BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261125T080000
DTEND;TZID=UTC:20261210T233000
DTSTAMP:20261126T003745
CREATED:20261118T122320Z
LAST-MODIFIED:20261118T122433Z
UID:48127-1795593600-1796945400@www.obi.is
SUMMARY:16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi - UN Women á Íslandi
DESCRIPTION:Hlusta16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðlegt átak sem hefst 25. nóvember\, á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi\, og lýkur 10. desember\, á alþjóðlega mannréttindadeginum. Átakinu er ætlað að vekja athygli á einu alvarlegasta mannréttindabroti samtímans\, ofbeldi gegn konum og stúlkum. Ein af hverjum þremur konum í heiminum hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni. \nAlþjóðleg yfirskrift átaksins árið 2026 er „UNiTE to End Violence Against Women and Girls: Ensure justice\, protect survivors\, end impunity“  sem þýða mætti sem: „Tryggjum réttlæti\, verndum þolendur og stöðvum refsileysi.“\nÍ tengslum við hið árlega 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi mun UN Women á Íslandi beina kastljósinu að stafrænum hatursummælum og -einelti og áhrifum þess á þolendur og samfélagið í heild. Yfirskrift átaks UN Women á Íslandi verður „Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“ og byggir herferðarefnið á raunverulegum ummælum sem hafa verið látin falla opinberlega og beinast ýmist að einstaklingum eða hópum fólks. \nAppelsínugulur litur táknar framtíð án ofbeldis \nÁrleg ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00 og markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Þá verður fjöldi bygginga og stofnana um allt land lýstur upp í appelsínugulum lit í tilefni átaksins\, en appelsínuguli liturinn táknar framtíð án ofbeldis og er litur alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi. \nMeðal þeirra bygginga sem lýstar verða upp í tilefni átaksins eru Háskóli Íslands\, Háskólinn í Reykjavík\, Háskólinn á Akureyri\, Tækniskólinn í Reykjavík\, Hof menningarsetur\, Harpa tónlistarhús\, Listasafn Akureyrar\, Þjóðminjasafnið\, Ásmundarsalur\, Gróttuviti\, Hallgrímskirkja\, Háteigskirkja\, Kópavogskirkja\, Mannréttindahúsið\, Ráðhús Reykjavíkur og Stjórnarráðsbyggingin. Eins verður bensínstöð Atlantsolíu við Sprengisand lýst upp í tilefni átaksins. \nÓgn við lýðræði \nÍtrekuð hatursfull og niðrandi ummæli á stafrænum miðlum í garð fólks hafa djúpstæð áhrif á heilsu\, líðan og tækifæri þess til þátttöku í samfélaginu‏. Öll getum við orðið  fyrir slíkum ummælum og árásum\, en rannsóknir sýna að ákveðnir hópar fólks eru líklegri til að verða fyrir slíku ofbeldi en aðrir. \nKonur sem gegna opinberum störfum\, hinsegin fólk\, innflytjendur\, konur í fjölmiðlum\, ungt fólk og fatlaðar konur eru margfalt líklegri til að vera beittar slíku ofbeldi. Stafrænt ofbeldi hefur raunveruleg og djúpstæð áhrif á heilsu\, líðan og tækifæri þolenda til þátttöku í samfélaginu‏. Mikilvægt er að tryggja stuðning og þjónustu til þolenda stafrænna hatursummæla og -eineltis því stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/16-daga-atak-gegn-kynbundnu-ofbeldi-un-women-a-islandi/
CATEGORIES:Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/11/skjar_2.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261126T100000
DTEND;TZID=UTC:20261126T110000
DTSTAMP:20261126T003745
CREATED:20261124T121958Z
LAST-MODIFIED:20261124T122019Z
UID:48193-1795687200-1795690800@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgunn – Hvað ef við hlustuðum? Kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum
DESCRIPTION:HlustaVerið velkomin á Mannréttindamorgun fimmtudaginn26. nóvember kl. 10:00.\n\nÁ viðburðinum mun Aldís Rún Ingólfsdóttir\, sem hlaut verðlaun ÖBÍ fyrir framúrskarandi meistararitgerð sína\, „Hvað ef við hlustuðum?“\, segja frá niðurstöðum rannsóknarinnar. Viðburðurinn er haldinn í tilefni af 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi (e. 16 Days of Activism against Gender-based Violence) sem er alþjóðleg herferð UN Women undir merkjum UniTE to End Violence against Women\, sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember. Herferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. \nNánar um fyrirlesara:\nAldís Rún Ingólfsdóttir útskrifaðist með ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík síðastliðinn júní og starfar nú sem saksóknarfulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu\, þar sem hún hefur starfað frá árinu 2023.\nSjálf hefur Aldís haft mikinn áhuga á samfélaginu\, lögum og reglum og ekki síst mannréttindum. \nEfni fyrirlesturs:\nÍ erindinu sínu mun Aldís fjalla um meistararitgerð sína\, „Hvað ef við hlustuðum?“\, sem fjallar um kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum á Íslandi og skyldur íslenska ríkisins til að tryggja þeim vernd.\nSérstök áhersla verður lögð á fjölþætta mismunun fatlaðra kvenna\, aðgang þeirra að réttarkerfinu og hvernig fötlun getur haft áhrif á meðferð og úrlausn mála innan réttarvörslukerfisins.\nViðfangsefnið sameinar tvö af hennar helstu áhugasviðum innan lögfræðinnar\, refsirétt og mannréttindi\, en áhuginn á efninu kviknaði ekki síst hjá henni vegna þess hversu litla athygli ofbeldi gegn fötluðum konum hefur fengið í fræðilegri og samfélagslegri umræðu.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/menu-mannrettindamorgunn-hvad-ef-vid-hlustudum-kynbundid-ofbeldi-gegn-fotludum-konum/
CATEGORIES:Aðildarfélög,Mannréttindahúsið
END:VEVENT
END:VCALENDAR