Hringsjá

Hringsjá - náms- og starfsendurhæfing, Hátúni 10d.

Með því að smella á heiti stofnunarinnar hér fyrir neðan, má komast beint á heimasíðu hennar.

Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla.

Lög 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir

Lög nr. 100/2007 um almannatryggingar

Lög nr. 59/1992 um málefni fatlaðra

Markmið og stefna

Markmið Hringsjár er að veita náms- og starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla þurfa á endurhæfingu að halda til að takast á við nám og/eða að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði. Námið hentar einnig þeim sem hafa litla grunnmenntun eða sértæka námserfiðleika.

Endurhæfingin felst í einstaklingsmiðuðu námi í formi styttri námskeiða eða fullu einingarbæru námi með sérhæfðri ráðgjöf og stuðningi.

Námið miðast við að:

  • leggja eða endurnýja almennan þekkingargrunn einstaklinga
  • undirbúa einstaklinga fyrir almenn skrifstofu- og þjónustustörf
  • efla persónulega færni einstaklinga
  • efla félagslega færni einstaklinga
  • auka samfélagslega þátttöku einstaklinga
  • auka lífsgæði einstaklinga og fjölskyldna þeirra

Sérstaða

Sérstaða Hringsjár felst m.a. í því að um er að ræða einstaklingsmiðað nám. Samhliða kennslu býðst notanda þjónustunnar að nýta sér sérfræðilega ráðgjöf og í ákveðnum tilvikum er um að ræða einstaklingsmiðaða einkakennslu.

Stjórn Hringsjár

Öryrkjabandalagið skipar í stjórn Hringsjár, sem fundar að jafnaði mánaðarlega.

Stjórnin er þannig skipuð:

Þóra Þórarinsdóttir, formaður tora (hjá) styrktarfelag.is

Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, meðstjórnandi gvs(hjá)khi.is

Sveinn Magnússon, varamaður sveinn(hjá)gedhjalp.is

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.