HúsnæðismálUmsögn

Almennar íbúðir (hækkun stofnframlaga ríkisins o.fl.)

By 24. mars 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök taka undir meginmarkmið frumvarpsins (hækkun stofnframlaga ríkisins) um mikilvægi þess að bregðast við erfiðu fjármögnunarumhverfi óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga vegna hás vaxtastigs og hækkun byggingarkostnaðar. Almenna íbúðakerfið gegnir afar mikilvægu hlutverki við að tryggja tekjulágum hópum, þar á meðal fötluðu fólki aðgengi að öruggu og hagkvæmu húsnæði á viðráðanlegum kjörum. ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum og tillögum á framfæri.

Samfélagslegt hlutverk óhagnaðardrifinna leigufélaga

Gott aðgengi óhagnaðardrifinna leigufélaga að stofnframlögum er forsenda þess að þau geti tekið þátt í uppbyggingu hagkvæmra íbúða fyrir fjölbreytta hópa fólks og stuðlað að húsnæðisöryggi þeirra sem efnaminni eru.

Samkvæmt leiguverðsjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) er meðaltal leiguverðs óhagnaðardrifinna leigufélaga tæplega 186.000 kr. á mánuði í febrúar 2026, samhliða tæplega 252.000 kr. meðaltals leiguverðs einstaklinga og 271.000 kr. meðaltals leiguverði hagnaðardrifinna leigufélaga. Lægsta meðaltal leiguverðs er hjá sveitarfélögunum eða um 182.000 kr. á mánuði.

Vert er að taka fram að sveitarfélögum ber lagaleg skylda að tryggja framboð af leiguhúsnæði, fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem ekki eru á annan hátt fær um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Sú skylda hvílir ekki á óhagnaðardrifnum leigufélögum sem flest eru rekin með stuðning frjálsra félagasamtaka og verkalýðshreyfinga.

ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að beita sér fyrir aukinni hlutdeild óhagnaðardrifinna leigufélaga á húsnæðismarkaði samfélaginu öllu til heilla.

Stofnframlög og sérstakir styrkir

Óhagnaðardrifin leigufélög gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki og dæmi eru um að óhagnaðardrifin leigufélög létti undir með löngum biðlistum sveitarfélaga eftir félagslegu leiguhúsnæði með því að bjóða umsækjendum sem falla undir viðmið sveitarfélaganna upp á hagkvæma leigusamninga á viðráðanlegu verði. Því er brýnt að stjórnvöld kasti ekki krónunni til að spara aurinn og íhugi samfélagslegan ágóða lægri gjaldtöku á óhagnaðardrifin leigufélög og hækkun stofnframlaga styrkja.

ÖBÍ fagnar fyrirhuguðum hækkunum sem heimila ríkinu að veita allt að 23% í almenn stofnframlög, auk hækkunar á sérstöku viðbótarframlagi úr 4% í 5%. Að mati ÖBÍ er fyrirhuguð hækkun jákvætt skref í rétta átt, en þó eru sóknarfæri til að styðja betur við leigufélög sem grípa viðkvæmustu hópana á húsnæðismarkaði.

ÖBÍ tekur undir umsögn Brynju leigufélags [PDF] og leggur til að lækka stimpilgjöld óhagnaðardrifinna leigufélaga niður í 0,8% líkt og einstaklingar greiða í dag auk hækkunar endurgreiðslu virðisaukaskatts til óhagnaðardrifinna leigufélaga úr 35% í 100% vegna viðhaldskostnaðar og vinnu á verkstað. Þá leggur ÖBÍ til að stjórnvöld hækki sérstakan styrk vegna uppbyggingar íbúða fyrir viðkvæma hópa úr 4% í 10%.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ


Almennar íbúðir (hækkun stofnframlaga ríkisins o.fl.)
510. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 24. mars 2026