Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Jólatónleikar Hjálpræðishersins

20. desember @ 19:00
Laugardagskvöldið 20. desember klukkan 19:00 mun Hjálpræðisherinn blása til einstakra jólatónleika þar sem andi jólanna svífur yfir vötnum og fyllir salinn hlýju, friði og eftirvæntingu.
Frítt er inn en frjáls framlög eru vel þegin og mun allur ágóði renna í velferðarsjóð Hjálpræðishersins, þar sem hver króna skilar sér beint til þeirra sem þurfa á stuðningi að halda á þessum viðkvæma tíma ársins.
Húsbandið:
Gunnar Wincke á trommur
Birgir Jóhann Birgisson á bassa
Þórir Haraldsson á Hammond
Siggi Ingimars á gítar
Lárus Óskar Sigmundsson, píanóleikari og stjórnandi
Með þeim koma fram glæsilegir sólóistar:
Stefanía Svavarsdóttir,
Gospelkór Hjálpræðishersins
Lárus Óskar Sigmundsson,
Benjamín Ásmundur Eriksson,
Johanna Tablante,
Siggi Ingimars og Rannvá Olsen.
Þetta verður kvöld fullt af ljúfri tónlist og hjartnæmum stemmningum – tónleikar sem fanga jólaandann og færa hlýju inn í veturinn.
Komdu og njóttu.

Upplýsingar

  • Dagsetning: 20. desember
  • Tími:
    19:00
  • Viðburðir Flokkur: