
Wikimedia Commons
ÖBÍ réttindasamtök taka undir markmið frumvarps um breytingu á húsaleigulögum um að stuðla að aukinni langtímaleigu, fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð, betri upplýsingum um leigumarkaðinn og aukið gagnsæi í leigusamningum. Samkvæmt nýjustu skýrslu HMS, Staðan á leigumarkaði frá september 2025, eru 46% fatlaðs fólks á leigumarkaði sem sýnir að stór hluti fatlaðs fólks þarf að geta treyst á fyrirsjánleika og örugga langtíma leigu.
Í sömu skýrslu kemur fram að nær helmingur leigjenda (47%) býr við íþyngjandi húsnæðiskostnað, það er að segja að þegar leiga nemur 40% eða meira af ráðstöfunartekjum. Í mánaðarskýrslu HMS fyrir ágúst 2025 er bent á að hækkun húsnæðisbóta hafi í reynd að stórum hluta runnið beint til leigusala í formi hærra leiguverðs.
Raunveruleg stærð íslenska leigumarkaðarins er þó enn óleyst ráðgáta. Mikilvægt er að allir hagaðilar hafi aðgang að áreiðanlegum tölfræðilegum upplýsingum um fjölda leigjenda, dreifingu eftir tegund leigusala og möguleg áhrif á íslenskt samfélag, svo hægt sé að móta tillögur og rökstyðja afstöðu í samtali við stjórnvöld. Í því ljósi er vert að minnast á greiningu HMS sem tilgreind er í greinargerð frumvarpsins, en þar segir að um 37.000 fullorðnir einstaklingar gætu verið vantaldir á leigumarkaði.
ÖBÍ vill koma eftirfarandi athugasemdum og tillögu á framfæri.
Fatlað fólk og almennur leigumarkaður
Samkvæmt niðurstöðu rannsóknar Vörðu rannsóknastofnun vinnumarkaðarins um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi sem kom út í desember 2023, leigja 20,5% fatlaðs fólks íbúð á almennum leigumarkaði. Staða fatlaðs fólks á almennum leigumarkaði er oft erfið en 25% leigjenda í þeim hópi á erfitt með að ná endum saman og 43% á mjög erfitt með að ná endum saman. Vert er að taka fram að samkvæmt sömu rannsókn má greina verulegan mun milli tegundar húsnæðis, en 9% fatlaðs fólks sem er í eigin húsnæði býr við verulegan efnislegan skort á móti 30% fatlaðs fólks á almennum leigumarkaði. Örorkulífeyristakar hafa lítil sem engin bjargráð til að vænka hag sinn og er staða þeirra því talsvert verri og ójafnari öðrum hópum samfélagsins þegar horft er til þeirrar hörðu samkeppni sem ríkir á húsnæðismarkaði. Íbúðarhúsnæði er ekki eins og hver önnur neysluvara enda hluti af mannréttindum fólks að hafa þak yfir höfuðið.
Skattívilanir og stjórnvaldssektir
ÖBÍ styður fyrirhugaðar breytingar á skilyrðum skattaívilnunar leigusala vegna leigutekna og að ekki verði lengur nægjanlegt að leigutekjurnar hafi verið taldar fram í skattframtali til að leigusali njóti skattaívilnunarinnar, líkt tíðkast í dag. Sú aðgerð er gott dæmi um jákvæða hvata sem eru til þess fallnir að stuðla að snörpum viðbrögðum leigusala til samstarfs við stjórnvöld í breyttu lagaumhverfi, enda beinn fjárhagslegur ágóði fólginn í skráningu leigusamninga.
Jafnframt tekur ÖBÍ undir ákvæði frumvarpsins varðandi 3. gr. sem veitir HMS heimild til að leggja stjórnvaldssektir á hvern þann leigusala, sem ekki hefur atvinnu af útleigu íbúðarhúsnæðis samkvæmt lögum um tekjuskatt og brýtur gegn skráningarskyldu laganna. Þó heimildin ein og sér sé vissulega til bóta dugar hún skammt ef henni fylgja ekki aðföng til að vinna markvisst gegn ólöglegri leigustarfsemi. Fjöldi munnlegra leigusamninga, sem jafnframt eru ekki gefnir upp til skatts hér á landi, er óljós en fátt bendir til þess að hægt sé að telja þá alla upp á fingrum beggja handa. Sú staða ýtir undir húsnæðóöryggi viðkvæmra hópa sem hafa oft fáa valkosti um þak yfir höfuðið og neyðast til að þiggja lægsta boð án samnings.
Jafnframt skapar sú staða ójafnvægi í samkeppni milli leigusala sem fylgja lögum og reglum og þeirra sem komast upp með að leigja út óskráða og jafnvel ólöglega íbúðir árum saman. Mikilvægt er að allir leigusalar spili eftir sömu leikreglum, tryggi hollustuhætti og öryggi leigjenda og greiði samfélagslegan kostnað í samræmi við lög og reglugerðir.
Frá árinu 2019 hefur ráðuneyti ferðamála fjármagnað eftirlit sýslumanns í gegnum svokallaða Heimagistingarvakt með skammtímaleigu, með árlegu fjármagni á bilinu 50–70 millj. kr. Heimagistingarvaktin hefur stuðlað að auknu eftirliti með skráningarskyldri heimagistingu, sem hefur m.a. skilað sér í aukinni yfirsýn stjórnvalda yfir raunverulegt umfang starfseminnar. ÖBÍ leggur til að HMS verði tryggt viðeigandi fjármagn sem tryggir stofnunni bolmagn til að starfrækja sams konar frumkvæðis eftirlit gagnvart langtímaleigu og stuðla markvisst að sanngjörnum leigumarkaði þar sem allir spila eftir sömu leikreglum.
ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ
Húsaleigulög (almenn skráningarskylda leigusamninga og breyting leigufjárhæðar)
108. mál, lagafrumvarp
Umsögn ÖBÍ, 8. október 2025

