Tilnefningar
Tilnefningar til Hvatningarverðlauna ÖBÍ
Hvatningarverðlaun ÖBÍ eru veitt í þrem flokkum fyrir einstakling, fyrirtæki og stofnun.
Tilnefningar fyrir árið 2009
Í ár bárust nokkuð fleiri tilnefningar en verið hefur, sérstaklega í flokki einstaklinga. Undirbúningsnefnd Hvatningarverðlaunanna hefur nú valið þrjá tilnefningar í hverjum flokk og skilað af sér til dómnefndar sem velur verðlaunahafan. Verðlaunaafhendingin fer fram við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi þann 3. desember nk. á alþjóðadegi fatlaðra. Eftirtaldir eru tilnefndir:
Í flokki einstaklinga
- Edda Heiðrún Backman, fyrir mikinn styrk, kjark og áræðni í að bæta aðstöðu sjúkra og fatlaðra, m.a. með söfnunarátakinu „Á rás fyrir Grensás“.
- Margrét Dagmar Ericsdóttir, fyrir frumkvöðlastarf í innleiðslu kennsluaðferða fyrir einhverfa og framleiðslu heimildamyndarinnar Sólskinsdrengurinn.
- Þröstur Guðjónsson, fyrir frumkvöðlastarf sitt í að útbreiða skíðaiðkun meðal fatlaðra.
Í flokki fyrirtækja
- Dagvist og endurhæfing MS, fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu skjólstæðinga sinna.
- Reykjalundur – endurhæfingarsvið, fyrir uppbyggingu endurhæfingar fyrir fatlaða svo að þeir öðlist getu til þátttöku í þjóðfélaginu á ný.
- SÍBS – Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, fyrir fyrirmyndaraðgengi við SÍBS-húsið, Síðumúla 6.
Í flokki stofnana
- Fjölbrautaskólinn við Ármúla – sérnámsbraut, fyrir metnað og alúð við að byggja upp sérnámsbraut fyrir alvarlega fötluð ungmenni á framhaldsskólaaldri.
- Hitt húsið, fyrir fjölbreytt og vandað starf fyrir ungt fólk með fötlun.
- Öskjuhlíðarskóli, fyrir að gera nemendur hæfa til þátttöku í samfélaginu á sem flestum sviðum eftir því sem geta þeirra leyfir.
Árið 2008
Undirbúningsnefnd ákvað að velja þrjár tilnefningar úr hverjum flokki sems érstök dómnefnd tók endanlega afstöðu til.
Í flokki einstaklinga
- Adolf Ingi Erlingsson, fyrir ötult starf í að auka umfjöllun um íþróttir fatlaðra.
- Guðjón Sigurðsson, fyrir sýnileika, dugnað og árangur í málefnum fatlaðra.
- Elín Ebba Ásmundsdóttir og Auður Axelsdóttir, fyrir frumkvöðlastarf þeirra við uppbyggingu sjálfshjálpar geðfatlaðra, stofnun Hugarafls og A/E Starfsendurhæfingar.
Í flokki fyrirtækja
- Kaffitár, fyrir 1. flokks aðgengi í verslun sinni, Borgartúni 10.
- Kompás, fyrir vandaða umfjöllun um málefni fatlaðra sem hefur styrkt baráttu þeirra.
- Tónstofa Valgerðar, fyrir frumkvöðlastarf í þá veru að nemendur með sérþarfir njóti forgangs til tónlistarnáms.
Í flokki stofnana
- Akureyrarbær – búsetudeild, fyrir frumkvöðlastarf í útfærslu á “Independent living”, notendastýrðri þjónustu fyrir fatlaða.
- Menntaskólinn á Egilstöðum, fyrir vandaða uppbyggingu á sértæku og einstaklingsmiðuðu námi.
- Tryggingastofnun ríkisins, fyrir gott rafrænt aðgengi einstaklinga að upplýsingum, á Trygg – þjónustuvef.
Árið 2007
Undirbúningsnefnd ákvað að tilnefningar í hverjum flokki yrðu sex. Þær voru eftirtaldar:
Stofnanir
- Heilsugæsla Garðabæjar, Glæsibæjar og Sala fyrir frumkvöðlastarf í þróun heildstæðs starfsendurhæfingarverkefnis.
- ÍTR fyrir verkefni Hins hússins í starfi með fötluðum á jafningjagrunni og fyrir verkefni Vinnuskólans í unglingastarfi með heyrnarlausum.
- KHÍ fyrir frumkvöðlastarf að diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun.
- Orkuveita Reykjavíkur fyrir jákvæð viðhorf til einstaklinga sem veikjast og þarfnast sveigjanleika í starfi.
- Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - starfsbraut, fyrir öflugt starf kennara starfsbrautar með fötluðum nemendum þar sem áhersla er lögð á þátttöku og hreyfingu.
- Starfsendurhæfing Norðurlands fyrir uppbyggingu starfsendurhæfingar sem byggir á samstarfi ólíkra starfsstétta og öflugu samfélagslegu tengslaneti.
Fyrirtæki:
- Kastljós fyrir vandaða og ábyrga umfjöllun um málefni fatlaðra.
- Krónan fyrir áherslu á bætt aðgengi fyrir fatlaða í verslunum sínum að Fiskislóð, Bíldshöfða og Háholti.
- Landsbanki Íslands fyrir verkefnið Leggðu góðu málefni lið.
- Línuhönnun fyrir metnað í að koma til móts við þarfir fatlaðra starfsmanna á vinnustað.
- Móðir náttúra fyrir verkefnið Allt að vinna, sem er mikilsvert starf til aukinnar atvinnuþátttöku fatlaðra.
- Tryggingamiðstöðin fyrir vefsíðu, sem er afar aðgengileg fötluðum, og fyrsti vefur á Íslandi með vottun þriðja stigs aðgengis.
Einstaklingar:
- Edda Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur fyrir vandaða vinnu og mikla reynslu við umönnum og aðstoð við stómaþega.
- Elín Ebba Ásmundsdóttir og Auður Axelsdóttir fyrir frumkvöðlastörf að málefnum geðfatlaðra.
- Guðjón Sigurðsson fyrir starf sitt og Evalds Krogs í að breyta afstöðu Íslendinga til möguleika fatlaðra til sjálfstæðs lífs.
- Freyja Haraldsdóttir, fyrir áhrif sín í að breyta viðhorfi fólks til fatlaðra og fyrir að vera frumkvöðull í að koma á fót notendastýrðri þjónustu.
- Sif Vígþórsdóttir fyrir frumkvöðlastarf í uppbyggingu einstaklingsmiðaðs náms í Norðlingaskóla.
- Þór Ingi Daníelsson fyrir tengslanetið Miðgarður, vefsíðu fyrir fólk með þroskahömlun, þar sem færi gefst á að kynnast öðrum og starfa í öðru landi.

