BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260305T100000
DTEND;TZID=UTC:20260305T110000
DTSTAMP:20260504T111131
CREATED:20260218T140039Z
LAST-MODIFIED:20260303T145219Z
UID:43289-1772704800-1772708400@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgunn: Raddir sem rekast á veggi – hindranir í kerfinu og leiðir til úrbóta
DESCRIPTION:HlustaÖBÍ réttindasamtök\, Endósamtökin\, feminíska fötlunarhreyfingin Tabú og Tilvera standa fyrir viðburði þar sem sjónum er beint að hindrunum og brotalömum í kerfinu\, en aðallega að því hvernig megi ryðja þeim úr vegi. \nEndósamtökin sýna myndband sem þau framleiddu um reynslu kvenna af brotalömum í heilbrigðiskerfinu. Tabú býður velkomna Eliona Gjecaj\, sem vinnur við rannsóknir á fötluðum konum og ofbeldi\, en nýjasta grein hennar fjallar um reynslu kvenna með fötlun á Íslandi og skort á tilkynningum af þeirra hálfu en Sigríður Auðunsdóttir frá Tilveru verður einnig með erindi. \nÍ kjölfar erindanna taka við pallborðsumræður þar sem sérfræðingar og reynsluraddir ræða lausnir\, ábyrgð og næstu skref. Markmiðið er að varpa ljósi á kerfislægar hindranir\, skapa samtal og ýta undir raunverulegar umbætur. Viðburðurinn er upphitun fyrir 8. mars\, sem er alþjóðadagur kvenna. \nHluti viðburðarins fer fam á ensku en verður rittúlkaður. \n  \n  \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgunn-upphitun-fyrir-8-mars-althjodadag-kvenna/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/02/Opinn-mic.png
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260311T160000
DTEND;TZID=UTC:20260311T180000
DTSTAMP:20260504T111131
CREATED:20260223T091811Z
LAST-MODIFIED:20260309T151924Z
UID:43346-1773244800-1773252000@www.obi.is
SUMMARY:Fræðsluröð ÖBÍ - Gervigreind í starfi félagasamtaka
DESCRIPTION:HlustaÖBÍ réttindasamtök standa fyrir námskeiðinu Gervigreind í starfi félagasamtaka sem er hagnýtt og aðgengilegt námskeið fyrir þau sem vilja nýta sér nýjustu tækni til að efla starfsemi sína. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig gervigreind getur einfaldað vinnuferla\, sparað tíma og aukið gæði í samskiptum\, kynningu og skipulagi verkefna. Sérstök áhersla er lögð á raunhæf dæmi sem tengjast daglegu starfi félagasamtaka og hvernig hægt er að beita verkfærunum strax að loknu námskeiði. \nLeiðbeinandi er Stefán Atli Rúnarsson viðskiptafræðingur sem býr yfir mikilli þekkingu á gervigreind sem hefur haldið fjölmörg námskeið fyrir fyrirtæki og félagasamtök um hagnýta notkun gervigreindartækni. Hann leggur áherslu á skýrar útskýringar\, lifandi framsetningu og að þátttakendur öðlist sjálfstraust í notkun verkfæranna. \nNámskeiðið skiptist í sjö meginkafla. Fyrst er farið yfir grunnatriði gervigreindar og hvernig tæknin virkar. Því næst er skoðað hvernig má nýta gervigreind til gagnaúrvinnslu og greiningar til að styðja við ákvarðanatöku. Þá er fjallað um skapandi skrif með gervigreind\, svo sem gerð fréttabréfa\, styrkumsókna og efnis fyrir samfélagsmiðla. Einnig er kynnt hvernig hægt er að skapa myndir með gervigreind fyrir kynningar og markaðsefni\, ásamt lauslegri yfirferð um hvernig tæknin getur aðstoðað við forritun og sjálfvirknivæðingu einfaldra verkefna. Að lokum er komið inn á tónlistarsköpun með gervigreind og farið yfir siðferðileg álitamál\, tækifæri og áskoranir sem fylgja notkun tækninnar. \nMarkmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skýran skilning á möguleikum gervigreindar og geti nýtt hana á ábyrgan og markvissan hátt í þágu félagastarfs og í daglegu lífi. \nNauðsynlegt er að skrá sig hér og vinsamlegast takið fram ef óskað er eftir táknmáls- eða rittúlkun. \nNámskeiðið verður haldið í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42\, miðvikudaginn 11. mars kl. 16-18:00. \nÖBÍ ber allan kostnað af námskeiðshaldinu. \nVið hlökkum til að sjá ykkur!
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fraedslurod-obi-gerfigreind-i-starfi-felagasamtaka-2/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/02/Stefan-Atli-Runarsson-vidskiptafraedingur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260312T100000
DTEND;TZID=UTC:20260312T110000
DTSTAMP:20260504T111131
CREATED:20260203T130134Z
LAST-MODIFIED:20260218T140551Z
UID:42288-1773309600-1773313200@www.obi.is
SUMMARY:Morgunbollinn - Kynnumst Átaki
DESCRIPTION:HlustaHeitt á könnunni í Mannréttindahúsinu frá kl. 9:30 fyrirlestur hefst kl. 10:00. \nKomdu og kynnstu Átaki\, öflugu hagsmunafélagi fólks með þroskahömlun sem gekk nýverið í hóp aðildafélaga ÖBÍ á aðalfundi 2025. \nÁtak vinnur að því að efla sjálfstæði\, valdeflingu og raunverulegt vald fólks með þroskahömlun yfir eigin lífi. Félagið er einstakt á Íslandi – því er stýrt af fólki með þroskahömlun sjálfu\, fyrir fólk með þroskahömlun. \nÁ fundinum segja Jónína Rósa Hjartardóttir\, formaður Átaks\, og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir\, framkvæmdarstjóri\, frá starfi félagsins\, framtíðarsýn og því hvers vegna rödd fólks með þroskahömlun skiptir máli – nú meira en nokkru sinni fyrr.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/morgunbollinn-kynnumst-ataki/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/02/df6c0861-d2b3-4c6b-ba38-e3c613b17f04.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260319T100000
DTEND;TZID=UTC:20260319T110000
DTSTAMP:20260504T111131
CREATED:20260302T162732Z
LAST-MODIFIED:20260318T112140Z
UID:43819-1773914400-1773918000@www.obi.is
SUMMARY:Morgunbollinn - Hvað gerist þegar við spyrjum gervigreind?
DESCRIPTION:HlustaHvað gerist þegar við spyrjum gervigreind?\nFyrirlestur fimmtundaginn\, 19. mars kl. 10:00 í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42. Heitt á könnunni frá kl. 9:30. \nNú þegar sífellt fleiri eru að prófa sig áfram með að nota gervigreind í námi\, starfi og einkalífi er afar gagnlegt að skilja aðeins betur hvernig hún virkar á bak við tjöldin. Farið yfir hvernig gervigreindinni tekst að svara nánast hvaða spurningu sem er\, og af hverju hún svarar stundum með algjöru bulli. Tekin verða dæmi um gagnleg not fyrir gervigreind\, svo sem við vinnu með texta og tal\, en líka fjallað um hvað skuli varast. Með því að skilja betur hvernig „svarti kassinn“ virkar öðlumst við aukið sjálfstæði og getum betur metið hvenær og hvernig við notum þessa nýju tækni. \nFyrirlesari er Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir er sérfræðingur í máltækni og gervigreind hjá máltæknifyrirtækinu Miðeind \nÖll velkomin.  \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/morgunbollinn-get-eg-notad-gervigreind-i-hvad-sem-er/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/03/1-Svanhvit-Lilja-Ingolfsdottir.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR