BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T090000
DTEND;TZID=UTC:20251210T235900
DTSTAMP:20260421T174418
CREATED:20251126T130605Z
LAST-MODIFIED:20251201T160738Z
UID:40185-1764061200-1765411140@www.obi.is
SUMMARY:16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
DESCRIPTION:HlustaAlþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember er í ár 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi (e. 16 Days of Activism against Gender-based Violence) undir merkjum UniTE to End Violence against Women\, \nHerferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár\, þegar undirritun Peking-sáttmálans\, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. \n» Stafrænt ofbeldi eykst hratt – en nær helmingur kvenna og stúlkna í heiminum býr enn ekki við lagalega vernd gegn því – UN Women Ísland \nÖBÍ réttindasamtök leggja áherslu á að stafrænt umhverfi sé öruggt fyrir alla\, ekki síst fatlaðar konur og fatlað fólk sem fyrir verður margþættri mismunun. Stafrænt ofbeldi er raunverulegt ofbeldi sem skerðir þátttöku í samfélaginu\, heftir tjáningarfrelsi og getur orðið til þess að raddir jaðarsettra hópa þagni. ÖBÍ hvetur stjórnvöld\, löggæslu\, fjölmiðla\, tæknifyrirtæki og almenning til að axla sameiginlega ábyrgð á því að breyta menningu\, styrkja úrræði og tryggja að enginn verði skilinn eftir í skugga stafræns ofbeldis. \n» Sjónum beint að stafrænu ofbeldi – ÖBI \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/16-daga-atak-gegn-kynbundnu-ofbeldi/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/16-dagar-PR-fra-HQ-1536x864-1.png
ORGANIZER;CN="UN women %C3%A1 %C3%8Dslandi":MAILTO:unwomen@unwomen.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T100000
DTEND;TZID=UTC:20251125T113000
DTSTAMP:20260421T174418
CREATED:20251124T100727Z
LAST-MODIFIED:20251124T181240Z
UID:40128-1764064800-1764070200@www.obi.is
SUMMARY:„Dreptu þig bara“ - stafrænt ofbeldi og áhrif þess í raunheimum
DESCRIPTION:Hlusta\nMálstofa UN Women á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtaka um stafrænt ofbeldi og áreitni og afleiðingar ‏þess\nHvar: Mannréttindahúsið\, Sigtún 42Hvenær: Þriðjudaginn 25. nóvember 2025Klukkan: 10:00 – 11:30 \nÞrátt fyrir þær framfarir sem orðið hafa í jafnréttismálum síðustu þrjá áratugi\, er kynbundið ofbeldi enn eitt útbreiddasta og alvarlegasta mannréttindabrot heims. Ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni. Rótgrónar staðalímyndir um kynhlutverk\, skaðleg samfélagsleg viðhorf\, veik lagaumgjörð og skortur á fjármagni og úrræðum koma í veg fyrir að kynbundið ofbeldi sé upprætt. \nTækniframfarir síðustu ára hafa verið samfélögum til góða á margan hátt. En ‏þær hafa einnig skapað ný rými þar sem kynbundið ofbeldi og áreitni fær að þrífast óáreitt. Kynferðisleg áreitni og eltihrelling eru algengustu birtingarmyndir stafræns ofbeldis gegn konum og stúlkum; dreifing nektarmynda án samþykkis\, óumbeðin skilaboð\, niðrandi færslur á samfélagsmiðlum og símtöl. Aðrar birtingarmyndir stafræns ofbeldis eru neteinelti\, hatursorðræða\, ærumeiðingar\, dreifing nektarmynda\, hótanir um birtingu mynda (sextortion) og hefndarklám. Ofbeldið á sér stað í ólíkum stafrænum miðlum: snjallsímum\, tölvum\, spjallrásum\, samfélagsmiðlum\, og í tölvuleikjum \nDagskrá\n10:00 Hús opnar\n10:10 Opnunarerindi – Sunna Elvíra Þorkelsdóttir\, lögfræðingur ÖBÍ\n10:20 Rakel Þorbergsdóttir\, fundarstjóri kynnir þátttakendur í pallborði \n\n\n\n\nBergrún Andradóttir\, skrifstofustýra Samtakanna ’78\nEygló Harðardóttir\, verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra\nÓlafur Hrafn Steinarsson\, framkvæmdastjóri Aska Studios\, fyrrum formaður RÍSÍ\nMelína Kolka\, framkvæmdarstjóri TÍK – Tölvuleikjasamtaka íslenzkra kvenna\n\n\n\n\n\n10:25 Pallborð hefst (hugvekjur 3-5 mín hvert)\n10:45 Umræður\n11:10 Spurningar úr sal\n11:25 Umræðum lokið og samantekt\n11:30 Viðburði lýkur
URL:https://www.obi.is/vidburdir/dreptu-thig-bara-stafraent-ofbeldi-og-ahrif-thess-i-raunheimum/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/16-dagar-PR-fra-HQ-1536x864-1.png
ORGANIZER;CN="UN women %C3%A1 %C3%8Dslandi":MAILTO:unwomen@unwomen.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T160000
DTEND;TZID=UTC:20251125T160000
DTSTAMP:20260421T174418
CREATED:20251110T102621Z
LAST-MODIFIED:20251117T130205Z
UID:39628-1764086400-1764086400@www.obi.is
SUMMARY:Opinn fyrirlestur um ofbeldi gegn konum með fötlun
DESCRIPTION:HlustaFyrirlestur: Skortur á tilkynningum um ofbeldi gegn konum með fötlun á Íslandi\nTil að fagna alþjóðadeginum um afnám ofbeldis gegn konum munum við halda opinn fyrirlestur þann 25. nóvember kl. 16:00 í sal Blindrafélagsins á annarri hæð\, Hamrahlíð 17. Eliona Gjecaj\, doktorsnemi við Háskóla Íslands\, mun halda fyrirlestur fyrir félagsmenn okkar um niðurstöður rannsókna sinna varðandi skort á tilkynningum um ofbeldi gegn konum með fötlun á Íslandi. Hún hóf rannsókn sína árið 2019 og hefur birt þrjár fræðigreinar um aðgengi kvenna með fötlun að réttlæti í tengslum við kynbundið ofbeldi. Niðurstöður hennar hafa verið kynntar hagsmunaaðilum\, á innlendum og alþjóðlegum ráðstefnum\, auk þess sem þær hafa verið hluti af skuggaskýrslu Íslands til nefndar Sameinuðu þjóðanna um samninginn um réttindi fatlaðs fólks árið 2025.  \nNýjasta greinin (október 2025) fjallar um reynslu kvenna með fötlun af ofbeldi á Íslandi og skort á tilkynningum af þeirra hálfu\, ásamt greiningu á ástæðum þess. Nokkrir þátttakendur í rannsókninni voru sjónskertir\, og því verður mikilvægt að hlusta og íhuga saman þetta viðfangsefni.  \nVið hvetjum alla félagsmenn og styrktaraðila til að mæta.  \nFyrirlesturinn verður á ensku. \n\nLecture: Lack of reporting of violence by disabled women in Iceland\nTo celebrate the International Day for the Elimination of Violence Against Women\, we will have an open lecture on the 25th of November\, at 16:00 on the 2nd floor\, Hamrahlíð 17\, Blindrafélagið. Eliona Gjecaj\, a doctoral student at the University of Iceland will give  this lecture for our members on her research findings regarding the lack of reporting of violence by disabled women in Iceland. She started her research in 2019 and has 3 academic publications regarding access to justice for disabled women in relation to gender-based violence. Her research findings have been shared with advocates\, national and international conferences\, as well as been part of the shadow report of Iceland to the Committee of UN Convention on the Rights of Persons with Disabilities in 2025. \nThe most recent publication (October 2025) discusses the experiences of violence by disabled women in Iceland\, and the lack of reporting by them\, while analysing the reasons for such. A number of her research participants were visually impaired\, and thus\, it will be important to hear and reflect together on this topic. The article is available at: \nWe invite all members and sponsors to come along. \nThe lecture will be in English.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/opinn-fyrirlestur-um-ofbeldi-gegn-konum-med-fotlun/
LOCATION:Hamrahlíð 17\, Hamrahlíð 17\, Reykjavík\, 105\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/01/kynbundid-ofbeldi.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR