
ÖBÍ styður áform um að festa í sessi stafræna og rafræna málsmeðferð en leggur ríka áherslu á að tryggt sé að viðmiðum um stafrænt aðgengi fyrir fatlað fólk verði fylgt.
Samkvæmt b-lið 1. mgr. 9. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) ber aðildarríkjum að bera kennsl á og útrýma hindrunum og tálmunum aðgengis fyrir fatlað fólk þar á meðal hvað varðar rafræna þjónustu. Einnig er vísað til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2016/2102 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki sem tekin hefur verið upp í EES samninginn. Minnt er á yfirstandandi áform ríkisstjórnarinnar um innleiðingu tilskipunarinnar og áform um að innleiða evrópska aðgengisstaðalinn EN 301 549 sem inniheldur WCAG staðalinn sem leiðbeinir um hvernig skuli ganga frá vefefni þannig að það sé aðgengilegt öllum.
Samkvæmt frumvarpinu er fjórða markmið þess bætt réttaröryggi með öruggari birtingu gagna og aðgengi að þeim. Skilgreining á hugtakinu aðgengi þarf þó að vera skýrt, sérstaklega þegar um fatlað fólk og aðgang þess að stafrænum lausnum er að ræða. Sé ekki tekið tillit til stoðtækja, túlkaþjónustu eða annarrar aðlögunar – til dæmis með því að fylgja WCAG-staðlinum – verða lausnir einfaldlega óaðgengilegar.
Í umfjöllun um markmið frumvarpsins er einnig áhersla á aukna skilvirkni og betri þjónustu, sem er mikill ávinningur fyrir alla. Stór hópur fatlaðs fólks verður þó, vegna skorts á aðgengislöggjöf, af þeim umbótum sem felast í þessari þróun, þrátt fyrir að fatlað fólk sé einmitt sá hópur sem hefur hvað mestan ávinning af slíkum breytingum. Vel útfærðar stafrænar lausnir geta jafnvel auðveldað fötluðu fólki að nýta sér þjónustu betur en í raunheimum, en núverandi staða gerir það að verkum að margir verða að treysta á varalausnir og umboðsleiðir. Afleiðingin er sú að réttarstaða fatlaðs fólks í stafrænni stjórnsýslu er veik og ótrygg, nema skýr viðmið um aðgengi verði mótuð og fylgt eftir.
Í frumvarpinu er víða gert ráð fyrir notkun stafræns pósthólfs. Í sumum tilvikum teljast tilkynningar sýslumanns til einstaklinga birtar þegar þær eru aðgengilegar í stafrænu pósthólfi. ÖBÍ minnir á að enn er stafrænt pósthólf óaðgengilegt mörgu fötluðu fólki. Að teknu tilliti til þess telur ÖBÍ ekki geta komið til greina að slíkar tilkynningar teljist réttilega birtar þegar þær eru aðgengileg í stafrænu pósthólfi.
Frumvarpið kveður á um að hægt verði að skila gögnum stafrænt en pappírsleiðir verði áfram mögulegar sem í sumum tilvikum getur nýst þeim sem ekki geta nýtt sér stafrænar lausnir. Í fyrsta lagi lýsir ÖBÍ þeirri afstöðu sinni að hið opinbera eigi ávallt að leggja áherslu á að finna leiðir til að tryggja jafnrétti að starfrænum lausnum, sbr. 9. gr. SRFF. Pappírslausnir sem eina leiðin fyrir hluta fatlaðs fólks á meðan fólki verða almennt tryggðar betri stafrænar lausnir geti aðeins verið launs til mjög skammst tíma á beðan beðið er þeirra lausna sem tryggja jafnrétti. Í öðru lagi verður að tryggja að allir séu upplýstir um rétt sinn til að nýta mismunandi lausnir og koma með því í veg fyrir að fatlað fólk fari þá leið að veita öðrum umboð til að nýta stafrænar lausnir að óþörfu. Tryggja verður löghæfi fatlaðs fólks skv. 12. gr. SRFF og koma í veg fyrir að það sé skert að óþörfu enda um grundvallar mannréttindi að ræða.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Rósa María Hjörvar
verkefnastjóri ÖBÍ
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ
Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum varðandi stafræna og rafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum
Mál nr. S-151/2025. Dómsmálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 11. september 2025
ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hverskyns hagsmunamálum.

