BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250319T130000
DTEND;TZID=UTC:20250319T160000
DTSTAMP:20260505T043616
CREATED:20250304T113654Z
LAST-MODIFIED:20250318T095721Z
UID:33961-1742389200-1742400000@www.obi.is
SUMMARY:Fræðsluröð ÖBÍ: Hvernig geta öryrkjar verið sjálfstætt starfandi?
DESCRIPTION:HlustaNámskeið um eigin rekstur\, skil á gjöldum og framtalsgerð.  Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig á að setja upp rekstrarreikning á grundvelli fyrirlyggjandi upplýsinga um tekjur og gjöld\, svo að fylla út eyðablöð skattaframtals á grundvelli upplýsinga í rekstrarreikningi. \nFyrir hverja er námskeiðið: endurhæfingar- og örorkulífeyristaka.\nHvenær: miðvikudaginn 19. mars 2025 frá klukkan 13 til 16.\nHvar: Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42. Reykjavík (2 hæð). \nLeiðbeinandi er Jón Arnar Baldurs\, aðjunkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Starfsmaður frá TR svarar spurningum varðandi áhrif atvinnutekna við útreikning örorkulífeyris. \nNámskeiðslýsing:\nAðilar í eigin rekstri þurfa við gerð skattframtals að útbúa rekstrarreikning vegna starfsemi sem hefur að geyma upplýsingar um tekjur og gjöld á árinu. Hvað teljast tekjur er yfirleitt frekar einfalt en vandamálin snúa fremur að því hvaða kostnað má gjaldfæra á móti tekjum? \nÁ námskeiðinu er fjallað um:\n• Rekstur á eigin kennitölu\, fyrir smáfyrirtæki (velta allt að 10-15 milllj.).\n• Veltulágmarkið í virðisaukaskatti.\n• Frádráttarbæran rekstrarkostnað. Hvað má ekki draga frá tekjum.\n• Einka- og eignakostnað.\n• Gerð rekstrarreiknings.\n• Framtal til skatts (Eyðublöð 4.10 og 4.11). Einnig verður farið yfir önnur eyðublöð sem tilheyra einstaklingsrekstri (Eyðublöð 4.01\, 4.03 og 4.05). \nSkráningarfrestur er liðinn. \nRit- og táknmálstúlkun í boði. \nHægt verður að taka þátt á námskeiðinu í gegnum Zoom. \nFræðsluröð ÖBÍ. Námskeiðið er á vegum kjarahóps ÖBÍ og atvinnu- og menntahóps ÖBÍ.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fraedslurod-obi-ertu-oryrki-og-verktaki/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/03/2025-1-b-c-namskeid-sjalfstaett-starfandi-20250227_181444-e1741364278975.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250410T113000
DTEND;TZID=UTC:20250410T130000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250219T173528Z
LAST-MODIFIED:20250407T092210Z
UID:33681-1744284600-1744290000@www.obi.is
SUMMARY:Hádegisfundur um aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu
DESCRIPTION:HlustaGott aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og snemmtækri íhlutun skiptir sköpum til þess að styrkja fólk og auka seiglu. Mikið hefur verið rætt um lágþröskuldaúrræði og hvernig allir eigi að hafa aðgengi að fagfólki í geðheilbrigðisþjónustu sem hluta af almennri heilbrigðisþjónustu.\n\nEn þrátt fyrir fögur fyrirheit standa margir hópar eftir – og hafa lítinn sem engan aðgang að almennri geðheilbrigðisþjónustu. Á fundinum ræðum við skort á aðgengi fyrir fólk með fötlun að geðheilbrigði og hvaða lausnir eru í boði. Hvernig tryggjum við geðheilbrigði fyrir öll?\n\nFrummælendur:\nEva Ágústa Aradóttir\, ljósmyndari og stjórnandi hlaðvarpsins Ráfað um rófið\nGísli Kort Kristófersson\, prófessor í geðhjúkrun við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur í geðhjúkrun\nLiv Anna Gunnell\, fagstjóri sálfræðiþjónustu Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
URL:https://www.obi.is/vidburdir/hadegisfundur-um-adgengi-ad-gedheilbrigdisthjonustu/
LOCATION:Hilton Reykjavík Nordica\, Suðurlandsbraut 2\, Reykjavík\, 108\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2023/04/Fani-gedheilbrigdis-Mental_Health_Flag-Wikimedia-Commons.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250501T130000
DTEND;TZID=UTC:20250501T160000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250203T100412Z
LAST-MODIFIED:20250428T134128Z
UID:33236-1746104400-1746115200@www.obi.is
SUMMARY:Réttindaganga ÖBÍ á 1. maí
DESCRIPTION:HlustaÖBÍ réttindasamtök hvetja allt fatlað fólk til að fjölmenna í kröfugöngu frá Skólavörðuholti niður á Ingólfstorg þann 1. maí. Nú sem fyrr er mikilvægt að fatlað fólk á Íslandi láti vel í sér heyra og krefjist jöfnuðar og réttlætis\, bættra kjara og að sköpuð séu störf við hæfi. \nSafnast verður saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti klukkan 13:00. Gengið er af stað klukkan 13:30 niður Skólavörðustíg\, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi þar sem dagskrá tekur við. \nBifreiðar með hreyfihamlaða einstaklinga með stæðiskort hafa heimild til að fara í gegnum mannaða lokun við Frakkastíg/Bergþórugötu og þaðan inn á sleppistæði við Tækniskólann og sömu leið út. Því þarf stæðiskorthafi að vera farþegi í bílnum. Einnig er gert  ráð fyrir sleppistæði við mannaða lokun við gatnamót Eiríksgötu/Njarðargötu. \nÖBÍ réttindasamtök bjóða í kaffi að dagskrá lokinni í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42\, og bjóða upp á ferðir frá Ingólfstorgi. Öll velkomin. \nMætum\, krefjumst réttlætis og látum í okkur heyra.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/rettindaganga-obi-a-1-mai-2/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/05/2024-05-01-Krofuganga-OBI-1.-mai-082-scaled-e1745847589519.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250507T153000
DTEND;TZID=UTC:20250507T170000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250423T091427Z
LAST-MODIFIED:20250423T091427Z
UID:35187-1746631800-1746637200@www.obi.is
SUMMARY:Þetta er allt í vinnslu... - málþing um húsnæðistækifæri ungs fatlaðs fólks
DESCRIPTION:HlustaHver er staða ungs fatlaðs fólks á húsnæðis- og leigumarkaði? Hvaða hindranir standa í vegi fyrir þessum fjölbreytta hópi fólks og hvaða aðgerðir þarf að ráðast í til að jafna aðgengi þeirra að húsnæðisöryggi? \n  \nHúsnæðishópur ÖBÍ réttindasamtaka stendur fyrir málþinginu „Þetta er allt í vinnslu… húsnæðistækifæri ungs fatlaðs fólks“ þann 7. maí á Hótel Reykjavík Grand\, í Háteigi frá kl. 15:30 – 17:00. Fundarstjóri verður Alma Ýr Ingólfsdóttir\, formaður ÖBÍ réttindasamtaka. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra opnar fundinn. \n  \nÞrátt fyrir fögur fyrirheit um aðgerðir í húsnæðismálum fatlaðs fólks virðast lausnirnar alltaf vera rétt handan við hornið og fólk er beðið um að vera þolinmótt aðeins lengur. Sú staða er sérstaklega slæm fyrir ungt fatlað fólk sem fær ekki tækifæri til að lifa sjálfstæðu lífi líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra. Á fundinum ræðum við hvernig staðan er og við heyrum frásagnir ungs fólks af reynslu sinni af húsnæðismarkaðnum. \n  \nHægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum streymi. Þau sem ætla að mæta á Hótel Reykjavík Grand eru vinsamlegast beðin um að skrá sig í gegnum hlekkinn hér að neðan. \n  \nSkráning: Þetta er allt í vinnslu… \n \n  \nFrummælendur: \n\n\n\nMaría Pétursdóttir\, formaður húsnæðishóps ÖBÍ\nSveinbjörn Benedikt Eggertsson varaformaður Átaks\, félags fólks með þroskahömlun\nÁslaug Ýr Hjartardóttir nemandi við Háskóla Íslands\nStyrmir Hallsson fulltrúi Sjálfsbjargar í UngÖBÍ\nAlexander Steingrímsson hugaraflsfélagi og sjálfboðaliði
URL:https://www.obi.is/vidburdir/thetta-er-allt-i-vinnslu-malthing-um-husnaedistaekifaeri-ungs-fatlads-folks/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/04/Allt-i-vinnslu.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250515T070000
DTEND;TZID=UTC:20250515T153000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250205T104557Z
LAST-MODIFIED:20250515T154943Z
UID:33279-1747292400-1747323000@www.obi.is
SUMMARY:Alþjóðlegur dagur stafræns aðgengis
DESCRIPTION:HlustaAlþjóðadagur stafræns aðgengis er haldinn hátíðlegur 15. maí. Nánari upplýsingar um hvernig ÖBÍ réttindasamtök munu hafa daginn í heiðri munu birtast hér er nær dregur.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/althjodlegur-dagur-stafraens-adgengis/
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2023/03/Stafraent-adgengi-lyklabord.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250520T160000
DTEND;TZID=UTC:20250520T170000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250515T110930Z
LAST-MODIFIED:20250515T110930Z
UID:35869-1747756800-1747760400@www.obi.is
SUMMARY:Stofnfundur hóps eldri félaga innan ÖBÍ réttindasamtaka
DESCRIPTION:HlustaStofnfundur hóps eldri félaga innan ÖBÍ verður haldinn í miðrými Mannréttindahússins\, Sigtúni 42\, klukkan 16:00 þriðjudaginn 20. maí. \nAllir félagsmenn aðildarfélaga sextíu ára og eldri velkomnir og heitt á könnunni. \nTilgangur með hópnum er að: \n\n\nLjá þessum aldurshópi rödd \n\n\nFinna út sérstöðu þessa hóps \n\n\nHittast og hafa gaman
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stofnfundur-hops-eldri-felaga-innan-obi-rettindasamtaka/
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/05/91522deb-9713-4b49-be7f-79b1aed629bd.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250522T160000
DTEND;TZID=UTC:20250522T183000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250206T184912Z
LAST-MODIFIED:20250512T125027Z
UID:33318-1747929600-1747938600@www.obi.is
SUMMARY:Stjórnarfundur
DESCRIPTION:HlustaFundur stjórnar ÖBÍ réttindasamtaka fimmtudaginn\, 22. maí 2025. \nUm stjórn ÖBÍ og framkvæmdaráð
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stjornarfundur-6/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/02/Stjorn-OBI-2024-2025-1000x500-1.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250721T080000
DTEND;TZID=UTC:20250804T160000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250624T174440Z
LAST-MODIFIED:20250624T174440Z
UID:36501-1753084800-1754323200@www.obi.is
SUMMARY:Skrifstofa ÖBÍ lokar vegna sumarleyfa
DESCRIPTION:HlustaSkrifstofa ÖBÍ réttindasamtaka verður lokuð frá og með mánudeginum 21. júlí til þriðjudagsins 5. ágúst 2025.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/skrifstofa-obi-lokar-vegna-sumarleyfa/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/07/20170625_200320-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250731T080000
DTEND;TZID=UTC:20250731T235500
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250625T095106Z
LAST-MODIFIED:20250701T123516Z
UID:36504-1753948800-1754006100@www.obi.is
SUMMARY:Námsstyrkir -  framlengdur umsóknarfrestur til 30. júlí
DESCRIPTION:HlustaÖBÍ réttindasamtök veita fötluðu fólki styrki til að mennta sig.  Öll sem eru í námi í fötlunarfræðum geta einnig sótt um styrk. Við hjá ÖBÍ hvetjum þig til að hefja nám og öðlast nýja færni. Umsóknarfrestur til að sækja um námsstyrk á árinu 2025 er til 30. júnlíí næstkomandi (framlengdur frestur). \nSjá nánar » Námsstyrkir ÖBÍ – ÖBI
URL:https://www.obi.is/vidburdir/namsstyrkir-umsoknarfrestur-til-30-juni/
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/06/Nam-Menntun-blyantar-1200x1022-px.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250809T140000
DTEND;TZID=UTC:20250809T170000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250512T124037Z
LAST-MODIFIED:20250512T141332Z
UID:35683-1754748000-1754758800@www.obi.is
SUMMARY:Gleðigangan 2025
DESCRIPTION:HlustaÖBÍ réttindasamtök munu taka þátt í gleðigöngunni 2025 laugardaginn 9. ágúst.  Nánari upplýsingar um þátttöku okkar munu birtast hér er nær dregur gleðigöngunni. \n„Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00. Gengið er þaðan eftir Skólavörðustíg\, Bankastræti\, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar\, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við. “  Gleðigangan – Hinsegin dagar \nEinnig viljum við vekja athygli á umsögn réttindasamtakanna frá 2. maí 2025: Áform um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2026-2029 – ÖBI
URL:https://www.obi.is/vidburdir/gledigangan-2025/
LOCATION:Skólavörðuholt\, Hallgrímstorgi 1\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/05/Gledigangan-scaled-e1747053503807.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250821T160000
DTEND;TZID=UTC:20250821T183000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250624T173423Z
LAST-MODIFIED:20250624T174355Z
UID:36497-1755792000-1755801000@www.obi.is
SUMMARY:Stjórnarfundur
DESCRIPTION:HlustaFundur stjórnar ÖBÍ réttindasamtaka fimmtudaginn\, 21. ágúst 2025.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stjornarfundur-7/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/02/Stjorn-OBI-2024-2025-1000x500-1.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250906T140000
DTEND;TZID=UTC:20250906T140000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250905T102457Z
LAST-MODIFIED:20250905T102457Z
UID:37880-1757167200-1757167200@www.obi.is
SUMMARY:Þjóð gegn þjóðarmorði
DESCRIPTION:HlustaÞJÓÐ GEGN ÞJÓÐARMORÐI – Fjöldafundur laugardaginn 6. september kl 14:00 á Austurvelli í Reykjavík\n\nÍ nær tvö ár hefur heimsbyggðin fylgst með sífellt versnandi og óbærilegum þjáningum almennra borgara í Palestínu með hryllingi. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir fimmta og þar með efsta stigi hungursneyðar. Hún er alfarið manngerð af völdum Ísrael sem hefur lagt ræktanlegt landsvæði í rúst á Gaza og lokað fyrir að matvæli berist til íbúa. Samkvæmt gögnum ísraelska hersins eru 83% þeirra sem Ísrael hefur myrt almennir borgarar. Þar af eru a.m.k. 18.500 börn eða um 28 börn á hverjum einasta degi\, álíka mörg og heill bekkur í grunnskóla á hverjum degi.Þjóðarmorð stendur yfir af hálfu Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni. Stríðsglæpi Ísraels verður að stöðva.\n\nRíkisstjórn Íslands hefur líkt og aðrar ríkisstjórnir vestrænna ríkja ekki brugðist við glæpum Ísraels í samræmi við alvarleika þeirra. Nú hafa heildarsamtök launafólks\, verkalýðsfélög\, mannúðarsamtök\, fagfélög og önnur samtök tekið saman höndum til að halda mótmælafundi um land allt þar sem almenningur kemur saman til að sýna samstöðu sína með Palestínsku þjóðinni og krefjast þess að íslensk ríkisstjórn grípi til alvöru aðgerða til að sýna afstöðu sína gegn þjóðarmorðinu!\n\nVið höfnum þjóðarmorði og brotum Ísraels á alþjóðalögum. Tími yfirlýsinga og undanbragða er liðinn\, tími aðgerða er runninn upp!\n\nFjölmennum á Austurvöll þann 6. september klukkan 14.00 og krefjumst tafarlausra og markvissra aðgerða íslenskra stjórnvalda gegn þjóðarmorðinu!\n\nDagskrá verður kynnt í aðdraganda fundar.\n\nÞátttökufélög;AFL StarfsgreinafélagAflið – samtök fyrir þolendur ofbeldisAldan – stéttarfélagAlþýðusamband Íslands (ASÍ)Amnesty InternationalAMSISArkitektafélag ÍslandsÁsatrúarfélagiðAlþýðusamband Íslands (ASÍ)ASÍ-UNGBabúska MediaBandalag íslenskra listamannaBandalag þýðenda og túlkaBarnaheillBlakdeild VestraBHMBlekfjelagiðBSRBByggiðnCourage InternationalDanshöfundafélag ÍslandsDíaMat – félag um díalektíska efnishyggjuDögun – Ungir Sósíalistar á AkureyriDrusluganganDýrið – Félag um réttinn til að mótmælaEfling stéttarfélagEining-IðjaERGI – Félag Hinsegin Stúdenta á Norðurlandi / The Northern Queer Student CommunityFagdeild geðhjúkrunarfræðingaFeminísk fjármálFÍL – Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndumFLB – Félag leikmynda- og búningahöfundaFlugfreyjufélag ÍslandsFélag áhugamanna um heimspekiFélag GeislafræðingaFélag leikskólakennaraFélag leikstjóra á ÍslandiFélag framhaldsskólakennaraFélag fornleifafræðingaFélag iðn- og tæknigreinaFélag íslenskra listdansaraFélag íslenskra rafvirkjaFélag íslenskra safna og safnafólksFélag íslenskra tónlistarmannaFélag kennara og stjórnenda í tónlistarskólumFélag kvikmyndagerðarmannaFélag kynjafræðikennaraFélag leikskálda og handritshöfundaFélag prestvígðra kvennaFélag sjúkraþjálfaraFélag stjórnenda leikskólaFélag starfsmanna stjórnarráðsinsFélag stjórnenda í framhaldsskólumFélag tæknifólksFélag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenniFélag þjóðfræðingaFélagið Ísland-PalestínaFélag íslenskra kvikmyndatökustjóraFélagsráðgjafafélag ÍslandsFramsýn stéttarfélagFRS – Félag Rafiðnaðarmanna á SuðurlandiFríkirkjan í ReykjavíkFTA\, FYFTT – Félag tónskálda og textahöfundaGrafíaHagsmunasamtök brotaþolaHagþenkir\, félag höfunda fræðirita og kennslugagnaHáskólafólk á Norðurlandi fyrir PalestínuHáskólafólk fyrir PalestínuHið íslenska náttúrufræðifélagHugaraflIðjuþjálfafélag ÍslandsIWW Ísland – Heimssamband verkafólks á Íslandi2Íslandsdeild ICOM\, Alþjóðaráðs safnaJKFÍKennarasamband ÍslandsKling og BangKjölur stéttarfélagKvenfélagasamband ÍslandsKvennahreyfing SamfylkingarinnarKvenréttindafélag ÍslandsLandssamband lögreglumannaLandverndListasafn ASÍListasafn ÍslandsListasafn ReykjavíkurLæti! /Stelpur rokka!Læknafélag ÍslandsMannfræðifélag ÍslandsMATVÍSMenningarfélagið TjarnarbíóMFÍK – Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvennaNáttúrugriðNáttúruverndarsamtök ÍslandsNo Borders IcelandNýlistasafnið // The Living Art MuseumOfbeldisforvarnaskólinnPalestínuverkefnið við Háskóla ÍslandsPóstmannafélag ÍslandsThe Pigeon International Film FestivalRafniðnaðarfélag NorðurlandsRafiðnaðarsamband ÍslandsRannsóknastofnun í jafnréttisfræðum (RIKK)Reykjavíkur AkademíanRithöfundasamband ÍslandsROÐI – Ungir SósíalistarRótin\, félagasamtökRöskva​​Sagnfræðingafélag ÍslandsSameykiSamfylkingarfélagið í ReykjavíkSamtök Grænkera á ÍslandiSamtök hernaðarandstæðingaSamtök kvikmyndaleikstjóraSamtökin 78Samtök um dýravelferð á ÍslandiSamtök um KvennaathvarfSálfræðingafélag ÍslandsSiðmennt\, félag siðrænna húmanista á ÍslandiSÍUNGSjómannafélag EyjafjarðarSkerpaSkólastjórafélag ÍslandsSniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu – BDS ÍslandSolaris HjálparsamtökSoroptimistaklúbbur AusturlandsStarfsmannafélag KópavogsStéttarfélag VesturlandsStígamótStjórnarskrárfélagiðStúdentar fyrir PalestínuSUNN samtök um náttúruvernd á NorðurlandiStúdentafélag Háskólans á AkureyriTeiknistofan ÓðinstorgiTrans ÍslandTöfrateymiðUng vinstri grænUngt JafnaðarfólkUngmenni – Skólaverkfall fyrir PalestínuUngir umhverfissinnarUngmennaráð UnicefVatn er líf\, áhugamannafélag.Verkalýðsfélagið HlífVerkalýðsfélag GrindavíkurViskaVitund – Samtök gegn kynbundnu ofbeldiVLFSVM Félag vélstjóra og málmtæknimannaVorstjarnanVonarbrúVRVSFKWIFT Íslandi (Women in film and television)W.O.M.E.N. Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.Vitund – samtök gegn ofbeldiÞingiðnÞjóðkirkjanÞroskahjálpÞroskaþjálfafélag ÍslandsÖBÍ réttindasamtök\nListinn er ekki tæmandi.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/thjod-gegn-thjodarmordi/
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/09/TGT_16x9_RVK.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250909T000000
DTEND;TZID=UTC:20250909T000000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250820T173253Z
LAST-MODIFIED:20250901T134027Z
UID:37648-1757376000-1757376000@www.obi.is
SUMMARY:Formannafundur ÖBÍ réttindasamtaka
DESCRIPTION:HlustaFormannafundur ÖBÍ réttindasamtaka verður haldinn 2. september 2025 í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42. Dagskrá fundarins verður kynnt þegar nær dregur. \nFormannafundir skulu haldnir minnst tvisvar á ári. Tilgangur formannafunda er að tryggja samráð og upplýsingamiðlun milli stjórnar og aðildarfélaga. \nFormannafundir skulu boðaðir með a.m.k. tíu daga fyrirvara og tilkynning um fulltrúa berist bandalaginu eigi síðar en viku fyrir fund. Boðaðir skulu allir formenn aðildarfélaga. Formenn mega senda annan fulltrúa í sinn stað.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/formannafundur-obi-rettindasamtaka-3/
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250924T130000
DTEND;TZID=UTC:20250924T160000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250919T090207Z
LAST-MODIFIED:20250919T090207Z
UID:38333-1758718800-1758729600@www.obi.is
SUMMARY:Fjárlagafrumvarpið krufið - námskeið
DESCRIPTION:HlustaRýnt verður í fjárlagafrumvarpið\, leiðbeint um umsagnagerð og hagsmunagæslu á námskeiðinu Fjárlagafrumvarpið krufið þann 24. september í Mannréttindahúsinu frá 13.00 til 16.00. \nLeiðbeinandi er Oddný G. Harðardóttir. Oddný hefur gegnt fjölmörgum ábyrgðarstöðum á ferli sínum. Hún sat á Alþingi frá 2009-2024\, gegndi embætti fjármálaráðherra 2011-12\, iðnaðarráðherra 2012 og fjármála-og efnahagsráðherra 2012. Þá var hún 1. varaforseti Alþingis 2021-2024\, formaður þingsflokks Samfylkingarinnar í nokkur ár\, auk þess sem hún var um tíma formaður fjárlaganefndar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fjarlagafrumvarpid-krufid-namskeid/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251003T080000
DTEND;TZID=UTC:20251004T170000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250820T173124Z
LAST-MODIFIED:20250930T152021Z
UID:37644-1759478400-1759597200@www.obi.is
SUMMARY:Aðalfundur ÖBÍ
DESCRIPTION:HlustaAðalfundur ÖBÍ réttindasamtaka verður haldinn dagana 3. og 4. október á Grand hóteli í Reykjavík. \nDagskrá verður kynnt nánar þegar nær dregur.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/adalfundur-obi-3/
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/10/obi_adalfundur_2024_41_skjaupplausn.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251009T163000
DTEND;TZID=UTC:20251009T180000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251007T132737Z
LAST-MODIFIED:20251007T132737Z
UID:38860-1760027400-1760032800@www.obi.is
SUMMARY:Opnunarhátíð Listar án landamæra
DESCRIPTION:HlustaSetning hátíðar 2025 og opnunarhóf Listar án landamæra í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök. \nSkráning er á viðburðinn hér: \nhttps://forms.gle/LEG1YmNpPFqbBofFA \n\nKynning á hátíðardagskrá\nListafólk ársins hlýtur viðurkenningar\nKórinn BjartSýni tekur lagið – Kórinn hlaut hvatningarverðlaun Listar án landamæra 2025\n\nAfhjúpun vegglistaverks byggt á myndlist Snorra Ásgeirssonar heiðurslistamanneskju hátíðarinnar 2024. \nÖBÍ réttindasamtök fengu þau Elsu Jónsdóttur og Björn Loka í Kroti og krassi\, til að vinna lágmyndina í anddyri Mannréttindahússins. \nLéttar veitingar á boðstólum að lokinni dagskrá \nAÐGENGI Í MANNRÉTTINDAHÚSINU: \n\n3 stæði fyrir hreyfihamlaða við inngang\nAðgengilegar gönguleiðir með snjóbræðslu\nEngir þröskuldar inni í húsinu\nLyfta á milli hæða\nAðgengileg salerni\n\nAðalstyrktaraðilar Listar án landamæra \n\nMenningar-\, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti\nReykjavíkurborg\nÖBÍ réttindasamtök\nHitt húsið
URL:https://www.obi.is/vidburdir/opnunarhatid-listar-an-landamaera/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/558233596_1393405542790116_6431425617933785504_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251016T170000
DTEND;TZID=UTC:20251016T180000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250910T152537Z
LAST-MODIFIED:20250930T155513Z
UID:38161-1760634000-1760637600@www.obi.is
SUMMARY:Fjólublátt ljós við barinn
DESCRIPTION:HlustaAðgengishvatning UngÖBÍ\, Fjólublátt ljós við barinn 2025\, verður afhent fimmtudaginn 16. október næstkomandi. Afhendingin fer fram á EINSTÖK BAR\, Laugavegi 10\, milli klukkan 17:30-18 og húsið opnar kl.17. \n»  Fjólublátt ljós við barinn – ÖBI
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fjolublatt-ljos-vid-barinn/
LOCATION:Einstök BAR\, Laugavegi 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/10/2024-08-27-Fjolublatt-ljos-vid-barinn-57.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251017T130000
DTEND;TZID=UTC:20251017T143000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250821T093804Z
LAST-MODIFIED:20251016T123354Z
UID:37666-1760706000-1760711400@www.obi.is
SUMMARY:Upprætum fátækt! - alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt -
DESCRIPTION:HlustaFöstudaginn 17. október frá kl. 13 til 14:30 bjóða EAPN á Íslandi og Kjarahópur ÖBÍ til fundar undir yfirskriftinni Upprætum fátækt!  Fundurinn verður  haldinn í Borgarbókasafninu Grófinni\, Tryggvagötu 15. \n\nStutt erindi um alþjóðlegan baráttudag gegn fátækt: Steinunn Þóra Árnadóttir\, formaður EAPN á Íslandi\nKynning á fræðsluprófi um fátækt : Sigríður Hanna Ingólfsdóttir\, starfsmaður kjarahóps ÖBÍ\nEr fátækt á Íslandi? Birtingarmyndir fátæktar í rannsóknum Vörðu\, Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins. Kristín Heba Gísladóttir\, framkvæmdastjóri Vörðu.\nKynning á átaksverkefni um örsögur: Steinunn Þóra Árnadóttir\, formaður EAPN á Íslandi\nJöfn tækifæri fyrir öll börn\, undirbúningur að aðgerðaráætlun gegn barnafátækt:  Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra.\n\nFundurinn verður rittúlkaður – Veitingar og spjall – Örsögur verða lesnar á milli atriða – Aðgangur ókeypis – Öll velkomin – Hlökkum til að sjá þig! \n» Facebook viðburðurinn
URL:https://www.obi.is/vidburdir/althjodlegur-barattudagur-gegn-fataekt/
LOCATION:Borgarbókasafnið – Grófinni\, Tryggvagata15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/08/1-Engin-fataekt.png
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251022T130000
DTEND;TZID=UTC:20251022T160000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251014T141157Z
LAST-MODIFIED:20251014T141157Z
UID:39113-1761138000-1761148800@www.obi.is
SUMMARY:Fræðsluröð ÖBÍ: Tækifæri í atvinnuleit
DESCRIPTION:HlustaÖBÍ réttindasamtök standa fyrir námskeiðinu Tækifæri í atvinnuleit þar sem farið verður yfir þjónustu og stuðning sem Vinnumálastofnun býður upp á\, virknistyrk og nýja endurgreiðslusamninga til atvinnurekenda. \nÞá verður fjallað um um ráðningarferlið\, væntingar til ráðninga og til okkar sjálfra\, ferilskrá\, kynningarbréf og ráðningarviðtöl. Markmiðið er að þátttakendur fái góða hugmynd um hvernig gott er að bera sig að í atvinnuleitinni\, allt frá umsókn til ráðningar. \nNámskeiðið er haldið í samstarfi við atvinnu- og menntahóp ÖBÍ. \nLeiðbeinendur: \nBerglind Melax og Anna Monika Arnórsdóttir ráðgjafar hjá Vinnumálastofnun. \nÓlafur Kári Júlíusson er vinnusálfræðingur með yfir 15 ára reynslu af mannauðsmálum og ráðgjöf. Hann hefur unnið með fjölmörgum vinnustöðum\, sinnt handleiðslu stjórnenda og starfsfólks\, stýrt ráðningum og hefur unnið mikið með einstaklingum sem eru að snúa til baka til starfa eftir langtíma fjarveru frá vinnumarkaði. \nNámskeiðið verður haldið í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42\, miðvikudaginn 22. október kl. 13-16:00. \nNámskeiðið er frítt. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á obi@obi.is og takið fram ef óskað er eftir táknmáls- eða rittúlkun. \nVið hlökkum til að sjá ykkur!
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fraedslurod-obi-taekifaeri-i-atvinnuleit/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/FRAEDSLAN.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251023T100000
DTEND;TZID=UTC:20251023T100000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251020T174631Z
LAST-MODIFIED:20251022T142506Z
UID:39279-1761213600-1761213600@www.obi.is
SUMMARY:Réttindabarátta á tímamótum - Hvað getur þú gert?
DESCRIPTION:HlustaGríptu hljóðnemann (open mic) í Mannréttindahúsinu þegar við ræðum um stöðu jafnréttisbaráttunnar í tilefni af 50 ára afmæli kvennafrídagsins 1975. Hvert gæti þitt hlutverk orðið í baráttunni? \nMannréttindahúsið býður upp á opinn hljóðnema fimmtudaginn 23. október klukkan 10:00 í samstarfi við UN Women á Íslandi\, Landssamband ungmennafélaga\, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtök. Tilefnið er 50 ára afmæli kvennafrídagsins 1975\, þar sem íslenskar konur lögðu niður störf og kröfðust jafnréttis. \nMargt hefur áunnist í baráttunni á þessari hálfu öld sem síðan hefur liðið en annað er enn óunnið. Boðað hefur verið til kvennaverkfalls föstudaginn 24. október þar sem kröfur um aðgerðir eru meðal annars: \nUppræta kynbundið ofbeldi\n40% kvenna hér á landi hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi. \nLeiðrétta vanmat á kvennastörfum\nMunur á atvinnutekjum kvenna og karla er um 20% og launamunur kynjanna er rúm 10% og eykst. \nLögfesta rétt barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi\nKonur bera enn meiri ábyrgð á umönnun barna\, fjórðungur er í hlutastarfi og stór hluti hverfur af vinnumarkaði til að brúa bilið. \nTryggja fræðslu um jafnrétti og kynbundið ofbeldi á öllum skólastigum\n12% stúlkna í 10. bekk hafa orðið fyrir nauðgun af hálfu jafnaldra og helmingur fyrir stafrænu kynferðisofbeldi. \nHvað getur þú gert í jafnréttisbaráttunni og hvernig vilt þú sjá samfélagið þróast? Endilega kíktu í Mannréttindahúsið á fimmtudagsmorgun\, gríptu hljóðnemann og deildu þinni skoðun.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/39279/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/Kvennaverkfall_50_ar_transparent_1-1.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20251024
DTEND;VALUE=DATE:20251025
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251009T172552Z
LAST-MODIFIED:20251021T134923Z
UID:38958-1761264000-1761350399@www.obi.is
SUMMARY:Stundin er runnin upp - Kvennaverkfall 24. október 2025
DESCRIPTION:HlustaFöstudaginn 24. október 2025 eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf allan daginn eins og konur gerðu árið 1975. \nÁ sjötta tug samtaka kvenna\, hinsegin fólks\, fatlaðs fólks og launafólks blása til Kvennaverkfallsins. ÖBÍ réttindasamtök eru þar á meðal. Sjá nánar á kvennaar.is og  á Viðburðir – kvennaar.is \n \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stundin-er-runnin-upp-kvennaverkfall-24-oktober-2025/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/TDF_1_FB_Event_1920x1005.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251101T100000
DTEND;TZID=UTC:20251101T140000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251027T162907Z
LAST-MODIFIED:20251027T162907Z
UID:39406-1761991200-1762005600@www.obi.is
SUMMARY:Jafnt aðgengi að listnámi - málþing
DESCRIPTION:HlustaMálþing um aðgengi að listnámi verður haldið í Borgarleikhúsinu laugardaginn 1. nóvember 2025 frá kl. 10 til 14. \nListaháskóli Íslands\, Þroskahjálp\, ÖBÍ réttindasamtök\, Háskóli Íslands og fleiri standa saman að málþinginu. Sjá nánari upplýsingar: Málþing – Jafnt aðgengi að listnámi | Listaháskóli Íslands
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jafnt-adgengi-ad-listnami-malthing/
LOCATION:Borgarleikhúsið\, Listabraut 3\, Reykjavík\, 103\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/1350x1080-Instagram-Post.png
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251112T170000
DTEND;TZID=UTC:20251112T193000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20250828T104207Z
LAST-MODIFIED:20251022T101946Z
UID:37764-1762966800-1762975800@www.obi.is
SUMMARY:Námskeið UngÖBÍ: Inngangur að fasteignakaupum
DESCRIPTION:HlustaFinnst þér fasteignamarkaðurinn algjör frumskógur og vantar leiðsögn um hvað skal hafa í huga? Þá er þetta námskeið fyrir þig! \nUngÖBÍ heldur námskeið fyrir ungt fatlað fólk (18-35 ára) um flækjur fasteignamarkaðarins miðvikudaginn 12. nóvember frá 17:00 til 19:30 í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42. \nFasteignakaup eru einhver stærsta fjárfestingin sem maður gerir um ævina. Leiðin að fyrstu íbúðarkaupunum er löng\, brött og flókin. Ráslínan er ekki jöfn og dæmi eru um að fatlað fólk eigi mun erfiðara með að kaupa fyrstu fasteign en aðrir. \nBjörn Berg\, sérfræðingur á fjármálamarkaði og ráðgjafi\, stýrir námskeiðinu og fer yfir það helsta sem þarf að hafa í huga fyrir kaup á fyrstu fasteign. Ungt fatlað fólk er fjölbreyttur hópur og því er lögð áhersla á að skoða ólíkar leiðir. \nNámskeiðið er tilvalið fyrir þau sem eru að huga að næstu skrefum í húsnæðismálum og vilja bæta skilning sinn á frumskógi fasteignamarkaðarins. \nSkráningargjald er 900 kr. og verður þátttakendum boðið upp á léttar veitingar í hléi. \nTakmarkaður fjöldi sæta í boði. \nHægt er að ganga frá skráningu í gegnum hlekkinn hér að neðan: \nSkráning: Inngangur að fasteignamarkaði \n \nHlökkum til að sjá ykkur! \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/namskeid-ungobi-fjarmal-og-fasteignir/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/08/ungOBI-fjolbl-e1756377611721.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251113T140000
DTEND;TZID=UTC:20251113T160000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251110T143130Z
LAST-MODIFIED:20251110T143407Z
UID:39648-1763042400-1763049600@www.obi.is
SUMMARY:Nýliðadagur / Námsstefna ÖBÍ 2025
DESCRIPTION:HlustaFyrri dagur Námsstefnu ÖBÍ 2025\, Nýliðadagurinn\, verður haldinn fimmtudaginn 13. nóvember nk. Eins og heitið gefur til kynna er hann ætlaður nýjum fulltrúum í innra starfi ÖBÍ. Mögulegt er að sitja fundinn á Teams. \nDagskrá \nVelkomin\n– Alma Ýr Ingólfsdóttir\, formaður \nSkipulag og rekstur\n– Eva Þengilsdóttir\, framkvæmdastjóri \nSamningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks\n– Sunna Elvíra Þorkelsdóttir\, starfsmaður jafnréttismála \nBreytt kerfi\n– Gunnar Alexander Ólafsson\, hagfræðingur \nRáðgjöfin\n– Sigríður Hanna Ingólfsdóttir\, teymisstjóri ráðgjafar \nDómsmálin\n– Sigurður Árnason\, teymisstjóri dómsmála \nSamráðið\n– Andrea Valgeirsdóttir\, teymisstjóri umsagna \nMálefnastarfið\n– Stefán Vilbergsson\, teymisstjóri málefnastarfs \nMiðlunin \n– Þórgnýr Einar Albertsson\, upplýsingafulltrúi \n  \nStaður og stund: Ólafarstofa\, Mannréttindahúsinu Sigtúni 42\, 105 Reykjavík. 14:00 – 16:00. \nEf þú hefur ekki fengið fundarboð\, en hefur áhuga á að sitja fundinn – vinsamlega sendu póst á obi@obi.is
URL:https://www.obi.is/vidburdir/nylidadagur-namsstefna-obi-2024/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251118T140000
DTEND;TZID=UTC:20251118T180000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251103T145026Z
LAST-MODIFIED:20251117T125600Z
UID:39562-1763474400-1763488800@www.obi.is
SUMMARY:Námsstefna ÖBÍ réttindasamtaka 2025
DESCRIPTION:HlustaNámsstefnan verður haldin þriðjudaginn 18. nóvember 2025 frá kl. 14:00 til 18:00 á Grand Hótel Reykjavík (Háteig). Að venju er dagskráin fjölbreytt og samanstendur af spennandi erindum\, sjá eftirfarandi – sem og tækifærum til umræðna og þátttöku.  \nKomdu og taktu þátt\, hittu aðra í innra starfi ÖBÍ og sæktu innblástur fyrir vetrarstarfið. \nDagskrá\nFram á veginn\n– Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ \nÍ kjölfar lögfestingar SRFF\n– Sigurður Árnason lögfræðingur ÖBÍ \nHagsmunagæsla\n– Ingibjörg Sólrún Gísladóttir\, fyrrverandi utanríkisráðherra og fulltrúi í stjórn UN Women á Íslandi \nGervigreind; snjall þjónn – harður húsbóndi!\n– Rósa María Hjörvar\, stafrænn verkefnastjóri ÖBÍ \nLiðsheild og samskipti\n– Pálmar Ragnarsson\, fyrirlesari og körfuboltaþjálfari \n\nFundarstjóri: Eva Þengilsdóttir framkvæmdastjóri ÖBÍ\nÞátttakendur: Stjórn\, varastjórn\, fulltrúar í málefnastarfi\, nefndum og ráðum\, starfsfólk ÖBÍ og forstöðumenn aðildarfélaga og fyrirtækja ÖBÍ. \nMikilvægt er að nýir liðsmenn jafnt sem reyndir fulltrúar mæti. Aðgangur er ókeypis – skráning hér: \nSkráning á námsstefnu 2025 \n \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/namsstefna-obi-rettindasamtaka-2025/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/Hateigur-Grand-Hotel-Reykjavik.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T090000
DTEND;TZID=UTC:20251210T235900
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251126T130605Z
LAST-MODIFIED:20251201T160738Z
UID:40185-1764061200-1765411140@www.obi.is
SUMMARY:16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
DESCRIPTION:HlustaAlþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember er í ár 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi (e. 16 Days of Activism against Gender-based Violence) undir merkjum UniTE to End Violence against Women\, \nHerferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár\, þegar undirritun Peking-sáttmálans\, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. \n» Stafrænt ofbeldi eykst hratt – en nær helmingur kvenna og stúlkna í heiminum býr enn ekki við lagalega vernd gegn því – UN Women Ísland \nÖBÍ réttindasamtök leggja áherslu á að stafrænt umhverfi sé öruggt fyrir alla\, ekki síst fatlaðar konur og fatlað fólk sem fyrir verður margþættri mismunun. Stafrænt ofbeldi er raunverulegt ofbeldi sem skerðir þátttöku í samfélaginu\, heftir tjáningarfrelsi og getur orðið til þess að raddir jaðarsettra hópa þagni. ÖBÍ hvetur stjórnvöld\, löggæslu\, fjölmiðla\, tæknifyrirtæki og almenning til að axla sameiginlega ábyrgð á því að breyta menningu\, styrkja úrræði og tryggja að enginn verði skilinn eftir í skugga stafræns ofbeldis. \n» Sjónum beint að stafrænu ofbeldi – ÖBI \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/16-daga-atak-gegn-kynbundnu-ofbeldi/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/16-dagar-PR-fra-HQ-1536x864-1.png
ORGANIZER;CN="UN women %C3%A1 %C3%8Dslandi":MAILTO:unwomen@unwomen.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T100000
DTEND;TZID=UTC:20251125T113000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251124T100727Z
LAST-MODIFIED:20251124T181240Z
UID:40128-1764064800-1764070200@www.obi.is
SUMMARY:„Dreptu þig bara“ - stafrænt ofbeldi og áhrif þess í raunheimum
DESCRIPTION:Hlusta\nMálstofa UN Women á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtaka um stafrænt ofbeldi og áreitni og afleiðingar ‏þess\nHvar: Mannréttindahúsið\, Sigtún 42Hvenær: Þriðjudaginn 25. nóvember 2025Klukkan: 10:00 – 11:30 \nÞrátt fyrir þær framfarir sem orðið hafa í jafnréttismálum síðustu þrjá áratugi\, er kynbundið ofbeldi enn eitt útbreiddasta og alvarlegasta mannréttindabrot heims. Ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni. Rótgrónar staðalímyndir um kynhlutverk\, skaðleg samfélagsleg viðhorf\, veik lagaumgjörð og skortur á fjármagni og úrræðum koma í veg fyrir að kynbundið ofbeldi sé upprætt. \nTækniframfarir síðustu ára hafa verið samfélögum til góða á margan hátt. En ‏þær hafa einnig skapað ný rými þar sem kynbundið ofbeldi og áreitni fær að þrífast óáreitt. Kynferðisleg áreitni og eltihrelling eru algengustu birtingarmyndir stafræns ofbeldis gegn konum og stúlkum; dreifing nektarmynda án samþykkis\, óumbeðin skilaboð\, niðrandi færslur á samfélagsmiðlum og símtöl. Aðrar birtingarmyndir stafræns ofbeldis eru neteinelti\, hatursorðræða\, ærumeiðingar\, dreifing nektarmynda\, hótanir um birtingu mynda (sextortion) og hefndarklám. Ofbeldið á sér stað í ólíkum stafrænum miðlum: snjallsímum\, tölvum\, spjallrásum\, samfélagsmiðlum\, og í tölvuleikjum \nDagskrá\n10:00 Hús opnar\n10:10 Opnunarerindi – Sunna Elvíra Þorkelsdóttir\, lögfræðingur ÖBÍ\n10:20 Rakel Þorbergsdóttir\, fundarstjóri kynnir þátttakendur í pallborði \n\n\n\n\nBergrún Andradóttir\, skrifstofustýra Samtakanna ’78\nEygló Harðardóttir\, verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra\nÓlafur Hrafn Steinarsson\, framkvæmdastjóri Aska Studios\, fyrrum formaður RÍSÍ\nMelína Kolka\, framkvæmdarstjóri TÍK – Tölvuleikjasamtaka íslenzkra kvenna\n\n\n\n\n\n10:25 Pallborð hefst (hugvekjur 3-5 mín hvert)\n10:45 Umræður\n11:10 Spurningar úr sal\n11:25 Umræðum lokið og samantekt\n11:30 Viðburði lýkur
URL:https://www.obi.is/vidburdir/dreptu-thig-bara-stafraent-ofbeldi-og-ahrif-thess-i-raunheimum/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/16-dagar-PR-fra-HQ-1536x864-1.png
ORGANIZER;CN="UN women %C3%A1 %C3%8Dslandi":MAILTO:unwomen@unwomen.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251129T170000
DTEND;TZID=UTC:20251129T190000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251127T145737Z
LAST-MODIFIED:20251127T145737Z
UID:40205-1764435600-1764442800@www.obi.is
SUMMARY:Listvinnzlan - sýningn og opnunarfögnuður
DESCRIPTION:HlustaOPNUN og LIST\nÍ LISTVINNZLUNNI. \nLaugardaginn 29.nóvember\nklukkan 17 – 19 (5-7).\nÍ Austurstræti 5\, 3 hæð.\nInngangur bæði frá Austurstræti 5 og Hafnarstræti 4-6.\nHafnarstrætismegin er rampur og stór lyfta. \nGott aðgengi\, sjá upplýsingar hér: www.listvinnslan.is/adgengi \nRóleg opnun frá 16 – 16:50\n(þá verður engin tónlist og lítið áreiti)\n– Við fluttum í Austurstrætið í maí\,\nþað er ekki seinna vænna að halda opnunar og innflutningsboð.\n– Fjöldi listafólks hafa unnið að verkum sínum hjá Listvinnzlunni síðan í maí.\n– Þau sýna verkin sín í Listvinnzlunni. Verkin erumörg til sölu.\nVerkin verða til sýnis og sölu fram í miðjan desember.\nVið auglýsum opnunartíma í desember síðar.\n– Öll eru velkomin að koma! \nListafólkið sem sýnir verk sín eru:\nElín Sigríður María Ólafsdóttir\nKolbeinn Jón Magnússon\nHelga Matthildur Viðarsdóttir\nSigrún Huld Hrafnsdóttir\nAtli Már Indriðason\nGígja Garðarsdóttir\nÞórir Gunnarsson\nBenedikta Rostan\nKristján Rostan\nAndrea Gavern\nFríða Adriana Martins\nÍsak Óli Sævarsson\nÁsdís Ásgeirsdóttir\nGuðmundur Stefán Guðmundsson\nKári Hrafn Jóhannesson\nBirkir Sigurðsson\nHarpa Rut Elísdóttir\nElín Fanney Ólafsdóttir\nGunnar Már Pálsson\nÓskar Theódórsson\nE. Sóldís Þorsteinsdóttir\nLilja Dögg Birgisdóttir\nÞorvaldur Arnar Guðmundsson\nErlingur Örn Skarphéðinsson\nHaukur Björnsson
URL:https://www.obi.is/vidburdir/listvinnzlan-syningn-og-opnunarfognudur/
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/listvinnzlan.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251203T110000
DTEND;TZID=UTC:20251203T110000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251027T105114Z
LAST-MODIFIED:20251128T142916Z
UID:39369-1764759600-1764759600@www.obi.is
SUMMARY:Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2025
DESCRIPTION:HlustaVertu með þegar við afhendum Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka í ár! \nVerðlaunahátíðin hefst stundvíslega klukkan 11:00 þann 3. desember á Grand hóteli í Reykjavík. Á dagskrá er mikil gleði. \nTilnefnd eru: \n\nHákon Atli Bjarkason\nFyrir að vera frábær fyrirmynd og stuðla að inngildingu ungs fatlaðs íþróttafólks.\n\n\n\nListvinnzlan\nFyrir brautryðjendastarf á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fjölgun atvinnutækifæra.\n\n\n\nMagnús Orri Arnarson\nFyrir einstakt framlag á sviði vitundarvakningar\, kvikmyndagerðar og íþrótta.\n\n\n\nSigurður Hólmar Jóhannesson\nFyrir að lyfta grettistaki í málaflokki fatlaðra barna og barna með sjaldgæfa sjúkdóma.\n\nHvatningarverðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2007 en í fyrra voru það tvö leikverk sem mörkuðu tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi: Fúsi\, aldur og fyrri störf eftir Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson og Taktu flugið\, beibí eftir Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur sem urðu fyrir valinu og mörkuðu tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi. \nHvatningarverðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku\, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks. \n3. desember er einmitt alþjóðadagur fatlaðs fólks og auk þess að standa fyrir Hvatningarverðlaununum er ÖBÍ með átakið upplýst samfélag. Fólk um allt land er hvatt til þess að lýsa upp í fjólubláu\, einkennislit réttindabaráttu fatlaðs fólks.\nViðburðurinn verður táknmáls- og rittúlkaður.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/althjodadagur-fatlads-folks-hvatningarverdlaun/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/Hvatningarverdlaun-2023-FRONT-STREYMI.pptx-e1762350715667.png
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251204T093000
DTEND;TZID=UTC:20251204T110000
DTSTAMP:20260505T043617
CREATED:20251128T133609Z
LAST-MODIFIED:20251128T133824Z
UID:40251-1764840600-1764846000@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindabíó - Sigur fyrir sjálfsmyndina
DESCRIPTION:HlustaMagnús Orri Arnarson er tilnefndur til Hvatningarverðlaunanna 2025\, fyrir einstakt framlag á sviði vitundarvakningar\, kvikmyndagerðar og íþrótta. Myndin verður sýnd og Magnús Orri\, höfundur myndarinnar verður á staðnum til að segja frá gerð myndarinnar. \nSigur fyrir sjálfsmyndina – Ný íslensk heimildarmynd um íslensku keppendurna á Special Olympics \nMyndin greinir frá þátttöku fimm íslenskra íþróttamanna á Heimsleikum Special Olympics á Ítalíu fyrr á þessu ári. \nMyndin veitir innsýn inn í undirbúning\, keppnina sjálfa og þá mannúð og virðingu sem einkennir starf Special Olympics samtakanna. \nHöfundur myndarinnar\, Magnús Orri Arnarsson\, keppti sjálfur á leikunum í abu Dhabi árið 2019 og hefur síðan helgað sig kvikmyndagerð. Þetta er fyrsta heimildarmynd Magnúsar Orra. \nMyndin gefur góða innsýn í starf Special Olympics samtakanna sem stofnuð voru af Eunice Kennedy Shriver árið 1968 og eru í dag með um 6 milljónir iðkenda um allan heim. Starfið byggir á gildum mannúðar\, virðingar og jafnra tækifæra. Forsvarsmaður samtakanna í dag er Timothy Kennedy Shriver og Kennedy fjölskyldan er enn virkur bakhjarl í starfi samtakanna. \nÍþróttasamband fatlaðra hefur verið umsjónaraðili starfs Special Olympics á Íslandi frá árinu 1989. Yfir 600 íslenskir keppendur frá aðildarfélögum ÍF hafa fengið tækifæri til þátttöku á vetrar og sumarheimsleikum Special Olympics í fjölmörgum greinum. Ný tækifæri hafa opnast með breyttri skilgreiningu en í  upphafi var miðað við iðkendur með þroskahömlun eða „intellectual disability“. Í dag er viðmið „learning disability“  Sífellt aukin áhersla er á „unified“ þar sem ófatlaðir og fatlaðir æfa og keppa saman í einstaklings og liðagreinum. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindabio-sigur-fyrir-sjalfsmyndina/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/instgram-story-mynd-maggi.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR