BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÖBI - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://www.obi.is
X-WR-CALDESC:Events for ÖBI
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260112T093000
DTEND;TZID=UTC:20260112T110000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20260130T140551Z
LAST-MODIFIED:20260202T103256Z
UID:41956-1768210200-1768215600@www.obi.is
SUMMARY:Morgunbollinn - Listvinnzlan um menningu og mannréttindi
DESCRIPTION:HlustaListvinnzlan er vinnustaður þar sem list\, mannréttindi og sköpunarkraftur mætast. \nKynning um Listvinnzluna sem er  framsækið menningar-\, mannréttinda- og nýsköpunarverkefni sem skapar raunveruleg atvinnutækifæri fyrir fatlað listafólk og tryggir aðgang að faglegu vinnuumhverfi\, stuðningi og virkri þátttöku í íslensku menningarlífi. \nÁ viðburðinum segja Margrét M. Norðdahl\, stofnandi Listvinnzlunnar\, Elín Sigríður María Ólafsdóttir (ESMÓ) og Þórir Gunnarsson (Listapúkinn) frá því hvernig Listvinnzlan hefur þróast í lifandi vinnustað og listmiðstöð í hjarta Reykjavíkur. Þau fjalla um hvers vegna slíkur vettvangur er nauðsynlegur\, hvernig hann sameinar list\, menningu\, velferð og mannréttindi — og hvernig Listvinnzlan er skýr framkvæmd inngildingar og valdeflingar í verki. \nGestir fá innsýn í daglegt starf Listvinnzlunnar og Listsmiðjunnar: hvernig listafólk vinnur þar á eigin forsendum\, fær faglegan stuðning\, þróar sjálfstæðan listferil\, skapar sér tekjur og verður virkur þátttakandi í menningarlífi landsins. Rætt verður um réttindavinnu\, nýsköpun og samfélagsleg áhrif — og hvers vegna aðgangur að vinnu\, list og sköpun skiptir sköpum fyrir samfélagið allt. \nÁ meðan viðburðinum stendur verða verk eftir listafólk Listsmiðjunnar sýnd á veggjum og fá gestir þannig tækifæri til að kynnast fjölbreyttum röddum og sjónarhornum listafólks Listvinnzlunnar. \nListvinnzlan hlaut Múrbrjót Þroskahjálpar árið 2023 og var tilnefnd til Hvatningarverðlauna ÖBÍ réttindasamtaka árið 2025 fyrir brautryðjendastarf á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fjölgun atvinnutækifæra. \nViðburðurinn er fyrir öll sem hafa áhuga á listum\, mannréttindum\, inngildingu\, nýsköpun og samfélagslegri breytingu — og vilja heyra hvernig hægt er að byggja vinnustað þar sem öll tilheyra.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/morgunbollinn-listvinnzlan-um-menningu-og-mannrettindi/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/untitled-109-of-125.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260114T150000
DTEND;TZID=UTC:20260121T000000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20260112T142647Z
LAST-MODIFIED:20260319T143741Z
UID:41168-1768402800-1768953600@www.obi.is
SUMMARY:Námskeið og fyrirlestraröð Sjálfsbjargar
DESCRIPTION:HlustaSjálfsbjörg býður félagsfólki sínu á námskeið tengd andlegri líðan\, samskiptum\, næringu fyrir hreyfihamlaða og hreyfingu\, á fyrstu vikum og mánuðum ársins. \nFyrstu tveir fyrirlestrarnir eru á höndum Samskiptamiðstöðvarinnar og verða í janúar. Þar fjallar Íris Eik Ólafsdóttir félagsráðgjafi um samskipti í fjölskyldum eftir slys eða veikindi og svo samskipti í parasambandi. Fyrri fyrirlesturinn verður 14. janúar nk og hefst kl. 15.00. Sá seinni verður 21. janúar kl. 15.00. \nNauðsynlegt er að fólk skrái sig á fyrirlestrana með því að senda tölvupóst á info@sjalfsbjorg.is eða hringja í síma 550 0360. Vinsamlegast setjið hvaða Sjálfsbjargarfélagi þið tilheyrið í skráninguna. Viðkomandi fær sendan fundarhlekk. Fyrirlestrarnir eru félagsfólki að kostnaðarlausu. \n14. janúar kl. 15 Fyrirlestur fyrir fjölskyldur eftir slys eða veikindi \nÞegar einstaklingur lendir í slysi eða alvarlegum veikindum hefur það áhrif á alla fjölskylduna. Slík reynsla er áfall bæði fyrir þann sem veikist eða slasast og aðstandendur\, og raskað jafnvægi\, hlutverkum og samskiptum innan fjölskyldunnar. Fjallað verður um hvernig áföll birtast hjá fjölskyldum og hvernig streita\, sorg\, óvissa og ótti geta haft áhrif á tilfinningar\, hegðun og tengsl. Lögð er áhersla á fjölskylduna sem heild\, þar sem breytingar hjá einum fjölskyldumeðlim hefur áhrif á alla. Rætt verður um mikilvægi tengsla\, samskipta og samstöðu\, sem og hvernig hægt er að styrkja seiglu\, sjálfsumhyggju og gagnkvæman stuðning. Markmið námskeiðsins er að auka skilning\, veita hagnýt verkfæri og styðja við heilbrigð samskipti og bataferli fjölskyldunnar í heild. \n21. janúar kl 15 Fyrirlestur fyrir pör eftir slys eða veikindi \nÞegar afleiðingar slyss eða veikindi verða hluti af lífi pars hefur það áhrif á sambandið í heild. Slík reynsla hefur áhrif á tilfinningar\, samskipti\, nánd og hlutverk innan sambandsins. Fjallað verður um algeng viðbrögð einstaklinga í parsambandi við áföllum\, hvernig ótti\, sorg\, reiði eða fjarlægð geta komið fram og hvers vegna slík viðbrögð eru eðlileg í ljósi aðstæðna. Lögð er áhersla á sambandið sem síbreytilegt ferli þar sem áfallið snertir báða aðila\, þó á ólíkan hátt. Rætt verður um mikilvægi öruggra tengsla\, opins samtals og gagnkvæms skilnings\, sem og hvernig hægt er að styrkja seiglu\, nánd og samvinnu í kjölfar áfalls. Markmið námskeiðsins er að styðja pör í að takast á við breyttar aðstæður\, efla tengsl og finna leiðir áfram saman. Mælt er með því að par hlusti saman á fyrirlesturinn og ræði um efni hans eftir á með það i huga hvaða verkfæri þau gætu hugsað sér að nýta. \nÍ febrúar verður námskeið um næringu hreyfihamlaðra og í mars fyrirlestrar um hreyfingu og sárameðferðir. \n» Námskeið og fyrirlestraröð í upphafi árs
URL:https://www.obi.is/vidburdir/namskeid-og-fyrirlestrarod-sjalfsbjargar/
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/Sjalfsbjorg-2026-paranamskeid.max-1132x760-1.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260115T093000
DTEND;TZID=UTC:20260115T110000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20251218T102903Z
LAST-MODIFIED:20251219T105645Z
UID:40842-1768469400-1768474800@www.obi.is
SUMMARY:Auðlesið mál & mannréttindi
DESCRIPTION:HlustaSnorri Rafn Hallsson verkefnastjóri segir frá Miðstöð um auðlesið mál.\nVið eigum öll rétt á upplýsingum á máli sem við skiljum. Aðeins þannig getum við notið réttinda okkar\, nýtt tækifæri og tekið þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Auðlesið mál er aðgengistæki sem ryður burt þeim hindrunum sem felast í tungumálinu.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/audlesid-mal-mannrettindi/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/audlesid.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260116T160000
DTEND;TZID=UTC:20260116T170000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20251211T174311Z
LAST-MODIFIED:20251211T181116Z
UID:40686-1768579200-1768582800@www.obi.is
SUMMARY:Framkvæmdaráðsfundur
DESCRIPTION:HlustaFyrsti fundur framkvæmdaráðs ÖBÍ réttindasamtaka á nýju ári 2026
URL:https://www.obi.is/vidburdir/framkvaemdaradsfundur/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/2024-10-05-Adalfundur-OBI-133920-18.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260121T130000
DTEND;TZID=UTC:20260121T140000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20251211T155200Z
LAST-MODIFIED:20260113T160023Z
UID:40670-1769000400-1769004000@www.obi.is
SUMMARY:Samráðsfundur Mannréttindahússins
DESCRIPTION:HlustaFélagar úr Mannréttindahúsinu koma saman og ræða stefnu hússins og stöðu mála.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/samradsfundur-mannrettindahussins/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/01/Sigtun-Mottaka-Inngangur-inni-Agusta-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260121T160000
DTEND;TZID=UTC:20260121T190000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20251218T101322Z
LAST-MODIFIED:20260202T103500Z
UID:40837-1769011200-1769022000@www.obi.is
SUMMARY:Fræðsluröð ÖBÍ - Fjáröflun og markaðsmál almannaheillafélaga
DESCRIPTION:HlustaFyrsta námskeið vorsins í Fræðsluröð ÖBÍ; Fjáröflun og markaðsmál almannaheillafélaga.Á námskeiðinu verður fjallað um helstu áskoranir og tækifæri í fjáröflun og markaðsmálum almannaheillafélaga. Rýnt verður í hugmyndir og leiðir til að auka sýnileika\, rækta tengsl og sjálfbærni starfseminnar. Viðburðurinn hentar öllum sem koma að rekstri\, markaðs- eða fjáröflunarstarfi almannaheillafélaga. \nNámskeiðið verður haldið hér í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42\, 21. janúar kl. 16:00-19:00. \nKostnað af námskeiðahaldinu ber ÖBÍ. Boðið er upp á táknmáls- og rittúlkun. \nLeiðbeinendur: \nAndri Árnason – framkvæmdastjóri Takk sem hefur sérhæft sig í styrktarsamfélögum\, markaðsetningu og þjónustu við almannaheillafélög.\n\nKristín Jezorski – markaðsstjóri hjá Takk sem hefur unnið að mörgum stórum herferðum tengdum vitundarvakningu og fjáröflun fyrir almannaheillafélög.\n\nFlóki Guðmundsson – sérfræðingur í fjáröflun og viðskiptatengslum hjá Takk. Hann hefur stuðlað að vexti góðgerðarfélaga á Íslandi í yfir 10 ár og er vottaður sérfræðingur í verkefnastjórnun.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/fjaroflun-og-markadsmal-almannaheillafelaga/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/12/Untitled-design-6.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260122T093000
DTEND;TZID=UTC:20260122T110000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20260121T114814Z
LAST-MODIFIED:20260121T115027Z
UID:41527-1769074200-1769079600@www.obi.is
SUMMARY:Morgunbollinn fræðsla: Hreyfing þegar þú hefur lítinn tíma.
DESCRIPTION:HlustaHeitt á könnunni og léttar veitingar frá 9:30 fræðslan hefst kl. 10:00. \n  \nHreyfing þegar þú hefur lítinn tíma – fræðsluviðburður \nByrjum nýtt ár með krafti! Hvernig er hægt að koma hreyfingu inn í daglegt líf þegar tíminn er naumur? Á þessum fræðsluviðburði verður fjallað um einfaldar\, raunhæfar og árangursríkar leiðir til að auka hreyfingu án þess að það krefjist mikils tíma\, búnaðar eða undirbúnings. \n  \nViðburðurinn leggur áherslu á mikilvægi reglulegrar hreyfingar fyrir heilsu\, líðan og hamingju og sýnir hvernig smáar breytingar í daglegu lífi geta skilað miklum ávinningi. Farið verður yfir fjölbreyttar hugmyndir að hreyfingu sem auðvelt er að flétta inn í vinnudag og heimilislíf\, svo sem stuttar styrktaræfingar\, virkar pásur\, daglega hreyfingu og einfaldar leiðir til að vera meira á ferðinni án þess að fórna tíma. \nJafnframt verður Lífshlaupið kynnt\, farið yfir hvernig það virkar og hvernig þátttaka getur orðið hvetjandi og skemmtileg leið til að auka hreyfingu\, bæði einstaklingslega og í hópi. \n  \nLeiðbeinendur: \nLinda Laufdal – verkefnastjóri Lífshlaupsins og sérfræðingur á Fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ. \nHansína Þóra Gunnarsdóttir – starfsmaður Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ\, með víðamikla reynslu af kennslu og þjálfun ýmissa íþróttagreina og hópa í um 30 ár.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/morgunbollinn-hreyfing-i-timathrong/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/39c2bab1-30ac-4b1d-b487-e41c38978f37-1092x614-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260122T160000
DTEND;TZID=UTC:20260122T183000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20251211T162940Z
LAST-MODIFIED:20251212T132715Z
UID:40683-1769097600-1769106600@www.obi.is
SUMMARY:Stjórnarfundur
DESCRIPTION:HlustaFyrsti fundur stjórnar ÖBÍ réttindasamtaka á nýju ári 2026 er 22. janúar.
URL:https://www.obi.is/vidburdir/stjornarfundur-8/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2025/10/097A1626-Edit.jpg
ORGANIZER;CN="%C3%96B%C3%8D r%C3%A9ttindasamt%C3%B6k":MAILTO:obi@obi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260126T163000
DTEND;TZID=UTC:20260126T173000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20260107T104739Z
LAST-MODIFIED:20260107T104739Z
UID:41091-1769445000-1769448600@www.obi.is
SUMMARY:Komdu að syngja!
DESCRIPTION:HlustaGítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja! \nEngrar söngkunnáttu krafist\, öll syngja með sínu nefi. Það er allt í lagi þó að þú kunnir ekki textann\, hann verður á skjá svo söngurinn verður leikur einn. \nKomdu að syngja er á dagskrá einu sinni í mánuði fram á vor á Borgarbókasafninu Spönginni og Borgarbókasafninu Árbæ. Öll hjartanlega velkomin! \n» Komdu að syngja! | Borgarbókasafnið
URL:https://www.obi.is/vidburdir/komdu-ad-syngja/
LOCATION:Borgarbókasafnið – Árbæ\, Hraunbæ 119\, Reykjavík\, 110\, Iceland
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/valligitarbaekur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260129T093000
DTEND;TZID=UTC:20260129T110000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20260113T114428Z
LAST-MODIFIED:20260202T103424Z
UID:41174-1769679000-1769684400@www.obi.is
SUMMARY:Mannréttindamorgunn - Hatur og mannréttindi
DESCRIPTION:HlustaIngileif Friðriksdóttir hefur á undanförnum árum látið að sér kveða í umræðu um mannréttindi í íslensku samfélagi. \nHún var framleiðandi sjónvarpsþáttarins HATUR sem sýndur var á RÚV síðastliðið haust\, þar sem kastljósinu var beint að hatursorðræðu\, afleiðingum hennar og því hvernig samfélög bregðast við þegar mörk eru þanin – eða brotin. \nÁ viðburðinum mun Ingileif fjalla um mannréttindamál\, hatursorðræðu og mikilvægi þess að standa vörð um frelsi\, mannlega reisn og ábyrgð í opinberri umræðu. \nIngileif starfar sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra og er stofnandi fræðsluvettvangsins Hinseginleikans auk þess að vera rithöfundur. \n  \nMannréttindahúsið\, Sigtún 42\, 1. hæð
URL:https://www.obi.is/vidburdir/mannrettindamorgunn-hatur-og-mannrettindi/
CATEGORIES:Á döfinni,Mannréttindahúsið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/Untitled-Instagram-Post-45.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260129T160000
DTEND;TZID=UTC:20260129T190000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20251217T152157Z
LAST-MODIFIED:20260126T114139Z
UID:40817-1769702400-1769713200@www.obi.is
SUMMARY:Formannafundur ÖBÍ réttindasamtaka
DESCRIPTION:Hlusta
URL:https://www.obi.is/vidburdir/formannafundur-obi-rettindasamtaka-4/
LOCATION:Mannréttindahúsið\, Sigtún 42\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Á döfinni
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/10/Mannrettindahusid-Ruth.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260130T080000
DTEND;TZID=UTC:20260131T173000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20260123T132513Z
LAST-MODIFIED:20260123T134433Z
UID:41609-1769760000-1769880600@www.obi.is
SUMMARY:Masterclass Gulleggsins
DESCRIPTION:HlustaKraumar í þér nýsköpunarhugmynd? Eða hefur þú áhuga á nýsköpun og langar að kynnast frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi? Þá er Masterclass Gulleggsins fyrir þig! \n\nMasterclass Gulleggsins er ókeypis námskeið í nýsköpun og stofnun fyrirtækja! \nHægt er að skrá sig í Masterclass bæði með eða án hugmyndar.\n\nHér ætlum við að mastera það að umbreyta hugmynd í viðskiptatækifæri. Reynsluboltar og neglur úr atvinnulífinu hjálpa þér að koma hugmyndinni þinni á næsta level! Markmiðið með Masterclass er að aðstoða þig við að útbúa 10 glæru kynningu og einnar mínútna myndband um hugmyndina þína\, sem er akkúrat það sem þarf til að skila inn umsókn í Lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í febrúar. \nKraumar í þér nýsköpunarhugmynd? Eða hefur þú áhuga á nýsköpun og langar að kynnast frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi? Þá er Masterclass Gulleggsins fyrir þig! \nDagskrá og nánari upplýsingar\n» Masterclass Gulleggsins 2026 — Klak » Masterclass | Gulleggið \nSkráning\nSkráningarfrestur er til miðnættis 29. janúar » Skráning – Gulleggið 2026 | YouNoodle \n 
URL:https://www.obi.is/vidburdir/masterclass-gulleggsins-2026/
LOCATION:Gróska\, Bjargargötu 1\, Reykjavík\, 102
CATEGORIES:Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/Groska-HI-b.avif
ORGANIZER;CN="KLAK Icelandic Startups":MAILTO:hello@klak.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260130T090000
DTEND;TZID=UTC:20260130T130000
DTSTAMP:20260501T225407
CREATED:20260127T132359Z
LAST-MODIFIED:20260127T132437Z
UID:41793-1769763600-1769778000@www.obi.is
SUMMARY:Málþing Allir með - Ferðin hingað og ferðalagið framundan
DESCRIPTION:HlustaHvernig tryggjum við að öll börn hafi raunverulegan aðgang að íþróttum?\nHvað hefur áunnist síðustu ár og hvert ætlum við næst?\n\nAllir með verkefnið mun halda málþing þar sem við lítum yfir vegferð verkefnisins\, deilum reynslu af vettvangi og ræðum lausnir og næstu skref í átt að íþróttastarfi fyrir öll börn.\nÁ málþinginu verður fjallað um stöðu fatlaðra barna í íþróttum í dag\, rannsókn um þátttöku\, reynslu barna\, foreldra og íþróttafélaga sem og þau verkefni og samstarf sem þegar eru í gangi. Við munum ræða hvernig ná megi betur til foreldra\, styrkja íþróttafélög og þjálfara ásamt því að skoða úrræði og lausnir sem eru til staðar.\nÖllum er velkomið að koma og taka þátt í deginum með okkur og leggja sitt af mörkum til að allir fái að vera með.Við óskum eftir að fólk skrái sig á málþingið með því að fylla í formið hér: https://forms.gle/mVYx3A8CtPHFy2Us7\n\nDagsetning: 30. janúar\, 2026Staðsetning: Minigarðurinn\, Skútuvogur 2\, 104 Reykjavík\nMálþingið mun byrja kl. 09:00 og lýkur kl. 13:00
URL:https://www.obi.is/vidburdir/malthing-allir-med-ferdin-hingad-og-ferdalagid-framundan/
CATEGORIES:Á döfinni,Aðildarfélög
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.obi.is/wp-content/uploads/2026/01/615440712_1301777575317670_5617743479271974637_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR