11. október á Stóra sviði Þjóðleikhússins kl. 17. Aðgangur er ókeypis. Aukið rými fyrir hjólastóla verður útbúið fyrir umræðurnar. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. \nSkráning hér
URL:https://www.obi.is/vidburdir/malthing-um-samfelagsleg-ahrif-birtingarmynda-i-listum/
LOCATION:Þjóðleikhúsið\, Hverfisgata 19\, Reykjavík\, 101
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
END:VCALENDAR