BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240623T150000
DTEND;TZID=UTC:20240804T170000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240614T130341Z
LAST-MODIFIED:20240702T141703Z
UID:22155-1719154800-1722790800@www.obi.is
SUMMARY:Norræna húsið: ókeypis tónleikar á sunnudögum í sumar
DESCRIPTION:HlustaSumartónleikaröð Norræna hússins nýtur ávalt mikilla vinsælda og nú er dagskrá sumarsins farin að taka á sig mynd. \nFrá sunnudeginum 23. júní til 4. ágúst 2024 er ókeypis inn á tónleikana sem haldnir eru í gróðurhúsi Norræna hússins. \nSjá dagskrá og nánari upplýsingar:  PIKKNIKK: ókeypis tónleikar á sunnudögum í sumar! | Norræna Húsið (nordichouse.is)  
URL:https://www.obi.is/vidburdir/norraena-husid-okeypis-tonleikar-a-sunnudogum-i-sumar/
LOCATION:Norræna húsið\, Sæmundargötu 11\, Reykjavík\, 102\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/06/nh-1600x-TIX.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240621T120000
DTEND;TZID=UTC:20240622T120000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240614T103717Z
LAST-MODIFIED:20240614T130947Z
UID:22134-1718971200-1719057600@www.obi.is
SUMMARY:Geðsveiflan 2024
DESCRIPTION:HlustaGeðsveiflan 2024 mun fara fram 21. júní næstkomandi\, en um er að ræða viðburð til styrktar Geðhjálpar þar sem markmiðið er að vekja athygli á geðheilbrigði og mikilvægi þess að stunda íþróttir\, útivist og bæta félagslega heilsu. \nGuðmundur Hafþórsson mun spila golf í 24 tíma á Urriðavelli\, og munu einstaklingar og fyrirtæki hafa tækifæri á að taka þátt í þessum frábæra viðburði (litla móti). Golfklúbburinn Oddur og Golfsamband Íslands hafa tekið höndum saman með Guðmundi í að gera þennan viðburð að veruleika. \nSjá nánari upplýsingar: Geðsveiflan 2024 til styrktar Geðhjálpar – Geðhjálp (gedhjalp.is) \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/gedsveiflan-2024/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ORGANIZER;CN="Ge%C3%B0hj%C3%A1lp":MAILTO:gedhjalp@gedhjalp.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240621T090000
DTEND;TZID=UTC:20240621T160000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240610T132406Z
LAST-MODIFIED:20240610T132406Z
UID:21970-1718960400-1718985600@www.obi.is
SUMMARY:Ráðstefna MND á Íslandi
DESCRIPTION:HlustaMND á Íslandi býður til ráðstefnu á alþjóðadegi MND\, föstudaginn 21. júní nk.\, kl. 9:00-16:00\, á Hilton Reykjavík Nordica \nYfirskrift ráðstefnunnar er Women in Science and Sensitive Communication. \nRáðstefnan fer fram á ensku en verður rittúlkuð yfir á íslensku jafnóðum. \nEliza Reid\, forsetafrú og Halla Tómasdóttir\, nýkjörinn forseti\, ávarpa ráðstefnuna í myndböndum. Fyrirlesarar ráðstefnunnar eru öll sérfróð um MND\, ýmist í gegnum störf sín eða persónulega reynslu af sjúkdómnum. Þau fara með okkur í gegnum það sem er helst á baugi í tengslum við MND í heiminum í dag\, bæði í fræðunum og mannlega þættinum. \nUndir lok ráðstefnunnar bjóðum við svo í bíó en þá fer fram Íslandsfrumsýning á teiknuðu stuttmyndinni LUKi and the Lights\, sem hefur hlotið mikið lof erlendis. Stuttmyndin útskýrir á myndrænan hátt hvaða áhrif MND hefur. Eftir sýningu verður boðið upp á spurt og svarað með aðstandendum myndarinnar. \nRáðstefnustjóri verður Eva Þengilsdóttir\, framkvæmdastjóri ÖBÍ. Nánari upplýsingar og dagskrá: Alþjóðadagur MND – minnum á skráningu og dagskráin mætt! – MND \nAðgangur er með öllu ókeypis og heimill öllum áhugasömum en skráning er nauðsynleg þar sem húsrúm er takmarkað. Boðið verður upp á morgunhressingu í upphafi\, léttan hádegisverð og að sjálfsögðu popp og kók með bíósýningunni síðdegis. \nHægt er að skrá sig til þátttöku í síðasta lagi fimmtudaginn 20. júní\, svo framarlega sem húsrúm leyfir. Skráning fer fram í gegnum þennan hlekk: MND á Íslandi – skráning á ráðstefnu / MND Iceland – registration form (google.com)
URL:https://www.obi.is/vidburdir/radstefna-mnd-a-islandi/
LOCATION:Hilton Reykjavík Nordica\, Suðurlandsbraut 2\, Reykjavík\, 108\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240609T200000
DTEND;TZID=UTC:20240609T213000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240606T141324Z
LAST-MODIFIED:20240606T141324Z
UID:21802-1717963200-1717968600@www.obi.is
SUMMARY:Listahátíð: Dúettar
DESCRIPTION:HlustaDúettar í Borgarleikhúsinu laugardagskvöldið 9. júní kl. 2o:00 \nÓlík danspör stíga á svið og bjóða okkur í dansferðalag. Vinir\, mæðgin\, systkini\, samstarfskonur … þau bindast ólíkum böndum en eiga það sameiginlegt að elska tónlist og dans. Þau fara með okkur aftur í tímann á djammið þar sem þau kynntust\, birta okkur ævintýraheim\, bjóða okkur inn í stemninguna þegar þau dansa í eldhúsinu á kvöldin. Þau flytja fyrir okkur dansinn sem þau eiga saman. \nFólk sem lifir af örorkulífeyri fær 25% afslátt á sýninguna.  Borgarleikhús – Dúettar – Listahátíð í Reykjavík – Velja miða (tix.is) \nDansarar: Arngunnur Hinriksdóttir & Garðar Hinriksson\, Helga Rakel Rafnsdóttir & Viktoría Blöndal\, Juulius Vaiksoo & Ólafur Snævar Aðalsteinsson\, Atli Már Indriðason & Ragna Sigríður Ragnarsdóttir\, Bára Halldórsdóttir & Friðrik Agni Árnason\, Þorbera Fjölnisdóttir & Hrafnkell Karlsson\, Sigurður Valur Sigurðsson & Rósa Ragnarsdóttir \nSamstarfsaðili: List án landamæra \nSjá nánar: Dúettar | Listahátíð í Reykjavík (listahatid.is)
