BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251101T100000
DTEND;TZID=UTC:20251101T140000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251027T162907Z
LAST-MODIFIED:20251027T162907Z
UID:39406-1761991200-1762005600@www.obi.is
SUMMARY:Jafnt aðgengi að listnámi - málþing
DESCRIPTION:HlustaMálþing um aðgengi að listnámi verður haldið í Borgarleikhúsinu laugardaginn 1. nóvember 2025 frá kl. 10 til 14. \nListaháskóli Íslands\, Þroskahjálp\, ÖBÍ réttindasamtök\, Háskóli Íslands og fleiri standa saman að málþinginu. Sjá nánari upplýsingar: Málþing – Jafnt aðgengi að listnámi | Listaháskóli Íslands
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jafnt-adgengi-ad-listnami-malthing/
LOCATION:Borgarleikhúsið\, Listabraut 3\, Reykjavík\, 103\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/1350x1080-Instagram-Post.png
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251105T193000
DTEND;TZID=UTC:20251105T193000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251103T135518Z
LAST-MODIFIED:20251103T135518Z
UID:39553-1762371000-1762371000@www.obi.is
SUMMARY:Opinn fundur Endósamtakanna á Egilsstöðum
DESCRIPTION:HlustaEndósamtökin bjóða til opins fundar á Austurlandi miðvikudaginn 5. nóvember nk. kl. 19:30 í fyrirlestrarsal Menntaskólans á Egilsstöðum í samstarfi við Soroptimistaklúbb Austurlands. \nÁ opna fundinum munu Anna Margrét\, framkvæmdastýra samtakanna\, og Unnur Regína\, kynningarstýra samtakanna\, kynna samtökin og það starf og stuðning sem samtökin bjóða upp á\, ásamt því að fræða gesti um sjúkdóminn og vera til samtals um stöðu fólks með endó á Austurlandi. \nEndósamtökin standa nú fyrir fræðslu í öllu grunn- og framhaldsskólum á Austurlandi\, en það fræðsluátak er einmitt tilkomið vegna styrks frá Soroptimistaklúbbi Austurlands. Fræðslan hefur vakið upp margar spurningar hjá ungmennum á svæðinu og við hjá samtökunum höfum fengið auknar fyrirspurnir um sjúkdóminn\, stuðning og ráð varðandi fyrstu skrefin í átt að greiningu. \nVið hvetjum því sérstaklega foreldra og aðstandendur ungmenna til að mæta og kynna sér samtökin. \nFundurinn er opinn öllum og öll hjartanlega velkomin.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/opinn-fundur-endosamtakanna-a-egilsstodum/
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251107T130000
DTEND;TZID=UTC:20251107T130000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251103T135759Z
LAST-MODIFIED:20251103T135759Z
UID:39556-1762520400-1762520400@www.obi.is
SUMMARY:Að lifa með Parkinson
DESCRIPTION:HlustaParkinsonsamtökin halda ráðstefnu föstudaginn 7. nóvember kl. 13:00 í salnum Norðurljós á 2. hæð í Hörpu. \nDagskrá: \n13:00 – Alma Möller\, heilbrigðisráðherra: Setning  \n13:10 – Gylfi Þormar\, taugalæknir: Samtal um Parkinson einkenni. Skilvirkt samtal – betri meðferð. \n13:45 – Sigurlaug Mjöll Jónasdóttir\, sjúkraþjálfari: Hreyfing skiptir sköpum. Mikilvægi reglulegrar þjálfunar. \n14:15 – Kaffihlé með léttum veitingum \n14:45 – Ella Björt Teague\, taugasálfræðingur: Andleg líðan og hugarstarf í Parkinson – fókus á bjargráð \n15:20 – Vilborg Jónsdóttir: Að lifa með Parkinson – Reynslusaga Vilborgar í samtali við Ágústu Kristínu Andersen \n15:40 – Katrín Bjarney Guðjónsdóttir\, formaður: Takk fyrir komuna. \nFundarstjóri: Freyr Eyjólfsson \nRáðstefnan verður í beinu streymi á parkinson.is. \nAðgangur er ókeypis er nauðsynlegt er að skrá sig á forminu hér fyrir neðan til að tryggja sér sæti. Athugið að fjöldi miða er takmarkaður. \nAð lifa með Parkinson – Ráðstefna í Hörpu 7. nóvember
URL:https://www.obi.is/vidburdir/ad-lifa-med-parkinson/
LOCATION:Harpa\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251112T170000
DTEND;TZID=UTC:20251112T193000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20250828T104207Z
LAST-MODIFIED:20251022T101946Z
UID:37764-1762966800-1762975800@www.obi.is
SUMMARY:Námskeið UngÖBÍ: Inngangur að fasteignakaupum
DESCRIPTION:HlustaFinnst þér fasteignamarkaðurinn algjör frumskógur og vantar leiðsögn um hvað skal hafa í huga? Þá er þetta námskeið fyrir þig! \nUngÖBÍ heldur námskeið fyrir ungt fatlað fólk (18-35 ára) um flækjur fasteignamarkaðarins miðvikudaginn 12. nóvember frá 17:00 til 19:30 í Mannréttindahúsinu\, Sigtúni 42. \nFasteignakaup eru einhver stærsta fjárfestingin sem maður gerir um ævina. Leiðin að fyrstu íbúðarkaupunum er löng\, brött og flókin. Ráslínan er ekki jöfn og dæmi eru um að fatlað fólk eigi mun erfiðara með að kaupa fyrstu fasteign en aðrir. \nBjörn Berg\, sérfræðingur á fjármálamarkaði og ráðgjafi\, stýrir námskeiðinu og fer yfir það helsta sem þarf að hafa í huga fyrir kaup á fyrstu fasteign. Ungt fatlað fólk er fjölbreyttur hópur og því er lögð áhersla á að skoða ólíkar leiðir. \nNámskeiðið er tilvalið fyrir þau sem eru að huga að næstu skrefum í húsnæðismálum og vilja bæta skilning sinn á frumskógi fasteignamarkaðarins. \nSkráningargjald er 900 kr. og verður þátttakendum boðið upp á léttar veitingar í hléi. \nTakmarkaður fjöldi sæta í boði. \nHægt er að ganga frá skráningu í gegnum hlekkinn hér að neðan: \nSkráning: Inngangur að fasteignamarkaði \n \nHlökkum til að sjá ykkur! \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/namskeid-ungobi-fjarmal-og-fasteignir/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/08/ungOBI-fjolbl-e1756377611721.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251113T093000
DTEND;TZID=UTC:20251113T093000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251103T145127Z
LAST-MODIFIED:20251103T145127Z
UID:39565-1763026200-1763026200@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgunn – Mannréttindastofnun Íslands
DESCRIPTION:HlustaMaría Sigurðardóttir framkvæmdastjóri nýrrar Mannréttindastofnunar Íslands fjallar um nýja stofnun\, hlutverk hennar og mikilvægi í samfélaginu í Mannréttindahúsinu fimmtudaginn 13.  nóvember kl. 9:30. \nMargrét á að baki langan feril sem stjórnandi stofnana sem vinna að aukinni velferð borgaranna\, meðal annars gengdi hún starfi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu\, var Umboðsmaður barna og forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda\, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón og heyrnaskerðingu. Hún lauk embættisprófi í lögfræðingi frá Háskóla Íslands\, kennsluréttindanámi frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá University of the Highlands and Islands í Skotlandi með áherslu á mannréttindi. \nMannréttindastofnun Íslands er sjálfstæð stofnun sem tók til starfa þann 1. maí 2025 sl. og starfar á vegum Alþingis samkvæmt lögum nr. 88/2024. Meginhlutverk stofnunarinnar er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgunn-mannrettindastofnun-islands/
