BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261120T110000
DTEND;TZID=UTC:20261120T120000
DTSTAMP:20261122T223513
CREATED:20261118T121452Z
LAST-MODIFIED:20261118T121452Z
UID:48123-1795172400-1795176000@www.obi.is
SUMMARY:Afhending Viðurkenningar Barnaheilla 2026
DESCRIPTION:HlustaViðurkenning Barnaheilla – Save the Children á Íslandi verður afhent föstudaginn 20. nóvember kl. 11 í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42.\n\nBarnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra. Viðurkenningin er afhent á degi mannréttinda barna\, 20. nóvember\, til að vekja athygli á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mikilvægi þess að standa vörð um réttindi og velferð barna.\n\nGuðjón Þorgils Kristjánsson\, sem sigraði Söngkeppni Samfés árið 2024 og samdi lag Hinsegin daga 2026\, flytur tónlist við athöfnina.\nLéttar kaffiveitingar verða í boði að afhendingunni lokinni.\n\nÖll eru hjartanlega velkomin! \nVið biðjum þau sem hyggjast mæta að skrá sig hér: https://barnaheill.is/namskeidin/vidurkenning-barnaheilla/\n\nVið hlökkum til að sjá ykkur!
URL:https://www.obi.is/vidburdir/afhending-vidurkenningar-barnaheilla-2026/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/11/Screenshot-2026-11-18-120713.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261121T130000
DTEND;TZID=UTC:20261121T170000
DTSTAMP:20261122T223513
CREATED:20261006T143024Z
LAST-MODIFIED:20261022T160013Z
UID:47170-1795266000-1795280400@www.obi.is
SUMMARY:Árlegur list- og handverksmarkaður Listar án landamæra
DESCRIPTION:HlustaÁrlegur list- og handverksmarkaður Listar án landamæra fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur helgina 21. og 22. nóvember \nÁ boðstólum verður list og handverk eftir fatlað listafólk; listaverk\, kerti\, skartgripir\, prjónavörur\, keramík og ýmis gjafavara. \nTónlist og hugguleg stemning — Upplagt að líta við og kaupa jólagjafirnar!
URL:https://www.obi.is/vidburdir/arlegur-list-og-handverksmarkadur-listar-an-landamaera/2026-11-21/
LOCATION:Ráðhús reykjavíkur\, Tjarnargata 11\, Reykjavík\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/10/List-an-landamaera-markadur.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261125T080000
DTEND;TZID=UTC:20261210T233000
DTSTAMP:20261122T223513
CREATED:20261118T122320Z
LAST-MODIFIED:20261118T122433Z
UID:48127-1795593600-1796945400@www.obi.is
SUMMARY:16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi - UN Women á Íslandi
DESCRIPTION:Hlusta16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðlegt átak sem hefst 25. nóvember\, á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi\, og lýkur 10. desember\, á alþjóðlega mannréttindadeginum. Átakinu er ætlað að vekja athygli á einu alvarlegasta mannréttindabroti samtímans\, ofbeldi gegn konum og stúlkum. Ein af hverjum þremur konum í heiminum hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni. \nAlþjóðleg yfirskrift átaksins árið 2026 er „UNiTE to End Violence Against Women and Girls: Ensure justice\, protect survivors\, end impunity“  sem þýða mætti sem: „Tryggjum réttlæti\, verndum þolendur og stöðvum refsileysi.“\nÍ tengslum við hið árlega 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi mun UN Women á Íslandi beina kastljósinu að stafrænum hatursummælum og -einelti og áhrifum þess á þolendur og samfélagið í heild. Yfirskrift átaks UN Women á Íslandi verður „Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“ og byggir herferðarefnið á raunverulegum ummælum sem hafa verið látin falla opinberlega og beinast ýmist að einstaklingum eða hópum fólks. \nAppelsínugulur litur táknar framtíð án ofbeldis \nÁrleg ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00 og markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Þá verður fjöldi bygginga og stofnana um allt land lýstur upp í appelsínugulum lit í tilefni átaksins\, en appelsínuguli liturinn táknar framtíð án ofbeldis og er litur alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi. \nMeðal þeirra bygginga sem lýstar verða upp í tilefni átaksins eru Háskóli Íslands\, Háskólinn í Reykjavík\, Háskólinn á Akureyri\, Tækniskólinn í Reykjavík\, Hof menningarsetur\, Harpa tónlistarhús\, Listasafn Akureyrar\, Þjóðminjasafnið\, Ásmundarsalur\, Gróttuviti\, Hallgrímskirkja\, Háteigskirkja\, Kópavogskirkja\, Mannréttindahúsið\, Ráðhús Reykjavíkur og Stjórnarráðsbyggingin. Eins verður bensínstöð Atlantsolíu við Sprengisand lýst upp í tilefni átaksins. \nÓgn við lýðræði \nÍtrekuð hatursfull og niðrandi ummæli á stafrænum miðlum í garð fólks hafa djúpstæð áhrif á heilsu\, líðan og tækifæri þess til þátttöku í samfélaginu‏. Öll getum við orðið  fyrir slíkum ummælum og árásum\, en rannsóknir sýna að ákveðnir hópar fólks eru líklegri til að verða fyrir slíku ofbeldi en aðrir. \nKonur sem gegna opinberum störfum\, hinsegin fólk\, innflytjendur\, konur í fjölmiðlum\, ungt fólk og fatlaðar konur eru margfalt líklegri til að vera beittar slíku ofbeldi. Stafrænt ofbeldi hefur raunveruleg og djúpstæð áhrif á heilsu\, líðan og tækifæri þolenda til þátttöku í samfélaginu‏. Mikilvægt er að tryggja stuðning og þjónustu til þolenda stafrænna hatursummæla og -eineltis því stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/16-daga-atak-gegn-kynbundnu-ofbeldi-un-women-a-islandi/
CATEGORIES:Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/11/skjar_2.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261125T170000
DTEND;TZID=UTC:20261125T180000
DTSTAMP:20261122T223513
CREATED:20261118T122745Z
LAST-MODIFIED:20261118T124227Z
UID:48131-1795626000-1795629600@www.obi.is
SUMMARY:Ljósaganga UN Women á Íslandi 2026 - Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi
DESCRIPTION:HlustaLjósaganga UN Women á Íslandi fer fram miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00\, á Alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi.\nIngileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir munu leiða gönguna ásamt Stellu Samúelsdóttur.\nHvar og hvenær?\n\n\nMæting við styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli kl. 17:00\nGengið verður suður Lækjargötu og upp Amtmannsstíg\nGöngunni lýkur á Bríetartorgi með stuttri samverustund og kórsöng.\n\n\nÁhersla 16 daga átaksins í ár er á hatursummælum og stafrænu einelti og áhrifum þess á þolendur.\nHver er munurinn á tjáningu og hatursfullum\, eða meiðandi\, ummælum á internetinu? Má kalla stjórnmálakonu „heimska álft“? Má kalla hinsegin einstakling „barnaníðing“? Hvenær breytist „málfrelsi“ í refsivert athæfi eða einelti?\nÍtrekuð hatursfull og niðrandi ummæli á stafrænum miðlum í garð fólks\, og ‏þá einkum kvenna í opinberum stöðum\, hinsegin fólks\, innflytjenda og annarra jaðarsettra hópa\, hafa alvarlegar afleiðingar fyrir þolendur. Slíkt hefur djúpstæð áhrif á heilsu\, líðan og tækifæri þeirra til þátttöku í samfélaginu‏.\nÞegar ákveðnir hópar fólks veigra sér við að taka þátt í opinberri umræðu vegna hatursfullra ummæla\, hætta að tjá skoðanir sínar og treysta sér jafnvel ekki til að sækjast eftir opinberum störfum er hættulega vegið að grunnstoðum lýðræðis.\nVið hvetjum öll til að mæta og taka afstöðu gegn stafrænu ofbeldi.\n#Ljósaganga #16dagar #UNWomenIceland
URL:https://www.obi.is/vidburdir/ljosaganga-un-women-a-islandi-2026-stafraent-ofbeldi-er-alvoru-ofbeldi/
CATEGORIES:Aðildarfélög,Mannréttindahúsið
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20261203T110000
DTEND;TZID=UTC:20261203T130000
DTSTAMP:20261122T223513
CREATED:20260707T153633Z
LAST-MODIFIED:20261111T112743Z
UID:46167-1796295600-1796302800@www.obi.is
SUMMARY:Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka
DESCRIPTION:Hlusta\nVertu með þegar við afhendum Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka í ár!\nHvar: Hótel Reykjavík Grand í Sigtúni 28\nHvenær: 3. desember kl. 11:00 – 12:30\nEngin skráning er nauðsynleg og aðgangur er ókeypis. \nVið eigum saman eftir að njóta góðrar og kraftmikillar stundar þar sem við fögnum fólki og verkefnum sem hafa haft ómetanleg jákvæð áhrif á réttindi\, sýnileika og þátttöku fatlaðs fólks.\nForseti Íslands\, frú Halla Tómasdóttir\, afhendir viðurkenninguna. \nHvatningarverðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2007. Í fyrra hlaut Magnús Orri Arnarson viðurkenningu fyrir einstakt framlag sitt á sviði vitundarvakningar\, kvikmyndagerðar og íþrótta. Í ár verður hann kynnir verðlaunanna.\n3. desember er jafnframt alþjóðadagur fatlaðs fólks\, og í tilefni dagsins stendur ÖBÍ fyrir átakinu Upplýst samfélag. Við hvetjum fólk um allt land til að lýsa upp í fjólubláu\, lit réttindabaráttu fatlaðs fólks.\nLéttar kaffiveitingar verða í boði. \nÖll eru hjartanlega velkomin!\nViðburðurinn verður táknmáls- og rittúlkaður. Aðgengi er talið gott.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/hvatningarverdlaun-obi-rettindasamtaka/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/07/Hvatningarverdlaun-2025-poster-1920-x-1080-px.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR