Hjálpartæki
Hjálpartæki og annar hjálparbúnaður
Samkvæmt lögum um almannatryggingar annast Tryggingastofnun ríkisins (TR) afgreiðslu á hjálpartækjum. Hjálpartækjamiðstöð TR sér um þessa afgreiðslu ásamt því að veita ráðgjöf við val hjálpartækja. Það skal gert á þann hátt að gætt sé hagsmuna viðskiptavina, starfsmanna og ríkisins. Athugið að við kaup á hjálpartæki skal ávallt liggja fyrir heimild frá Tryggingastofnun ef krafist er greiðsluþátttöku almannatrygginga
Hvernig á að sækja um hjálpartæki? (tengill á heimasíðu Tryggingarstofnunar)
Hvaða tæki eru niðurgreidd? - Í reglugerð 460/2003 um styrki Tryggingastofnunar ríkisins vegna hjálpartækja, er talin upp sá búnaður og tæki sem er niðurgreiddur að hluta eða öllu leiti.
Hvaða skyldur hvíla á samningsbundnum söluaðilum hjálpartækja. (ítarlegar upplýsingar inn á heimasíðu Hjálpartækjamiðstöðvar)
Hjálpartækjamiðstöð TR
Hjálpartæki fást einnig hjá einkafirirtækjum en ekki er víst að í öllum tilfellum sé í gangi samningur milli Hjálpartækjamiðstöðvar TR og þess fyrirtækis. Niðurgreiðsla er því lægri og jafnvel engin af tækjum og búnaði. Vert er að kanna þessi mál vel áður en búnaður er valinn. Því ávallt þarf að liggja fyrir heimild Tryggingarstofnunar ef óskað er eftir greiðsluþáttöku.
Sjónmiðstöð Íslands - þjónustu- og endurhæfingarstöð blindra og sjónskertra
Heyrnar - og talmeinastöð Íslands (HTÍ) - miðstöð þekkingar í heyrnar- og talmeinum á Íslandi. Þjónar þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með talmein.
Hér eru tengingar inn á heimasíður nokkurra aðila sem bjóða upp á sérbúnað fyrir fatlaða.
A.Karlsson hf - Eirberg ehf - Inter ehf - Stoð ehf - Stoðtækni ehf - Svefn og heilsa ehf - Össur hf - Örtækni (tölvubún fyrir blinda)

