BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251125T090000
DTEND;TZID=UTC:20251210T235900
DTSTAMP:20260423T130448
CREATED:20251126T130605Z
LAST-MODIFIED:20251201T160738Z
UID:40185-1764061200-1765411140@www.obi.is
SUMMARY:16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
DESCRIPTION:HlustaAlþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember er í ár 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi (e. 16 Days of Activism against Gender-based Violence) undir merkjum UniTE to End Violence against Women\, \nHerferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár\, þegar undirritun Peking-sáttmálans\, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. \n» Stafrænt ofbeldi eykst hratt – en nær helmingur kvenna og stúlkna í heiminum býr enn ekki við lagalega vernd gegn því – UN Women Ísland \nÖBÍ réttindasamtök leggja áherslu á að stafrænt umhverfi sé öruggt fyrir alla\, ekki síst fatlaðar konur og fatlað fólk sem fyrir verður margþættri mismunun. Stafrænt ofbeldi er raunverulegt ofbeldi sem skerðir þátttöku í samfélaginu\, heftir tjáningarfrelsi og getur orðið til þess að raddir jaðarsettra hópa þagni. ÖBÍ hvetur stjórnvöld\, löggæslu\, fjölmiðla\, tæknifyrirtæki og almenning til að axla sameiginlega ábyrgð á því að breyta menningu\, styrkja úrræði og tryggja að enginn verði skilinn eftir í skugga stafræns ofbeldis. \n» Sjónum beint að stafrænu ofbeldi – ÖBI \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/16-daga-atak-gegn-kynbundnu-ofbeldi/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/16-dagar-PR-fra-HQ-1536x864-1.png
ORGANIZER;CN="UN women %C3%A1 %C3%8Dslandi":MAILTO:unwomen@unwomen.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251203T110000
DTEND;TZID=UTC:20251203T110000
DTSTAMP:20260423T130448
CREATED:20251027T105114Z
LAST-MODIFIED:20251128T142916Z
UID:39369-1764759600-1764759600@www.obi.is
SUMMARY:Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2025
DESCRIPTION:HlustaVertu með þegar við afhendum Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka í ár! \nVerðlaunahátíðin hefst stundvíslega klukkan 11:00 þann 3. desember á Grand hóteli í Reykjavík. Á dagskrá er mikil gleði. \nTilnefnd eru: \n\nHákon Atli Bjarkason\nFyrir að vera frábær fyrirmynd og stuðla að inngildingu ungs fatlaðs íþróttafólks.\n\n\n\nListvinnzlan\nFyrir brautryðjendastarf á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fjölgun atvinnutækifæra.\n\n\n\nMagnús Orri Arnarson\nFyrir einstakt framlag á sviði vitundarvakningar\, kvikmyndagerðar og íþrótta.\n\n\n\nSigurður Hólmar Jóhannesson\nFyrir að lyfta grettistaki í málaflokki fatlaðra barna og barna með sjaldgæfa sjúkdóma.\n\nHvatningarverðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2007 en í fyrra voru það tvö leikverk sem mörkuðu tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi: Fúsi\, aldur og fyrri störf eftir Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson og Taktu flugið\, beibí eftir Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur sem urðu fyrir valinu og mörkuðu tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi. \nHvatningarverðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku\, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks. \n3. desember er einmitt alþjóðadagur fatlaðs fólks og auk þess að standa fyrir Hvatningarverðlaununum er ÖBÍ með átakið upplýst samfélag. Fólk um allt land er hvatt til þess að lýsa upp í fjólubláu\, einkennislit réttindabaráttu fatlaðs fólks.\nViðburðurinn verður táknmáls- og rittúlkaður.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/althjodadagur-fatlads-folks-hvatningarverdlaun/
LOCATION:Grand Hótel Reykjavík\, Sigtún 38\, Reykjavík\, 105
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/Hvatningarverdlaun-2023-FRONT-STREYMI.pptx-e1762350715667.png
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251203T200000
DTEND;TZID=UTC:20251203T200000
DTSTAMP:20260423T130448
CREATED:20251103T135325Z
LAST-MODIFIED:20251117T131223Z
UID:39550-1764792000-1764792000@www.obi.is
SUMMARY:ADHD og jólin
DESCRIPTION:Hlusta\nJólin eru æði! – eða hvað ?\n\nDr Drífa Björk Guðmundsdóttir\, sálfræðingur fjallar um\, hvernig ýmislegt í jólaundirbúningnum\, spenningnum sem fylgir jólunum og breyttri rútínu fjölskyldunnar í jólafríinu\, getur valdið streitu og erfiðleikum hjá börnum og fólki með ADHD og gefur góð ráð um hvernig hægt er að bregðast við.  Tilvalið fyrir alla sem eru með\, eiga eða kenna einstaklingum með ADHD.\n\nFræðslufundurinn verður í streymi 3. desember kl. 20:00 og er eingöngu aðgengilegur skuldlausu félagsfólki ADHD samtakanna á Facebook síðunni ADHD í beinni. Nánari upplýsingar:\nADHD og jólin | ADHD samtökin
URL:https://www.obi.is/vidburdir/adhd-og-jolin/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/ADHD-og-jolin-2025.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251204T093000
DTEND;TZID=UTC:20251204T110000
DTSTAMP:20260423T130448
CREATED:20251128T133609Z
LAST-MODIFIED:20251128T133824Z
UID:40251-1764840600-1764846000@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindabíó - Sigur fyrir sjálfsmyndina
DESCRIPTION:HlustaMagnús Orri Arnarson er tilnefndur til Hvatningarverðlaunanna 2025\, fyrir einstakt framlag á sviði vitundarvakningar\, kvikmyndagerðar og íþrótta. Myndin verður sýnd og Magnús Orri\, höfundur myndarinnar verður á staðnum til að segja frá gerð myndarinnar. \nSigur fyrir sjálfsmyndina – Ný íslensk heimildarmynd um íslensku keppendurna á Special Olympics \nMyndin greinir frá þátttöku fimm íslenskra íþróttamanna á Heimsleikum Special Olympics á Ítalíu fyrr á þessu ári. \nMyndin veitir innsýn inn í undirbúning\, keppnina sjálfa og þá mannúð og virðingu sem einkennir starf Special Olympics samtakanna. \nHöfundur myndarinnar\, Magnús Orri Arnarsson\, keppti sjálfur á leikunum í abu Dhabi árið 2019 og hefur síðan helgað sig kvikmyndagerð. Þetta er fyrsta heimildarmynd Magnúsar Orra. \nMyndin gefur góða innsýn í starf Special Olympics samtakanna sem stofnuð voru af Eunice Kennedy Shriver árið 1968 og eru í dag með um 6 milljónir iðkenda um allan heim. Starfið byggir á gildum mannúðar\, virðingar og jafnra tækifæra. Forsvarsmaður samtakanna í dag er Timothy Kennedy Shriver og Kennedy fjölskyldan er enn virkur bakhjarl í starfi samtakanna. \nÍþróttasamband fatlaðra hefur verið umsjónaraðili starfs Special Olympics á Íslandi frá árinu 1989. Yfir 600 íslenskir keppendur frá aðildarfélögum ÍF hafa fengið tækifæri til þátttöku á vetrar og sumarheimsleikum Special Olympics í fjölmörgum greinum. Ný tækifæri hafa opnast með breyttri skilgreiningu en í  upphafi var miðað við iðkendur með þroskahömlun eða „intellectual disability“. Í dag er viðmið „learning disability“  Sífellt aukin áhersla er á „unified“ þar sem ófatlaðir og fatlaðir æfa og keppa saman í einstaklings og liðagreinum. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindabio-sigur-fyrir-sjalfsmyndina/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/11/instgram-story-mynd-maggi.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251211T093000