CATEGORIES:Aðildarfélög,Mannréttindahúsið
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251113T140000
DTEND;TZID=UTC:20251113T160000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251110T143130Z
LAST-MODIFIED:20251110T143407Z
UID:39648-1763042400-1763049600@www.obi.is
SUMMARY:Nýliðadagur / Námsstefna ÖBÍ 2025
DESCRIPTION:HlustaFyrri dagur Námsstefnu ÖBÍ 2025\, Nýliðadagurinn\, verður haldinn fimmtudaginn 13. nóvember nk. Eins og heitið gefur til kynna er hann ætlaður nýjum fulltrúum í innra starfi ÖBÍ. Mögulegt er að sitja fundinn á Teams. \nDagskrá \nVelkomin\n– Alma Ýr Ingólfsdóttir\, formaður \nSkipulag og rekstur\n– Eva Þengilsdóttir\, framkvæmdastjóri \nSamningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks\n– Sunna Elvíra Þorkelsdóttir\, starfsmaður jafnréttismála \nBreytt kerfi\n– Gunnar Alexander Ólafsson\, hagfræðingur \nRáðgjöfin\n– Sigríður Hanna Ingólfsdóttir\, teymisstjóri ráðgjafar \nDómsmálin\n– Sigurður Árnason\, teymisstjóri dómsmála \nSamráðið\n– Andrea Valgeirsdóttir\, teymisstjóri umsagna \nMálefnastarfið\n– Stefán Vilbergsson\, teymisstjóri málefnastarfs \nMiðlunin \n– Þórgnýr Einar Albertsson\, upplýsingafulltrúi \n  \nStaður og stund: Ólafarstofa\, Mannréttindahúsinu Sigtúni 42\, 105 Reykjavík. 14:00 – 16:00. \nEf þú hefur ekki fengið fundarboð\, en hefur áhuga á að sitja fundinn – vinsamlega sendu póst á obi@obi.is
URL:https://www.obi.is/vidburdir/nylidadagur-namsstefna-obi-2024/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251113T140000
DTEND;TZID=UTC:20251113T180000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251103T135100Z
LAST-MODIFIED:20251103T135100Z
UID:39547-1763042400-1763056800@www.obi.is
SUMMARY:Fundur fólksins – ráðstefna almannaheilla
DESCRIPTION:HlustaFundur fólksins – Ráðstefna Almannaheilla verður í Hörpu fimmtudaginn 13. nóvember á milli klukkan 14:00 – 18:00 næstkomandi. \nStjórn Almannaheilla ákvað í fyrra að færa ráðstefnuna inn í Hörpu með það fyrir augum að hún hafi rými til að vaxa og þroskast á glæsilegum vettvangi næstu árin. \nHarpa tók vel utan um fundargesti í fyrra en í ár eru gerðar nokkrar breytingar sem vonandi verða til góðs: \n\nRáðstefnan er á fimmtudegi í stað föstudags.\nRáðstefnan verður tekin upp en verður ekki í streymi. Við viljum fá fólk á staðinn því við trúum því að samstaða og samtal aðildarfélaga skipti máli.\nAðildarfélögum Almannaheilla býðst að vera með bás og/eða eigin viðburð á ráðstefnunni endurgjaldslaust.\nÖll ráðstefnan fer fram á einu svæði; í aðalsalnum Kaldalóni\, á Norðurbryggju (básasvæði) og í Vísu og Stemmu\, aðliggjandi hliðarsölum.\n\nÞá má nefna að stjórn Almannaheilla bindur vonir við að engar þingkosningar steli þrumunni að þessu sinni líkt og gerðist í fyrra\, þegar kosningar voru settar á dagskrá daginn eftir ráðstefnuna með skömmum fyrirvara.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fundur-folksins-radstefna-almannaheilla/
LOCATION:Harpa\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251118T140000
DTEND;TZID=UTC:20251118T180000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251103T145026Z
LAST-MODIFIED:20251117T125600Z
UID:39562-1763474400-1763488800@www.obi.is
SUMMARY:Námsstefna ÖBÍ réttindasamtaka 2025
DESCRIPTION:HlustaNámsstefnan verður haldin þriðjudaginn 18. nóvember 2025 frá kl. 14:00 til 18:00 á Grand Hótel Reykjavík (Háteig). Að venju er dagskráin fjölbreytt og samanstendur af spennandi erindum\, sjá eftirfarandi – sem og tækifærum til umræðna og þátttöku.  \nKomdu og taktu þátt\, hittu aðra í innra starfi ÖBÍ og sæktu innblástur fyrir vetrarstarfið. \nDagskrá\nFram á veginn\n– Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ \nÍ kjölfar lögfestingar SRFF\n– Sigurður Árnason lögfræðingur ÖBÍ \nHagsmunagæsla\n– Ingibjörg Sólrún Gísladóttir\, fyrrverandi utanríkisráðherra og fulltrúi í stjórn UN Women á Íslandi \nGervigreind; snjall þjónn – harður húsbóndi!\n– Rósa María Hjörvar\, stafrænn verkefnastjóri ÖBÍ \nLiðsheild og samskipti\n– Pálmar Ragnarsson\, fyrirlesari og körfuboltaþjálfari \n\nFundarstjóri: Eva Þengilsdóttir framkvæmdastjóri ÖBÍ\nÞátttakendur: Stjórn\, varastjórn\, fulltrúar í málefnastarfi\, nefndum og ráðum\, starfsfólk ÖBÍ og forstöðumenn aðildarfélaga og fyrirtækja ÖBÍ. \nMikilvægt er að nýir liðsmenn jafnt sem reyndir fulltrúar mæti. Aðgangur er ókeypis – skráning hér: \nSkráning á námsstefnu 2025 \n \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/namsstefna-obi-rettindasamtaka-2025/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/Hateigur-Grand-Hotel-Reykjavik.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T090000
DTEND;TZID=UTC:20251210T235900
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251126T130605Z
LAST-MODIFIED:20251201T160738Z
UID:40185-1764061200-1765411140@www.obi.is
SUMMARY:16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
DESCRIPTION:HlustaAlþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember er í ár 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi (e. 16 Days of Activism against Gender-based Violence) undir merkjum UniTE to End Violence against Women\, \nHerferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár\, þegar undirritun Peking-sáttmálans\, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. \n» Stafrænt ofbeldi eykst hratt – en nær helmingur kvenna og stúlkna í heiminum býr enn ekki við lagalega vernd gegn því – UN Women Ísland \nÖBÍ réttindasamtök leggja áherslu á að stafrænt umhverfi sé öruggt fyrir alla\, ekki síst fatlaðar konur og fatlað fólk sem fyrir verður margþættri mismunun. Stafrænt ofbeldi er raunverulegt ofbeldi sem skerðir þátttöku í samfélaginu\, heftir tjáningarfrelsi og getur orðið til þess að raddir jaðarsettra hópa þagni. ÖBÍ hvetur stjórnvöld\, löggæslu\, fjölmiðla\, tæknifyrirtæki og almenning til að axla sameiginlega ábyrgð á því að breyta menningu\, styrkja úrræði og tryggja að enginn verði skilinn eftir í skugga stafræns ofbeldis. \n» Sjónum beint að stafrænu ofbeldi – ÖBI \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/16-daga-atak-gegn-kynbundnu-ofbeldi/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/16-dagar-PR-fra-HQ-1536x864-1.png
ORGANIZER;CN="UN women %C3%A1 %C3%8Dslandi":MAILTO:unwomen@unwomen.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T100000
DTEND;TZID=UTC:20251125T113000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251124T100727Z
LAST-MODIFIED:20251124T181240Z
UID:40128-1764064800-1764070200@www.obi.is
SUMMARY:„Dreptu þig bara“ - stafrænt ofbeldi og áhrif þess í raunheimum
DESCRIPTION:Hlusta\nMálstofa UN Women á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtaka um stafrænt ofbeldi og áreitni og afleiðingar ‏þess\nHvar: Mannréttindahúsið\, Sigtún 42Hvenær: Þriðjudaginn 25. nóvember 2025Klukkan: 10:00 – 11:30 \nÞrátt fyrir þær framfarir sem orðið hafa í jafnréttismálum síðustu þrjá áratugi\, er kynbundið ofbeldi enn eitt útbreiddasta og alvarlegasta mannréttindabrot heims. Ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni. Rótgrónar staðalímyndir um kynhlutverk\, skaðleg samfélagsleg viðhorf\, veik lagaumgjörð og skortur á fjármagni og úrræðum koma í veg fyrir að kynbundið ofbeldi sé upprætt. \nTækniframfarir síðustu ára hafa verið samfélögum til góða á margan hátt. En ‏þær hafa einnig skapað ný rými þar sem kynbundið ofbeldi og áreitni fær að þrífast óáreitt. Kynferðisleg áreitni og eltihrelling eru algengustu birtingarmyndir stafræns ofbeldis gegn konum og stúlkum; dreifing nektarmynda án samþykkis\, óumbeðin skilaboð\, niðrandi færslur á samfélagsmiðlum og símtöl. Aðrar birtingarmyndir stafræns ofbeldis eru neteinelti\, hatursorðræða\, ærumeiðingar\, dreifing nektarmynda\, hótanir um birtingu mynda (sextortion) og hefndarklám. Ofbeldið á sér stað í ólíkum stafrænum miðlum: snjallsímum\, tölvum\, spjallrásum\, samfélagsmiðlum\, og í tölvuleikjum \nDagskrá\n10:00 Hús opnar\n10:10 Opnunarerindi – Sunna Elvíra Þorkelsdóttir\, lögfræðingur ÖBÍ\n10:20 Rakel Þorbergsdóttir\, fundarstjóri kynnir þátttakendur í pallborði \n\n\n\n\nBergrún Andradóttir\, skrifstofustýra Samtakanna ’78\nEygló Harðardóttir\, verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra\nÓlafur Hrafn Steinarsson\, framkvæmdastjóri Aska Studios\, fyrrum formaður RÍSÍ\nMelína Kolka\, framkvæmdarstjóri TÍK – Tölvuleikjasamtaka íslenzkra kvenna\n\n\n\n\n\n10:25 Pallborð hefst (hugvekjur 3-5 mín hvert)\n10:45 Umræður\n11:10 Spurningar úr sal\n11:25 Umræðum lokið og samantekt\n11:30 Viðburði lýkur
URL:https://www.obi.is/vidburdir/dreptu-thig-bara-stafraent-ofbeldi-og-ahrif-thess-i-raunheimum/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/16-dagar-PR-fra-HQ-1536x864-1.png
ORGANIZER;CN="UN women %C3%A1 %C3%8Dslandi":MAILTO:unwomen@unwomen.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T160000
DTEND;TZID=UTC:20251125T160000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251110T102621Z
LAST-MODIFIED:20251117T130205Z
UID:39628-1764086400-1764086400@www.obi.is
SUMMARY:Opinn fyrirlestur um ofbeldi gegn konum með fötlun
DESCRIPTION:HlustaFyrirlestur: Skortur á tilkynningum um ofbeldi gegn konum með fötlun á Íslandi\nTil að fagna alþjóðadeginum um afnám ofbeldis gegn konum munum við halda opinn fyrirlestur þann 25. nóvember kl. 16:00 í sal Blindrafélagsins á annarri hæð\, Hamrahlíð 17. Eliona Gjecaj\, doktorsnemi við Háskóla Íslands\, mun halda fyrirlestur fyrir félagsmenn okkar um niðurstöður rannsókna sinna varðandi skort á tilkynningum um ofbeldi gegn konum með fötlun á Íslandi. Hún hóf rannsókn sína árið 2019 og hefur birt þrjár fræðigreinar um aðgengi kvenna með fötlun að réttlæti í tengslum við kynbundið ofbeldi. Niðurstöður hennar hafa verið kynntar hagsmunaaðilum\, á innlendum og alþjóðlegum ráðstefnum\, auk þess sem þær hafa verið hluti af skuggaskýrslu Íslands til nefndar Sameinuðu þjóðanna um samninginn um réttindi fatlaðs fólks árið 2025.  \nNýjasta greinin (október 2025) fjallar um reynslu kvenna með fötlun af ofbeldi á Íslandi og skort á tilkynningum af þeirra hálfu\, ásamt greiningu á ástæðum þess. Nokkrir þátttakendur í rannsókninni voru sjónskertir\, og því verður mikilvægt að hlusta og íhuga saman þetta viðfangsefni.  \nVið hvetjum alla félagsmenn og styrktaraðila til að mæta.  \nFyrirlesturinn verður á ensku. \n\nLecture: Lack of reporting of violence by disabled women in Iceland\nTo celebrate the International Day for the Elimination of Violence Against Women\, we will have an open lecture on the 25th of November\, at 16:00 on the 2nd floor\, Hamrahlíð 17\, Blindrafélagið. Eliona Gjecaj\, a doctoral student at the University of Iceland will give  this lecture for our members on her research findings regarding the lack of reporting of violence by disabled women in Iceland. She started her research in 2019 and has 3 academic publications regarding access to justice for disabled women in relation to gender-based violence. Her research findings have been shared with advocates\, national and international conferences\, as well as been part of the shadow report of Iceland to the Committee of UN Convention on the Rights of Persons with Disabilities in 2025. \nThe most recent publication (October 2025) discusses the experiences of violence by disabled women in Iceland\, and the lack of reporting by them\, while analysing the reasons for such. A number of her research participants were visually impaired\, and thus\, it will be important to hear and reflect together on this topic. The article is available at: \nWe invite all members and sponsors to come along. \nThe lecture will be in English.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/opinn-fyrirlestur-um-ofbeldi-gegn-konum-med-fotlun/
LOCATION:Hamrahlíð 17\, Hamrahlíð 17\, Reykjavík\, 105\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/01/kynbundid-ofbeldi.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251129T170000
DTEND;TZID=UTC:20251129T190000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251127T145737Z
LAST-MODIFIED:20251127T145737Z
UID:40205-1764435600-1764442800@www.obi.is
SUMMARY:Listvinnzlan - sýningn og opnunarfögnuður
DESCRIPTION:HlustaOPNUN og LIST\nÍ LISTVINNZLUNNI. \nLaugardaginn 29.nóvember\nklukkan 17 – 19 (5-7).\nÍ Austurstræti 5\, 3 hæð.\nInngangur bæði frá Austurstræti 5 og Hafnarstræti 4-6.\nHafnarstrætismegin er rampur og stór lyfta. \nGott aðgengi\, sjá upplýsingar hér: www.listvinnslan.is/adgengi \nRóleg opnun frá 16 – 16:50\n(þá verður engin tónlist og lítið áreiti)\n– Við fluttum í Austurstrætið í maí\,\nþað er ekki seinna vænna að halda opnunar og innflutningsboð.\n– Fjöldi listafólks hafa unnið að verkum sínum hjá Listvinnzlunni síðan í maí.\n– Þau sýna verkin sín í Listvinnzlunni. Verkin erumörg til sölu.\nVerkin verða til sýnis og sölu fram í miðjan desember.\nVið auglýsum opnunartíma í desember síðar.\n– Öll eru velkomin að koma! \nListafólkið sem sýnir verk sín eru:\nElín Sigríður María Ólafsdóttir\nKolbeinn Jón Magnússon\nHelga Matthildur Viðarsdóttir\nSigrún Huld Hrafnsdóttir\nAtli Már Indriðason\nGígja Garðarsdóttir\nÞórir Gunnarsson\nBenedikta Rostan\nKristján Rostan\nAndrea Gavern\nFríða Adriana Martins\nÍsak Óli Sævarsson\nÁsdís Ásgeirsdóttir\nGuðmundur Stefán Guðmundsson\nKári Hrafn Jóhannesson\nBirkir Sigurðsson\nHarpa Rut Elísdóttir\nElín Fanney Ólafsdóttir\nGunnar Már Pálsson\nÓskar Theódórsson\nE. Sóldís Þorsteinsdóttir\nLilja Dögg Birgisdóttir\nÞorvaldur Arnar Guðmundsson\nErlingur Örn Skarphéðinsson\nHaukur Björnsson
URL:https://www.obi.is/vidburdir/listvinnzlan-syningn-og-opnunarfognudur/
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/listvinnzlan.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251130T130000
DTEND;TZID=UTC:20251130T170000
DTSTAMP:20260425T150836
CREATED:20251125T115110Z
LAST-MODIFIED:20251125T115110Z
UID:40160-1764507600-1764522000@www.obi.is
SUMMARY:1. í aðventu - Hringrásarjól
DESCRIPTION:HlustaNotað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði Norræna hússins\, Landverndar og Grænfánans!\nViðburðurinn er hluti af aðventudagskrá Norræna hússins og hvatningarátaki Landverndar og Grænfánans um Nægjusaman Nóvember.\n\nDagskrá:13:00-17:00 – Jólahringrásarmarkaður opinn og Textíl Barinn verður á staðnum!14:00-17.00 – Jólapeysusmiðja með Ýrúrarí\n\nJólahringrásarmarkaður:\nÞað sem nýtist þér ekki lengur gæti vel reynst fjársjóður annars – og öfugt! Komdu t.d. með bækur\, leikföng\, spil og skiptu fyrir eitthvað annað. Tilvalið tækifæri til þess að finna umhverfisvænar jólagjafir sem þú getur sett undir tréð með góðri samvisku.\nVið biðjum þátttakendur vinsamlegast aðeins að koma með hluti sem eru í góðu og nothæfu ástandi.\nSkiptimarkaðsflokkarnir eru:• Leikföng• Spariföt og prjónuð föt• Jólaskraut/jólamunir• Bækur og spil• Hlutir fyrir heimilið\n\nJólapeysu smiðja með Ýrúrarí:\nFjölskylduvæn smiðja þar sem peysur öðlast nýtt útlit í jólaþema fyrir desember.\nSmiðjan byggir á skapandi fataviðgerðar smiðjum textílhönnuðarins Ýrúrarí\, þar sem föt öðlast nýtt líf og útlit með mjög einföldum og aðgengilegum aðferðum.Þátttakendur koma sjálfir með peysu\, eða prjónaða flík\, sem þau vilja breyta og ef einhverjar sérstaklega jólalegar hugmyndir hafa vaknað fyrir smiðju\, eins og t.d að nota litlar jólaseríur eða úrelt jólaksraut heima úr geymslu\, þá er um að gera að taka slíkt með!\nÍ smiðjunni verður í boði ýmis efniviður og verkfæri sem hægt er að vinna með í einföldum og skrautlegum textíl aðferðum sem henta algjörum byrjendum sem og lengra komnum. Einnig verður í boði efniviður og lausnir til að taka þátt í smiðjunni án þess að koma með peysu eða flík\, enda ýmislegt sem hægt er að útbúa til að festa á flíkur tímabundið bara fyrir jólin.\nÆtlast er til að börn yngri en 12 ára komi í fylgd fullorðins.\n\nTextílbarinn:\nTextíl Barinn er lítið sprotafyrirtæki sem er með það að markmiði að endurnýta textíl og finna leiðir til að hanna vörur og koma aftur inn í hringrásarhagkerfið. Markmið þeirra er að auka vitund um endurvinnslu og endurnýtingu á textíl og þannig stuðla að ábyrgri neyslu\, skapandi lausnum og félagslegri þátttöku. Textílbarinn er með vinnustofu og litla verslun á Faxatorgi\, Faxafeni 10.\n\nVið hlökkum til að sjá ykkur og bendum einnig á að Plantan verður með sérstakan jólamatseðil og jóladrykki í boði.\nAðgengi að Elissu sal og andyri er gott\, lágur þröskuldur er inn í Elissu sal. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð.Nánar um aðgengismál má lesa með því að smella hér.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/1-i-adventu-hringrasarjol/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/Hringrasarjol-2.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR