
Stofnfundur hóps eldri félaga innan ÖBÍ verður haldinn í miðrými Mannréttindahússins, Sigtúni 42, klukkan 16:00 þriðjudaginn 20. maí.
Allir félagsmenn aðildarfélaga sextíu ára og eldri velkomnir og heitt á könnunni.
Tilgangur með hópnum er að:
Ljá þessum aldurshópi rödd
Finna út sérstöðu þessa hóps
Hittast og hafa gaman