BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260510T110000
DTEND;TZID=UTC:20260510T113000
DTSTAMP:20260515T145445
CREATED:20260320T122048Z
LAST-MODIFIED:20260429T112624Z
UID:44833-1778410800-1778412600@www.obi.is
SUMMARY:Sunnudagur fyrir sálina - Valerie Fritz flytur einleiksverk fyrir selló
DESCRIPTION:HlustaSunnudagur fyrir sálina \nValerie Fritz flytur einleiksverk fyrir selló.\n10. maí kl. 11:00-11:30 \nAusturríski sellóleikarinn Valerie Fritz flytur undurfalleg einleiksverk fyrir selló í sal Mannréttindahússins í Sigtúni. Tónleikarnir eru um 30 mínútna langir\, aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. \nJohann Sebastian Bach (1685 – 1750)\nÞættir úr einleikssvítu númer 2 fyrir selló \nBenjamin Britten (1913 – 1976)\nÚr Sólósvítu númer 3 \nGeorge Crumb (1929 – 2022)\nÚr Sónötu fyrir einleiksselló \nMatthias Barolomey (f. 1985)\nFernambuk \n Frítt inn – tryggðu þér pláss með að skrá þig hér! – Sunnudagur fyrir sálina – tónleikar með Valerie Fritz – ÖBI \nÍ samstarfi við Hörpu og ECHO RISING STARS \n— \nSellóleikarinn og tónlistarkonan Valerie Fritz er 29 ára gömul\, fædd í Tyrol í Austurríki árið 1997. Hún nam sellóleik í Salzburg og á nú þegar að baki farsælan feril sem einleikari og túlkandi kammertónlistar. Hún hefur vakið athygli fyrir einkar frjótt og persónulegt verkefnaval og framúrskarandi sellóleik en hún hefur lagt mikla rækt við flutning nýrrar tónlistar og starfað náið með tónskáldum samtímans. \nValerie Fritz var í hópi ungs tónlistarfólks sem ECHO\, samtök evrópskra tónlistarhúsa – völdu til að koma fram á tónleikum víðs vegar um álfuna veturinn 2025 – 2026. Verkefnið gengur undir heitinu ECHO Rising Stars. \nEftirfarandi tónlistarhús tilnefndu Valerie: Elbphilharmonie í Hamborg\, Bozar í Brussel\, Casa da Música í Porto\, Kölner Philharmonie í Köln\, Konzerthaus Dortmund og Musikverein Wien í Vínarborg. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/sunnudagur-fyrir-salina/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/03/Untitled-1920-x-1080-px.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260521T100000
DTEND;TZID=UTC:20260521T113000
DTSTAMP:20260515T145445
CREATED:20260515T130527Z
LAST-MODIFIED:20260515T130645Z
UID:45638-1779357600-1779363000@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgunn – Samráðsfundur vegna allsherjarúttektar SÞ
DESCRIPTION:HlustaFélag Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindahúsið bjóða frjálsum félagasamtökum að bera saman bækur sínar fyrir allsherjarúttekt (UPR) Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda á Íslandi. Fundurinn fer fram í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42\, 21. maí frá 10.00 til 11.30. \nÍ byrjun fundar verður farið í örstuttu máli yfir helstu atriði allsherjarúttektarinnar\, m.a. mikilvægar dagssetningar sem gott er að hafa í huga. Að því loknu er gólfið opið og eru fulltrúar þeirra samtaka hyggjast skrifa skuggaskýrslu hvattir til þess að deila helstu áherslumálum sínum með gestum í örstuttu máli. Ekki er ætlast til þess að stuðst verði við glærur en það er hægt ef þess er óskað. Athugið að ungmennaráðum félaganna er sérstaklega boðið að mæta og taka þátt í umræðum eftir kynningar. Vinsamlegast áframsendið boðið og hvetjið ykkar ungmennaráð/félög að mæta.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgunn-samradsfundur-vegna-allsherjaruttektar-sth/
CATEGORIES:Aðildarfélög,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/05/Samrad-felagasamtok.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR