BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20250927
DTEND;VALUE=DATE:20251006
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20250930T163233Z
LAST-MODIFIED:20250930T163233Z
UID:38537-1758931200-1759708799@www.obi.is
SUMMARY:RIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík
DESCRIPTION:HlustaRIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík – er meðal stærstu og fjölbreyttustu menningarviðburða í landinu. \nSjá allt um hátíðina og kvikmyndirnar sem sýndar eru til 5. október 2025 » Reykjavík International Film Festival 2024 \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/riff-althjodleg-kvikmyndahatid-i-reykjavik/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/09/RIFF.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251002T170000
DTEND;TZID=UTC:20251002T170000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20250923T184637Z
LAST-MODIFIED:20250930T151837Z
UID:38409-1759424400-1759424400@www.obi.is
SUMMARY:Fræðslufundur Lindar
DESCRIPTION:HlustaFræðslufundur Lindar verður haldinn fimmtudaginn 2. október 2025 kl 17:00. Fræðslufundur fyrir foreldra barna með ónæmisgalla og aðra sjúklinga með ónæmisgalla og aðstandendur \nLIND er félag fólks með meðfædda ónæmisgalla/mótefnaskort. Við verðum með fræðslufund fyrir foreldra og sjúklinga. Það væri gaman að fá sem flesta sem hafa not af til að mæta\, en skráning er nauðsynleg (sjá auglýsingu). \nFundurinn verður haldinn í fundarsal Fastus – Höfðabakka 7\, 110 Rvk. Allir hjartanlega velkomnir \nDagskráin er hér: https://www.lindisland.net/2okt
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fraedslufundur-lindar/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/09/Lind-logo.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251011T150000
DTEND;TZID=UTC:20251011T150000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251009T145949Z
LAST-MODIFIED:20260114T124550Z
UID:38944-1760194800-1760194800@www.obi.is
SUMMARY:Sigur fyrir sjálfsmyndina - Skynsegin sýning
DESCRIPTION:HlustaBíó Paradís í samstarfi Tourette samtökin kynna sérstaka skynsegin sýningu á SIGUR FYRIR SJÁLFSMYNDINA laugardaginn 11. október kl 15:00. Leikstjóri myndarinnar Magnús Orri verður viðstaddur og mun sitja fyrir svörum eftir sýninguna. \nMyndin er heimildarmynd sem fylgir íslenskum keppendum á Heimsleika Special Olympics á Ítalíu 2025 og veitir innsýn inn í undirbúning\, keppnina sjálfa og þá mannúð og virðingu sem einkennir starf Special Olympics samtakanna. \nÞetta er fyrsta heimildarmynd Magnúsar Orra sem sjálfur keppti á leikunum í Abu Dhabi árið 2019 og hefur síðan helgað sig kvikmyndagerð. \nÁ skynsegin sýningu er tekið sérstakt tillit til einstaklinga sem glíma við einhvers konar áreitisraskanir eða öðruvísi áreitisþol\, þar sem öll umgjörð er aðlöguð að síku fólki sem kann að meta minna áreiti en bíósýningar bjóða vanalega uppá. \nSkynsegin sýning þýðir að: \n– Öllu áreiti í húsinu\, tónlist\, umgangi og öðru er stillt í hóf \n– Það má ganga um og hreyfa sig á meðan sýningu stendur \n– Það eru engar auglýsingar né sýnishorn á undan myndinni \n– Ljósin eru hálfkveikt allan tímann \n– Hljóðið er lægra en venjulega \n– Það er ekkert hlé \n– Sýningin er í stórum sal svo það ætti að vera nóg pláss milli fólks \n– Opið er fram og það má fara fram og hvíla sig á myndinni \nSýningin er hluti af KÓSY KINO verkefninu í samstarfi við Kino Usmev\, sem snýst um að gera Bíó Paradís aðgengilegra fólki sem færi annars ekki í bíó og er styrkt af EES sjóði Noregs\, Íslands og Lichtenstein og ríkissjóði Slóvakíu. \n\n Tengill á Facebook viðburð sýningarinnar
URL:https://www.obi.is/vidburdir/sigur-fyrir-sjalfsmyndina-skynsegin-syning/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/Sigur-fyrir-sjalfsmyndina-–-Skynsegin-syning-Bio-Paradis.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251012T140000
DTEND;TZID=UTC:20251012T160000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251009T150118Z
LAST-MODIFIED:20251009T181020Z
UID:38947-1760277600-1760284800@www.obi.is
SUMMARY:Opið hús hjá Gigtarfélaginu
DESCRIPTION:HlustaOpið hús verður í Gigtarfélaginu\, Brekkuhúsum 1\, 112\, Reykjavík\, neðri hæð\, vegna alþjóðlega gigtardagsins milli kl. 14 og 16. Glæsilegar veitingar og öll velkomin. \nVið kynnum bókina „María og leyndarmál mömmu“ eftir Hrönn Stefánsdóttur formann Gigtarfélags Íslands. Bókin er skrifuð til auka meðvitund um gigtarsjúkdóma og til að hjálpa foreldrum með gigt að útskýra flókin veikindi á einfaldan og uppbyggilegan hátt fyrir börnum. \nHöfundur les upp úr bókinni og flytur stutt erindi um hve umfangsmikil áhrif gigt hefur á alla fjölskylduna og hvaða leiðir er hægt að fara til að auðvelda fjölskyldum líf með langvinnum sjúkdóm.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/opid-hus-hja-gigtarfelaginu/
LOCATION:Brekkuhús 1
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/2024-10-04-Adalfundur-OBI-153834-8.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251016T170000
