FréttHvatningarverðlaun

Opið fyrir tilnefningar til Hvatningarverðlauna ÖBÍ

By 28. september 2026No Comments
Alma Ýr Ingólfsdóttir, Magnús Orri Arnarson og Halla Tómasdóttir.

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Hvatningarverðlauna ÖBÍ réttindasamtaka. Frestur til að senda inn tilnefningar rennur úr 18. október og hvetjum við ykkur öll til að benda á hvern þann einstakling, hóp eða verkefni sem ykkur finnst hafa stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks.

Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 3. desember næstkomandi.

Magnús Orri Arnarson er handhafi Hvatningarverðlauna ÖBÍ réttindasamtaka árið 2025 fyrir heimildarmyndina Sigur fyrir sjálfsmyndina þar sem keppendum á heimsleikum Special Olympics er fylgt eftir.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti honum verðlaunin við hátíðlega athöfn á Hótel Reykjavík Grand.

Tilnefndu hér:

Tilnefning til Hvatningarverðlauna