Skip to main content

Saga ÖBÍ

Öryrkjabandalag Íslands var stofnað, þann 5. maí 1961. Á þeim rúmu sextíu árum sem liðin eru hafa þúsundir einstaklinga komið að baráttunni fyrir mannréttindum og viðurkenningunni á því að við erum og verðum allskonar.

Eitt samfélag fyrir alla - Saga ÖBÍ

Heimildarmynd

Árið 2011 þegar 50 ár voru liðin frá stofnun Öryrkjabandalags Íslands var gerð heimildarmynd um sögu þess. Í myndinni er stiklað á stóru í viðburðaríkri sögu bandalagsins með frásögnum fjölda fólks sem lagt hefur baráttunni lið frá upphafi.

Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson. Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir ÖBÍ. Myndin var gefin út í táknmálsútgáfu, með íslenskum texta, án tónlistar og með enskum texta (english subtitle).

Bók um sögu ÖBÍ

Í Sögu Öryrkjabandalags Íslands 1961 – 2011, Eitt samfélag fyrir alla, er greint frá þróun og uppbyggingu bandalagsins í hálfa öld og öllu því fjölbreytta starfi sem bandalagið hefur staðið að í samvinnu við aðildarfélögin. Í máli og myndum greinir höfundurinn, Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðingur, frá þrotlausri baráttu fatlaðs fólks, starfsfólks bandalagsins og annarra velunnara fatlaðra fyrir bættum kjörum og auknum möguleikum til þátttöku í samfélaginu.

Bókina er hægt að nálgast á því formi sem hentar best á skrifstofu ÖBÍ, Sigtúni 42; harðspjaldabók, stafrænan texta án myndefnis og PDF. Pantanir sendist á netfangið obi@obi.is eða í síma 530-6700

Fréttarit ÖBÍ 1988-2018

Menning og saga ÖBÍ er einnig varðveitt á Landsbókasafni –  Háskólabókasafni. Hér er átt við öll útgefin frétta- og tímarit bandalagsins á þrjátíu ára tímabili. Öll tölublöðin eru aðgengileg á timarit.is. Sjá hér: Fréttabréf Öryrkjabandalagsins (1988- 2001) og Tímarit ÖBÍ (2002-2018)

Fréttabréf ÖBÍ
1988-2001

Tímarit ÖBÍ
2002-2018

Fyrsta stjórn ÖBÍ

Myndatexti: Fyrsta stjórn Öryrkjabandalags Íslands og framkvæmdastjóri bandalagsins árið 1961. Frá vinstri: Andrés Gestsson, Blindrafélagið, Einar Eysteinsson, Blindravinafélagið, Sveinbjörn Finnsson, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Oddur Ólafsson, formaður SÍBS og fyrsti formaður ÖBÍ, Sigríður Ingimarsdóttir, Styrktarfélag vangefinna, Zophanías Benediktsson, Sjálfsbjörg, Guðmundur Löve, fyrsti framkvæmdastjóri ÖBÍ.

Vörðurnar

Bandalagið hefur verið stefnumótandi í réttindamálum fatlaðs fólks og frumkvöðull innan málaflokksins í áratugi. Margt hefur gerst á langri leið og sigrar unnist. Kíktu á það helsta hér.

Formenn ÖBÍ frá árinu 1961

2023 -
Alma Ýr Ingólfsdóttir
2017 - 2023
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
2013 - 2017
Ellen Calmon
2009 - 2013
Guðmundur Magnússon
2008 - 2009
Halldór Sævar Guðbergsson
2005 - 2008
Sigursteinn R. Másson
1999 - 2005
Garðar Sverrisson
1997 - 1999
Haukur Þórðarson
1993 - 1997
Ólöf Ríkarðsdóttir
1986 - 1993
Arnþór Helgason
1983 - 1986
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson
1979 - 1981
Jóna Sveinsdóttir
1977 - 1979
Hannes Helgason
1975 - 1977
Vigfús Gunnarsson
1973 - 1975
Ólöf Ríkarðsdóttir
1971 - 1973
Sigríður Ingimarsdóttir
1969 - 1971
Andrés Gestsson
1967 - 1969
Kristinn Björnsson
1981 - 1983
Arinbjörn Kolbeinsson
1961 - 1967
Oddur Ólafsson