BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240522T170000
DTEND;TZID=UTC:20240522T190000
DTSTAMP:20260505T024525
CREATED:20240501T224156Z
LAST-MODIFIED:20240501T224619Z
UID:20354-1716397200-1716404400@www.obi.is
SUMMARY:Stofan - UngÖBÍ
DESCRIPTION:HlustaUngÖBÍ tekur þátt í verkefni sem kallast Stofan og er\, eins og segir á heimasíðu safnsins\, mánaðarleg umbreyting á rýmum Borgarbókasafnsins í Grófinni. Ólíkir einstaklingar eða hópar fá frjálsar hendur á safninu til endurskapa valið rými eftir sínu höfði. Með Stofunni skoðum við hvernig við viljum hafa almenningsrýmin okkar og könnum hvað gerir rými þannig að okkur langi til að setjast niður\, staldra við og jafnvel hefja samtal við næsta mann. Tilgangurinn er að búa til stað sem þú tilheyrir – stað sem þú upplifir að sé þinn. \nÍ Stofunni höfum við meðal annars stigið trylltan dans\, frætt okkur um réttindi og loftlagsmál\, deilt mat og menningu\, sagt persónulegar sögur\, farið í sturtu\, dvalið í þögn og endurhlaðið okkur.\nStofan er samfélagsrými sem endurspeglar áhersluna: Share the Care \nNánari upplýsingar og dagskrá birtast hér á næstu dögum.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stofan-ungobi/
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240514T120000
DTEND;TZID=UTC:20240514T133000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240502T092754Z
LAST-MODIFIED:20240514T084647Z
UID:20363-1715688000-1715693400@www.obi.is
SUMMARY:Má ég taka þátt … í lífinu? - Hádegisfundur um endurskoðun á hjálpartækjahugtakinu
DESCRIPTION:HlustaHeilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka stendur fyrir hádegisfundi um endurskoðun á hjálpartækjahugtakinu 14. maí á milli 12:00 og 13:30 í Hvammi á Grand hótel. \nHver ræður því hvaða lífsgæði eru nauðsynleg? Hvernig getum við skilgreint hvaða hjálpartæki fatlað fólk hefur aðgang að og þar með í hvaða þáttum lífsins fatlað fólk fær að taka þátt í? \nAlma Ýr Ingólfsdóttir\, formaður ÖBÍ réttindasamtaka flytur erindi um hjálpartækjahugtakið og samning Sameinuðu þjóðana um rettindi fatlaðs fólks.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/ma-eg-taka-thatt-i-lifinu-hadegisfundur-um-endurskodun-a-hjalpartaekjahugtakinu/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240501T123000
DTEND;TZID=UTC:20240501T153000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240306T181733Z
LAST-MODIFIED:20240424T112047Z
UID:17284-1714566600-1714577400@www.obi.is
SUMMARY:Réttindaganga ÖBÍ á 1. maí
DESCRIPTION:HlustaÖBÍ réttindasamtök hvetja allt fatlað fólk til að fjölmenna í kröfugöngu frá Skólavörðuholti niður á Ingólfstorg þann 1. maí. \nÍ ár er 101 ár frá því fyrsta kröfugangan á baráttudegi verkafólks var gengin og mikilvægt er að fatlað fólk á Íslandi láti vel í sér heyra og krefjist jöfnuðar og réttlætis. \nSafnast verður saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti klukkan 13:00. Gengið er af stað klukkan 13:30 niður Skólavörðustíg\, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi þar sem dagskrá tekur við. \nÖBÍ réttindasamtök bjóða í kaffi að dagskrá lokinni í Sigtúni 42 og mun bjóða upp á ferðir frá Ingólfstorgi. Öll velkomin. \nMætum\, krefjumst réttlætis og látum í okkur heyra!
URL:https://www.obi.is/vidburdir/rettindaganga-obi-a-1-mai/
LOCATION:Sigtún 42
CATEGORIES:Á döfinni
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240430T000000
DTEND;TZID=UTC:20240430T000000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240321T152403Z
LAST-MODIFIED:20240321T152403Z
UID:18228-1714435200-1714435200@www.obi.is
SUMMARY:Stefnuþing ÖBÍ réttindasamtaka
DESCRIPTION:HlustaStefnuþing ÖBÍ réttindasamtaka verður haldið þann 30. apríl 2024. \nÚr lögum ÖBÍ: \n„22. gr. Stefnuþing \nStjórn skal boða til stefnuþings a.m.k. annað hvert ár með minnst tveggja mánaða fyrirvara. Stefnuþingið skal haldið á fyrsta ársþriðjungi. Hlutverk þess er að móta stefnu og áherslur í sameiginlegum hagsmunamálum. Stefnuþing sitja fulltrúar allra aðildarfélaga og eru skipaðir með sama hætti og aðalfundarfulltrúar\, sbr. 10. gr. \nStefnuþing gerir tillögu til aðalfundar um stefnu og áherslur í starfi bandalagsins sem og hvaða föstu málefnahópar skulu starfa innan þess.“
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stefnuthing-obi-rettindasamtaka/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240424T000000
DTEND;TZID=UTC:20240424T000000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240206T102557Z
LAST-MODIFIED:20240206T102557Z
UID:16132-1713916800-1713916800@www.obi.is
SUMMARY:Stjórnarfundur
DESCRIPTION:HlustaStjórnarfundir skulu haldnir a.m.k. átta sinnum á ári. Formaður boðar til stjórnarfunda með minnst viku fyrirvara nema sérstakar aðstæður kalli á annað. Stjórnarfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og meirihluti stjórnarmanna er mættur.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stjornarfundur-3/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240423T130000
DTEND;TZID=UTC:20240423T160000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240321T152627Z
LAST-MODIFIED:20241112T174223Z
UID:18230-1713877200-1713888000@www.obi.is
SUMMARY:Háskóli fyrir okkur öll -  Samráðsfundur um inngildandi háskólanám
DESCRIPTION:HlustaHáskóli Íslands\, Háskólinn á Akureyri og ÖBÍ réttindasamtök boða til samráðsfundar um inngildandi háskólanám þann 23. apríl klukkan 13:00 til 16:00.\n\nViðburðurinn fer fram í stofu N102 í Háskólanum á Akureyri og verður einnig streymt frá honum. Streymi verður hægt að nálgast hér þegar nær dregur:\n\n\nFundinum stjórna nemendur í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun á Menntavísindasviði HÍ. Þar munu þau deila reynslu sinni af háskólanámi og kynna námið ásamt því að stýra umræðuhópum sem eru öllum opnir.\n\nMarkmið fundarins er að vekja athygli á mikilvægi háskólanáms fyrir fólk með þroskahömlun og hvetja stjórnvöld og háskóla landsins til að auka námstækifæri á háskólastigi.\nBoðið verður upp á kaffi og léttar veitingar að fundi loknum.\n\nFundurinn er öllum opinn og ókeypis.\n\nSkráning fer fram hér:\nhttps://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSc83ENK_fJCtizV1r2e84b9WQa23QdkPi2F0377Kd_ZZwEc7A/viewform
URL:https://www.obi.is/vidburdir/haskoli-fyrir-okkur-oll-samradsfundur-um-inngildandi-haskolanam/
LOCATION:Háskólinn á Akureyri
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240321T000000
DTEND;TZID=UTC:20240321T000000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240206T102518Z
LAST-MODIFIED:20240206T102518Z
UID:16130-1710979200-1710979200@www.obi.is
SUMMARY:Stjórnarfundur
DESCRIPTION:HlustaStjórnarfundir skulu haldnir a.m.k. átta sinnum á ári. Formaður boðar til stjórnarfunda með minnst viku fyrirvara nema sérstakar aðstæður kalli á annað. Stjórnarfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og meirihluti stjórnarmanna er mættur.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stjornarfundur-2/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240320T130000
DTEND;TZID=UTC:20240320T160000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240207T120317Z
LAST-MODIFIED:20241112T173535Z
UID:16170-1710939600-1710950400@www.obi.is
SUMMARY:Árangursrík sjálfboðaliðastjórnun / Fræðsluröð ÖBÍ fyrir aðildarfélög
DESCRIPTION:HlustaMiðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 13-16:00\, hjá ÖBÍ í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42. \nNámskeiðið er ætlað fyrir öll sem starfa með sjálfboðaliðum\, bæði starfsfólk og sjálfboðaliða\, og hentar bæði minni og stærri félögum. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að þekkja þætti árangursríkrar sjálfboðaliðastjórnunar\, geta beitt þeim og geta gert einfalda áætlun fyrir sjálfboðaliðastjórnun hjá sínu félagi/verkefni. Á námskeiðinu verða kynntir 10 þættir árangursríkrar sjálfboðaliðastjórnunar; \n\nÞarfagreining\nÁætlun\nSjálfboðaliðaöflun\nMóttaka\nÚthlutun verkefna\nFræðsla og þjálfun\nStuðningur\nViðurkenning og hvatning\nMat\nÞátttökulok\n\nLeiðbeinandi: Sigurbjörg Birgisdóttir er sérfræðingur í sjálfboðaliðastjórnun og starfar hjá Rauða krossinum. \nÖBÍ ber allan kostnað af námskeiðshaldinu utan skráningargjaldsins\, kr. 2500.-\, sem greiðist af þátttakanda eða því aðildarfélagi sem hann starfar fyrir eða er félagi í. Skráning hér >
URL:https://www.obi.is/vidburdir/arangursrik-sjalfbodalidastjornun-fraedslurod-obi-fyrir-adildarfelog/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240305T130000
DTEND;TZID=UTC:20240305T160000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240223T125933Z
LAST-MODIFIED:20240228T095925Z
UID:16352-1709643600-1709654400@www.obi.is
SUMMARY:Getur barnið þitt beðið lengur? Málþing um biðlista í heilbrigðiskerfinu
DESCRIPTION:Hlusta \nHeilbrigðis- og barnamálahópar ÖBÍ réttindasamtaka standa fyrir málþinginu „Getur barnið þitt beðið lengur? biðlistar í heilbrigðiskerfinu“ þann 5. mars á Nauthól\, Reykjavík frá klukkan 13 til 16. \nDagskrá\n13:00 Willum Þór Þórsson\, heilbrigðisráðherra opnar málþingið.\n13:10 Umboðsmaður barna » Sigurveig Þórhallsdóttir\, lögfræðingur.\n13:30 Sjónarhóll » Bóas Valdórsson\, sálfræðingur og framkvæmdastjóri: „Er biðlistamenning ákjósanleg fyrir börn og fjölskyldur?“\n13:50 Hrönn Stefánsdóttir\, formaður atvinnu- og menntahóps ÖBÍ: Reynslusaga.\n14:10 Kaffihlé.\n14:40 Ráðgjafar- og greiningarstöð ríkisins » Sólveig Sigurðardóttir\, barnalæknir og staðgengill forstjóra: „Áskoranir í þjónustu og biðlistar á RGR.“\n15:00 Velferðarsvið Reykjavíkurborgar » Hákon Sigursteinsson\, sálfræðingur og verkefnastjóri farsældar barna.\n15:20 Geðheilsumiðstöð barna » Anna Sigríður Pálsdóttir\, yfirlæknir: „Biðlistar barna á Geðheilsumiðstöð barna.“\n15:40 Pallborðsumræða. \nMálþingið verður táknmáls- og rittúlkað og því verður streymt.  \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/getur-barnid-thitt-bedid-lengur-malthing/