DTEND;TZID=UTC:20251016T180000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20250910T152537Z
LAST-MODIFIED:20250930T155513Z
UID:38161-1760634000-1760637600@www.obi.is
SUMMARY:Fjólublátt ljós við barinn
DESCRIPTION:HlustaAðgengishvatning UngÖBÍ\, Fjólublátt ljós við barinn 2025\, verður afhent fimmtudaginn 16. október næstkomandi. Afhendingin fer fram á EINSTÖK BAR\, Laugavegi 10\, milli klukkan 17:30-18 og húsið opnar kl.17. \n»  Fjólublátt ljós við barinn – ÖBI
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fjolublatt-ljos-vid-barinn/
LOCATION:Einstök BAR\, Laugavegi 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/10/2024-08-27-Fjolublatt-ljos-vid-barinn-57.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20251024
DTEND;VALUE=DATE:20251025
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251009T172552Z
LAST-MODIFIED:20251021T134923Z
UID:38958-1761264000-1761350399@www.obi.is
SUMMARY:Stundin er runnin upp - Kvennaverkfall 24. október 2025
DESCRIPTION:HlustaFöstudaginn 24. október 2025 eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf allan daginn eins og konur gerðu árið 1975. \nÁ sjötta tug samtaka kvenna\, hinsegin fólks\, fatlaðs fólks og launafólks blása til Kvennaverkfallsins. ÖBÍ réttindasamtök eru þar á meðal. Sjá nánar á kvennaar.is og  á Viðburðir – kvennaar.is \n \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stundin-er-runnin-upp-kvennaverkfall-24-oktober-2025/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/TDF_1_FB_Event_1920x1005.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251030T120000
DTEND;TZID=UTC:20251031T160000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251021T133907Z
LAST-MODIFIED:20251021T133907Z
UID:39288-1761825600-1761926400@www.obi.is
SUMMARY:Þjóðarspegillinn
DESCRIPTION:HlustaÁrleg ráðstefna Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands þar sem fræðafólk ræðir brýn og áhugaverð samfélagsleg málefni líðandi stundar með upplýstum og uppbyggilegum hætti. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis. \n» Dagskrá \n» Um ráðstefnuna 2025  \n  \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/thjodarspegillinn/
LOCATION:Háskóli Íslands
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/THjodarspegillinn.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251031T090000
DTEND;TZID=UTC:20251031T153000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20250923T184923Z
LAST-MODIFIED:20250930T155356Z
UID:38412-1761901200-1761924600@www.obi.is
SUMMARY:Krefjandi hegðun barna með ADHD: Málþing ADHD samtakanna og Sjónarhóls
DESCRIPTION:HlustaADHD samtökin og Sjónarhóll standa fyrir málþingi um krefjandi hegðun barna með ADHD. Málþingið fram fer í Gala Veislusal\, Kópavogi þann 31. október næstkomandi\, kl. 09:00 – 15:30. \nMálþinginu er ætlað að auka þekkingu og skilning á helstu þáttum sem ýta undir krefjandi hegðun og beina sjónum að gagnreyndum aðferðum sem nýtast til að draga úr áhrifum þeirra. \nBoðið er uppá streymi í rauntíma. \nAukin þekking og skilningur getur dregið úr krefjandi hegðun\, stutt við betri líðan og jákvæðari sjálfsmynd hjá barninu sem og þeim sem að barninu koma. \nMálþingið er frábært tækifæri til að bæta við þekkingu\, læra að byggja á styrkleikum og hafa gaman saman. \nMálþingið er opið öllum. \nAlmennt verð: 12.000-\nFélagsmenn: 9.000.- \n» Málþing 2025 | ADHD samtökin
URL:https://www.obi.is/vidburdir/malthing-adhd-samtakanna-og-sjonarhols-2025/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/09/ADHD-Krefjandi-hegdun-barna.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251101T100000
DTEND;TZID=UTC:20251101T140000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251027T162907Z
LAST-MODIFIED:20251027T162907Z
UID:39406-1761991200-1762005600@www.obi.is
SUMMARY:Jafnt aðgengi að listnámi - málþing
DESCRIPTION:HlustaMálþing um aðgengi að listnámi verður haldið í Borgarleikhúsinu laugardaginn 1. nóvember 2025 frá kl. 10 til 14. \nListaháskóli Íslands\, Þroskahjálp\, ÖBÍ réttindasamtök\, Háskóli Íslands og fleiri standa saman að málþinginu. Sjá nánari upplýsingar: Málþing – Jafnt aðgengi að listnámi | Listaháskóli Íslands
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jafnt-adgengi-ad-listnami-malthing/
LOCATION:Borgarleikhúsið\, Listabraut 3\, Reykjavík\, 103\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/1350x1080-Instagram-Post.png
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251105T193000
DTEND;TZID=UTC:20251105T193000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251103T135518Z
LAST-MODIFIED:20251103T135518Z
UID:39553-1762371000-1762371000@www.obi.is
SUMMARY:Opinn fundur Endósamtakanna á Egilsstöðum
DESCRIPTION:HlustaEndósamtökin bjóða til opins fundar á Austurlandi miðvikudaginn 5. nóvember nk. kl. 19:30 í fyrirlestrarsal Menntaskólans á Egilsstöðum í samstarfi við Soroptimistaklúbb Austurlands. \nÁ opna fundinum munu Anna Margrét\, framkvæmdastýra samtakanna\, og Unnur Regína\, kynningarstýra samtakanna\, kynna samtökin og það starf og stuðning sem samtökin bjóða upp á\, ásamt því að fræða gesti um sjúkdóminn og vera til samtals um stöðu fólks með endó á Austurlandi. \nEndósamtökin standa nú fyrir fræðslu í öllu grunn- og framhaldsskólum á Austurlandi\, en það fræðsluátak er einmitt tilkomið vegna styrks frá Soroptimistaklúbbi Austurlands. Fræðslan hefur vakið upp margar spurningar hjá ungmennum á svæðinu og við hjá samtökunum höfum fengið auknar fyrirspurnir um sjúkdóminn\, stuðning og ráð varðandi fyrstu skrefin í átt að greiningu. \nVið hvetjum því sérstaklega foreldra og aðstandendur ungmenna til að mæta og kynna sér samtökin. \nFundurinn er opinn öllum og öll hjartanlega velkomin.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/opinn-fundur-endosamtakanna-a-egilsstodum/
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251107T130000
DTEND;TZID=UTC:20251107T130000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251103T135759Z
LAST-MODIFIED:20251103T135759Z
UID:39556-1762520400-1762520400@www.obi.is
SUMMARY:Að lifa með Parkinson
DESCRIPTION:HlustaParkinsonsamtökin halda ráðstefnu föstudaginn 7. nóvember kl. 13:00 í salnum Norðurljós á 2. hæð í Hörpu. \nDagskrá: \n13:00 – Alma Möller\, heilbrigðisráðherra: Setning  \n13:10 – Gylfi Þormar\, taugalæknir: Samtal um Parkinson einkenni. Skilvirkt samtal – betri meðferð. \n13:45 – Sigurlaug Mjöll Jónasdóttir\, sjúkraþjálfari: Hreyfing skiptir sköpum. Mikilvægi reglulegrar þjálfunar. \n14:15 – Kaffihlé með léttum veitingum \n14:45 – Ella Björt Teague\, taugasálfræðingur: Andleg líðan og hugarstarf í Parkinson – fókus á bjargráð \n15:20 – Vilborg Jónsdóttir: Að lifa með Parkinson – Reynslusaga Vilborgar í samtali við Ágústu Kristínu Andersen \n15:40 – Katrín Bjarney Guðjónsdóttir\, formaður: Takk fyrir komuna. \nFundarstjóri: Freyr Eyjólfsson \nRáðstefnan verður í beinu streymi á parkinson.is. \nAðgangur er ókeypis er nauðsynlegt er að skrá sig á forminu hér fyrir neðan til að tryggja sér sæti. Athugið að fjöldi miða er takmarkaður. \nAð lifa með Parkinson – Ráðstefna í Hörpu 7. nóvember
URL:https://www.obi.is/vidburdir/ad-lifa-med-parkinson/
LOCATION:Harpa\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251113T093000
DTEND;TZID=UTC:20251113T093000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251103T145127Z
LAST-MODIFIED:20251103T145127Z
UID:39565-1763026200-1763026200@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgunn – Mannréttindastofnun Íslands
DESCRIPTION:HlustaMaría Sigurðardóttir framkvæmdastjóri nýrrar Mannréttindastofnunar Íslands fjallar um nýja stofnun\, hlutverk hennar og mikilvægi í samfélaginu í Mannréttindahúsinu fimmtudaginn 13.  nóvember kl. 9:30. \nMargrét á að baki langan feril sem stjórnandi stofnana sem vinna að aukinni velferð borgaranna\, meðal annars gengdi hún starfi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu\, var Umboðsmaður barna og forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda\, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón og heyrnaskerðingu. Hún lauk embættisprófi í lögfræðingi frá Háskóla Íslands\, kennsluréttindanámi frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá University of the Highlands and Islands í Skotlandi með áherslu á mannréttindi. \nMannréttindastofnun Íslands er sjálfstæð stofnun sem tók til starfa þann 1. maí 2025 sl. og starfar á vegum Alþingis samkvæmt lögum nr. 88/2024. Meginhlutverk stofnunarinnar er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgunn-mannrettindastofnun-islands/
CATEGORIES:Aðildarfélög,Mannréttindahúsið
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251113T140000
DTEND;TZID=UTC:20251113T180000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251103T135100Z
LAST-MODIFIED:20251103T135100Z
UID:39547-1763042400-1763056800@www.obi.is
SUMMARY:Fundur fólksins – ráðstefna almannaheilla
DESCRIPTION:HlustaFundur fólksins – Ráðstefna Almannaheilla verður í Hörpu fimmtudaginn 13. nóvember á milli klukkan 14:00 – 18:00 næstkomandi. \nStjórn Almannaheilla ákvað í fyrra að færa ráðstefnuna inn í Hörpu með það fyrir augum að hún hafi rými til að vaxa og þroskast á glæsilegum vettvangi næstu árin. \nHarpa tók vel utan um fundargesti í fyrra en í ár eru gerðar nokkrar breytingar sem vonandi verða til góðs: \n\nRáðstefnan er á fimmtudegi í stað föstudags.\nRáðstefnan verður tekin upp en verður ekki í streymi. Við viljum fá fólk á staðinn því við trúum því að samstaða og samtal aðildarfélaga skipti máli.\nAðildarfélögum Almannaheilla býðst að vera með bás og/eða eigin viðburð á ráðstefnunni endurgjaldslaust.\nÖll ráðstefnan fer fram á einu svæði; í aðalsalnum Kaldalóni\, á Norðurbryggju (básasvæði) og í Vísu og Stemmu\, aðliggjandi hliðarsölum.\n\nÞá má nefna að stjórn Almannaheilla bindur vonir við að engar þingkosningar steli þrumunni að þessu sinni líkt og gerðist í fyrra\, þegar kosningar voru settar á dagskrá daginn eftir ráðstefnuna með skömmum fyrirvara.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fundur-folksins-radstefna-almannaheilla/
LOCATION:Harpa\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T090000
DTEND;TZID=UTC:20251210T235900
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251126T130605Z
LAST-MODIFIED:20251201T160738Z
UID:40185-1764061200-1765411140@www.obi.is
SUMMARY:16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
DESCRIPTION:HlustaAlþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember er í ár 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi (e. 16 Days of Activism against Gender-based Violence) undir merkjum UniTE to End Violence against Women\, \nHerferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár\, þegar undirritun Peking-sáttmálans\, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. \n» Stafrænt ofbeldi eykst hratt – en nær helmingur kvenna og stúlkna í heiminum býr enn ekki við lagalega vernd gegn því – UN Women Ísland \nÖBÍ réttindasamtök leggja áherslu á að stafrænt umhverfi sé öruggt fyrir alla\, ekki síst fatlaðar konur og fatlað fólk sem fyrir verður margþættri mismunun. Stafrænt ofbeldi er raunverulegt ofbeldi sem skerðir þátttöku í samfélaginu\, heftir tjáningarfrelsi og getur orðið til þess að raddir jaðarsettra hópa þagni. ÖBÍ hvetur stjórnvöld\, löggæslu\, fjölmiðla\, tæknifyrirtæki og almenning til að axla sameiginlega ábyrgð á því að breyta menningu\, styrkja úrræði og tryggja að enginn verði skilinn eftir í skugga stafræns ofbeldis. \n» Sjónum beint að stafrænu ofbeldi – ÖBI \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/16-daga-atak-gegn-kynbundnu-ofbeldi/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/16-dagar-PR-fra-HQ-1536x864-1.png
ORGANIZER;CN="UN women %C3%A1 %C3%8Dslandi":MAILTO:unwomen@unwomen.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T160000
DTEND;TZID=UTC:20251125T160000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251110T102621Z
LAST-MODIFIED:20251117T130205Z
UID:39628-1764086400-1764086400@www.obi.is
SUMMARY:Opinn fyrirlestur um ofbeldi gegn konum með fötlun
DESCRIPTION:HlustaFyrirlestur: Skortur á tilkynningum um ofbeldi gegn konum með fötlun á Íslandi\nTil að fagna alþjóðadeginum um afnám ofbeldis gegn konum munum við halda opinn fyrirlestur þann 25. nóvember kl. 16:00 í sal Blindrafélagsins á annarri hæð\, Hamrahlíð 17. Eliona Gjecaj\, doktorsnemi við Háskóla Íslands\, mun halda fyrirlestur fyrir félagsmenn okkar um niðurstöður rannsókna sinna varðandi skort á tilkynningum um ofbeldi gegn konum með fötlun á Íslandi. Hún hóf rannsókn sína árið 2019 og hefur birt þrjár fræðigreinar um aðgengi kvenna með fötlun að réttlæti í tengslum við kynbundið ofbeldi. Niðurstöður hennar hafa verið kynntar hagsmunaaðilum\, á innlendum og alþjóðlegum ráðstefnum\, auk þess sem þær hafa verið hluti af skuggaskýrslu Íslands til nefndar Sameinuðu þjóðanna um samninginn um réttindi fatlaðs fólks árið 2025.  \nNýjasta greinin (október 2025) fjallar um reynslu kvenna með fötlun af ofbeldi á Íslandi og skort á tilkynningum af þeirra hálfu\, ásamt greiningu á ástæðum þess. Nokkrir þátttakendur í rannsókninni voru sjónskertir\, og því verður mikilvægt að hlusta og íhuga saman þetta viðfangsefni.  \nVið hvetjum alla félagsmenn og styrktaraðila til að mæta.  \nFyrirlesturinn verður á ensku. \n\nLecture: Lack of reporting of violence by disabled women in Iceland\nTo celebrate the International Day for the Elimination of Violence Against Women\, we will have an open lecture on the 25th of November\, at 16:00 on the 2nd floor\, Hamrahlíð 17\, Blindrafélagið. Eliona Gjecaj\, a doctoral student at the University of Iceland will give  this lecture for our members on her research findings regarding the lack of reporting of violence by disabled women in Iceland. She started her research in 2019 and has 3 academic publications regarding access to justice for disabled women in relation to gender-based violence. Her research findings have been shared with advocates\, national and international conferences\, as well as been part of the shadow report of Iceland to the Committee of UN Convention on the Rights of Persons with Disabilities in 2025. \nThe most recent publication (October 2025) discusses the experiences of violence by disabled women in Iceland\, and the lack of reporting by them\, while analysing the reasons for such. A number of her research participants were visually impaired\, and thus\, it will be important to hear and reflect together on this topic. The article is available at: \nWe invite all members and sponsors to come along. \nThe lecture will be in English.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/opinn-fyrirlestur-um-ofbeldi-gegn-konum-med-fotlun/
LOCATION:Hamrahlíð 17\, Hamrahlíð 17\, Reykjavík\, 105\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/01/kynbundid-ofbeldi.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251130T130000
DTEND;TZID=UTC:20251130T170000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251125T115110Z
LAST-MODIFIED:20251125T115110Z
UID:40160-1764507600-1764522000@www.obi.is
SUMMARY:1. í aðventu - Hringrásarjól