DTEND;TZID=UTC:20251211T110000
DTSTAMP:20260423T130448
CREATED:20251209T090427Z
LAST-MODIFIED:20251209T143454Z
UID:40568-1765445400-1765450800@www.obi.is
SUMMARY:Jólabollinn & bókajól
DESCRIPTION:HlustaVið birtum upp skammdegið með notalegri samverustund þar sem ilmandi kakó\, jólakaffi og brakandi piparkökur bíða okkar. Við slökum á við kertaljós og njótum upplestrar þriggja höfunda sem lesa upp úr nýjum bókum sínum. Hlý og hátíðleg stund sem gleður í desembermyrkrinu. \nFríða Ísberg les brot úr bók sinni Huldukonan\, Ólafur Haukur Símonarson les úr bók Janne Teller Ekkert sem hann þýddi yfir á íslensku & Ísak Hilmarsson les upp úr nýrri bók sinni Fæðingarsögur feðra. \nHuldukonan \nKonurnar í Lohr fjölskyldunni skilja ekki að Sigvaldi þeirra\, með alla sína augljósu mannkosti\, hafi aldrei gengið út. Ennfremur fá þær ekki skilið þá fráleitu ákvörðun hans að gerast einsetumaður í eyðivík. Dag einn birtist Sigvaldi á dyraþrepi móður sinnar með mánaðargamla stúlku í fanginu og neitar að svara því hver sé móðir barnsins. \nEkkert \nÞað rennur uppp fyrir Pierre Anthon að ekki taki því að gera neitt\, af því að ekkert hafi þýðingu þegar allt komi til alls. Hann kemur sér fyrir uppi í tré og ögrar þaðan bekkjarsystkinum sínum. Þau reyna að sannfæra hann um tilgang lífsins með aðferðum sem fara að lokum út í öfgar. Verlaunabók sem gefin hefur verið út á 36 tunumálum. \nFæðingarsögur feðra \nFæðingarsögur feðra inniheldur sögur frá feðrum af fæðingum barna þeirra. Sögurnar í bókinni eru nafnlausar og skrifaðar af feðrunum sjálfum. Þær veita góða innsýn í upplifun og sjónarhorn feðra af meðgöngu\, fæðingu og fyrstu augnablikunum í lífi barna þeirra. Sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og koma frá feðrum á mismunandi aldri. Þær segja frá flestum tegundum fæðinga\, frá keisaraskurðum\, fæðingum í heimahúsi\, á sjúkrahúsi\, í sjúkrabíl\, á fæðingarheimilum og einnig erlendis. Með bókinni vilja höfundar opna á umræðuna um upplifun feðra af fæðingum og vekja athygli á hlutverki þeirra og þátttöku í barneignarferlinu. Eins er von um að bókin hvetji til umræðu um upplifun fólks af fæðingum barna sinna\, hvort sem er við hitt foreldri barnsins eða á milli kynslóða. \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jolabollinn-bokajol/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/jolakaffi.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251220T190000
DTEND;TZID=UTC:20251220T190000
DTSTAMP:20260423T130448
CREATED:20251208T110630Z
LAST-MODIFIED:20251211T161641Z
UID:40525-1766257200-1766257200@www.obi.is
SUMMARY:Jólatónleikar Hjálpræðishersins
DESCRIPTION:HlustaLaugardagskvöldið 20. desember klukkan 19:00 mun Hjálpræðisherinn blása til einstakra jólatónleika þar sem andi jólanna svífur yfir vötnum og fyllir salinn hlýju\, friði og eftirvæntingu. \nFrítt er inn en frjáls framlög eru vel þegin og mun allur ágóði renna í velferðarsjóð Hjálpræðishersins\, þar sem hver króna skilar sér beint til þeirra sem þurfa á stuðningi að halda á þessum viðkvæma tíma ársins. \nHúsbandið:\nGunnar Wincke á trommur\nBirgir Jóhann Birgisson á bassa\nÞórir Haraldsson á Hammond\nSiggi Ingimars á gítar\nLárus Óskar Sigmundsson\, píanóleikari og stjórnandi\nMeð þeim koma fram glæsilegir sólóistar:\nStefanía Svavarsdóttir\,\nGospelkór Hjálpræðishersins\nLárus Óskar Sigmundsson\,\nBenjamín Ásmundur Eriksson\,\nJohanna Tablante\,\nSiggi Ingimars og Rannvá Olsen. \nÞetta verður kvöld fullt af ljúfri tónlist og hjartnæmum stemmningum – tónleikar sem fanga jólaandann og færa hlýju inn í veturinn. \nKomdu og njóttu.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/jolatonleikar-hjalpraedishersins/
LOCATION:Hjálpræðisherinn\, Suðurlandsbraut 72\, Reykjavík
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/Hjalpraedisherinn-e1765469726118.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251221T130000
DTEND;TZID=UTC:20251221T150000
DTSTAMP:20260423T130448
CREATED:20251211T180216Z
LAST-MODIFIED:20251212T124711Z
UID:40689-1766322000-1766329200@www.obi.is
SUMMARY:Jólaföndursmiðja fyrir börnin í Norræna húsinu
DESCRIPTION:HlustaHyggestund – Notaleg jólaföndursmiðja fyrir börnin\nVelkomin í notalega föndursmiðju fyrir fjölskyldur af öllum toga\, þar sem gestum er boðið að búa til jólakort og gjafamiða í notalegum jólaanda 21. desember kl. 13 til 15. \nSmiðjan fer fram á Barnabókasafni Norræna hússins þar sem sýningin Lína\, lýðræðið og raddir barnanna! stendur yfir. \nBörnum er boðið að sækja innblástur í heim Línu til að skapa skemmtileg kort og gjafa merkimiða. Smiðjan er hluti af aðventudagskrá okkar\, aðgangur að og allt efni er ókeypis. \nOpnunartími og aðgengi\nBarnabókasafn Norræna hússins er öllum opið\, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Sjá nánar: Aðgengi | Norræna Húsið \n4. í aðventu: Hyggestund – Notaleg jólaföndursmiðja! | Norræna Húsið
URL:https://www.obi.is/vidburdir/hyggestund-notaleg-jolafondursmidja-fyrir-bornin-i-norraena-husinu/
LOCATION:Norræna húsið\, Sæmundargötu 11\, Reykjavík\, 102\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/Norraena-husid.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251221T193000
DTEND;TZID=UTC:20251221T200000
DTSTAMP:20260423T130448
CREATED:20251219T105411Z
LAST-MODIFIED:20251219T105431Z
UID:40864-1766345400-1766347200@www.obi.is
SUMMARY:Vetrarsólstöðuganga Píeta samtakanna
DESCRIPTION:HlustaVetrarsólstöðuganga Píeta samtakanna 21. desember 2025\nVetrarsólstöðugangan er innihaldsrík samverustund á dimmasta kvöldi ársins haldin í minningu þeirra sem látist hafa fyrir eigin hendi og hvatning til þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir um að gefast ekki upp heldur þiggja hjálp og velja lífið.\nHist er í húsnæði Kynnisferða við Klettagarða 12. sunnudaginn 21. desember. Húsið opnar kl. 19:00 og dagskrá hefst 19:30. Boðið er upp á tónlistaratriði og flutt verða stutt ávörp. Genginn er svo stuttur spölur að vitanum við Skarfaklett þar sem minningarstund verður haldin. Hægt verður að kaupa kerti til styrktar Píeta samtökunum og kveikja á þeim við vitann. Einnig skrifum við skilaboð um söknuð og ást á gula vegginn á vitanum og yfir jól og áramót munu kveðjurnar standa á veggnum undir blikkandi ljósi og minna hvern sem kemur á að ástin er eilíf.\nÖll eru velkomin.Ókeypis aðgangur.\n– Vöffluvagninn verður á staðnum með funheitt kaffi\, kakó og vöfflur til styrktar Píeta.– Kerti og varningur til styrktar Píeta.– Pennar til að skrifa minningarorð á vitann verða á staðnum.\n\n \nDagskrá:\n19:00 Hús opnar19:30 Stutt ávörp19:40 Sveinn Arnar Sæmundsson og Ásta Marý Stefánsdóttir taka lagið.19:45 Söngsveitin Fílharmónía syngur20:00 Gengið út að vita\, kveikt á kertum og minningarorð rituð á vitann.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/vetrarsolstoduganga-pieta-samtakanna/
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/598070486_1306780451487947_6394424935350224111_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR