Styrkir ÖBÍ
Á hverju ári úthluta ÖBÍ réttindasamtök styrkjum sem nema um helmingi tekna samtakanna. Um er að ræða stuðning við húsnæðis- og þjónustulausnir í þágu fatlaðs fólks, rannsóknir, réttindabaráttu, framfarir á málefnasviðinu, nám og velferð fatlaðs fólks.
Styrkirnir skiptast í rekstrarstyrki til aðildarfélaga, styrki til tengdra fyrirtækja, verkefnastyrki, námstengda styrki, styrki vegna innlends hjálparstarfs, styrki vegna samstarfsverkefna og loks aðra styrki.
Námsstyrkir
Markmiðið með námsstyrkjunum er að styrkja örorkulífeyristaka og einstaklinga á endurhæfingarlífeyri til náms sem greitt getur götu þess til atvinnu, sjálfstæðis og þátttöku. →
Verkefnastyrkir
ÖBÍ réttindasamtök veita árlega styrki í verkefni sem tengjast hagsmunum fatlaðs fólks og eru í samræmi við markmið og stefnu samtakanna. →
Rekstrarstyrkir
ÖBÍ veitir aðildarfélögum sínum rekstrarstyrki árlega. Rekstrarstyrkir eru ætlaðir til stuðnings við reglulega starfsemi og rekstur félaganna. →

