

Ár hvert höldum við upp á alþjóðlegan dag fatlaðs fólks, 3. desember, með því að viðurkenna góð verk. Verk sem meðal annars vinna gegn fordómum og stuðla að þátttöku allra.
Markmiðið er alltaf líf til jafns við aðra.
Hvatningarverðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks.
Forseti Íslands er verndari verðlaunanna.
Þann 5. nóvember síðastliðinn var síðasti dagurinn sem hægt var að tilnefna til Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2023.
Hringt verður í þau sem tilnefnd eru fyrir lok nóvembermánaðar.
Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2023 verða veitt sunnudaginn 3. desember næstkomandi.
Nánari upplýsingar munu birtast á þessari síðu þegar nær dregur.