BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÖBI
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260122T093000
DTEND;TZID=UTC:20260122T110000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20260121T114814Z
LAST-MODIFIED:20260121T115027Z
UID:41527-1769074200-1769079600@www.obi.is
SUMMARY:Morgunbollinn fræðsla: Hreyfing þegar þú hefur lítinn tíma.
DESCRIPTION:HlustaHeitt á könnunni og léttar veitingar frá 9:30 fræðslan hefst kl. 10:00. \n  \nHreyfing þegar þú hefur lítinn tíma – fræðsluviðburður \nByrjum nýtt ár með krafti! Hvernig er hægt að koma hreyfingu inn í daglegt líf þegar tíminn er naumur? Á þessum fræðsluviðburði verður fjallað um einfaldar\, raunhæfar og árangursríkar leiðir til að auka hreyfingu án þess að það krefjist mikils tíma\, búnaðar eða undirbúnings. \n  \nViðburðurinn leggur áherslu á mikilvægi reglulegrar hreyfingar fyrir heilsu\, líðan og hamingju og sýnir hvernig smáar breytingar í daglegu lífi geta skilað miklum ávinningi. Farið verður yfir fjölbreyttar hugmyndir að hreyfingu sem auðvelt er að flétta inn í vinnudag og heimilislíf\, svo sem stuttar styrktaræfingar\, virkar pásur\, daglega hreyfingu og einfaldar leiðir til að vera meira á ferðinni án þess að fórna tíma. \nJafnframt verður Lífshlaupið kynnt\, farið yfir hvernig það virkar og hvernig þátttaka getur orðið hvetjandi og skemmtileg leið til að auka hreyfingu\, bæði einstaklingslega og í hópi. \n  \nLeiðbeinendur: \nLinda Laufdal – verkefnastjóri Lífshlaupsins og sérfræðingur á Fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ. \nHansína Þóra Gunnarsdóttir – starfsmaður Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ\, með víðamikla reynslu af kennslu og þjálfun ýmissa íþróttagreina og hópa í um 30 ár.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/morgunbollinn-hreyfing-i-timathrong/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/39c2bab1-30ac-4b1d-b487-e41c38978f37-1092x614-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260121T160000
DTEND;TZID=UTC:20260121T190000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20251218T101322Z
LAST-MODIFIED:20260202T103500Z
UID:40837-1769011200-1769022000@www.obi.is
SUMMARY:Fræðsluröð ÖBÍ - Fjáröflun og markaðsmál almannaheillafélaga
DESCRIPTION:HlustaFyrsta námskeið vorsins í Fræðsluröð ÖBÍ; Fjáröflun og markaðsmál almannaheillafélaga.Á námskeiðinu verður fjallað um helstu áskoranir og tækifæri í fjáröflun og markaðsmálum almannaheillafélaga. Rýnt verður í hugmyndir og leiðir til að auka sýnileika\, rækta tengsl og sjálfbærni starfseminnar. Viðburðurinn hentar öllum sem koma að rekstri\, markaðs- eða fjáröflunarstarfi almannaheillafélaga. \nNámskeiðið verður haldið hér í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42\, 21. janúar kl. 16:00-19:00. \nKostnað af námskeiðahaldinu ber ÖBÍ. Boðið er upp á táknmáls- og rittúlkun. \nLeiðbeinendur: \nAndri Árnason – framkvæmdastjóri Takk sem hefur sérhæft sig í styrktarsamfélögum\, markaðsetningu og þjónustu við almannaheillafélög.\n\nKristín Jezorski – markaðsstjóri hjá Takk sem hefur unnið að mörgum stórum herferðum tengdum vitundarvakningu og fjáröflun fyrir almannaheillafélög.\n\nFlóki Guðmundsson – sérfræðingur í fjáröflun og viðskiptatengslum hjá Takk. Hann hefur stuðlað að vexti góðgerðarfélaga á Íslandi í yfir 10 ár og er vottaður sérfræðingur í verkefnastjórnun.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fjaroflun-og-markadsmal-almannaheillafelaga/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/Untitled-design-6.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260121T130000
DTEND;TZID=UTC:20260121T140000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20251211T155200Z
LAST-MODIFIED:20260113T160023Z
UID:40670-1769000400-1769004000@www.obi.is
SUMMARY:Samráðsfundur Mannréttindahússins
DESCRIPTION:HlustaFélagar úr Mannréttindahúsinu koma saman og ræða stefnu hússins og stöðu mála.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/samradsfundur-mannrettindahussins/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/01/Sigtun-Mottaka-Inngangur-inni-Agusta-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260115T093000
DTEND;TZID=UTC:20260115T110000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20251218T102903Z
LAST-MODIFIED:20251219T105645Z
UID:40842-1768469400-1768474800@www.obi.is
SUMMARY:Auðlesið mál & mannréttindi
DESCRIPTION:HlustaSnorri Rafn Hallsson verkefnastjóri segir frá Miðstöð um auðlesið mál.\nVið eigum öll rétt á upplýsingum á máli sem við skiljum. Aðeins þannig getum við notið réttinda okkar\, nýtt tækifæri og tekið þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Auðlesið mál er aðgengistæki sem ryður burt þeim hindrunum sem felast í tungumálinu.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/audlesid-mal-mannrettindi/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/audlesid.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260112T093000
DTEND;TZID=UTC:20260112T110000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20260130T140551Z
LAST-MODIFIED:20260202T103256Z
UID:41956-1768210200-1768215600@www.obi.is
SUMMARY:Morgunbollinn - Listvinnzlan um menningu og mannréttindi
DESCRIPTION:HlustaListvinnzlan er vinnustaður þar sem list\, mannréttindi og sköpunarkraftur mætast. \nKynning um Listvinnzluna sem er  framsækið menningar-\, mannréttinda- og nýsköpunarverkefni sem skapar raunveruleg atvinnutækifæri fyrir fatlað listafólk og tryggir aðgang að faglegu vinnuumhverfi\, stuðningi og virkri þátttöku í íslensku menningarlífi. \nÁ viðburðinum segja Margrét M. Norðdahl\, stofnandi Listvinnzlunnar\, Elín Sigríður María Ólafsdóttir (ESMÓ) og Þórir Gunnarsson (Listapúkinn) frá því hvernig Listvinnzlan hefur þróast í lifandi vinnustað og listmiðstöð í hjarta Reykjavíkur. Þau fjalla um hvers vegna slíkur vettvangur er nauðsynlegur\, hvernig hann sameinar list\, menningu\, velferð og mannréttindi — og hvernig Listvinnzlan er skýr framkvæmd inngildingar og valdeflingar í verki. \nGestir fá innsýn í daglegt starf Listvinnzlunnar og Listsmiðjunnar: hvernig listafólk vinnur þar á eigin forsendum\, fær faglegan stuðning\, þróar sjálfstæðan listferil\, skapar sér tekjur og verður virkur þátttakandi í menningarlífi landsins. Rætt verður um réttindavinnu\, nýsköpun og samfélagsleg áhrif — og hvers vegna aðgangur að vinnu\, list og sköpun skiptir sköpum fyrir samfélagið allt. \nÁ meðan viðburðinum stendur verða verk eftir listafólk Listsmiðjunnar sýnd á veggjum og fá gestir þannig tækifæri til að kynnast fjölbreyttum röddum og sjónarhornum listafólks Listvinnzlunnar. \nListvinnzlan hlaut Múrbrjót Þroskahjálpar árið 2023 og var tilnefnd til Hvatningarverðlauna ÖBÍ réttindasamtaka árið 2025 fyrir brautryðjendastarf á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fjölgun atvinnutækifæra. \nViðburðurinn er fyrir öll sem hafa áhuga á listum\, mannréttindum\, inngildingu\, nýsköpun og samfélagslegri breytingu — og vilja heyra hvernig hægt er að byggja vinnustað þar sem öll tilheyra.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/morgunbollinn-listvinnzlan-um-menningu-og-mannrettindi/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/untitled-109-of-125.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251211T093000
DTEND;TZID=UTC:20251211T110000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20251209T090427Z
LAST-MODIFIED:20251209T143454Z
UID:40568-1765445400-1765450800@www.obi.is
SUMMARY:Jólabollinn & bókajól
DESCRIPTION:HlustaVið birtum upp skammdegið með notalegri samverustund þar sem ilmandi kakó\, jólakaffi og brakandi piparkökur bíða okkar. Við slökum á við kertaljós og njótum upplestrar þriggja höfunda sem lesa upp úr nýjum bókum sínum. Hlý og hátíðleg stund sem gleður í desembermyrkrinu. \nFríða Ísberg les brot úr bók sinni Huldukonan\, Ólafur Haukur Símonarson les úr bók Janne Teller Ekkert sem hann þýddi yfir á íslensku & Ísak Hilmarsson les upp úr nýrri bók sinni Fæðingarsögur feðra. \nHuldukonan \nKonurnar í Lohr fjölskyldunni skilja ekki að Sigvaldi þeirra\, með alla sína augljósu mannkosti\, hafi aldrei gengið út. Ennfremur fá þær ekki skilið þá fráleitu ákvörðun hans að gerast einsetumaður í eyðivík. Dag einn birtist Sigvaldi á dyraþrepi móður sinnar með mánaðargamla stúlku í fanginu og neitar að svara því hver sé móðir barnsins. \nEkkert \nÞað rennur uppp fyrir Pierre Anthon að ekki taki því að gera neitt\, af því að ekkert hafi þýðingu þegar allt komi til alls. Hann kemur sér fyrir uppi í tré og ögrar þaðan bekkjarsystkinum sínum. Þau reyna að sannfæra hann um tilgang lífsins með aðferðum sem fara að lokum út í öfgar. Verlaunabók sem gefin hefur verið út á 36 tunumálum. \nFæðingarsögur feðra \nFæðingarsögur feðra inniheldur sögur frá feðrum af fæðingum barna þeirra. Sögurnar í bókinni eru nafnlausar og skrifaðar af feðrunum sjálfum. Þær veita góða innsýn í upplifun og sjónarhorn feðra af meðgöngu\, fæðingu og fyrstu augnablikunum í lífi barna þeirra. Sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og koma frá feðrum á mismunandi aldri. Þær segja frá flestum tegundum fæðinga\, frá keisaraskurðum\, fæðingum í heimahúsi\, á sjúkrahúsi\, í sjúkrabíl\, á fæðingarheimilum og einnig erlendis. Með bókinni vilja höfundar opna á umræðuna um upplifun feðra af fæðingum og vekja athygli á hlutverki þeirra og þátttöku í barneignarferlinu. Eins er von um að bókin hvetji til umræðu um upplifun fólks af fæðingum barna sinna\, hvort sem er við hitt foreldri barnsins eða á milli kynslóða. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jolabollinn-bokajol/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/jolakaffi.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251204T093000
DTEND;TZID=UTC:20251204T110000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20251128T133609Z
LAST-MODIFIED:20251128T133824Z
UID:40251-1764840600-1764846000@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindabíó - Sigur fyrir sjálfsmyndina