LOCATION:Nauthóll\, Nauthólsvegur 106\, Reykjavík\, 102\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240301T151500
DTEND;TZID=UTC:20240301T190000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20231221T113613Z
LAST-MODIFIED:20240226T154522Z
UID:15862-1709306100-1709319600@www.obi.is
SUMMARY:Þjóðfundur ungs fólks
DESCRIPTION:HlustaLæst úti? Gerum eitthvað í því!\n\nSköpum inngildandi og aðgengilegt umhverfi fyrir öll í íslensku samfélagi!\n\nUngÖBÍ\, LUF og LÍS standa að Þjóðfundi ungs fólks 2024. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 1. mars 2024 kl. 15:15 í Sykursalnum í Grósku að Bjargargötu 1. Viðburðurinn er hugsaður fyrir þátttakendur á aldrinum 18-35.\n\nSkráning fer fram á:\nhttps://thjodfundur.is/\n\nVerkefnið er styrkt af Erasmus+\n\n\nDAGSKRÁ 1. MARS 2024\n15:15\nHÚSIÐ OPNAR\nSkráning og hressing! \n15:45\nSETNING\nFundarstjóri er Vigdís Hafliðadóttir \n16:00\nOKKAR MÁL?\nTáknararnir Halla Björk Vigfúsdóttir og Magnús Freyr Magnússon fjalla um heyrandi fólk\, táknmál og CODA \n16:10\nVIÐHORF\nPatrekur Andrés Axelsson fjallar um viðhorf í garð blindra og sjónskertra \n16:20\nLOKAÐAR DYR?\nUmræður og álit \n16:40\nHRESSING \n16:55\nAÐ LIFA EÐA LIFA AF\nAtli Már Steinarsson fjallar um lífið með ADHD og OCD \n17:10\nFÆRAST FORDÓMAR OKKAR Á BÖRNIN?\nSigríður Gísladóttir og Þórunn Edda Sigurjónsdóttir frá Okkar heimi fjalla um áhrif fordóma á geðfatlaða einstaklinga og börn þeirra \n17:20\nLYKLAR AÐ SAMFÉLAGINU\nUmræður og álit \n17:50\nALDUR OG FÖTLUN – EKKERT MÁL?\nEiður Welding fulltrúi ungÖBÍ. \n18:00\nHUGSAÐ Í LAUSNUM\nFulltrúar LUF fjalla um lýðræði og áhrif þátttöku \n18:10\nHRESSING \n18:15\nOPNUM DYRNAR\nUmræður og álit \n18:45\nHVAÐ SVO?\nSamantekt og fundarslit \n19:00\nMATUR\, MÚSÍK OG MEIRA …\nBorgarar\, veigar\, DJ …
URL:https://www.obi.is/vidburdir/thjodfundur-ungs-folks/
LOCATION:Gróska\, Bjargargötu 1\, Reykjavík\, 102
CATEGORIES:Á döfinni
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240222T000000
DTEND;TZID=UTC:20240222T000000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240206T102448Z
LAST-MODIFIED:20240206T102448Z
UID:16128-1708560000-1708560000@www.obi.is
SUMMARY:Stjórnarfundur
DESCRIPTION:HlustaStjórnarfundir skulu haldnir a.m.k. átta sinnum á ári. Formaður boðar til stjórnarfunda með minnst viku fyrirvara nema sérstakar aðstæður kalli á annað. Stjórnarfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og meirihluti stjórnarmanna er mættur.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stjornarfundur/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240221T130000
DTEND;TZID=UTC:20240221T160000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240207T120237Z
LAST-MODIFIED:20240619T172009Z
UID:16168-1708520400-1708531200@www.obi.is
SUMMARY:Greinaskrif sem vopn í baráttunni / Fræðsluröð ÖBÍ fyrir aðildarfélög
DESCRIPTION:HlustaMiðvikudaginn 21. febrúar 2024 kl. 13-16:00\, hjá ÖBÍ í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42.\n \nÁ vinnustofunni verður farið yfir þætti sem snúa að greinarskrifum með það að markmiði að auðvelda þátttakendum að skrifa áhugaverðar og áhrifaríkar greinar og nýta sem vopn í baráttunni.\n\nUmfjöllunarefni:  \n1. Hugmyndavinnan \nAð velja umfjöllunarefni\, leita efniviðar og spegla sig í efninu. Að finna mátulegan flöt á viðfangsefninu. Að meta hvort efnið henti höfundi og veki áhuga lesanda. Að virkja áhugahvötina við skrifin. \n2. Ritunarvinnan \nAð fá sjónræna yfirsýn yfir efnið. Að skilja ritunarferlið; að skrifað sé í skrefum. Að kynnast hinu hefðbundna greinarformi. Að átta sig á mikilvægi áhrifaríkrar uppbyggingar. Að skoða stíl og finna málsnið og höfundarödd sem hæfa efni og markhópi. \n3. Frágangurinn \nAð höfundur lesi skrif sín með tilliti til efnis\, málfars og réttritunar. Að textinn fái faglegan yfirlestur og prófarkalestur. Að finna miðil til birtingar. Að búa sig undir viðbrögð lesenda. \nLeiðbeinandi: Björg Árnadóttir er með meistaragráðu í menntunarfræðum og starfar sem rithöfundur\, ritlistarkennari og blaðamaður.    \nÖBÍ ber allan kostnað af námskeiðshaldinu utan skráningargjaldsins\, kr. 2500.-\, sem greiðist af þátttakanda eða því aðildarfélagi sem hann starfar fyrir eða er félagi í.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/greinaskrif-sem-vopn-i-barattunni-fraedslurod-obi-fyrir-adildarfelog/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240207T160000
DTEND;TZID=UTC:20240207T160000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20240206T102329Z
LAST-MODIFIED:20240206T102329Z
UID:16126-1707321600-1707321600@www.obi.is
SUMMARY:Formannafundur ÖBÍ
DESCRIPTION:HlustaFormannafundir skulu haldnir minnst tvisvar á ári. Tilgangur formannafunda er að tryggja samráð og upplýsingamiðlun milli stjórnar og aðildarfélaga. \nFormannafundir skulu boðaðir með a.m.k. tíu daga fyrirvara og tilkynning um fulltrúa berist bandalaginu eigi síðar en viku fyrir fund. Boðaðir skulu allir formenn aðildarfélaga. Formenn mega senda annan fulltrúa í sinn stað.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/formannafundur-obi-2/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240130T130000
DTEND;TZID=UTC:20240130T160000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20231221T134811Z
LAST-MODIFIED:20240126T165849Z
UID:15872-1706619600-1706630400@www.obi.is
SUMMARY:Ertu ekki farin að vinna?! Málþing ÖBÍ um verðleikasamfélag
DESCRIPTION:HlustaKjarahópur og atvinnu- og menntahópur ÖBÍ réttindasamtaka standa fyrir málþingi þriðjudaginn 30. janúar 2024 frá kl. 13:00 til 16:00 á Nauthól.  \nDagskrá\n\nÁvarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson\, félags- og vinnumarkaðsráðherra\nSjónarmið ÖBÍ réttindasamtaka: Alma Ýr Ingólfsdóttir\, formaður ÖBÍ réttindasamtaka\nVirði manneskjunnar handan vinnu: Nanna Hlín Halldórsdóttir\, sérfræðingur við Heimspekistofnun HÍ\nEr vinnan mikilvægari en lífið? – Reynslusaga: Hrönn Stefánsdóttir\, formaður atvinnu- og menntahóps ÖBÍ\nHindranir fyrir atvinnuþátttöku: Anna Margrét Bjarnadóttir\, kjarahópi ÖBÍ réttindasamtaka\nVitundarvakning okkar allra – Reynslusaga: Kristín Auðbjörnsdóttir\, móðir í endurhæfingu\nSpurt og svarað\nKaffihlé\nHvað er inngilding í vinnu innan og utan vinnumarkaðar? Stefan C. Hardonk\, dósent við HÍ\nÉg get unnið með skerta starfsgetu – Reynslusaga: Atli Þór Þorvaldsson\, viðskiptafræðingur með ósýnilega fötlun\nHandverkskonur með örorkulífeyri – Reynslusaga: Guðbjörg Kristín og Þóra Eiríksdætur.\nEr ég bara geðraskanirnar mínar? – Reynslusaga: Geirdís Hanna Kristjánsdóttir\, varaformaður kjarahóps ÖBÍ og valkyrja.\nSpurt og svarað\nLokaorð: Þuríður Harpa Sigurðardóttir\, fundarstjóri.\n\n\nMálþingið tekur fyrir virði manneskjunnar óháð þátttöku á vinnumarkaði og (van)mat á framlagi fatlaðs fólks sem ekki getur tekið þátt á vinnumarkaði.  Þá verður fjallað um inngildingu í atvinnu og hvernig hún birtist innan og utan vinnumarkaðar og áhrif kerfislægra hindrana fyrir atvinnuþátttöku fatlaðs fólks (s.s. tekjuskerðingar). Áhersla verður á fólk með ósýnilegar fatlanir. \nFundarstjóri: Þuríður Harpa Sigurðardóttir\, fyrrverandi formaður ÖBÍ réttindasamtaka. \nMálþinginu verður rit- og táknmálstúlkað og því verður einnig streymt.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/ertu-ekki-farin-ad-vinna-aftur-malthing-um-verdleikasamfelag/
LOCATION:Nauthóll\, Nauthólsvegur 106\, Reykjavík\, 102\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240124T190000
DTEND;TZID=UTC:20240124T210000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20231109T093328Z
LAST-MODIFIED:20231122T094754Z
UID:15364-1706122800-1706130000@www.obi.is
SUMMARY:Vertu þú – Námskeið ÖBÍ og KVAN
DESCRIPTION:HlustaHefst 24. janúar\, kennt á miðvikudögum kl. 19:00-21:00  \nÖBÍ réttindasamtök og KVAN bjóða í samstarfi upp á námskeið fyrir félagsfólk aðildafélaga ÖBÍ. Námskeiðið er sérhannað og skipulagt af KVAN en starfsmenn og stjórnendur fyrirtækisins hafa mikla menntun og áralanga reynslu í námskeiðahaldi. Á námskeiðinu geta þátttakendur öðlast verkfæri til að auka sjálfstraust\, læra markvissa markmiðasetningu\, áhrifarík samskipti og að nýta styrkleika sína. \nFyrir hverja?\nNámskeiðið er fyrir 20-35 ára einstaklinga úr aðildarfélögum ÖBÍ. \nHvað græði ég á að sækja námskeiðið?\nNámskeiðið er sniðið fyrir þá sem vilja styrkja sig í einkalífi\, skóla\, á atvinnumarkaði eða annars staðar. Hér að neðan má sjá nokkra þeirra efnisþátta sem farið verður yfir á námskeiðinu. \nMarkmiðasetning og framtíðarsýn\nVið kennum þátttakendum að setja þér skýra framtíðarsýn og markmið bæði fyrir sjálfa sig eða sitt vinnustaðateymi. Aðferðarfræðin sem við kennum eykur líkur á því að markmið náist og framtíðarýn þátttakenda verði að veruleika. \nSamskipti \nVið kennum aðferðir við að teikna upp samskiptakort\, kortleggja samskipti í starfi og einkalífi.\nVið kennum þátttakendum aðferðarfræði sem að hjálpar þei að þróa með sér enn betri samskiptafærni með áherslu á jákvæð samskipti. \nStyrkleikamiðuð nálgun\nRannsóknir sýna að með því að veita styrkleikum þínum athygli þá geta líkurnar á árangri margfaldast. Þátttakendur taka styrkleikapróf og við lesum úr því saman og lærum að yfirfæra á líf okkar \nSjáfstraust og sjálfsmynd\nVið lifum í samfélagi þar sem samfélagsmiðlar hafa mikil áhrif á okkar daglega líf. Það er nær óhjákvæmilegt að við berum okkar líf saman við líf annara. Hvaða áhrif hefur það? Hvernig mótast okkar sjálfsímynd og sjálfstraust þegar við sjáum afrek annara í glansmynd á hverjum degi? Er raunhæft að maður sé alltaf hamingjusamur og sáttur í eigin skinni? Við skoðum saman hver við erum sem einstaklingar og er ástæða fyrir því að við séum eins og við erum? \nSkipulag\nNámskeiðið er kennt í 3 skipti\, á fimmtudögum í 2 klst. í senn. Námskeiðið hefst þann 23. nóvember og lýkur þann 7. desember. Kennt verður dagana 23. og 30. nóvember og  7. desember. Námskeiðið fer fram í húsnæði ÖBÍ að Sigtúni 42\, 105 Reykjavík. \nEftir námskeið hjá KVAN ættu þátttakendur að geta fundið aukinn kraft\, meira jafnvægi og aukið sjálfstraust. Við styrkjum sjálfstraustið og trú á eigin getu ásamt því að finna leiðir til að vera í meira jafnvægi sem nýtist okkur vel þegar takast þarf á við breytingar hvort sem það er á starfsvettvangi eða lífinu sjálfu. Þátttakendur geta lært að finna leið til að hámarka árangur sinn sem nýst getur í leik og eða starfi. \nÞar sem ÖBÍ réttindasamtök niðurgreiðir langstærstan hluta kostnaðar er skráningargjald aðeins 2.500 krónur á þátttakanda. \nSkráning: \nVertu þú – Námskeið ÖBÍ og KVAN
URL:https://www.obi.is/vidburdir/vertu-thu-namskeid-obi-og-kvan/
LOCATION:Sigtún 42
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231203T110000
DTEND;TZID=UTC:20231203T110000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20231121T093845Z
LAST-MODIFIED:20231128T100912Z
UID:15517-1701601200-1701601200@www.obi.is
SUMMARY:Alþjóðadagur fatlaðs fólks - Hvatningarverðlaun ÖBÍ
DESCRIPTION:HlustaHvatningarverðlaun ÖBÍ verða afhent þann 3. desember\, alþjóðadag fatlaðs fólks\, í Mannréttindahúsinu í Sigtúni 42. Verðlaunahátíðin hefst klukkan 11 og eru öll boðin velkomin. \nVerðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku\, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks. Markmiðið er alltaf líf til jafns við aðra. \nTilnefnd í ár eru: \n\nGunnar  Árnason\n\nGott fordæmi í þjónustu við fatlað fólk\nNálgun sem endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku\, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðlar að einu samfélagi fyrir alla.\n\n\n\n\nBíó Paradís\n\nFrumkvæði að aðgengi fyrir alla með sérstöku tilliti til ólíkra hópa\nNálgun sem endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku\, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðlar að einu samfélagi fyrir alla.\n\n\n\n\nKolbrún Karlsdóttir\n\nBergmál líknar- og vinafélag – orlofsdvöl\, skemmtun og samvera fyrir fatlað fólk\nNálgun sem endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku\, sjáfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðlar að einu samfélagi fyrir alla.\n\n\n\n\nÞórunn Eva G. Pálsdóttir\n\nMia Magic – stuðningur og fræðsla til langveikra barna og foreldra þeirra\nNálgun sem endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku\, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðlar að einu samfélagi fyrir alla.\n\n\n\nÁ alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember ár hvert er kastljósinu beint að réttindabaráttu fatlaðs fólks og mikilvægu framlagi þess breiða hóps í samfélaginu. Fatlað fólk er um 15 prósent mannkyns samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar\, yfir milljarður á heimsvísu – og um 57.000 manns hér á landi. ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir átakinu Upplýst samfélag 3. desember þar sem landsmenn allir eru hvattir til að lýsa hús sín upp í fjólubláum lit. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/althjodadagur-fatlads-folks-hvatningarverdlaun-obi/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2023/11/Hvatningarverdlaun-2022-FORSIDA-STREYMI-lott.pptx.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231115T130000
DTEND;TZID=UTC:20231115T160000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230607T164951Z
LAST-MODIFIED:20231109T113743Z
UID:13328-1700053200-1700064000@www.obi.is
SUMMARY:Fræðsluröð ÖBÍ - Verkefnastjórnun
DESCRIPTION:HlustaLeiðbeinandi: Haukur Ingi Jónasson\, lektor víð HR\, MBA\, SAMP  \nFjallað verður um verkefnastjórnun út frá mismunandi sjónarhornum.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/verkefnastjornun-namskeid/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231025T153000
DTEND;TZID=UTC:20231107T190000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230607T110640Z
LAST-MODIFIED:20231017T103103Z
UID:13310-1698247800-1699383600@www.obi.is
SUMMARY:Námsstefnan 2023
DESCRIPTION:HlustaNámsstefna ÖBÍ verður haldin dagana 25. október og 7. nóvember 2023 – kl. 15:30-19:00 \nÞátttakendur:Fyrri dagurinn er sérstaklega ætlaður nýjum fulltrúum í stjórn og málefnastarfi\, einnig nýju starfsfólk ÖBÍ. Fulltrúum\, sem hafa setið og sitja áfram\, er velkomið að mæta.\nSeinni dagurinn er ætlaður  öllum fulltrúum í stjórn og málefnastarfi\, sem og starfsfólk ÖBÍ.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/namsstefnan-2023/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231025T113000
DTEND;TZID=UTC:20231025T113000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20231023T155409Z
LAST-MODIFIED:20231023T155409Z
UID:15044-1698233400-1698233400@www.obi.is
SUMMARY:Reykjalundur vígir ramp númer 900 og þér er boðið!
DESCRIPTION:HlustaÁ miðvikudaginn\, 25 október kl 11:30 verður rampur númer níuhundruð í átakinu „Römpum upp Ísland” vígður við hátíðlega athöfn í Reykjalundi í Mosfellsbæ. Þessi atburður markar tímamót í átakinu „Römpum upp Ísland”\, sem\, eins og þér er kunnugt stefnir að því að byggja 1.500 rampa í þágu hreyfihamlaða fyrir 11. mars 2025. \nFjöldi rampa hafa verið byggðir fyrir endurhæfingarmiðstöðina í Reykjalundi og verður það Valgerður Karlsdóttir\, íbúi að Hlein sem fær heiðurinn að því að klippa á rauða borðann fyrir framan ramp númer níuhundruð en á öllu svæðinu Í Reykjalundi voru teiknaðir og reistir 31 rampar\, og einnig var gangstétt lækkuð fyrir fimm bílastæði fatlaðra. \nÁ Reykjalundi er rekin alhliða endurhæfingarstarfsemi á vegum SÍBS\, Samband íslenskra berkla-og brjóstholssjúklinga\, sem þjónustar sjúklinga sem glíma við ýmsa heilsubresti. Endurhæfingarmiðstöðvarnar í Reykjalundi skiptast í hjartasvið\, lungnasvið\, taugasvið\, geðsvið\, gigtarsvið\, hæfingarsvið\, næringarsvið og verkjasvið.  \nStarfsemin getur nú boðið öllum sínum gestum upp á bætt hjólastólaaðgengi\, þökk sé átakinu „Römpum upp Ísland“. Pétur Magnússon\, forstjóri Reykjalundar\, Regína Ástvaldsdóttir\, bæjarstjóri Mosfellsbæjar og athafnamaðurinn Haraldur Þorleifsson sem stendur fyrir átakinu Römpum upp Ísland taka til máls auk þess sem Gréta Salome syngur og flytur ljúfa tóna fiðlunnar. \nÁtakið Römpum upp Ísland hefur nú reist 900 rampa og var sá fyrsti tekinn í notkun í maí 2021. Upphaflega var stefnt að því að reisa þúsund rampa\, en var sú ákvörðun svo tekin síðastliðið haust að reisa eitt þúsund og fimmhundruð.  \nAð verkefninu koma margir styrktaraðilar\, þeirra á meðal: Ueno\, Össur\, Deloitte\, Brandenburg\, Aton.JL\, Lex lögmannsstofa\, BM Vallá\, Icelandair\, Orkan\, ÞG Verk\, Sjálfsborg\, ÖBÍ\, Reykjavíkurborg og Innviðaráðuneytið. Að auki hefur fjölmargt stuðningsfólk lagt hönd á verkið\, að þér meðtöldum.  \nYkkur er boðið að vera viðstödd athöfnina að Reykjalundi á næstkomandi miðvikudag kl. 11:30 sem stendur yfir í um 30 mínútur. Að víglsunni lokinni býður Reykjalundur vígslugestum til hádegisverðar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/reykjalundur-vigir-ramp-numer-900-og-ther-er-bodid/
LOCATION:Reykjalundur
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231024T123000
DTEND;TZID=UTC:20231024T133000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20231017T091731Z
LAST-MODIFIED:20231017T091731Z
UID:14938-1698150600-1698154200@www.obi.is
SUMMARY:Kvennaverkfallskaffi í Sigtúni
DESCRIPTION:HlustaBoðið verður upp á kaffi og með því í Sigtúni 42 í tilefni af kvennaverkfalli 24. október frá klukkan 12:30 til 13:30. Orðið verður laust fyrir gesti sem vilja taka til máls í tilefni dagsins. \n48 ár eru nú liðin frá fyrsta kvennafrídeginum og verkfallið 2023 verður það sjötta í röðinni. Konur verða enn fyrir kerfisbundnu launamisrétti og kynbundnu ofbeldi verður að útrýma. \n„Konur og kvár sem geta leggja niður störf\, hvort sem um er að ræða launaða eða ólaunaða vinnu\, líkt og umönnun barna\, að sinna heimilinu eða þriðju vaktina svokölluðu. Svo eru þau hvött til að mæta á útifundi á Arnarhóli eða í sinni heimabyggð og sýna samstöðu í verki\,“ segir á vefsíðu kvennaverkfallsins\, kvennafri.is.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/kvennaverkfallskaffi-i-sigtuni/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231020T170000
DTEND;TZID=UTC:20231024T200000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20231020T131913Z
LAST-MODIFIED:20241112T174341Z
UID:14997-1697821200-1698177600@www.obi.is
SUMMARY:List án landamæra - 20 ára afmælisdagskrá
DESCRIPTION:Hlusta\n VERTU MEÐ Í STUÐINU! \n\n\nAFMÆLISDAGSKRÁ vikunnar hjá List án landamæra er þessi:\n\n\n—– FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER frá 17-20 (5-8) —-\nWorkshop/námskeið í dansi og framkomu með DRAG SYNDROME á Dansverkstæðið\nSkráning og frekari upplýsingar má finna hér: .\n\n\n—- LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER frá 19.00 – 21.30 —-\nAFMÆLISVEISLAN okkar í KOLAPORTINU (Hafnarþorpið)\nFram koma: Embla Guðrúnar Ágústsdóttir\, Listvinnslan\, Stuðhljómsveitin í Fjölmennt\, Drag Syndrome og Páll Óskar!!!\nKynnir kvöldsins er engin önnur en Starína!\nHér er hægt að skrá sig í afmælisveisluna okkar: .\n\n\n—- ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER klukkan 20.00 —-\nDRAG SYNDROME ásamt góðum gestum í Þjóðleikhúskjallaranum AÐEINS 13 SÆTI LAUS!: https://leikhusid.is/syningar/drag-syndrome/…\n\n\nFYRIR SÝNINGU klukkan 16.30 til 18.00 verður Listamannaspjall / PUBLIC TALK með Drag syndrome í Þjóðleikhúskjallaranum.\n\n\n\nAðgengi að workshoppi í Dansverkstæði er gott.\n\n\nAðgengi í Kolaportinu á afmælinu okkar er gott.\n\n\nAðgengi í Þjóðleikhúskjallara er gott\, það er farið inn með lyftu á hægri hlið húss fyrir þau sem nota hjólastól eða eiga erfitt með gang. Við munum bæta frekari upplýsingum inn seinna með myndum.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/list-an-landamaera-20-ara-afmaelisdagskra/
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231006T160000
DTEND;TZID=UTC:20231007T170000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230629T170344Z
LAST-MODIFIED:20230630T104751Z
UID:13892-1696608000-1696698000@www.obi.is
SUMMARY:Aðalfundur ÖBÍ 2023
DESCRIPTION:HlustaAðalfundur ÖBÍ réttindasamtaka verður haldinn föstudaginn 6. október\, kl. 16.00-20.00 og laugardaginn 7. október 2023\, kl. 10.00–17.00 á Grand Hóteli Reykjavík.   \nÁ aðalfundi eiga rétt til setu fulltrúar tilnefndir af hverju aðildarfélagi. Fjöldi fulltrúa hvers aðildarfélags ræðst af eftirfarandi: \n\n\nFélag með hundrað fullgilda félaga eða færri fær tvo fulltrúa.\nFélag með 101 til 1000 fullgilda félaga fær þrjá fulltrúa.\nFélag með 1001 til 2000 fullgilda félaga fær fjóra fulltrúa.\nFélag með 2001 til 3000 fullgilda félaga fær fimm fulltrúa.\nFélag með 3001 og fleiri fullgilda félaga fær sex fulltrúa.\n\nÍ síðasta lagi sex vikum fyrir aðalfund skulu aðildarfélög skila til stjórnar lista yfir aðalfundarfulltrúa og varamenn. Félögin skulu leitast við að fulltrúar þess endurspegli mismunandi kyn\, aldur og búsetu eftir því sem kostur er. \nLög ÖBÍ – ÖBI (obi.is)
URL:https://www.obi.is/vidburdir/adalfundur-obi-2/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20230928T130000
DTEND;TZID=UTC:20230928T160000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230607T110537Z
LAST-MODIFIED:20230607T110537Z
UID:13308-1695906000-1695916800@www.obi.is
SUMMARY:Fræðsluröð ÖBÍ - Fjárlögin krufin
DESCRIPTION:HlustaLeiðbeinandi: Ágúst Ólafur Ágústsson\, hagfræðingur\, lögfræðingur\, MPA.Rýnt verður í fjárlögin\, leiðbeint um umsagnagerð og hagsmunagæslu.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fraedslurod-obi-fjarlogin-krufin/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230601
DTEND;VALUE=DATE:20230602
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230525T105321Z
LAST-MODIFIED:20230525T105321Z
UID:13179-1685577600-1685663999@www.obi.is
SUMMARY:„Co-creating a better future“
DESCRIPTION:HlustaFélags- og vinnumarkaðsráðuneytið stendur fyrir málþinginu „Co-creating a better future“ þann 1. júní næstkomandi\, í tilefni af formennsku Íslands í Norræna ráðherraráðinu. \nTil umræðu eru helstu áskoranir í velferðarmálum og framtíð þjónustu við fatlað fólk. \n\nSjá má dagskrá hér.\n\nFundurinn er haldinn í Hörpu og verður á ensku. Hægt er að skrá sig með því að ýta á þennan hlekk. \nRáðuneytið biður um að fyrirspurnum verði beint til thor.thorarinsson@frn.is
URL:https://www.obi.is/vidburdir/co-creating-a-better-future/
LOCATION:Harpa\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20230523T110000
DTEND;TZID=UTC:20230523T120000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230523T090305Z
LAST-MODIFIED:20230523T090305Z
UID:13142-1684839600-1684843200@www.obi.is
SUMMARY:Lífskjör og heilbrigðisþjónusta á Íslandi - kynning
DESCRIPTION:HlustaNiðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun HÍ vann fyrir ÖBÍ réttindasamtök og prófessor Rúnar Vilhjálmsson verða kynntar í Ingjaldsstofu Háskóla Íslands (HT101) klukkan 11:00 þann 23. maí.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/lifskjor-og-heilbrigdisthjonusta-a-islandi-kynning/
LOCATION:Háskóli Íslands
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20230523T110000
DTEND;TZID=UTC:20230523T110000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230522T114058Z
LAST-MODIFIED:20230522T114058Z
UID:13126-1684839600-1684839600@www.obi.is
SUMMARY:Kynning á niðurstöðum rannsóknar um heilbrigðismál
DESCRIPTION:HlustaNiðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun HÍ vann fyrir ÖBÍ réttindasamtök verða kynntar í húsnæði Háskóla Íslands klukkan 11 þann 23. maí.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/kynning-a-nidurstodum-rannsoknar-um-heilbrigdismal/
LOCATION:Háskóli Íslands
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230522
DTEND;VALUE=DATE:20230901
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230525T104814Z
LAST-MODIFIED:20230615T143817Z
UID:13177-1684713600-1693526399@www.obi.is
SUMMARY:Samráðsfundir um landsáætlun um land allt
DESCRIPTION:Hlusta\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðmundur Ingi Guðbrandsson\, félags- og vinnumarkaðsráðherra\, heldur opna samráðsfundi víðs vegar um landið á næstu vikum. Fjallað verður um helstu áherslur ríkisstjórnarinnar í þjónustu við fatlað og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Tilgangur fundanna er að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma. \nÖBÍ réttindasamtök hvetja því allt fatlað fólk á landinu til að sækja þessa fundi og taka þátt í þessu samtali. \n\nSkrá þátttöku\nEf þörf er á táknmálstúlkun\, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð er mikilvægt að það komi fram við skráningu\n\nDagskrá:\n*Á fundunum mun ráðherra flytja opnunarávarp og kynnt verða nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða verður kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga\,“ segir á vef stjórnarráðsins. \nFundirnir verða á eftirtöldum stöðum:\n19. júní – Akureyri kl. 17 (Hof – Hamrar) \n21. júní – Ísafjörður kl. 12 (staðsetning augl. síðar) \n22. júní – Egilsstaðir kl. 17 (staðsetning augl. síðar) \n26. júní – Selfoss kl. 17 (Hótel Selfoss) \n27. júní – Höfuðborgarsvæðið kl. 17 (staðsetning augl. síðar) \n29. júní – Rafrænn fundur fyrir allt landið kl. 20:00 \nÁgúst – Sauðárkrókur (dagsetning og staðsetning augl. síðar) \nÁgúst – Höfn (dagsetning og staðsetning augl. síðar)\n \n\nSkrá þátttöku
URL:https://www.obi.is/vidburdir/samradsfundir-um-landsaaetlun-um-land-allt/
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20230520T150000
DTEND;TZID=UTC:20230520T150000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230517T103431Z
LAST-MODIFIED:20230517T103431Z
UID:13098-1684594800-1684594800@www.obi.is
SUMMARY:Rampur númer 500 vígður á Akureyri
DESCRIPTION:HlustaTugum nýrra hjólastólarampa hefur verið komið upp á Akureyri á síðustu vikum. Laugardaginn 20. maí klukkan 15:00 ætla aðstandendur Römpum upp Ísland að vígja ramp númer 500 og verður það gert við skemmtistaðinn Vamos á Ráðhústorgi Akureyrar. \nBæjarfulltrúarnir Hlynur Jóhannsson og Hulda Elma Eysteinsdóttir segja nokkur orð og Sigrún María Óskarsdóttir vígir rampinn. Boðið verður upp á tónlistaratriði og óáfengan sumardrykk.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/rampur-numer-500-vigdur-a-akureyri/
LOCATION:Vamos\, Ráðhústorg 9\, Akureyri\, 600\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20230516T160000
DTEND;TZID=UTC:20230516T190000
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230428T103112Z
LAST-MODIFIED:20230428T103132Z
UID:12894-1684252800-1684263600@www.obi.is
SUMMARY:Efldu þig – efldu félagið þitt!
DESCRIPTION:HlustaEfldu þig – efldu félagið þitt! er næsta námskeið í Fræðsluröð ÖBÍ og fer það fram þriðjudaginn 16. maí 2023 frá kl. 16-19:00 hjá ÖBÍ\, Sigtúni 42\, 105 Reykjavík. Þátttakendur greiða skráningargjald að upphæð kr. 2.500.-\, annan kostnað ber ÖBÍ. Skráning hér \nMarkmiðMarkmið námskeiðsins er að virkja jákvæðan og skapandi huga og efla þátttakendur í að taka af skarið\, koma fram og standa með sjálfum sér og sínu félagi. Með því að fara út fyrir þægindahringinn aukum við möguleikann á því að ná árangri í því sem við ætlum okkur og með meiri árangri eykst sjálfstraustið til þess að halda áfram að takast á við nýjar áskoranir. \nKennari: Brynja Valdís GísladóttirBrynja Valdís er menntuð leikkona og leiklistarkennari frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur mikla reynslu af því að koma fram\, skemmta\, kenna/þjálfa og styrkja folk í að tjá sig og taka af skarið. \nFræðsluröð ÖBÍ 2023\nFræðsluröð ÖBÍ er ætluð starfsfólki og félagsmönnum aðildarfélaga bandalagsins.ÖBÍ ber allan kostnað af námskeiðshaldinu utan skráningargjaldsins sem greiðist af þátttakanda eða því aðildarfélagi sem hann starfar fyrir eða er félagi í. \nSkráning hér 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/efldu-thig-efldu-felagid-thitt/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230510
DTEND;VALUE=DATE:20230511
DTSTAMP:20260505T024526
CREATED:20230428T121802Z
LAST-MODIFIED:20230428T121811Z
UID:12896-1683676800-1683763199@www.obi.is
SUMMARY:NNDR 2023
DESCRIPTION:HlustaFélag um fötlunarrannsóknir tilkynnir um 16. ráðstefnu Nordic Network on Disability Research (NNDR) sem verður haldin á Grand hotel Reykjavík 10.-12. maí næstkomandi. \nAlþjóðlegir sérfræðingar í fötlunarfræði halda þar fyrirlestra. Þar á meðal Theresia Degener\, prófessor í fötlunarfræði við Bochum Center for Disability Studies í Þýskalandi\, en hún hefur um árabil verið formaður eftirlitsnefndar við samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Aðrir aðalfyrirlesarar eru Lydia X. Z. Brown\, aktívisti og adjúnkt í fötlunarfræði við Georgetown University í Bandaríkjunum og Rannveig Traustadóttir\, prófessor emerita við Háskóla Íslands.  \n  \nNánari upplýsingar um aðalfyrirlesara má finna á nndr2023.is. Auk aðalfyrirlestra verða um 500 kynningar á rannsóknum í málstofum um viðfangsefni sem tengjast ýmsum sviðum í lífi fatlaðs fólks. \n  \nÞetta er í fyrsta sinn í sögu NNDR-ráðstefnunnar sem Félag um fötlunarrannsóknir leggur sérstaka áherslu á þátttöku fræðafólks og annarra aðila á sviði rannsókna um döff og heyrnarlaust fólk. Einn aðalfyrirlesaranna er Hilde Haualand en hún er fyrsti döff einstaklingurinn til að gegna stöðu prófessors í Noregi. Auk þess verður fjöldi erinda í málstofum sem fjalla um rannsóknir á þessu sviði. \n  \nRáðstefnan verður stærsta fötlunarfræðiráðstefna á Norðurlöndum frá upphafi fræðigreinarinnar og mögulega sú stærsta í heiminum. Hún er vettvangur fræðslu og samskipta á milli fræðafólks\, aðila úr hagsmunasamtökum fatlaðs fólks\, fagfólks\, aðila í þjónustu og hjá yfirvöldum og fleira fólks. Þátttakendur koma frá Norðurlöndunum en einnig frá Evrópu\, Bandaríkjunum\, Kanada og víða að úr heiminum. \n  \nEins og önnur ríki stendur Ísland frammi fyrir margþættum áskorunum í framkvæmd réttindasáttmála fatlaðs fólks. Nú þegar ráðstefnan er haldin á Íslandi býðst öllum þeim sem koma að málefnum fatlaðs fólks tækifæri til að kynna sér nýjustu rannsóknir\, nálganir og aðferðir á sviði fötlunarfræði á Norðurlöndum og á alþjóðavísu. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/nndr-2023/
LOCATION:Hagasmári 1\, Hagasmári 1\, Kópavogur\, 201\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
END:VCALENDAR