
ÖBÍ réttindasamtök og Afstaða réttindafélag undirrituðu í dag samstarfssamning sem miðar að því að efla mannréttindi og bæta stöðu fatlaðra fanga á Íslandi. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, og Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, undirrituðu samninginn í Mannréttindahúsinu.
Með samningnum er stigið mikilvægt skref í auknu samstarfi félaganna á sviði réttindabaráttu, ráðgjafar og hagsmunagæslu. Markmiðið er að styrkja stöðu fatlaðs fólks innan fangelsiskerfisins og stuðla að aukinni vitund um réttindi þess, aðgengi að þjónustu og umbætur á aðstæðum.
Samstarfið felur meðal annars í sér sameiginlegt upplýsinga- og fræðslustarf, heimsóknir í fangelsi, ráðgjöf um aðgengismál og skipulagningu viðburða sem styðja við markmið samningsins.
Samningurinn er til þriggja ára og gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2028. Hann verður endurskoðaður árlega með hliðsjón af reynslu, áherslum og árangri samstarfsins. ÖBÍ veitir Afstöðu jafnframt fjárhagslegan stuðning á samningstímanum til að tryggja framkvæmd verkefna og faglega eftirfylgni.