DESCRIPTION:HlustaMagnús Orri Arnarson er tilnefndur til Hvatningarverðlaunanna 2025\, fyrir einstakt framlag á sviði vitundarvakningar\, kvikmyndagerðar og íþrótta. Myndin verður sýnd og Magnús Orri\, höfundur myndarinnar verður á staðnum til að segja frá gerð myndarinnar. \nSigur fyrir sjálfsmyndina – Ný íslensk heimildarmynd um íslensku keppendurna á Special Olympics \nMyndin greinir frá þátttöku fimm íslenskra íþróttamanna á Heimsleikum Special Olympics á Ítalíu fyrr á þessu ári. \nMyndin veitir innsýn inn í undirbúning\, keppnina sjálfa og þá mannúð og virðingu sem einkennir starf Special Olympics samtakanna. \nHöfundur myndarinnar\, Magnús Orri Arnarsson\, keppti sjálfur á leikunum í abu Dhabi árið 2019 og hefur síðan helgað sig kvikmyndagerð. Þetta er fyrsta heimildarmynd Magnúsar Orra. \nMyndin gefur góða innsýn í starf Special Olympics samtakanna sem stofnuð voru af Eunice Kennedy Shriver árið 1968 og eru í dag með um 6 milljónir iðkenda um allan heim. Starfið byggir á gildum mannúðar\, virðingar og jafnra tækifæra. Forsvarsmaður samtakanna í dag er Timothy Kennedy Shriver og Kennedy fjölskyldan er enn virkur bakhjarl í starfi samtakanna. \nÍþróttasamband fatlaðra hefur verið umsjónaraðili starfs Special Olympics á Íslandi frá árinu 1989. Yfir 600 íslenskir keppendur frá aðildarfélögum ÍF hafa fengið tækifæri til þátttöku á vetrar og sumarheimsleikum Special Olympics í fjölmörgum greinum. Ný tækifæri hafa opnast með breyttri skilgreiningu en í  upphafi var miðað við iðkendur með þroskahömlun eða „intellectual disability“. Í dag er viðmið „learning disability“  Sífellt aukin áhersla er á „unified“ þar sem ófatlaðir og fatlaðir æfa og keppa saman í einstaklings og liðagreinum. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindabio-sigur-fyrir-sjalfsmyndina/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/instgram-story-mynd-maggi.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251113T093000
DTEND;TZID=UTC:20251113T093000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20251103T145127Z
LAST-MODIFIED:20251103T145127Z
UID:39565-1763026200-1763026200@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgunn – Mannréttindastofnun Íslands
DESCRIPTION:HlustaMaría Sigurðardóttir framkvæmdastjóri nýrrar Mannréttindastofnunar Íslands fjallar um nýja stofnun\, hlutverk hennar og mikilvægi í samfélaginu í Mannréttindahúsinu fimmtudaginn 13.  nóvember kl. 9:30. \nMargrét á að baki langan feril sem stjórnandi stofnana sem vinna að aukinni velferð borgaranna\, meðal annars gengdi hún starfi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu\, var Umboðsmaður barna og forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda\, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón og heyrnaskerðingu. Hún lauk embættisprófi í lögfræðingi frá Háskóla Íslands\, kennsluréttindanámi frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá University of the Highlands and Islands í Skotlandi með áherslu á mannréttindi. \nMannréttindastofnun Íslands er sjálfstæð stofnun sem tók til starfa þann 1. maí 2025 sl. og starfar á vegum Alþingis samkvæmt lögum nr. 88/2024. Meginhlutverk stofnunarinnar er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgunn-mannrettindastofnun-islands/
CATEGORIES:Aðildarfélög,Mannréttindahúsið
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251023T100000
DTEND;TZID=UTC:20251023T100000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20251020T174631Z
LAST-MODIFIED:20251022T142506Z
UID:39279-1761213600-1761213600@www.obi.is
SUMMARY:Réttindabarátta á tímamótum - Hvað getur þú gert?
DESCRIPTION:HlustaGríptu hljóðnemann (open mic) í Mannréttindahúsinu þegar við ræðum um stöðu jafnréttisbaráttunnar í tilefni af 50 ára afmæli kvennafrídagsins 1975. Hvert gæti þitt hlutverk orðið í baráttunni? \nMannréttindahúsið býður upp á opinn hljóðnema fimmtudaginn 23. október klukkan 10:00 í samstarfi við UN Women á Íslandi\, Landssamband ungmennafélaga\, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtök. Tilefnið er 50 ára afmæli kvennafrídagsins 1975\, þar sem íslenskar konur lögðu niður störf og kröfðust jafnréttis. \nMargt hefur áunnist í baráttunni á þessari hálfu öld sem síðan hefur liðið en annað er enn óunnið. Boðað hefur verið til kvennaverkfalls föstudaginn 24. október þar sem kröfur um aðgerðir eru meðal annars: \nUppræta kynbundið ofbeldi\n40% kvenna hér á landi hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi. \nLeiðrétta vanmat á kvennastörfum\nMunur á atvinnutekjum kvenna og karla er um 20% og launamunur kynjanna er rúm 10% og eykst. \nLögfesta rétt barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi\nKonur bera enn meiri ábyrgð á umönnun barna\, fjórðungur er í hlutastarfi og stór hluti hverfur af vinnumarkaði til að brúa bilið. \nTryggja fræðslu um jafnrétti og kynbundið ofbeldi á öllum skólastigum\n12% stúlkna í 10. bekk hafa orðið fyrir nauðgun af hálfu jafnaldra og helmingur fyrir stafrænu kynferðisofbeldi. \nHvað getur þú gert í jafnréttisbaráttunni og hvernig vilt þú sjá samfélagið þróast? Endilega kíktu í Mannréttindahúsið á fimmtudagsmorgun\, gríptu hljóðnemann og deildu þinni skoðun.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/39279/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/Kvennaverkfall_50_ar_transparent_1-1.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250925T100000
DTEND;TZID=UTC:20250925T100000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20250916T174545Z
LAST-MODIFIED:20250916T174545Z
UID:38313-1758794400-1758794400@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgnar: Sjúklingar og mannréttindi
DESCRIPTION:HlustaMarta Jóns Hjördísardóttir talskona sjúklinga kemur í Mannréttindahúsið 25. september og ræðir réttindi sjúklinga\, eflingu samtals við sjúklingasamtök og margt fleira. Viðburðurinn hefst klukkan 10:00 en húsið opnar 9:30. Heitt á könnunni\, léttar morgunveitingar í boði og öll velkomin. \n\nMarta tók við nýju stöðugildi talskonu sjúklinga fyrir um ári síðan. Staða talskonu er mikilvægur hluti af nýjum áherslum Landspítala sem felast meðal annars í auknu vægi fagmennsku í samskiptum við sjúklinga og aðstandendur\, eflingu samtals við sjúklingasamtök og umbóta í kjölfar athugasemda sjúklinga.  \n\n\nMarta hefur lokið BSc gráðu í hjúkrunarfræði frá HÍ\, MPM gráðu í verkefnastjórnun frá HR 2017 og er að ljúka MSc gráðu í hjúkrunarstjórnun frá HÍ. Marta hóf störf á Landspítala árið 2007 sem hjúkrunarnemi. Hún hefur sinnt fjölbreyttum störfum innan Landspítala síðan\, unnið á legudeildum\, á menntadeild\, verið formaður fagráðs Landspítala\, sinnt starfsmannahjúkrun og unnið að fjölbreyttum verkefnum á verkefnastofu m.a. stofnun transmiðstöðvar á Landspítala.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgnar-sjuklingar-og-mannrettindi/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/09/Sjuklingar-Insta.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241127T080000
DTEND;TZID=UTC:20241127T080000
DTSTAMP:20260504T033106
CREATED:20241016T093203Z
LAST-MODIFIED:20241016T093203Z
UID:27996-1732694400-1732694400@www.obi.is
SUMMARY:Börn og mannréttindi - Mannréttindadagar
DESCRIPTION:HlustaDagskrá verður nánar kynnt síðar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/born-og-mannrettindi-mannrettindadagar/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Mannréttindahúsið
END:VEVENT
END:VCALENDAR