DESCRIPTION:HlustaNotað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði Norræna hússins\, Landverndar og Grænfánans!\nViðburðurinn er hluti af aðventudagskrá Norræna hússins og hvatningarátaki Landverndar og Grænfánans um Nægjusaman Nóvember.\n\nDagskrá:13:00-17:00 – Jólahringrásarmarkaður opinn og Textíl Barinn verður á staðnum!14:00-17.00 – Jólapeysusmiðja með Ýrúrarí\n\nJólahringrásarmarkaður:\nÞað sem nýtist þér ekki lengur gæti vel reynst fjársjóður annars – og öfugt! Komdu t.d. með bækur\, leikföng\, spil og skiptu fyrir eitthvað annað. Tilvalið tækifæri til þess að finna umhverfisvænar jólagjafir sem þú getur sett undir tréð með góðri samvisku.\nVið biðjum þátttakendur vinsamlegast aðeins að koma með hluti sem eru í góðu og nothæfu ástandi.\nSkiptimarkaðsflokkarnir eru:• Leikföng• Spariföt og prjónuð föt• Jólaskraut/jólamunir• Bækur og spil• Hlutir fyrir heimilið\n\nJólapeysu smiðja með Ýrúrarí:\nFjölskylduvæn smiðja þar sem peysur öðlast nýtt útlit í jólaþema fyrir desember.\nSmiðjan byggir á skapandi fataviðgerðar smiðjum textílhönnuðarins Ýrúrarí\, þar sem föt öðlast nýtt líf og útlit með mjög einföldum og aðgengilegum aðferðum.Þátttakendur koma sjálfir með peysu\, eða prjónaða flík\, sem þau vilja breyta og ef einhverjar sérstaklega jólalegar hugmyndir hafa vaknað fyrir smiðju\, eins og t.d að nota litlar jólaseríur eða úrelt jólaksraut heima úr geymslu\, þá er um að gera að taka slíkt með!\nÍ smiðjunni verður í boði ýmis efniviður og verkfæri sem hægt er að vinna með í einföldum og skrautlegum textíl aðferðum sem henta algjörum byrjendum sem og lengra komnum. Einnig verður í boði efniviður og lausnir til að taka þátt í smiðjunni án þess að koma með peysu eða flík\, enda ýmislegt sem hægt er að útbúa til að festa á flíkur tímabundið bara fyrir jólin.\nÆtlast er til að börn yngri en 12 ára komi í fylgd fullorðins.\n\nTextílbarinn:\nTextíl Barinn er lítið sprotafyrirtæki sem er með það að markmiði að endurnýta textíl og finna leiðir til að hanna vörur og koma aftur inn í hringrásarhagkerfið. Markmið þeirra er að auka vitund um endurvinnslu og endurnýtingu á textíl og þannig stuðla að ábyrgri neyslu\, skapandi lausnum og félagslegri þátttöku. Textílbarinn er með vinnustofu og litla verslun á Faxatorgi\, Faxafeni 10.\n\nVið hlökkum til að sjá ykkur og bendum einnig á að Plantan verður með sérstakan jólamatseðil og jóladrykki í boði.\nAðgengi að Elissu sal og andyri er gott\, lágur þröskuldur er inn í Elissu sal. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð.Nánar um aðgengismál má lesa með því að smella hér.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/1-i-adventu-hringrasarjol/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/Hringrasarjol-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251203T200000
DTEND;TZID=UTC:20251203T200000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251103T135325Z
LAST-MODIFIED:20251117T131223Z
UID:39550-1764792000-1764792000@www.obi.is
SUMMARY:ADHD og jólin
DESCRIPTION:Hlusta\nJólin eru æði! – eða hvað ?\n\nDr Drífa Björk Guðmundsdóttir\, sálfræðingur fjallar um\, hvernig ýmislegt í jólaundirbúningnum\, spenningnum sem fylgir jólunum og breyttri rútínu fjölskyldunnar í jólafríinu\, getur valdið streitu og erfiðleikum hjá börnum og fólki með ADHD og gefur góð ráð um hvernig hægt er að bregðast við.  Tilvalið fyrir alla sem eru með\, eiga eða kenna einstaklingum með ADHD.\n\nFræðslufundurinn verður í streymi 3. desember kl. 20:00 og er eingöngu aðgengilegur skuldlausu félagsfólki ADHD samtakanna á Facebook síðunni ADHD í beinni. Nánari upplýsingar:\nADHD og jólin | ADHD samtökin
URL:https://www.obi.is/vidburdir/adhd-og-jolin/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/ADHD-og-jolin-2025.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251220T190000
DTEND;TZID=UTC:20251220T190000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251208T110630Z
LAST-MODIFIED:20251211T161641Z
UID:40525-1766257200-1766257200@www.obi.is
SUMMARY:Jólatónleikar Hjálpræðishersins
DESCRIPTION:HlustaLaugardagskvöldið 20. desember klukkan 19:00 mun Hjálpræðisherinn blása til einstakra jólatónleika þar sem andi jólanna svífur yfir vötnum og fyllir salinn hlýju\, friði og eftirvæntingu. \nFrítt er inn en frjáls framlög eru vel þegin og mun allur ágóði renna í velferðarsjóð Hjálpræðishersins\, þar sem hver króna skilar sér beint til þeirra sem þurfa á stuðningi að halda á þessum viðkvæma tíma ársins. \nHúsbandið:\nGunnar Wincke á trommur\nBirgir Jóhann Birgisson á bassa\nÞórir Haraldsson á Hammond\nSiggi Ingimars á gítar\nLárus Óskar Sigmundsson\, píanóleikari og stjórnandi\nMeð þeim koma fram glæsilegir sólóistar:\nStefanía Svavarsdóttir\,\nGospelkór Hjálpræðishersins\nLárus Óskar Sigmundsson\,\nBenjamín Ásmundur Eriksson\,\nJohanna Tablante\,\nSiggi Ingimars og Rannvá Olsen. \nÞetta verður kvöld fullt af ljúfri tónlist og hjartnæmum stemmningum – tónleikar sem fanga jólaandann og færa hlýju inn í veturinn. \nKomdu og njóttu.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jolatonleikar-hjalpraedishersins/
LOCATION:Hjálpræðisherinn\, Suðurlandsbraut 72\, Reykjavík
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/Hjalpraedisherinn-e1765469726118.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251221T130000
DTEND;TZID=UTC:20251221T150000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20251211T180216Z
LAST-MODIFIED:20251212T124711Z
UID:40689-1766322000-1766329200@www.obi.is
SUMMARY:Jólaföndursmiðja fyrir börnin í Norræna húsinu
DESCRIPTION:HlustaHyggestund – Notaleg jólaföndursmiðja fyrir börnin\nVelkomin í notalega föndursmiðju fyrir fjölskyldur af öllum toga\, þar sem gestum er boðið að búa til jólakort og gjafamiða í notalegum jólaanda 21. desember kl. 13 til 15. \nSmiðjan fer fram á Barnabókasafni Norræna hússins þar sem sýningin Lína\, lýðræðið og raddir barnanna! stendur yfir. \nBörnum er boðið að sækja innblástur í heim Línu til að skapa skemmtileg kort og gjafa merkimiða. Smiðjan er hluti af aðventudagskrá okkar\, aðgangur að og allt efni er ókeypis. \nOpnunartími og aðgengi\nBarnabókasafn Norræna hússins er öllum opið\, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Sjá nánar: Aðgengi | Norræna Húsið \n4. í aðventu: Hyggestund – Notaleg jólaföndursmiðja! | Norræna Húsið
URL:https://www.obi.is/vidburdir/hyggestund-notaleg-jolafondursmidja-fyrir-bornin-i-norraena-husinu/
LOCATION:Norræna húsið\, Sæmundargötu 11\, Reykjavík\, 102\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/Norraena-husid.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260114T150000
DTEND;TZID=UTC:20260121T000000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260112T142647Z
LAST-MODIFIED:20260319T143741Z
UID:41168-1768402800-1768953600@www.obi.is
SUMMARY:Námskeið og fyrirlestraröð Sjálfsbjargar
DESCRIPTION:HlustaSjálfsbjörg býður félagsfólki sínu á námskeið tengd andlegri líðan\, samskiptum\, næringu fyrir hreyfihamlaða og hreyfingu\, á fyrstu vikum og mánuðum ársins. \nFyrstu tveir fyrirlestrarnir eru á höndum Samskiptamiðstöðvarinnar og verða í janúar. Þar fjallar Íris Eik Ólafsdóttir félagsráðgjafi um samskipti í fjölskyldum eftir slys eða veikindi og svo samskipti í parasambandi. Fyrri fyrirlesturinn verður 14. janúar nk og hefst kl. 15.00. Sá seinni verður 21. janúar kl. 15.00. \nNauðsynlegt er að fólk skrái sig á fyrirlestrana með því að senda tölvupóst á info@sjalfsbjorg.is eða hringja í síma 550 0360. Vinsamlegast setjið hvaða Sjálfsbjargarfélagi þið tilheyrið í skráninguna. Viðkomandi fær sendan fundarhlekk. Fyrirlestrarnir eru félagsfólki að kostnaðarlausu. \n14. janúar kl. 15 Fyrirlestur fyrir fjölskyldur eftir slys eða veikindi \nÞegar einstaklingur lendir í slysi eða alvarlegum veikindum hefur það áhrif á alla fjölskylduna. Slík reynsla er áfall bæði fyrir þann sem veikist eða slasast og aðstandendur\, og raskað jafnvægi\, hlutverkum og samskiptum innan fjölskyldunnar. Fjallað verður um hvernig áföll birtast hjá fjölskyldum og hvernig streita\, sorg\, óvissa og ótti geta haft áhrif á tilfinningar\, hegðun og tengsl. Lögð er áhersla á fjölskylduna sem heild\, þar sem breytingar hjá einum fjölskyldumeðlim hefur áhrif á alla. Rætt verður um mikilvægi tengsla\, samskipta og samstöðu\, sem og hvernig hægt er að styrkja seiglu\, sjálfsumhyggju og gagnkvæman stuðning. Markmið námskeiðsins er að auka skilning\, veita hagnýt verkfæri og styðja við heilbrigð samskipti og bataferli fjölskyldunnar í heild. \n21. janúar kl 15 Fyrirlestur fyrir pör eftir slys eða veikindi \nÞegar afleiðingar slyss eða veikindi verða hluti af lífi pars hefur það áhrif á sambandið í heild. Slík reynsla hefur áhrif á tilfinningar\, samskipti\, nánd og hlutverk innan sambandsins. Fjallað verður um algeng viðbrögð einstaklinga í parsambandi við áföllum\, hvernig ótti\, sorg\, reiði eða fjarlægð geta komið fram og hvers vegna slík viðbrögð eru eðlileg í ljósi aðstæðna. Lögð er áhersla á sambandið sem síbreytilegt ferli þar sem áfallið snertir báða aðila\, þó á ólíkan hátt. Rætt verður um mikilvægi öruggra tengsla\, opins samtals og gagnkvæms skilnings\, sem og hvernig hægt er að styrkja seiglu\, nánd og samvinnu í kjölfar áfalls. Markmið námskeiðsins er að styðja pör í að takast á við breyttar aðstæður\, efla tengsl og finna leiðir áfram saman. Mælt er með því að par hlusti saman á fyrirlesturinn og ræði um efni hans eftir á með það i huga hvaða verkfæri þau gætu hugsað sér að nýta. \nÍ febrúar verður námskeið um næringu hreyfihamlaðra og í mars fyrirlestrar um hreyfingu og sárameðferðir. \n» Námskeið og fyrirlestraröð í upphafi árs
URL:https://www.obi.is/vidburdir/namskeid-og-fyrirlestrarod-sjalfsbjargar/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/Sjalfsbjorg-2026-paranamskeid.max-1132x760-1.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260126T163000
DTEND;TZID=UTC:20260126T173000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260107T104739Z
LAST-MODIFIED:20260107T104739Z
UID:41091-1769445000-1769448600@www.obi.is
SUMMARY:Komdu að syngja!
DESCRIPTION:HlustaGítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja! \nEngrar söngkunnáttu krafist\, öll syngja með sínu nefi. Það er allt í lagi þó að þú kunnir ekki textann\, hann verður á skjá svo söngurinn verður leikur einn. \nKomdu að syngja er á dagskrá einu sinni í mánuði fram á vor á Borgarbókasafninu Spönginni og Borgarbókasafninu Árbæ. Öll hjartanlega velkomin! \n» Komdu að syngja! | Borgarbókasafnið
URL:https://www.obi.is/vidburdir/komdu-ad-syngja/
LOCATION:Borgarbókasafnið – Árbæ\, Hraunbæ 119\, Reykjavík\, 110\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/valligitarbaekur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260130T080000
DTEND;TZID=UTC:20260131T173000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260123T132513Z
LAST-MODIFIED:20260123T134433Z
UID:41609-1769760000-1769880600@www.obi.is
SUMMARY:Masterclass Gulleggsins
DESCRIPTION:HlustaKraumar í þér nýsköpunarhugmynd? Eða hefur þú áhuga á nýsköpun og langar að kynnast frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi? Þá er Masterclass Gulleggsins fyrir þig! \n\nMasterclass Gulleggsins er ókeypis námskeið í nýsköpun og stofnun fyrirtækja! \nHægt er að skrá sig í Masterclass bæði með eða án hugmyndar.\n\nHér ætlum við að mastera það að umbreyta hugmynd í viðskiptatækifæri. Reynsluboltar og neglur úr atvinnulífinu hjálpa þér að koma hugmyndinni þinni á næsta level! Markmiðið með Masterclass er að aðstoða þig við að útbúa 10 glæru kynningu og einnar mínútna myndband um hugmyndina þína\, sem er akkúrat það sem þarf til að skila inn umsókn í Lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í febrúar. \nKraumar í þér nýsköpunarhugmynd? Eða hefur þú áhuga á nýsköpun og langar að kynnast frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi? Þá er Masterclass Gulleggsins fyrir þig! \nDagskrá og nánari upplýsingar\n» Masterclass Gulleggsins 2026 — Klak » Masterclass | Gulleggið \nSkráning\nSkráningarfrestur er til miðnættis 29. janúar » Skráning – Gulleggið 2026 | YouNoodle \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/masterclass-gulleggsins-2026/
LOCATION:Gróska\, Bjargargötu 1\, Reykjavík\, 102
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/Groska-HI-b.avif
ORGANIZER;CN="KLAK Icelandic Startups":MAILTO:hello@klak.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260130T090000
DTEND;TZID=UTC:20260130T130000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260127T132359Z
LAST-MODIFIED:20260127T132437Z
UID:41793-1769763600-1769778000@www.obi.is
SUMMARY:Málþing Allir með - Ferðin hingað og ferðalagið framundan
DESCRIPTION:HlustaHvernig tryggjum við að öll börn hafi raunverulegan aðgang að íþróttum?\nHvað hefur áunnist síðustu ár og hvert ætlum við næst?\n\nAllir með verkefnið mun halda málþing þar sem við lítum yfir vegferð verkefnisins\, deilum reynslu af vettvangi og ræðum lausnir og næstu skref í átt að íþróttastarfi fyrir öll börn.\nÁ málþinginu verður fjallað um stöðu fatlaðra barna í íþróttum í dag\, rannsókn um þátttöku\, reynslu barna\, foreldra og íþróttafélaga sem og þau verkefni og samstarf sem þegar eru í gangi. Við munum ræða hvernig ná megi betur til foreldra\, styrkja íþróttafélög og þjálfara ásamt því að skoða úrræði og lausnir sem eru til staðar.\nÖllum er velkomið að koma og taka þátt í deginum með okkur og leggja sitt af mörkum til að allir fái að vera með.Við óskum eftir að fólk skrái sig á málþingið með því að fylla í formið hér: https://forms.gle/mVYx3A8CtPHFy2Us7\n\nDagsetning: 30. janúar\, 2026Staðsetning: Minigarðurinn\, Skútuvogur 2\, 104 Reykjavík\nMálþingið mun byrja kl. 09:00 og lýkur kl. 13:00
URL:https://www.obi.is/vidburdir/malthing-allir-med-ferdin-hingad-og-ferdalagid-framundan/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/615440712_1301777575317670_5617743479271974637_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260205T193000
DTEND;TZID=UTC:20260205T210000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260129T143502Z
LAST-MODIFIED:20260129T143702Z
UID:41906-1770319800-1770325200@www.obi.is
SUMMARY:Fræðslufundur Stómasamtakanna
DESCRIPTION:HlustaFyrsti fræðslufundur ársins verður haldinn fimmtudaginn 5. febrúar í húsi Krabbameinsfélagsins  að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.  Fundurinn hefst kl. 20:00 en húsið opnar 19:30. \n  \nFundarefni verður kynning frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. \n  \nKaffiveitingar að lokinni dagskrá. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fraedslufundur-stomasamtakanna/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/download-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260207T110000
DTEND;TZID=UTC:20260207T160000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260126T112524Z
LAST-MODIFIED:20260126T112524Z
UID:41729-1770462000-1770480000@www.obi.is
SUMMARY:Tæknidagurinn í Hörpu – fyrir okkur öll
DESCRIPTION:HlustaAðgangur að tæknideginum í Hörpu laugardaginn 7. febrúar er ókeypis og eru öll hvött til mæta og upplifa töfra tækninnar.  \nHelstu tæknifyrirtæki landsins sýna hvað þau hafa fram að færa í stórglæsilegum básum. Hér getur þú prófað nýjustu tækni\, tekið þátt í leikjum og getraunum og fengið innblástur fyrir það sem framtíðin ber í skauti sér. \nSjá nánari upplýsingar » UTmessan – 2026 Tæknidagur
URL:https://www.obi.is/vidburdir/taeknidagurinn-i-horpu-fyrir-okkur-oll/
LOCATION:Harpa\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2022/11/Harpan-fjolubla-althjodadagur-fatlads-folks.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260226T130000
DTEND;TZID=UTC:20260226T160000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260224T125923Z
LAST-MODIFIED:20260224T130135Z
UID:43553-1772110800-1772121600@www.obi.is
SUMMARY:Málþing Einstakra barna - Þar sem reynslan fær rödd
DESCRIPTION:HlustaÍ tengslum við alþjóðlegan dag sjaldgæfra sjúkdóma halda Einstök börn Landsamtök málþing fimmtudaginn 26.02.2026 á Hilton Reykjavik Nordica kl 13:00.\n\nDr. Albert Freedman er foreldri\, sálfræðingur og þekktur fagaðili í málefnum fjölskyldna barna/ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma í Bandaríkjunum. Dr.Freedman er líka foreldri einstaklings sem var með sjaldgæfa greiningu. Erindi hans fer fram á ensku\nDr. Freedman hefur yfir 30 ára reynslu í því að miðlar og vinna með foreldrum og fagaðilum og mun hann endurspegla dýrmætri og reynslumikilli innsýn í líðan fjölskyldna og þann stuðning og nálgun sem þarf að hafa í huga þegar fólki er mætt á erfiðum tímum eða í flóknum aðstæðum sjaldgæfra greininga.\n\nMálþingið er opið öllum meðan húsrúm leyfir en við biðjum fólk um að skrá sig HÉR!
URL:https://www.obi.is/vidburdir/malthing-einstakra-barna-thar-sem-reynslan-faer-rodd/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/02/640335781_1342599441240332_7707408838690890127_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260301T130000
DTEND;TZID=UTC:20260314T170000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260209T182716Z
LAST-MODIFIED:20260209T184323Z
UID:42929-1772370000-1773507600@www.obi.is
SUMMARY:Framtíðarfestival í Grófinni
DESCRIPTION:HlustaHátíðin Framtíðarfestival: hvernig á að framtíðast? fer fram 1. mars til 14. mars 2026 á Borgarbókasafninu Grófinni (miðbænum). \nAllir viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum. \n» Dagskrá og allar upplýsingar um: Framtíðarfestivalið | Borgarbókasafnið
URL:https://www.obi.is/vidburdir/framtidarfestival-hvernig-a-ad-framtidast/
LOCATION:Borgarbókasafnið – Grófinni\, Tryggvagata15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/02/Framtidar-festival-skjamynd_2026-02-09_085909.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260305T193000
DTEND;TZID=UTC:20260305T213000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260225T104458Z
LAST-MODIFIED:20260225T105127Z
UID:43581-1772739000-1772746200@www.obi.is
SUMMARY:Lífeyrismál - uppbygging og eiginleikar lífeyriskerfisins
DESCRIPTION:HlustaFélagafundur Stómasamtakana: \nBjörn Berg er ráðgjafi í lífeyrismálum og verður með fyrirlestur um uppbyggingu og eiginleika lífeyriskerfisins. Hann ræðir þá valkosti sem standa til boða og samspil lífeyris við almannatryggingar. \nFundurinn verður að vanda haldinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 og hefst kl. 20:00.  Húsið opnar 19:30. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/lifeyrismal-uppbygging-og-eiginleikar-lifeyriskerfisins/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/02/download-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260311T193000
DTEND;TZID=UTC:20260311T211500
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260220T180628Z
LAST-MODIFIED:20260220T180628Z
UID:43368-1773257400-1773263700@www.obi.is
SUMMARY:Jafningjahittingur Tabú
DESCRIPTION:HlustaTabú\, feminísk fötlunarhreyfing\, hefur haldið úti jafningjastuðningi og jafningjanámskeiðum fyrir fatlaðar konur og kvár í rúman áratug.  \nTabú býður upp á opna jafningjahópa að jafnaði einu sinni í mánuði. Næsti jafningjahittingur er 11. mars  kl. 19:30-21:15 í Mannréttindahúsinu.  \nJafningjaráðgjöf og stuðningur á rætur sínar að rekja til valdeflingarstarfs fólks með geðrænanar áskoranir og hefur einnig verið notuð í ýmsum jaðarsettum hópum til þess að skapa öruggara og hugrakkara rými til samtals\, speglunar og fræðslu fyrir fólk í sambærilegri stöðu. Jafningjaráðgjöf er einn af hornsteinum hugmyndafræði mannréttindabaráttu fatlaðs fólks um sjálfstætt líf og er álitin ein mikilvægasta leiðin til valdeflingar og sjálfræðis fyrir fatlað fólk. Þar er fatlað fólk álitið sérfræðingar í eigin lífi og með dýrmæta þekkingu á þeim hindrunum sem við mætum og hvernig við tæklum þær.  \nJafningjastuðningur kemur ekki staðinn fyrir sálfræðiaðstoð en getur verið góð byrjun og/eða sjálfsvinna samhliða henni\, sem og ein og sér. \nEf óskað er eftir táknmálstúlki vinsamlega hafið samband á tabu (hjá) tabu.is með eins góðum fyrirvara og mögulegt er. \n\n» Opinn jafningjahittingur Tabú – febrúar 2026 | Facebook \n» Um Tabú | Tabú \n» Tabú | Facebook
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jafningjahittingur-tabu/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/02/tabu.png
ORGANIZER;CN="Tab%C3%BA - femin%C3%ADsk f%C3%B6tlunarhreyfing":MAILTO:tabu@tabu.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260313T120000
DTEND;TZID=UTC:20260314T160000
DTSTAMP:20260421T054627
CREATED:20260107T103329Z
LAST-MODIFIED:20260218T162655Z
UID:41088-1773403200-1773504000@www.obi.is
SUMMARY:Hugvísindaþing
DESCRIPTION:HlustaHugvísindaþing 2026 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 13. og 14. mars. Á Hugvísindaþingi er borið fram það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin! \nÓlöf Garðarsdóttir\, forseti Hugvísindasviðs\, setur þingið í Hátíðasal í Aðalbyggingu föstudaginn 13. mars kl. 12. Í kjölfarið flytur Magnús Þorkell Bernharðsson\, miðausturlandafræðingur og boðsfyrirlesari þingsins\, hátíðarfyrirlestur. \n» Hugvísindaþing 2026 | Hugvísindastofnun Háskóla Íslands
URL:https://www.obi.is/vidburdir/hugvisindathing/
LOCATION:Háskóli Íslands
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/Haskoli-Islands-adalbygging_agust_2016_16.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR