Lög

Lög Öryrkjabandalags Íslands

Nafn

1. grein

Nafn bandalagsins er ÖRYRKJABANDALAG ÍSLANDS, heildarsamtök fatlaðra, skammstafað ÖBÍ. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

Tilgangur

2. grein

Tilgangur bandalagsins er:

  • að koma fram fyrir hönd fatlaðra gagnvart opinberum aðilum í hverskyns hagsmunamálum svo sem varðandi löggjöf og framkvæmd hennar og í dómsmálum er snerta rétt fatlaðra.
  • að starfrækja upplýsinga- og ráðgjafamiðstöð fyrir fatlaða og aðildarfélög ÖBÍ. Stuðla að stofnun félaga um allt land og efla tengsl þeirra á milli.
  • að hafa samstarf við eða eiga aðild að fyrirtækjum sem stuðla að velferð fatlaðra
  • að stuðla að auknum atvinnutækifærum fatlaðra og virkni þeirra í samfélaginu.
  • að annast samstarf og tengsl við félagasamtök erlendis, er vinna á líkum grundvelli og hagnýta reynslu þeirra í þágu bandalagsins.
  • að vinna að öðrum sameiginlegum málefnum fatlaða.

Aðild, úrsögn og brottvikning

3. grein

A. Umsókn um aðild: Í bandalagið geta gengið félagasamtök, sem starfa á landsgrundvelli og hafa það sem aðalverkefni að vinna að málefnum fatlaðra. Hvert félag innan bandalagsins starfar algjörlega sjálfstætt. Umsóknina skal senda bandalaginu þremur vikum fyrir aðalfund, sem tekur hana til afgreiðslu. Með umsókninni skulu fylgja endurskoðaðir ársreikningar næsta árs á undan og félagaskrá. Í lögum félaganna sem að bandalaginu standa, skal taka skýrt fram tilgang þeirra og hverjir njóti þar réttinda. Félögunum ber að senda bandalaginu skýrslu árlega, ásamt endurskoðuðum reikningum og félagaskrá.

B. Úrsögn: Aðildarfélag getur sagt sig úr bandalaginu.

C. Brottvikning: Aðalfundur getur vikið aðildarfélagi úr Öryrkjabandalagi Íslands vinni það gegn hagsmunum bandalagsins eða gegni ekki þeim skyldum er því ber samkvæmt lögum og samþykktum félagsins eða bandalagsins. Samþykki 2/3 hluta fundarmanna þarf til brottvikningar.

Aðalfundur

4. grein

A. - Aðalfundur bandalagsins fer með æðstu völd í málefnum þess. Á aðalfundi eiga rétt til setu fulltrúar tilnefndir af hverju aðildarfélagi bandalagsins. Fjöldi fulltrúa hvers aðildarfélags ræðst af eftirfarandi:

1. Félög með < = 100 fullgilda félaga fá 2 fulltrúa.

2. Félög með 101-1000 fullgilda félaga fá 3 fulltrúa.

3. Félög með fleiri en 1000 fullgilda félaga fá 3 fulltrúa og svo 1 fulltrúa fyrir hvert byrjað þúsund. Þó aldrei fleiri en 6 fulltrúa.

Þremur vikum fyrir aðalfund skulu aðildarfélög skila framkvæmdastjórn félagaskrá sinni og staðfestum ársreikningi síðasta árs. Félög sem ekki skila félagaskrá og ársreikningi í samræmi við lög fá 1 fulltrúa á aðalfundi.

Fjöldi félagsmanna reiknast út frá fullgildum félögum skv. gildandi lögum hvers félags.

Einn aðalfundarfulltrúi frá hverju félagi skal tilnefndur í aðalstjórn Öryrkjabandalagsins. Við tilnefningu félags á fulltrúum á aðalfund skal gæta jafnræðis kynjanna.

B. - Dagskrá aðalfundar: 1. Fundarsetning 2. Kjör fundarstjóra og fundarritara 3. Inntaka nýrra aðildarfélaga 4. Skýrslur kynntar eða lagðar fram 5. Reikningar 6. Kosningar 7. Lagabreytingar 8. Ályktanir aðalfundar 9. Önnur mál.

C. - Aðalfund skal halda í október ár hvert og skal hann boðaður bréflega með minnst fimm vikna fyrirvara. Fundarstað og tíma skal tilgreina í fundarboði.

D. - Tillögur um lagabreytingar, sem óskað er eftir að ræddar verði, skulu vera skriflegar og komnar í hendur stjórnarinnar þremur vikum fyrir fundinn. Framkomnar tillögur og skýrsla stjórnar skulu sendar aðildarfélögunum í síðasta lagi fjórtán dögum fyrir aðalfund.

E. - Áður en fundarstörf hefjast skulu fulltrúar leggja fram kjörbréf frá félagi sínu til samþykktar. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála. Lagabreytingar þurfa þó 2/3 hluta greiddra atkvæða til að hljóta samþykki. Atkvæðagreiðslur skulu vera leynilegar, ef þess er óskað.

F. - Á fundinum gefur stjórnin skýrslu um störf sín og leggur fram endurskoðaða reikninga.

G. - Á fundinum skal kjósa fimm manna kjörnefnd sem geri tillögur um fulltrúa í framkvæmdastjórn á næsta aðalfundi bandalagsins. Óheimilt er að kjósa sama einstakling í kjörnefnd oftar en fimm sinnum samfellt.

H. - Á fundinum skal kjósa fimm manna laganefnd sem vinnur að lagfæringum og breytingum á lögum ÖBÍ.

Aukafundur milli aðalfunda.

5. grein

Ef aðalstjórn þykir bera nauðsyn til eða fimm félög óska þess, skal boða til aukafundar þar sem seturétt eiga öll aðildarfélög bandalagsins. Fund skal boða með minnst viku fyrirvara með tilgreindu umræðuefni.

Aðalstjórn og framkvæmdastjórn

6. grein

A. - Fyrir aðalfund bandalagsins skal hvert félag tilnefna fulltrúa sinn í aðalstjórn og einn til vara. Sé fulltrúi félags kjörinn í framkvæmdastjórn á aðalfundi, skal hann eiga þar sæti til loka þess kjörtímabils. Úr hópi aðalstjórnarmanna kýs aðalfundur formann, varaformann, ritara, gjaldkera og 3 meðstjórnendur og mynda þeir framkvæmdastjórn bandalagsins. Kosning er til tveggja ára - þó þannig að annað árið skal kjósa formann og gjaldkera, og 2 meðstjórnendur en hitt árið varaformann, ritara og 1 meðstjórnanda. Einnig skal kjósa 3 varamenn í framkvæmdastjórn til eins árs í senn.

Við kosningu í framkvæmdastjórn, nefndir og starfshópa skal leitast við að gæta jafnræðis kynjanna.

B. - Framkvæmdastjórn afgreiðir mál milli aðalstjórnarfunda og leggur meiri háttar mál í hendur aðalstjórnar. Þá getur aðalstjórn einnig vísað málum til afgreiðslu framkvæmdastjórnar.

C. - Aðalstjórnarfundir skulu haldnir a.m.k. fjórum sinnum á ári. Ef framkvæmdastjórn telur nauðsyn bera til eða 5 félög eða fleiri æskja þess skal halda aðalstjórnarfund á milli reglulegra aðalstjórnarfunda og skal fundarefni þá sérstaklega tilnefnt og til fundarins boðað með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara.

Starfsemi og rekstur

7. grein

Starfsemi bandalagsins byggist á tekjum frá Íslenskri getspá, og opinberum styrkjum. Aðalfundur getur ákveðið aðildargjöld félaganna. Skulu þau þó aldrei vera hærri en 1% af heildartekjum félaganna.

8. grein

A. - Aðal- og framkvæmdastjórn sjá um hag bandalagsins og annast starfsemi þess og rekstur í samræmi við lög þess og samþykktir aðalfundar. Fjárhagslegar skuldbindingar skulu samþykktar af aðalstjórn.

B. - Framkvæmdastjórn ræður framkvæmdastjóra bandalagsins og gerir við hann ráðningarsamning, sem staðfestur skal af aðalstjórn bandalagsins. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri bandalagsins gagnvart aðal- og framkvæmdastjórn.

C. - Framkvæmdastjóri ræður aðra starfsmenn bandalagsins og gerir við þá ráðningarsamning sem staðfestur skal af framkvæmdastjórn.

D. -Í ráðningarsamningum skal nánar kveðið á um starfsvið starfsmanna bandalagsins.

9. grein

Reikningsár bandalagsins er almanaksárið.

Reikningar þess skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda ásamt tveimur félagskjörnum skoðunarmönnum, sem kosnir skulu á aðalfundi bandalagsins.

Endurskoðaðir reikningar skulu liggja fyrir eigi síðar en 1. júní ár hvert.

Önnur ákvæði

10. grein

Aðalstjórn bandalagsins er heimilt að setja reglur um nánari framkvæmd einstakra lagagreina og skulu þær birtar aðildarfélögum þess. Slíkar reglur skulu ávallt rúmast innan ramma viðkomandi lagaákvæðis.

11. grein

Öryrkjabandalag Íslands verður einungis lagt niður berist um það tillaga, sem samþykkt er af meirihluta aðalstjórnar. Skal tillaga sú kynnt við boðun næsta aðalfundar. Tillagan þarf samþykki 2/3 hluta fulltrúa á aðalfundi. Einnig er unnt að boða til sérstaks aukafundar, samanber 5. grein. Verði bandalagið lagt niður skulu eignir þess notaðar í þágu fatlaðra á Íslandi samkvæmt ákvörðun síðasta aðalfundar.

Þannig samþykkt á aðalfundi ÖBÍ 22. október 2011

Senda

Flýtival