BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261010T130000
DTEND;TZID=UTC:20261106T170000
DTSTAMP:20261029T030838
CREATED:20261023T105905Z
LAST-MODIFIED:20261023T110004Z
UID:47560-1791637200-1793984400@www.obi.is
SUMMARY:Furðufuglar á hugarflugi - Listasýning í Gerðubergi
DESCRIPTION:HlustaList án landamæra opnar samsýninguna „Furðufuglar á hugarflugi” með verkum eftir listafólk Listvinnzlunnar\nHVAR: Gerðuberg 3–5\, 111 Reykjavík\nHVENÆR: Laugardaginn 10. október kl. 13:00–15:00\nSýningin stendur til 6. nóvember \nNeistinn að sýningunni er spurningin hvernig er Ísland og hver erum við?\nHvar leynast ævintýri Íslands? Við sjáum álfa og fugla í ægifagurri náttúru\, hraun\, harðfisk\, ull og svart skammdegi. En líka poppvíkinga og partýlunda undir öskrandi sól. Og Dimmalimm. Þarna eru geimverur bak við gardínur\, glaðir vinnuþjarkar\, aular á stuttbuxum og alls konar fólk. Ísland er alls konar. Það er heitt á könnunni og alltaf nóg til frammi.\nHvað sérð þú? Sérðu furðufugla á hugarflugi? \nSýningin er í umsjá Elínar Sigríðar Maríu Ólafsdóttur og Kolbeins Jóns Magnússonar úr Listvinnzlunni\, listhópi hátíðarinnar 2026. Þau hafa vandlega valið verk eftir fjölbreyttan hóp listafólks úr Listvinnzlunni og víðar að. Þetta er í fyrsta sinn sem fatlað listafólk sér alfarið um sýningarstjórn á sýningu Listar án landamæra.\nLISTVINNZLAN ER LISTHÓPUR LISTAR ÁN LANDAMÆRA 2026 \nListvinnzlan er fjölbreyttur hópur listamanneskja sem stundar faglega listsköpun. Þar vinnur listafólk að eigin verkum með ólíka miðla og efnivið\, meðal annars teikningu\, málverk\, skúlptúr\, myndasögur\, kvikmyndalist og gjörninga. Listvinnzlan var stofnuð árið 2022 af Margréti M. Norðdahl og hefur á fáum árum vaxið ört og orðið mikilvægur vettvangur innan íslensks lista- og menningarlífs. \nVerið öll hjartanlega velkomin á sýninguna í Gerðubergi\nAðgengi í Gerðubergi er grænt – engir þröskuldar\, tvöfaldar rennihurðir við inngang\, lyfta á milli hæða\, aðgengilegt salerni á neðri hæð og merkt bílastæði fyrir framan húsið. \nSýnendur eru:\nAtli Már Indriðason\nÁrmann Kummer Magnússon\nBenedikta Rostan\nBirkir Sigurðsson\nE.S.M.Ó. Elín S. M. Ólafsdóttir\nFrida Adriana Martins\nGarðar Reynisson\nGígja Garðarsdóttir\nGuðmundur Stefán Guðmundsson\nGunnar Már Pálsson\nHarpa Rut\nHelga Matthildur Viðarsdóttir\nÍsak Óli Sævarsson\nKatrín Guðrún Tryggvadóttir\nKolbeinn Jón Magnússon\nLára Lilja Gunnarsdóttir\nLilja Dögg Birgisdóttir\nÞórir Gunnarsson – Listapúkinn\nÓskar Theódórsson\nSigrún Huld Hrafnsdóttir\nÞorvaldur Arnar Guðmundsson
URL:https://www.obi.is/vidburdir/furdufuglar-a-hugarflugi-listasyning-i-gerdubergi/
LOCATION:Gerðuberg\, Gerðuberg 3-5\, Reykjavík\, 111\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/10/838646456_1767215522075781_4784218660615717214_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261029T085000
DTEND;TZID=UTC:20261029T160000
DTSTAMP:20261029T030838
CREATED:20261009T125050Z
LAST-MODIFIED:20261022T155548Z
UID:47192-1793263800-1793289600@www.obi.is
SUMMARY:Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík um ME\, langvinnt COVID\, umhverfisveikindi og POTS
DESCRIPTION:Hlusta\nHandan greiningarinnar – Aukinn skilningur á flóknum langvinnum veikindum\n\n\nBRÚ MILLI HEIMSÁLFA\n\n\nOpin alþjóðleg ráðstefna 29. október þar sem leiðandi innlendir og erlendir sérfræðingar á sviði ME\, langvinns COVID\, umhverfisveikinda og POTS koma saman til að miðla nýjustu þekkingu úr rannsóknum og klínísku starfi. Ráðstefnan fer fram á ensku\, á hótel Hilton Reykjavík\, Suðurlandsbraut 2 í sal A. \nÁ ráðstefnunni munu heimsþekktir fyrirlesarar\, þar á meðal sérfræðingar sem hafa verið í fararbroddi rannsókna í áratugi\, fjalla um nýjustu framfarir í greiningu\, meðferð og skilningi á sjúkdómunum. Þátttakendur fá einstakt tækifæri til að kynnast nýrri vísindalegri þekkingu\, heyra af reynslu fremstu sérfræðinga og taka þátt í mikilvægu samtali um framtíð þjónustu\, rannsókna og meðferða.​ \nRáðstefnan er sérstaklega áhugaverð fyrir lækna\, hjúkrunarfræðinga\, sjúkraþjálfara\, iðjuþjálfa\, sálfræðinga\, félagsráðgjafa og annað heilbrigðisstarfsfólk sem vill auka skilning sinn á þessum flóknu og oft misskildu sjúkdómum. Jafnframt er ráðstefnan mikilvæg fyrir starfsfólk stjórnvalda\, sveitarfélaga og stofnana sem starfar að félags- og heilbrigðismálum. Fjallað verður um áskoranir sjúklingahópana og hvernig bæta megi þjónustu og stuðning. \nSjúklingar\, aðstandendur og aðrir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir. Fyrir þau býður ráðstefnan upp á einstakt tækifæri til að hlýða á fremstu sérfræðinga heims\, afla sér áreiðanlegra upplýsinga og kynnast nýjustu rannsóknum sem eru að breyta skilningi okkar á þessum sjúkdómum. \nMeð því að byggja brú milli heimsálfa\, fræða og miðla reynslu þá skapast vettvangur sem eflir skilning\, samstarf og von um bættar lausnir fyrir þau sem lifa með þessi veikindi. \nVið hlökkum til að taka á móti ykkur á þessa mikilvægu og spennandi ráðstefnu.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/althjodleg-radstefna-i-reykjavik-um-me-langvinnt-covid-umhverfisveikindi-og-pots/
LOCATION:Hilton Reykjavík Nordica\, Suðurlandsbraut 2\, Reykjavík\, 108\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/10/Banner-dagskra-1-1024x278-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR