BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241113T000000
DTEND;TZID=UTC:20241227T000000
DTSTAMP:20260504T004546
CREATED:20241009T132738Z
LAST-MODIFIED:20241009T132738Z
UID:27776-1731456000-1735257600@www.obi.is
SUMMARY:Framkoma á eigin forsendum - námskeið UngÖBÍ og KVAN
DESCRIPTION:HlustaUngÖBÍ og KVAN bjóða í samstarfi upp á námskeiðið Framkoma á eigin forsendum fyrir félagsfólk aðildafélaga ÖBÍ réttindasamtaka á aldrinum 18-35 ára. \nÁ námskeiðinu verður farið yfir: \n\nSjálfstraust og hugrekki\nKynningartækni og framkomu\nSamskipti út frá stryrkleikamiðaðri nálgun\n\n  \nÞað væri frábært ef þið gætuð aðstoðað okkur við að auglýsa námskeiðið meðal ungliða í ykkar félagi\, t.d. á facebook síðu félagsins\, facebook hópi eða með tölvupósti. \nNámskeiðið rúmar að hámarki 20 manns svo áhugasamir eru hvattir til að ganga frá skráningu fyrr en seinna. \n  \nNámskeiðið er kennt í 3 skipti\, á miðvikudögum frá kl. 19-21. Kennt verður dagana 13. 20. og 27. nóvember í Marréttindahúsinu\, húsnæði ÖBÍ að Sigtúni 42\, 105 Reykjavík. \n  \nÞar sem ÖBÍ réttindasamtök niðurgreiðir langstærstan hluta kostnaðar er skráningargjald aðeins 2.500 krónur á þátttakanda. \nNánari upplýsingar og skráning má finna á heimasíðu KVAN í hlekknum hér að neðan: \nhttps://kvan.is/events/framkoma-a-eigin-forsendum-obi-og-kvan-2/ \n  \nEkki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/framkoma-a-eigin-forsendum-namskeid-ungobi-og-kvan/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241203T110000
DTEND;TZID=UTC:20241203T110000
DTSTAMP:20260504T004546
CREATED:20241122T094254Z
LAST-MODIFIED:20241129T132307Z
UID:29626-1733223600-1733223600@www.obi.is
SUMMARY:Hvatningarverðlaun ÖBÍ
DESCRIPTION:HlustaVertu með þegar við afhendum Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka í ár!\n\n\nVerðlaunahátíðin hefst stundvíslega klukkan 11 þann 3. desember á Grand hóteli í Reykjavík. Á dagskrá er mikil gleði\, en hin tilnefndu verða kynnt þegar nær dregur.\n\n\nHvatningarverðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2007 en í fyrra varð Bíó Paradís fyrir valinu fyrir frumkvæði að aðgengi fyrir alla með sérstöku tilliti til ólíkra hópa.\n\nTilnefnd eru:\n\nDagbjört Andrésdóttir\nFrumkvæði að vitundarvakningu um heilatengda sjónskerðingu.\n\nFúsi\, aldur og fyrri störf\nHöfundar: Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson.\nLeikverk sem markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi.\n\nMúlaborg\nLeiðandi leikskóli sem leggur áherslu á inngildingu fatlaðra barna og starfsfólks þar sem öll fá þess notið að læra\, vinna og leika.\n\nTaktu flugið\, beibí\nHöfundur: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir.\nLeikverk sem markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi\n\n\nHvatningarverðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku\, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks.\n\n\n3. desember er einmitt alþjóðadagur fatlaðs fólks og auk þess að standa fyrir Hvatningarverðlaununum er ÖBÍ með átakið upplýst samfélag. Fólk um allt land er hvatt til þess að lýsa upp í fjólubláu\, einkennislit réttindabaráttu fatlaðs fólks.\n\n\nViðburðurinn verður táknmáls- og rittúlkaður.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/hvatningarverdlaun-obi-3/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241205T171500
DTEND;TZID=UTC:20241205T171500
DTSTAMP:20260504T004546
CREATED:20241204T090452Z
LAST-MODIFIED:20241209T170010Z
UID:29952-1733418900-1733418900@www.obi.is
SUMMARY:Skörungur - íslensku ungmennaverðlaunin 2024
DESCRIPTION:HlustaSkörungur – íslensku ungmennaverðlaunin verða veitt á degi sjálfboðaliðans þann 5. desember\, kl. 17:15 í Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42. Um er að ræða þakkar- og hvatningarviðburð ungs fólks sem haldinn er í annað sinn og tók við af „Félaga ársins” sem LUF stóð fyrir í 5 ár.\n\nLUF auglýsir hér með eftir tilnefningum frá aðildarfélögunum til Skörungsins fyrir sjálfboðaliða og vonarstjörnu ársins og til heiðursverðlauna LUF. Hvert aðildarfélag getur tilnefnt einn einstakling í hverjum flokki og hvetur LUF öll aðildarfélög sín til þess að senda inn tilnefningar. Öll sem hljóta tilnefningu til Skörungsins frá aðildarfélagi í flokki sjálfboðaliða ársins\, vonarstjörnu ársins og heiðursverðlauna LUF verða beðnir um að veita viðurkenningu þess efnis mótttöku á degi sjálfboðaliðans. Þá er öllum frjálst að tilnefna í aðra flokka.\n\nFrestur til þess að tilnefna sjálfboðaliða ársins er eigi síðar en þriðjudaginn 3. desember 2024.\n\nSkörungur – íslensku ungmennaverðlaunin eru veitt í fjórum flokkum:\n1.) Sjálfboðaliðaliði ársinsVerðlaunin Sjálfboðaliði ársins eru veitt meðlimi aðildarfélags LUF fyrir eftirtektaverða framtakssemi og dugnað í sjálfboðaliðavinnu í þágu síns félags. Tilnefna aðildarfélög LUF einn sjálfboðaliða úr sínu félagi til verðlaunanna.\n2.) Vonarstjarna ársinsVerðlaunin Vonarstjarna ársins eru veitt meðlimi aðildarfélags LUF sem hefur í fyrsta sinn gegnt trúnaðarstörfum fyrir sitt aðildarfélag það ár sem viðkomandi er tilnefndur til verðlaunanna og hefur með því lagt lóð sín á vogarskálarnar svo verulega um munar í starfi félagsins. Tilnefna aðildarfélög LUF einn úr sínu félagi til verðlaunanna.\n3.) Verkefni ársinsVerðlaunin eru veitt fyrir verkefni sem skilað hefur árangri eða leitt af sér nýsköpun í hagsmuna- og réttindabaráttu ungs fólks.\n4.) Framlag til mannréttindaVerðlaunin eru veitt einstaklingi fyrir verðugt framlag til mannréttinda og baráttu ungs fólks fyrir réttindum sínum.\n5.) Framtak í þágu ungs fólksVerðlaunin eru veitt einstaklingum\, hópum\, félögum\, stofnunum eða fyrirtækjum fyrir eftirtektarvert framtak í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks.\n6.) Heiðursverðlaun LUF.Verðlaunin eru veitt meðlimi aðildarfélags LUF fyrir langvarandi óeigingjörn störf í þágu síns félags\, eða baráttu ungs fólks fyrir réttindum sínum. Tilnefna aðildarfélög LUF einn sjálfboðaliða úr sínu félagi til verðlaunanna.\nSkörungur – íslensku ungmennaverðlaunin er uppskeruhátíð LUF\, þar sem aðildarfélög fá tækifæri til þess að velja framúrskarandi meðlimi sem þau vilja umbuna og þakka fyrir dugnað og vel unnin störf.\nTilgangur viðburðarins er að vekja athygli á degi sjálfboðaliðans og fyrir hvað hann stendur\, en fyrst og fremst að hvetja ungt fólk í sjálfboðastarfi til dáða sem og varpa ljósi á vel unnin störf innan ungmennafélaga á Íslandi og framlag til réttindabaráttu ungs fólks.\nViðburðurinn er liður í mannréttindavikunni og fer fram í höfuðstöðvum LUF\, Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/skorungur-islensku-ungmennaverdlaunin-2024/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241210T100000
DTEND;TZID=UTC:20241210T110000
DTSTAMP:20260504T004546
CREATED:20241205T150622Z
LAST-MODIFIED:20241205T151936Z
UID:29977-1733824800-1733828400@www.obi.is
SUMMARY:Skipta líf dætra okkar máli? - Mannréttindadagar
DESCRIPTION:HlustaMannréttindadögum og alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi líkur þriðjudaginn 10. desember. Af því tilefni ætla ÖBÍ réttindasamtök\, UN Women á Íslandi og Kvennaathvarfið að blása til samverustundar í Mannréttindahúsinu. \nFjallað verður um nýútkomna skýrslu Sameinuðu Þjóðanna um fjölgun kvennamorða í heiminum en hér á Íslandi hafa 5 konur verið drepnar það sem af er á árinu 2024\, sem er metfjöldi. Einnig verður fræðsla um ofbeldi í nánum samböndum og helstu birtingarmyndir þess. \nFramsögukonur eru Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi og Ísól Björk Karlsdóttir sérfræðingur hjá Kvennaathvarfinu. \nÖll velkomin!
URL:https://www.obi.is/vidburdir/skipta-lif-daetra-okkar-mali-mannrettindadagar/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/12/Copy-of-Copy-of-MYNDLIST-OG-MANNRETTINDI-1920-x-1080-px-1.png
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR