Sveitarfélögin veita einnig fötluðu fólki og öryrkjum styrki til náms og tækjakaupa.
Þann 21. febrúar 2019 uppfærði Félagsmálaráðuneytið reglugerðina: „Leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks“.
Grundvöllur reglugerðarinnar er að við „setningu og framkvæmd reglna sinna skulu sveitarfélög taka mið af þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, einkum Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“
Aðrir sjóðir, stofnanir, fyrirtæki og félagsamtök sem styrkja öryrkja og fatlað fólk til menntunar eru flestir listaðir á vef Þekkingarmiðstöðar Sjálfsbjargar.
Aðildarfélög ÖBÍ eru mörg hver með styrktarsjóði til dæmis náms- og ferðasjóði. Styrkirnir eru í boði fyrir félaga en það er þó ekki algilt. Því er vert að kanna hvort og hvað kynni að nýtast þér.
Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur var stofnaður árið 1993 fyrir söluvirði íbúðar sem Sigríður Jónsdóttir arfleiddi ÖBÍ að. Fyrstu styrkirnir voru veittir 11. júní 1995. Námssjóðurinn er í vörslu ÖBÍ.