Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Réttindaganga ÖBÍ á 1. maí

01.05.2024 @ 12:30 - 15:30

ÖBÍ réttindasamtök hvetja allt fatlað fólk til að fjölmenna í kröfugöngu frá Skólavörðuholti niður á Ingólfstorg þann 1. maí.

Í ár er 101 ár frá því fyrsta kröfugangan á baráttudegi verkafólks var gengin og mikilvægt er að fatlað fólk á Íslandi láti vel í sér heyra og krefjist jöfnuðar og réttlætis.

Safnast verður saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti klukkan 13:00. Gengið er af stað klukkan 13:30 niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi þar sem dagskrá tekur við.

ÖBÍ réttindasamtök bjóða í kaffi að dagskrá lokinni í Sigtúni 42 og mun bjóða upp á ferðir frá Ingólfstorgi. Öll velkomin.

Mætum, krefjumst réttlætis og látum í okkur heyra!

Upplýsingar

  • Dagsetning: 01.05.2024
  • Tími:
    12:30 - 15:30
  • Viðburðir Flokkur:

Skipuleggjandi

Vettvangur