URL:https://www.obi.is/vidburdir/listahatid-duettar/
LOCATION:Borgarleikhúsið\, Listabraut 3\, Reykjavík\, 103\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240606T170000
DTEND;TZID=UTC:20240606T190000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240530T143738Z
LAST-MODIFIED:20240530T143738Z
UID:21426-1717693200-1717700400@www.obi.is
SUMMARY:Skiptir framtíðin máli? Samtal um sáttmála framtíðarinnar
DESCRIPTION:HlustaFélag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í samstarfi við utanríkisráðuneytið\, forsætisráðuneytið\, Barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða SÞ\, Landssamband ungmennafélaga og Höfða friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands boðar til samtals um Sáttmála framtíðarinnar fimmtudaginn 6. júní frá klukkan 17:00- 19:00 í Mannréttindahúsinu.\n\nDagana 22.-23. September nk. verður Leiðtogafundur um framtíðina (e. Summit of the Future) haldinn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem leiðtogar heimsins koma saman til að samþykkja nýtt alþjóðlegt samkomulag um hvernig við bætum samtíð okkar og tryggjum gæfuríkari framtíð. Hið nýja samkomulag\, Sáttmáli framtíðarinnar (e. Pact for the Future) er einstakt tækifæri til að endurheimta það traust sem hefur glatast og sýna fram á að með alþjóðlegri samvinnu sé hægt að takast á við þær sameiginlegu áskoranir sem heimurinn stendur frammi fyrir.\n\nÁ þessum samtalsfundi verða drög sáttmálans kynnt og þemu hans rædd í umræðuhópum. Viðburðinum er þannig ætlað að auka þekkingu á málefnum Leiðtogafundarins og um Sáttmála framtíðarinnar\, stuðla að áhugaverðum umræðum sem virkja þátttöku ungs fólks og borgarasamfélagsins og valdefla þessa hópa í málefnum sem þau varðar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/skiptir-framtidin-mali-samtal-um-sattmala-framtidarinnar/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240531T120000
DTEND;TZID=UTC:20240531T130000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240528T151839Z
LAST-MODIFIED:20241114T174206Z
UID:21369-1717156800-1717160400@www.obi.is
SUMMARY:Réttindi eldra fólks: Mannréttindastofnun Háskóla Íslands
DESCRIPTION:HlustaÞriðja hádegismálþing Mannréttindaskrifstofu Íslands á árinu verður haldið föstudaginn 31. maí klukkan 12:00-13:00 í Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Þetta málþing\, sem ber heitið „Réttindi eldra fólks“\, er haldið í samstarfi við Mannréttindastofnun Háskóla Íslands. Á málþinginu munu Sigrún Huld Þorgrímsdóttir\, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun\, og Brynhildur G. Flóvenz\, formaður stjórnar Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands\, flytja erindi um mikilvægi og áskoranir réttinda eldri borgara. Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastýra Mannréttindaskrifstofu Íslands mun stýra málþinginu og umræðum. \n Dagskrá\n\nSigrún Huld Þorgrímsdóttir\, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun\n\n„Mannréttindi veikra aldraðra “ \n\nBrynhildur G. Flóvenz\, formaður stjórnar Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands\n\n„Persónufrelsi og sjálfsákvörðunarréttur eldra fólks“ \n\nUmræður og spurningar úr sal\n\n Málþingið er opið öllum og við hvetjum alla áhugasama um réttindi og velferð eldri borgara til að mæta – unga sem aldna! Aðgengi að Fyrirlestrasalnum er gott og viðburðurinn verður tekinn upp og síðar gerður aðgengilegur á vefsíðu og facebooksíðu Mannréttindaskrifstofunnar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/rettindi-eldra-folks-mannrettindastofnun-haskola-islands/
LOCATION:Þjóðminjasafnið
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240525T120000
DTEND;TZID=UTC:20240525T180000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240522T130120Z
LAST-MODIFIED:20240522T130120Z
UID:21120-1716638400-1716660000@www.obi.is
SUMMARY:Kynjaþing 2024
DESCRIPTION:HlustaKynjaþing er er nú haldið í sjötta sinn. Þingið er lýðræðislegur og feminískur vettvangur sem Kvenréttindafélag Íslands skapar fyrir almenning\, félagasamtök og hópa sem vinna að jafnréttismálum í víðum skilningi. Dagskrá þingsins er skipulögð af þátttakendum þingsins þar sem markmiðið er að auka samræður milli okkar sem er annt um jafnrétti í heiminum og gefa almenningi tækifæri til að kynnast því helsta sem er að gerast í femíniskri umræðu. \nDagskrá:\n12.00 Kvenforseti – pallborð frambjóðenda\n13.00 Hvernig kona má ég vera?\n14.00 Tvöföld jaðarsetning – staða mæðra fatlaðra\nbarna\n15.00 Staða kvenréttinda og jafnréttis á hernumdu\nsvæðunum í Palestínu\n16.00 Pallborð stjórnmálakvenna\n13.00 Hænan og eggið – samspil jafnréttis og\nkynbundins ofbeldis\n14.00 BRSB\n15.00 ÖBÍ\n13.00 Veruleiki unglinga og kynjafræði sem skyldufag\n14.00 Verkalýðshreyfingin sameinuð gegn\nkynferðislegri áreitni\n15.00 Listin og baráttan gegn ofbeldi \nAð dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar \nAllar nánari upplýsingar er að finna á\nwww.kvenrettindafelag.is/kynjathing-25-mai-2024/
URL:https://www.obi.is/vidburdir/kynjathing-2024/
LOCATION:Fjölbrautarskólinn við Ármúla\, Ármúla 12\, Reykjavík\, 105\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240523T170000
DTEND;TZID=UTC:20240523T170000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240513T090516Z
LAST-MODIFIED:20240513T090516Z
UID:20816-1716483600-1716483600@www.obi.is
SUMMARY:Aðalfundur Tourette-samtakanna
DESCRIPTION:HlustaAðalfundur Tourette-samtakanna á Íslandi verður haldinn fimmtudaginn 23. maí klukkan 17:00 í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42 í Reykjavík\, þar sem Tourette-samtökin eru með skrifstofu. \nDagskrá aðalfundar er: \n\nSetning\nSkýrsla stjórnar\nReikningar lagðir fram til samþykktar\nFélagsgjald komandi almanaksárs ákveðið\nKosning stjórnar\nKosning skoðunarmanns og annars til vara\nÖnnur mál\n\nÍ ár er kosið um tvö sæti í stjórn samtakanna\, en formaður var sérstaklega kjörinn til tveggja ára á fundinum í fyrra. Hægt er að gefa kost á sér í stjórn á fundinum. \nEngar tillögur að lagabreytingum hafa borist og því eru þær ekki sérstaklega á dagskrá enda þurfa þær að berast 3 vikum fyrir aðalfund. \nBoðið verður upp á léttar veitingar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/adalfundur-tourette-samtakanna/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240502T160000
DTEND;TZID=UTC:20240503T160000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240320T125406Z
LAST-MODIFIED:20240320T125511Z
UID:18145-1714665600-1714752000@www.obi.is
SUMMARY:Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski: Mætum ólíkum þörfum frá bernsku til fullorðinsára [RGR]
DESCRIPTION:HlustaHin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi 2. og 3. maí 2024. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski – Mætum ólíkum þörfum frá bernsku til fullorðinsára. \nÁ ráðstefnunni verður lögð áhersla á mikilvægi þess að huga að ólíkum þörfum hvað kynheilbrigði varðar til að mæta betur börnum með fjölbreyttan taugaþroska\, allt frá fyrstu aldursárum yfir á fullorðinsaldur. Sjónum verður beint að stöðu og þjónustu í þessum málaflokki sem og kennslu og fræðslu um kynheilbrigði fyrir börn og ungmenni sem læra eftir óhefðbundnum leiðum og þurfa aðlögun í kennslu um kynheilbrigði. \nSjá nánar: Vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar 2024 (rgr.is)
URL:https://www.obi.is/vidburdir/kynheilbrigdi-og-fjolbreyttur-taugathroski-maetum-olikum-thorfum-fra-bernsku-til-fullordinsara-rgr/
LOCATION:Hilton Reykjavík Nordica\, Suðurlandsbraut 2\, Reykjavík\, 108\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ORGANIZER;CN="R%C3%A1%C3%B0gjafar- og greiningarst%C3%B6%C3%B0":MAILTO:rgr@rgr.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240423T200000
DTEND;TZID=UTC:20240423T220000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240320T123250Z
LAST-MODIFIED:20241112T173319Z
UID:18136-1713902400-1713909600@www.obi.is
SUMMARY:Geðheilsa á Íslandi: Horft til framtíðar um öxl [Geðhjálp]
DESCRIPTION:HlustaHéðinn Unnsteinsson\, stefnumótunarsérfræðingur og fyrrverandi formaður Geðhjálpar heldur erindið Geðheilsa á Íslandi: Horft til framtíðar um öxl\, þriðjudaginn 23. apríl 2024 klukkan 20:00 í sal Hlutaverkaseturs í Borgartúni 1\, 105 Reykjavík. \nBeint streymi á Facebook síðu Geðhjálpar \nBoðið verður upp á kaffi og spjall að fyrirlestrunum loknum.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/gedhjalp-gedheilsa-a-islandi/
LOCATION:Hlutverkasetur\, Borgartún 1\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Aðildarfélög
ORGANIZER;CN="Ge%C3%B0hj%C3%A1lp":MAILTO:gedhjalp@gedhjalp.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240423T100000
DTEND;TZID=UTC:20240423T110000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240320T093330Z
LAST-MODIFIED:20240415T095421Z
UID:18119-1713866400-1713870000@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgnar - Hönnun og mannréttindi
DESCRIPTION:HlustaAnna María Bogadóttir\, arkitekt og menningarfræðingur\, fjallar um hönnun og mannréttindi þriðjudaginn 23. apríl í Mannréttindahúsinu klukkan 10. \nFyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð sem við köllum Mannréttindamorgna og bjóðum við öll velkomin í hús. \nAnna María er dósent í arkitektúr við Listaháskóla Íslands og stofnandi ÚRBANISTAN\, sem veitir ráðgjöf\, stundar rannsóknir\, setur upp sýningar og kemur að hugmyndafræði og úrslausnum fjölbreyttra verkefna á sviði arkitektúrs\, skipulags og varðveislu.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgnar-honnun-og-mannrettindi/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240419T130000
DTEND;TZID=UTC:20240419T160000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240415T113823Z
LAST-MODIFIED:20240415T113823Z
UID:19646-1713531600-1713542400@www.obi.is
SUMMARY:Ráðstefna Fjölmenntar: Nám fyrir öll - hvað er að frétta?
DESCRIPTION:HlustaRáðstefna  Fjölmenntar um menntunartækifæri fatlaðs fólks verður haldin föstudaginn 19. apríl 2024 kl. 13:00- til 16:00 á Hótel Natura\, Nauthólsvegi 52. \nTáknmálstúlkur og rittúlkur túlka ráðstefnuna. Sjá dagskrá og nánari upplýsingar á Nám fyrir öll – hvað er að frétta? Ráðstefna (fjolmennt.is)
URL:https://www.obi.is/vidburdir/radstefna-fjolmenntar-nam-fyrir-oll-hvad-er-ad-fretta/
LOCATION:Icelandair Hótel Reykjavík Natura\, Nauthólsvegur 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240413T080000
DTEND;TZID=UTC:20240514T170000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240402T085729Z
LAST-MODIFIED:20240402T085741Z
UID:18575-1712995200-1715706000@www.obi.is
SUMMARY:Listasýning Einhverfusamtakanna
DESCRIPTION:HlustaÍ aprílmánuði munu Einhverfusamtökin standa fyrir listsýningu í Hamrinum – ungmennahúsi í Hafnarfirði\, helgina 13.-14. apríl. Þar mun einhverft listafólk sýna verk sín og flytja tónlist\, ljóð o.fl. Þetta er þriðja árið í röð sem við stöndum fyrir slíkri sýningu og hefur mikil ánægja verið með framtakið. Um 300 manns mættu á sýninguna í fyrra. \nBókin „Öðruvísi\, ekki síðri“ eftir Chloé Hayden kemur út í íslenskri þýðingu um mánaðarmótin og munum við kynna bókina í Hamrinum helgina 13.-14. apríl. Chloé lýsir bókinni sinni sem því sem hún\, þá 13 ára gömul\, hefði þurft að fá í hendurnar til að skilja líf sitt og hvað það þýðir að vera einhverf. Er það almennt mat einhverfra sem lesa bókina að þessi lýsing standi undir nafni. Bókin er skýr og skorinorð\, skemmtilega skrifuð\, og síðast en ekki síst gríðarlega góð handbók um flest ef ekki allt sem snýr að einhverfu. Forlagið gefur bókina út en Einhverfusamtökin og Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kosta þýðinguna.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/listasyning-einhverfusamtakanna/
LOCATION:Hamarinn
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240321T090000
DTEND;TZID=UTC:20240321T090000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240312T083543Z
LAST-MODIFIED:20240312T083543Z
UID:17618-1711011600-1711011600@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgnar - Myndlist og mannréttindi
DESCRIPTION:HlustaÆsa Sigurjónsdóttir listfræðingur fjallar um myndlist og mannréttindi fimmtudaginn 21. mars í Mannréttindahúsinu klukkan 9. \nFyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð sem við köllum Mannréttindamorgna og bjóðum við öll velkomin í hús. \nÆsa er dósent við Háskóla Íslands og vann meðal annars til Fjöruverðlaunanna fyrir bókina Til gagns og fegurðar árið 2009. Þá er hún formaður stjórnar listasafns Háskóla Íslands.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgnar-myndlist-og-mannrettindi/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240313T170000
DTEND;TZID=UTC:20240313T170000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240307T131910Z
LAST-MODIFIED:20240307T132008Z
UID:17336-1710349200-1710349200@www.obi.is
SUMMARY:Kynning á SUM og umhverfisveikindum
DESCRIPTION:HlustaAðalfundur SUM verður haldinn miðvikudaginn 13. mars kl. 17.00 í húsakynnum ÖBÍ Sigtúni 42\, 105 Reykjavík.\n\n\nFyrir aðalfund\, nánar tiltekið milli kl. 16.00 og 17.00 munu Harpa Fönn og Sylgja Sigurjónsdætur ásamt Teklu Hrund Karlsdóttur vera með kynningu á SUM og umhverfisveikindum og þeim skerðingum sem þeim fylgja\, en SUM varð á síðasta ári eitt fjörutíu aðildarfélaga ÖBÍ. Kynningarfundurinn er opinn öllum og flott tækifæri til að kynna sér nýjasta aðildarfélag ÖBÍ.\n\n\nErindin verða 3 talsins:\n1. Sylgja Dögg\, lýðheilsufræðingur og sérfræðingur í hinu byggða umhverfi og áhrifum þess á innivist\n2. Tekla Hrund Karlsdóttir\, læknir\, mun fjalla um umhverfisveikindi (EI\, MCS) og veikindi vegna raka og myglu (mold disease)\n3. Harpa Fönn Sigurjónsdóttir\, forkona SUM\, mun segja frá og kynna SUM (Samtök um áhrif umhverfis á heilsu)\, en aðilar í SUM eru nú 203 talsins\, og samtökin voru stofnuð árið 2015
URL:https://www.obi.is/vidburdir/kynning-a-sum-og-umhverfisveikindum/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240313T090000
DTEND;TZID=UTC:20240313T103000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240307T103013Z
LAST-MODIFIED:20240307T103148Z
UID:17317-1710320400-1710325800@www.obi.is
SUMMARY:EAPN á Íslandi: Fátækt á Fróni [morgunverðarfundur]
DESCRIPTION:HlustaEAPN á Íslandi\, samtök gegn fátækt\, standa fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 13. mars kl. 9 – 10:30 í Grófinni\, Borgarbókasafninu\, Tryggvagötu 15. \nDagskrá\n» Þorbera Fjölnisdóttir\, formaður EAPN á Íslandi\, býður fólk velkomið. \n» Halldór Sigurður Guðmundsson dósent í félagsráðgjöf við HÍ og Kolbeinn Stefánsson dósent í félagsfræði við HÍ kynna niðurstöður rannsóknar sem þeir unnu fyrir forsætisráðuneytið um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað. Auk þess segja þeir frá þeirri vinnu sem framundan er í ráðuneytinu í kjölfar niðurstaðna rannsóknarinnar. \n» Hildur Oddsdóttir\, stofnandi Hjálparkokka\, segir frá hvaða áhrif það hefur á líf fólks og barna þeirra að búa við langvarandi fátækt og kynnir starf Hjálparkokka\, samtaka sem m.a. aðstoða foreldra í fátækt við að gefa börnum sínum jólagjafir. \n» Pallborð og umræður. \nBoðið verður upp á veitingar. \n\nÖBÍ er eitt aðildarfélaga EAPN á Íslandi.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/morgunverdarfundur-eapn-a-islandi-fataekt-a-froni/
LOCATION:Borgarbókasafnið – Grófinni\, Tryggvagata15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240306T080000
DTEND;TZID=UTC:20240314T170000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240306T185303Z
LAST-MODIFIED:20240306T185721Z
UID:17290-1709712000-1710435600@www.obi.is
SUMMARY:Skatturinn: Vantar þig aðstoð við skattframtalið?
DESCRIPTION:HlustaSkatturinn veitir aðstoð við framtalsgerð einstaklinga í síma 442-1414 en einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið framtal@skatturinn.is \nFramtalsfrestur einstaklinga árið 2024 er frá 1. mars til 14. mars. \nAthugið að þjónustufulltrúar Skattsins veita ekki í afgreiðslum. \nLeiðbeiningar á PDF vegna skattframtals einstaklinga 2024
URL:https://www.obi.is/vidburdir/vantar-thig-adstod-vid-skattframtalid/
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240213T163000
DTEND;TZID=UTC:20240213T173000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240119T101520Z
LAST-MODIFIED:20240119T101520Z
UID:15976-1707841800-1707845400@www.obi.is
SUMMARY:Fræðslufundur febrúar - Alzheimersamtökin
DESCRIPTION:HlustaFyrirlesari er dr. Sigrún Sigurðardóttir\, hjúkrunarfræðingur\, prófessor við Háskólann á Akureyri er með fyrirlestur um áfall vegna tilkomu heilabilunargreiningar; áskorun fyrir einstaklinginn og aðstandendur. Að greinast með langvinnan og lífsógnandi sjúkdóm getur valdið áfalli og sorg í kjölfarið. Áfallið getur þó komið fyrr\, eða þegar einstaklingar áttar sig á því að um langvinnan sjúkdóm geti verið að ræða og fara í gegnum aðdraganda að greiningarferli og í greiningu. Alvarlegar afleiðingar geta komið fram í kjölfar slíkra áfalla\, fljótlega eftir eða mörgum árum seinna. Stundum átta aðstandendur sig ekki á alvarleika og algengi slíkra áfalla og afleiðinga. Mikilvægt er að átta sig á því hvað hægt er að gera til að vinna með slík áföll og vinna með sorgina. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin. Fyrirlestur verður á staðnum og einnig í beinu streymi á www.alzheimer.is. Upptökur verða aðgengilegar eftir fundinn. Vertu með\, þín þátttaka skiptir máli! Hlekkur á beint streymi er að finna hér.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fraedslufundur-februar-alzheimersamtokin/
LOCATION:Lífsgæðasetur St. Jósepsspítala\, Suðurgata 41\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240203T090000
DTEND;TZID=UTC:20240203T160000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240119T101343Z
LAST-MODIFIED:20240119T101343Z
UID:15974-1706950800-1706976000@www.obi.is
SUMMARY:Aðstandendanámskeið 6-12 barna með ADHD Vor 2024
DESCRIPTION:HlustaFræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6-12 ára aldri verður haldið 3. febrúar 2024 í húsakynnum ADHD samtakanna\, Háaleitisbraut 13\, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað. \nNámskeið er haldið einn laugardag i senn frá kl. 09:00-16:00. Ath! Boðið er uppá veitingar í hádeginu\, ásamt kaffi og með því. \nÁ námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD\, mömmur\, pabba\, fósturforeldra\, stjúpforeldra\, ömmur\, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt. \nBoðið verður upp á fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. \nSkipulag og dagskrá 3. febrúar 2024 \nKl. 09:00 – 10:00         Hvað er ADHD?             Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur \nKl. 10:00 – 11:00          ADHD og lyfjamál         Tilkynnt síðar \nKl. 11:00 – 11:15            Hlé \nKl. 11:15 – 12:15            ADHD og nám               Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur \nKl. 12:15 – 13:00           Hádegishlé \nKl. 13.00 – 14.00          ADHD og kvíði              Kristín R. Sigurðardóttir sálfræðingur \nKl. 14:00 – 15:00         ADHD og fjölskyldan    Dr. Drífa B. Guðmundsdóttir sálfræðingur \nKl. 15:00 – 15:15 Hlé \nKL. 15:15 – 16:00         Kynning á Sjónarhól     Lára G. Magnúsdóttir þroskaþjálfi \nFélagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu\, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd
URL:https://www.obi.is/vidburdir/adstandendanamskeid-6-12-barna-med-adhd-vor-2024/
LOCATION:Háaleitisbraut 13\, Háaleitisbraut 13\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240117T200000
DTEND;TZID=UTC:20240117T200000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240115T131747Z
LAST-MODIFIED:20240115T131747Z
UID:15941-1705521600-1705521600@www.obi.is
SUMMARY:Eru umhverfismál heilbrigðismál? - Málþing á Læknadögum
DESCRIPTION:HlustaViltu fræðast um orkuna innra með þér og velta fyrir þér áhrifum umhverfisins á hana og heilsuna? Frábært tækifæri gefst til þess á málþingi sem er opið öllum áhugasömum á Læknadögum í Hörpu miðvikudaginn 17. janúar. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands mætir og leggur orð í belg. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra flytur ávarp.\n\nLæknarnir Kristín Sigurðardóttir\, Una Emilsdóttir og Tekla Hrund Karlsdóttir ræða svo um tengsl\, náttúru\, heilsu\, umhverfið og orkuna sem við öll búum yfir. Henry Alexander Henrysson heimspekingur stýrir þessu opna málþingi Læknadaga. Ógleymanleg stund\, fræðandi\, skemmtileg og öll velkomin.\n\nHvar: Silfurbergi B\, Hörpu\nHvenær: Miðvikudaginn 17. janúar kl. 20\nNánar: Umhverfismál eru heilbrigðismál?\nUmhverfis- og orkumál\, grunnur að góðri heilsu\nOpið málþing fyrir almenning\nFundarstjóri: Henry Alexander Henrysson\, heimspekingur\nOpnun: Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson\nÁvarp: Umhverfisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson\nTengsl\, náttúra og heilsa: Kristín Sigurðardóttir\, slysa- og bráðalæknir\nÍsland – best í heimi? Una Emilsdóttir\, sérnámslæknir í umhverfislækningum\nÍ hvað fer þín orka: Tekla Hrund Karlsdóttir\, lífsstílslæknir
URL:https://www.obi.is/vidburdir/eru-umhverfismal-heilbrigdismal-malthing-a-laeknadogum/
LOCATION:Harpa\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240116T160000
DTEND;TZID=UTC:20240116T170000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20240112T123344Z
LAST-MODIFIED:20240112T123344Z
UID:15929-1705420800-1705424400@www.obi.is
SUMMARY:Alzheimersamtökin: Fræðsla fyrir nýgreinda og aðstandendur þeirra
DESCRIPTION:HlustaVið greiningu á heilabilun vakna eðlilega margar spurningar og afar mikilvægt er að fá svör við þeim svo að þú og fjölskyldan þín geti verið sem best í stakk búin til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru.  \nÁ þessum fræðslufundi verður m.a fjallað um hvað heilabilun er\, lífið með heilabilun og ýmis hagnýt ráð ásamt því að starfsemi og markmið Seiglunnar\, þjónustumiðstöðvar Alzheimersamtakanna er kynnt. \nSigurbjörg Hannesdóttir\, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna og Harpa Björgvinsdóttir\, verkefnastjóri Seiglunnar sjá um fræðsluna og verður boðið upp á að spyrja spurninga og umræður að lokinni fræðslu. \nFræðslan fer fram þriðjudaginn\, 16 janúar næstkomandi í Seiglunni klukkan 16:00 til 17:00\, Lífsgæðasetri St. Jósefsspítala Suðurgötu 41\, 3ja hæð\, 220 Hafnarfirði. \nSjá nánar: Fræðsla fyrir nýgreinda og aðstandendur þeirra (alzheimer.is)
URL:https://www.obi.is/vidburdir/alzheimersamtokin-fraedsla-fyrir-nygreinda-og-adstandendur-theirra/
LOCATION:Lífsgæðasetur St. Jósepsspítala\, Suðurgata 41\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240111T100000
DTEND;TZID=UTC:20240111T130000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20231221T111655Z
LAST-MODIFIED:20231221T111805Z
UID:15855-1704967200-1704978000@www.obi.is
SUMMARY:Áfram stelpur! Fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna
DESCRIPTION:HlustaMarkmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu\, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu. \nNámskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna\, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi\, hvort sem er í námi\, starfi\, heimilislífi\, félagslegum samskiptum eða uppeldi. \nNámskeiðið stendur í 9 klukkustundir – þrjú skipti\, 3 klukkustundir í senn fimmtudagana 11. – 18. og 25. janúar kl:10.00-13:00. Námskeiðið verður í húsnæði Lífsgæðasetursins í St. Jósefsspítala. Leiðbeinandi er Sigrún Jónsdóttir\, ADHD og einhverfu markþjálfi. \nSjá nánar: Námskeið | ADHD samtökin \n  \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/afram-stelpur-fraedslu-og-sjalfsstyrkingarnamskeid-adhd-samtakanna/
LOCATION:Lífsgæðasetur St. Jósepsspítala\, Suðurgata 41\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240110T133000
DTEND;TZID=UTC:20240110T160000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20231221T112611Z
LAST-MODIFIED:20231221T112611Z
UID:15858-1704893400-1704902400@www.obi.is
SUMMARY:Taktu stjórnina! Námskeið ADHD samtakanna
DESCRIPTION:HlustaNámskeiðið verður haldið á miðvikudögum 10.\, 17.\, 24. og 31. janúar 2024\, frá kl. 13:30 – 16:00 alla dagana. \nMarkmið námskeiðsins er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt\, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum\, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum\, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur\, huganlega betra og ánægðara foreldri\, maki\, starfsmaður og borgari. \nNámskeiðið verður að haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13\, 4. hæð. \nLeiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir\, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir\, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi. \nFjöldi þátttakenda er takmarkaður – fyrstur kemur\, fyrstur fær! Skráning og nánari upplýsingar: Námskeið | ADHD samtökin
URL:https://www.obi.is/vidburdir/taktu-stjornina-namskeid-adhd-samtakanna/
LOCATION:Háaleitisbraut 13\, Háaleitisbraut 13\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240106T110000
DTEND;TZID=UTC:20240106T130000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20231221T110844Z
LAST-MODIFIED:20231221T140551Z
UID:15853-1704538800-1704546000@www.obi.is
SUMMARY:Blindrafélagið: Hvaðan kemur tónlistin?
DESCRIPTION:HlustaViðburður á vegum Blindrafélagsins laugardinn\, 6. janúar næstkomandi kl. 11:00 til 13:00. Nánari upplýsingar: Blindrafélagið
URL:https://www.obi.is/vidburdir/hvadan-kemur-tonlistin/
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231206T190000
DTEND;TZID=UTC:20231206T190000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20231123T144819Z
LAST-MODIFIED:20231123T144819Z
UID:15578-1701889200-1701889200@www.obi.is
SUMMARY:Jólahátíðin okkar
DESCRIPTION:Hlusta\nMiðvikudaginn 6. desember fer fram Jólahátíðin okkar\, áður Jólahátíð fatlaðra\, á Hótel Hilton Nordica. Hátíðin hefur ekki verið haldin síðan 2019 en hún féll niður í covid. \n\n\nHúsið opnar kl. 19 og tónleikarnir klukkan 20. Hátíðinni lýkur kl. 21:30. Margir góðir gestir hafa boðað komu sína\, s.s. Herra Hnetusmjör\, Sigga Ózk\, Laddi\, Sigga Beinteins\, Bjarni Ara og Bjartmar Guðlaugsson. Frítt er inn á hátíðina og er allur aldur velkominn. \n\n\nVið hlökkum til að sjá ykkur.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jolahatidin-okkar/
LOCATION:Hilton Reykjavík Nordica\, Suðurlandsbraut 2\, Reykjavík\, 108\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2023/11/403723521_10232604240194534_3826851291837072443_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231107T170000
DTEND;TZID=UTC:20231107T170000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20231101T090707Z
LAST-MODIFIED:20231101T090707Z
UID:15193-1699376400-1699376400@www.obi.is
SUMMARY:Opinn fundur um það sem betur má fara í umönnun nýrnasjúklinga á Landspítala
DESCRIPTION:HlustaNýrnafélagið heldur opinn fund með verkefnisstjóra á skrifstofu forstjóra Landspítala um það sem betur má fara í umönnun nýrnasjúklinga á spítalanum. \nGestur fundarins er Margrét Manda Jónsdóttir verkefnisstjóri.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/opinn-fundur-um-thad-sem-betur-ma-fara-i-umonnun-nyrnasjuklinga-a-landspitala/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231101T200000
DTEND;TZID=UTC:20231101T220000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20231030T085708Z
LAST-MODIFIED:20231030T085708Z
UID:15124-1698868800-1698876000@www.obi.is
SUMMARY:Einhverfukaffi fyrir foreldra og aðstandendur
DESCRIPTION:HlustaEinhverfukaffi fyrir foreldra og aðstandendur:\n\nEinhverfusamtökin hafa gert breytingu á foreldrastarfinu. Í vetur förum við af stað með Einhverfukaffi fyrir foreldra og aðstandendur og verður starfið í umsjón einhverfs fólks.\n\nFundirnir eru hugsaðir sem óformleg fræðsla um einhverfu frá einhverfu fólki.\n\nFundirnir verða áfram mánaðarlega\, fyrsta miðvikudag í mánuði klukkan 20:00-22:00\, að Háaleitisbraut 13\, 108 Reykjavík\, í matsal á 1. hæð.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/einhverfukaffi-fyrir-foreldra-og-adstandendur/
LOCATION:Háaleitisbraut 13\, Háaleitisbraut 13\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231031T170000
DTEND;TZID=UTC:20231121T170000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20231030T085607Z
LAST-MODIFIED:20240619T171950Z
UID:15122-1698771600-1700586000@www.obi.is
SUMMARY:Taktu stjórnina - Fræðslunámskeið fyrir fullorðna [@ADHD samtökin]
DESCRIPTION:Hlusta31. október kl. 17:00-19:30 Háleitisbraut 13\, 4.hæð\n\n\n\nSkráning er hafin á hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna – Taktu stjórnina! sem verður haldið á þriðjudögum 31. október.\, 7.\, 14.\, og 21. nóvember (sjá nánar töflu hér fyrir neðan) Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir – fjögur skipti\, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 17:00 – 19:30 alla dagana.\nFjöldi þátttakenda er takmarkaður – fyrstur kemur\, fyrstur fær!\n\nÁ námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti: \n\nSkilningur á ADHD og ólík einkenni\nAlgengir fylgikvillar\nAð sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði\nMarkmiðasetning\nFélagsleg samskipti almennt\nVinna og nám\nFjármálastjórn\nHeimilið\nForeldrahlutverkið og samskipti við maka\nHeilbrigt líferni\n\nMarkmið námskeiðsins: \n\nMarkmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt\, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum\, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum\, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur\, huganlega betra og ánægðara foreldri\, maki\, starfsmaður og borgari.\n\nNámskeiðið verður að haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13\, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir\, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir\, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi. \nSkipulag: \n\n\n\n\n1. tími\n31. október\nþriðjudagur\nkl. 17:00 – 19:30\n\n\n2. tími\n7. nóvember\nþriðjudagur\nkl. 17:00 – 19:30\n\n\n3. tími\n14. nóvember\nþriðjudagur\nkl. 17:00 – 19:30\n\n\n4. tími\n21. nóvember\nþriðjudagur\nkl. 17:00 – 19:30\n\n\n\n\nNámskeiðsverð: \n39.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna \n44.000 kr fyrir aðra\n \nInnifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman\, „Leyndardómar heilans – Láttu verkin tala“ sem kostar 5.900 kr. ein og sér. \nFélagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu. Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin\, 581 1110 eða adhd@adhd.is
URL:https://www.obi.is/vidburdir/taktu-stjornina-fraedslunamskeid-fyrir-fullordna-adhd-samtokin/
LOCATION:Háaleitisbraut 13\, Háaleitisbraut 13\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231026
DTEND;VALUE=DATE:20231028
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20230922T122555Z
LAST-MODIFIED:20230922T122555Z
UID:14542-1698278400-1698451199@www.obi.is
SUMMARY:Alþjóðleg afmælisráðstefna ADHD samtakanna á Grand hótel
DESCRIPTION:HlustaAlþjóðleg afmælisráðstefna ADHD samtakanna á Grand hótel\nADHD samtökin í samstarfi við ADHD Europe standa fyrir tveggja daga alþjóðlegri afmælisráðstefnu um ADHD sem nefnist „Betra líf með ADHD“ . Ráðstefnan fram fer á Grand Hótel Reykjavík dagana 26. og 27. október 2023. \nMarkmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á áskorunum sem einstaklingar með ADHD glíma við ásamt því að kynna ýmsar lausnir til að takast á við afleiðingar hennar. Kunnir erlendir og íslenskir fyrirlesarar halda erindi og umfjöllunarefnin snerta málefni barna\, ungmenna og fullorðinna einstaklinga. Meðal fyrirlesara eru Ari Tuckman\, sálfræðingur og kynlífsráðgjafi\, Kathleen Nadeau\, sálfræðingur\, Saaskia van der Oord\, prófessor í sálfræði\, Amori Yee Mikami\, prófessor í sálfræði\, Lachenmeier\, geðlæknir og Dr. Sandra Koji\, geðlæknir. Jafnframt verða kynntar til sögunnar nýjar íslenskar rannsóknir um ADHD. Ráðstefnan gagnast bæði fullorðnum\, kennurum og öðru fagfólki. \nVeitingar í boði. \nRauntímatúlkun frá ensku yfir á íslensku og öfugt. \nBoðið verður upp á streymi fyrir þátttakendur sem ekki eiga heimangengt. \nAlmennt verð: 24.900-\nFélagsmenn 19.900.- \nDagskrá má finna hér.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/althjodleg-afmaelisradstefna-adhd-samtakanna-a-grand-hotel/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231024T200000
DTEND;TZID=UTC:20231024T200000
DTSTAMP:20260420T212826
CREATED:20231003T100420Z
LAST-MODIFIED:20241112T174231Z
UID:14667-1698177600-1698177600@www.obi.is
SUMMARY:Rafrænn fyrirlestur: Eldri börn með málþroskaröskun DLD
DESCRIPTION:HlustaÍ tilefni DLD dagsins sem verður 20. október í ár ætlar Linda Björk Markúsardóttir að halda rafrænan fyrirlestur undir yfirheitinu: Eldri börn og unglingar með málþroskaröskun DLD: Úrræði og hugmyndir fyrir aðstandendur. \nFyrirlesturinn verður á netinu þann 24. október klukkan 20:00 en við hvetjum félagsmenn og aðra til þess að hlusta á fyrirlesturinn. Lítið efni er til um eldri börn og unglinga með málþroskaröskun DLD en félaginu hefur að undanförnu borist margar beiðnir um að halda erindi um þennan aldur. \nHlekkur á fyrirlesturinn: https://us06web.zoom.us/j/88679808868?pwd=u36s3kz7f3ONhAlIue5aWQnHpPMr1T.1 \nLinda Björk hefur starfað í rúm 10 ár sem talmeinafræðingur en hún starfar bæði á Talsetrinu og á Grensásdeild Landspítalans. Linda hefur starfað við ýmis sérsvið innan talmeinafræðinnar\, s.s. með rödd\, raddir transfólks\, raddvernd\, málstol og unglingum með málþroskaröskun DLD.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/rafraenn-fyrirlestur-eldri-born-med-malthroskaroskun-dld/
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
END:VCALENDAR